Þjóðviljinn - 08.07.1953, Qupperneq 6
S) _• ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 8. júlí 1953
JMÓOVIUINN
Otgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíaliataflokkurinn.
JUtstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig.
1». — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 1T
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljane hf.
V. ___________________________________________________ '
Malgögii nazismans
Skyldi ekk: mörgum íslenzkum alþýðumanm verða flökurt af
jesúítaskrifuum Tímans og Morgunblaðsins þessar vikurnar?
Málgögn Thorsaranna og Kókakólabjörns, Vilhjálms Þórs og
Eymdar-Eysteins mega ekki vatni halda vegna ástar á „verka-
tnönnum", samúðar með „baráttu verkamanna“ sem „rísa gegn
kúgun.“ Og Morgunblaðið sjálft, blaðið sem legið hefur hund-
flatt fyrir dönsku auðmagni, brezku auðvaldi, þýzkum nazisma
og bandarískum nýfasisma, er allt í einu farið' að skrifa sem
máigagn „byltinga“, og það alveg sér í lagi byltingar „verka-
manna“. Fyrr má nú rota en dauðrota!
Æsingaskrif Morgunblaðsins sérstaklega undanfarna daga
eru ljós vottur þess. hve verklega er nú gengíð að því, að gera
Sjálfstæðisflokkinn að nýfasistaflokki. Með samskonar æs-
ingum tókst Hitler og félögum hans að brjála mikinn hluta
iþýzku þjóðarinnar, rugla dómgreind manna, ljúga þá fulla um
það sem raunverulega var að gerast í heiminum, æsa fólkið og
hræða þangað til ekkert annað varð eftir en formúlan: Baráttan
pegn kommúnismanum! Um seinan sáu sósialdemókratar og
frjálslyndir borgarar Þýzkalands, sem létu hafa sig til þess að
taka þátt í „baráttunni gegn kommúnismanum“, að undir þessu
vígorði nazisrnans voru falin þau ógnþrungnu áform, sem þýzku
nazistarnir framkvæmdu stig af stigi. Um seinan sást, að það
var ekki einungis „kommúnistarnir“ sem þeir áttu við, Hitler,
Göbbels & Co, heldur allir vinningar alþýöustéttanna; „bar-
utta gegn kommúnismanum" þýddi í raun baráttu gegn öllu
því göfgasta sem mannkynið hefur áunnið á þroskabraut sinni,
þýddi slíka villimennsku, að allar þjóðir heims hryllti við.
Nú er það enn í fersku minni hvemig Morgunblaðið fagnaði
þýzka nazismanum, allt frá byrjun. Sami ritstjórinn situr enn
í stól sínum við Morgunblaðið og sá er tók lygar Göbbels um
ríkisþinghúsbrunann eins og heilagan sannleika, og reyndi taf-
arlaust að nota sér þá „fregn“ til að vega að innlendum stjórn-
málaandstæðingum. Fá borgarablöð heimsins lögðust eins lágt
og Morgunblaðið þá, er það dag eftir dag lapti lygaþvælu þýzku
nazistanna um atburðina í Þýzkalandi. Þá var áreiðanlega
f „byltingu" fagnað af heilum hug í skrifstofunum við Austur-
Etræti, þegar „byltingin" var valdataka Hitlers & Co. Og á-
kaflega fór lítið fyrir samúð með verkalýðshreyfingunni þýzku,
sem barin var niður með blóðugum ofsóknum. Morgunblaðið átti
ekkert samúðarorð hvað þá rosafyrirsagnir á forsíðu, með þeim
tugþúsundum beztu sona og dætra þýzku verkalýðsstéttarinnar,
sem myrt voru á hryllilegasta hátt af þýzkum vinum þess
fclaðs. Og þetta var ekki neitt augnabliks brjálæði hjá Morgun-
blaðinu. Dýrkunin á þýzka nazismanum hélt áfram, (og rit-
stjórinn var sá sami og nú!). Þegar þýzkir kafbátar óðu inn í
Heykjavíkurhöfn nokkrum vikum áður en stríðið hófst, var
aðeins .,útvöldum“ boðið um borð, svo notað sé orðalag
Morgunblaðsblaðamacinsins, sem var einn í hópi „útvaldra".
Þjóðviljinn einn réðist á þessa „heimsókn“, enda munu íslending-
'ar hafa fengið að kenna á kunnugleika þýzkra kafbáta í Faxa-
flóa. Morgunblaðið fagnaði henni.
Þetta eru aðeins dæmi. íslenzku nazistunum var hrósað opin-
fcerlega í Morgunblaðinu. Ýmsir helztu menn Sjálfstæðisflokks-
ins hlýddu hvað eftir annað utanstefnum opinberra áróðurs-
samtaka Göbbels, („Nordische Gesellschaft") og básúnuðu
dýrðarríki Hitlers þegar heim kom. Skal það rakið með dæmum
ef ritstjóri Morgunblaðsins (sami þá og nú) óskar eftir því. Og
loks það, sem mikilvægast er til skilnings á því, hvers vegna
Morgunblaðið tekur enn á ný að beita bardagaðferðum naz-
istanna í tilraun að brjála fólk og ljúga að því um það sem er
að gerast í lieiminum:Sjálfstæðisflokkurinn og Morgunblað hans
þjónar nú bandaríska nýtasismanum undir sama vígorði og
þýzka nazismanum áður: „Barátta gegn kommúnismanum". Og
enn sem fyrii er þetta kjörorð aðeins skjálkaskjól spilltustu arð-
ránsklíkna og afturhalds gegn fólkinu. Með valdatöku Bjarna
toingó í Sjálfstæðisflokknum hefur hann fengið aðstöðu til að
raða aðalsprautum íslenzku nazistanna, Birgi Kjaran, Sigurjóni
Sigurðssyni og öðrum ámóta í áhrifastöður, og er áberandi hve
Bjarni með hjálp þessara og annarra fylgisveina er að gegnsýra
flokkinn, og sérstaklega áróður hans, með nazistaaðferðunum,
niótandi til þess innilegrar velþóknunar bandarísku húsbænd-
anna, sem eru að brjála bandarísku þjóðina með sömu vígorðum,
vígorðum Göbbels og heimsauðvaldsins um „baráttu gegn komm-
rúnismanum.“
Þorvaldur Þórarinsson:
ítján ára kosningaréttur og
kjérgengi íslenzkrar æsku
Þegar góðir lýðræðissinnar
tala um löggjafarþing hafa þeir
í huga samkomur þar sem
kjörnir fulltrúar þjóðarinnar
stjórna ýmsum málum hennar.
Til þess er þá um leið ætlazt
að kosningaréttur og kjörgengi
sé mjög rúmt og aðeins bundið
við einstaklinga, konur jafnt
sem karla, en ekki við eign,
stétt eða stöðu, og að hver
borgari hafi aðeins eitt atkvæði,
og sem allra flestir menn at-
kvæðisréttinn. Samkvæmt þessu
er gert ráð fyrir að þjóðin hafi
sjálf æðsta valdið, að þingmenn
séu aðeins starfsmenn hennar
og þjónar, en ekk; herrar, og
þaðan af síður öðrum háðir.
Nú er þó skemmst af að segja
að þessu fer oft á aðra lund í
auðvaldstþjóðfélagi og öðrum
stéttarþjóðfélögum þar sem þó
eiga að heita löggjafarþing.
Við þekkjum að nokkru héðan
af alþingj hvernig reyndin vill
verða, Valdið er ekki í höndum
þjóðarinnar nema rétt á papp-
írnum: eigendur atvinnutækj-
anna og fjármagnsins ráða nær
öllu og taka flestar ákvarðanir
sem máli skipta. Leggi ríkis-
stjórnin eitthver.t af slíkum
málum fyrir alþingi er það
venjulega aðeins ger-t til að
. sýnast, til að gefa afgreiðslunni
einskonar þingræðis- eða lýð-
ræðisblæ, en atkvæðavélar rík-
isstjórnarinnar rétta í hlýðni og
blindni upp hendurnar í sam-
ræmi fyrir fyrirfram gerða á-
kvörðun þeirrar auðkliku, er-
lendrar eða innlendrar, sem „á
málið“ í það skiptið. Þetta er
kallað í 48. grein stjórnarskrár
okkar að alþingismenn séu
„eingöngu bundnir við sann-
færingu sína og eigi við neinar
reglur frá kjósendum sínum.“
Þesskonar alþingi er aðeins
skripaleikur, grímudansleikur,
þar sem þingmenn stjóniar-
innar, málaliðsmenn og at-
kvæðavélar valdsins, eru látnir
koma fram j ýmiskonar aðlað-
■andi gerfi, en fulltrúum and-
stöðunnar er leyft að svala for-
dild sinn; með því að „tala sig
dauða“ i ræðum sem fáir hlusta
á og enn færri sinna. En úti
fyrir dyrum hússins stendur
þjóðin sem þjóðskáldið nefnir
„alþingi torgsins" og minnir
stundum á sig með þvi að
syngja eitt og eitt œttjarðar-
kvæði þegar mest liggur við og
sannar enn sitt „afl til að
þjást“ með því að þola möglun-
artaust bæði kylfur og táragas
í ábæti á aðrar veitingar vald-
hafanna. Á hana hlustar enginn
úr ihópi valdamanna.
iEf nefna ætti þá tvo aldurs-
flokka íslenzku þjóðarinnar
sem eru réttindasnauðastir fer
ekki á milli mála að það eru
gamalmennj og æskufólk. Gam-
almenni hafa að vísu þau póli-
tísk réttindi sem hér tíðkast,
en harla lítil efnahagsleg; fjár-
hagslegt athvarf þeirra er smán
almannatryggingalaganna. En
þó er æskulýðurinn ennþá ver
settur: hann skortir bæði póli-
tísk og efnahagsleg réttindi;
hann er ofurseldur atvinnuleysi
og annarri eymd auðvaldsþjóð-
félagsins, skattskvldur fjand-
samlegu rikisvaldi við hvert
fótrnál, en atkvæðalaus um all-
ar álögur og réttarskerðingar.
Hann hefur í stuttu máli hvorki
kosningarétt né kjörgengi.
Þetta greinarkorn er skrífað
til þess að mlnna æskufólk á
það í sínu eigin málgagni að
eitthvert helzta réttlætismálið
sem stendur er að lækka kosn-
ingaréttar- og kjörgengisaldur
ofan í 18 ár. Með starfi sínu í
verkalýðsfélögum og öðrum al-
þýðusamtökum getur æskulýð-
urinn auðveldlega séð svo um
að þessi réttarbót verði tekin
upp í nafrstu stjórnarskrá. 'En
iþá verður æskan að láta til
sin taka þegar í stað. Hér á
landj eru starfandi samtök og
jafnve.l heilir stjórnmálaflokkar
semvilja láta breyta svo stjórn-
arskránni að hér verði komið
á einhverskonar fasisma. í þess-
konar þjóðfélagi yrði hlutur
æskunnar enn verri en nú, því
að þá fengju æskumenn að
'híma kauplausir í herþjónustu
nokkur ár áður en þeim yrði
kastað út á gadd atvinnuleysis-
ins. Allir hugsandi menn hljóta
að sjá og viðurkenna hvers-
konar framtíð þetta skapar.
Hver á að stofna hin íslenzku
heimili ef engir æskumenn hafa
hér auraráð nema fáeinir auð-
kýfingasynir og útlendir her-
menn? Enginn getur svo öruggt
sé komið í veg fyrir svo hörmu-
lega þróun nema æskufólkið
sjálft, piltar og stúlkur. En t'il
þess þarf það að fá full póli-
tisk og efnahagsleg réttindi.
Og þegar unga fólkið er búið
að öðlast pólitísku réttindin
mun reynast auðveldara að
afla sér hinna, og spoma við
yfirgangi valdhafanna.
Sumir vilja halda því fram
að átján ára gamalt fólk muni
skorta þekkingu, reynslu og á-
byrgðartilfinningu til þess að
fara að taka beinan þátt í
síjórn landsins sem frambjóð-
endur og kjósendur, alþingis-
menn og ráðherrar. Sérstaklega
eru sumir hræddir við þennan
ímyndaða skort á áb.vrgðartil-
finningu. Við þetta er ég ó-
hræddur. Ég man það glöggt að
talsvert var einu sinni um það
rætt hér hvort þorandi væri
að af-nema 35 ára aldurstak-
markið sem hafði verið og þótti
sjálfsagt við landskjörið, og all-
mikið vafamál var talið að
lækka hinn almenna kosninga-
réttaraldur úr 25 árum í 21 ár.
Ekki verður séð að þessar
breytingar hafi orkað neinu
ill'u í íslenzkum •stjómmálum,
eða að þær hafi lamað þjóðlíf-
ið. Og eitt má fullyrða: ekki er
að sjá að 18 ára kosningaréttar
og kjörgengisaldur hafi slaðið
Sovétríkjunum fyrir þrifum.
Röksemdir i þessa átt hafa ekki
bitið á mig síðan árfð 1930 er
ég las. <68 gr., í stjórnarskrá
'Ráðstjórnar-Rússlands um þetta
efni. En því má bæta við um
ábyrgðartilfinninguna að æsku-
fólk er yfirleitt mjög samvizku-
samt og orðheldið. Það rækir
nám sitt og önnur störf yfirleitt
mjög vel. Því miður verður
ekki fullyrt af neinni vissu
eða sannfæringu að hinir æfðu
og ,,ábyrgu“ stjórnmálamenn
reiði slíkar dyggðir í þverpok-
um. Um þekkingu æskulýðsins
er það að segja að hún er auð-
vitað miklu meiri en fullorðið
fólk gat dreymt um til skamms
itíma. Margir menn eru orðnir
stúdentar 18 ára. Samkvæmt
landslögum hafa allir æsku-
menn lokið gagnfræðaprófi
fyrir 18 ára aldur. Um reynsl-
una og rétt og skyldur á öðr-
um sviðum má geta þess að
sextán ára gamalt fer þetta
fólk áð greiða alla þá nef-
skatta sem hinurn „reyndu“
hefur tekizt að finna upp af
'hugviti s'ínu. Og 16 ára gamalt
fó,lk á rétt á sömu launum og
aðrir ef vinnu er að fá. Það
getur gengið í verkalýðsfélög
og notið þar fullra réttinda, og
enginn neitar því að Verka-
mannafélagið Dagsbrún í
Reykjavík er ólíkt virðulegri
og þýðingarmeiri stofnun held-
ur en „alþingi" hernámsflokk-
anna var 30. marz 1949, svo
að alkunnugt dæmi sé tekið.
Það er bæði meiri vandi og
vegsemd að vera meðlimur i
verkalýðsfélagi heldur en venju
legur alþingiskjósandi. Allir
vita líka vel að krafan um 18
ára kosningaréttar- og kjör-
gengisaldur þarfnast ekki neinn
ar lögfræðilegrar eða sögulegr-
ar rétt'.ætingar. Nóg er að geta
þess að síðustu að 18 ára gam-
alt fólk er nú miklu betur að
sér um þjóðfélagsmál hverskon-
ar en þrítugir Samvinnuskóla-
piltar voru fyrir svo sem tveim
áratugum.
Ef satt skal segja er allt of
mikið til af ■svokölluðum „á-
byrgum“ mönnum; mönnum
sem þora i hvorugan fótinn að
stiga fyrir ábyrgðarti’.finningu
og halda að gólf auðvaldsins
svigni ■ eða jafnvel brotni við
hvert skref, sem stigið er fram
á við. Ménn geta' ekki þverfót-
að fyrir svona körlum til 'hægri
og vinstri. Þeir minna mig allt-
af á igrátittlinginn sem Jónas
Hallgrimsson segir frá i ibréf-
inu til Stéénstrup. Þessi fugl
svaf alltaf á bakið með annan
fótinn upp í loftið af einskærri
varúð, svo að himinninn dytti
ekki ofah á hann á meðan
hann svæfi. En hver.su ending-
argóð mun sú varúð reynast
þegar æskulýðurinn fer að
Framh. á 11. siðu.