Þjóðviljinn - 25.08.1953, Page 12

Þjóðviljinn - 25.08.1953, Page 12
Mannvirkin við írafoss og vatnið fyrir ofan st'flugarðinn. Myndin var tekin þegar vatninu var hleypt á fyrir nokkrum dögum til reynslu. Þannig kemur vatnið til með að líta út þegar stöðin er komnn í gang. (Ljósmyndari Sig. Norðdahl). IÞegar haítið í Sogitiu par sprengt: Boraðar 50 hoEur og nofuð 500-600 kg. af sprengiefni Nýja háspennulinan gefur einnig flutf raf- magn frá vœntanlegri virkjun Efri fossa Haftið milli farvegsins og arinnar í nýju Sogs- virkjuninni var sprengt aðfaranótt s.l. fimmtudags. Hafði verið gert ráð fyrir að verkið tæki tvær nætur, þ.e. fimmtudags- og föstudagsnótt en sprengingin og sú vinna sem framkvæma þurfti í sambandi við hana gekk það vel að verkinu varð lokið á fimmtu- dagsnóttina. Boraðar voru 50 holur í haft- ið og notuð 500-600 kg. af sprengiefni. Sprcngt var með stuttu millibili en ekk) í öll- um holum í senn. Reyndist haftið 400 teningsmetrar. Þeg- ar sprengingunum var lokið komu tvær stórar jarðýtur og ruddu burt mold og grjóti. Talið er mögulegt að sprengja þurfi eitthvað í ánni sjálfri en ekki hefur enn verið gengið fyllilega úr skugga um það. Vatnið stendur nú í göng- unum eins og það verður þegar stöðin tekur til starfa, sem gert er ráð fyrir að verði seint í september. Búið er að reyna stíflulokurnar og hefur ekkert athugavert komið fram í sam- bandi við þær. i'f'iuIJ' það miðaður að hún geti flutt til vðbótar rafmagn frá vænt- anlegri virkjun efri fossanna. Kvað rafmagnsstjóri þetta á misskilningi byggt. Nýja línan gæti flutt 96 þúsund kilóvött og því gert ráð fyrir að hún taki auðveldlega allt Sogið. Stjórn Pella f ékk traust Rikisstjóm Giuseppe Pella úr kaþólska flokknum fékk í gær traustsyfirlýsingu neðri deildar ítalska þingsins. Með stjórninni greiddu atkvæði kaþólskir, tveir smáflokkar og konungssinnar, á móti kommúni'star og Nennisós- íalistar en hjó sátu nýfasistar og sósíaldemókratar. Pélla hefir skuldbundið sig til að biðjast lausnar fyrir stjóm sína strax og hann hefir komið fjárlögun- um í gegnum þingið. IMmílím í sL viku að- efns 1462 tunnur 15 skíp bæitu við sig smáslöttum — HeildaraHiim orðinn 272 þúsud tunnur Vikuna 16.-22. ágúst hömluðu ógæftir síldveiðum við Norður land. Vikuafliuii varð aðeins 1462 uppsaltaðar tunnur, 105 má síld og 50 mál ufsi I bræðslu og 92 tunnur voru frystar. Línan gerð fyrir 96 þúsund kílóvött. Þegar blaðið fékk þessar upp- lýsingar hjá Steingrími Jóns- syni rafmagnsstjóra notaði það tækifærið og spurðist fyrir um hvað hæft væri í þeim orðrómi að styrkleiki nýju Sogslínunn- ar, sem verið er að leggja hingað til bæjarins, sé ekki við íslendingi boðin skólavist í Danmörku Danska ríkið hefur ákveðið að veita einum íslendingi ókeypis skólavtst við danskan lýðháskóla í vetur. Fram að þessu hafa Svíar, Norðmenn og Finnar veitt nokkra slí'ka nómsstyrki; fyrir milligöngu Norræna félagsins, en iþetta er fyrsta sinn, sem nárns- manni er boðið til dvalar í dönsk um lýðhóskóla. Umsóknir um skólavistina í Danmörku ber að senda til Nor- ræna félagsins í Reykjavík fyrir 5. september n. k. ósamt próf- skírteinum og meðmælum. Heildaraflinn í vikulokin var þessi. (í svigum er getið aflans á sama tíma í fyrra). Saltsíld 148.201 tunna, upp- saltað (32.177). Soffía og Gestur skemntfa norðanlands og ausfan Hin vinsæla dægurlaga- og gamanvísnasöngkona Soffía Karlsdóttir og hinn þjóðkunni listamaður Gestur Þorgrímsson fara í dag til norður- og aust- urlands og munu heimsækja þar helztu staði, eftir því sem tími vinnst til. Með aðstoð Lofts Guðmunds- sonar blaðamanns ofl. hafa þau byggt upp samfellda dagskrá, sem vænta má að þyki all ný- stárleg. M.a. flytja þau skop- stælingu á óperu, útvarpsdag- skrá, sem öll en sungin, þátt frá sameinuðu þjóðunum, skop- stælingu úr Rómeó og Júlíu, og sitthvað fleira. Með í förinni er hinn kunni tónlistarmaður Páll Kr. Pálsson, sem annast píanóleik. 'Bræðslusíld 117.138 mál (27.417). Fryst síld 6.616 tunnur (7.766). Þar sem aðeins 15 þieirra skipa, sem tekin voru upp í síðustu skýrslu, bættu við sig smáslöttum í vikunni, þykir ekki ástæða til þess að birta veiðiskýrsluna í heild að þessu sinni, en þess skal getið', a'ð röð fjögurra aflahæstu skip- anna er óbreytt. ViMiptastefna Framhald af 1. siðu. að þeirri niðurstöðu að ekki sé hægt að eiga viðskipti við Bandaríkin og samtök Vestur- veldanna því splundrast af efnahagslegum ástæðum. Eisenhower hefur látið birta. skýrslu Douglas án nokkurrar umsagnar frá eigin brjósti. Forsetinn hefur heitið því að vinna að lækkun bandarískra tolla en þeir tveir menn, sem hann hefur skipað í tollanefnd ríkisins eru kunnir fyrir fyjgi við hátollastefnuna. JÓÐVIUINN Þriðjudagur 25. ágúst 1953 — 18. árgangur — 139. töluhlað Hetdur ríklssfgértw að Það er orðinn háttur ríkisstjórnarinnar og einokunar- herra hennar að reka upp mikil gól í hvert sldpti sem Þjóðviljinn flettir ofan af nýjum dæmum um stjórn- afurðarsölumálanna. Er því haldið fram að það sé þjóð- hættulegt að skýra frá lineykslunum opinberlega. Þeir sem skipti við okkur heiðarlega megi fyrir engan mun fá að vita, hversu grátt við erum leiknir af öðrum; ríldsstjórnin sé eins og pókerspilari og sldpti mestu að engimi fáí að vita hvað hún hefur á hendi. Gengur þetta jafnvel svo langt að Morgunblaðið heklur því fram í fyrradag, að það skipti engu máli þótt hin stórfelldustu afglöp séu unnin vitandi vits, aðeins of enginn fær að vita það. Þessar afsakanir sýna bezt hversu varnarlaus ríkis- stjórnin er. Enda er sú kenning eins fávísleg og hugsazt getur að hægt sé að stunda viðskiptasamninga eins og pókerspil, að halda því fram að viðskiptaþjóðir okkar fylgist ekki með því hvernig samninga við gerum í heild! Ef ríkisstjórnin lætur eina þjóð traðka á rétti Islendinga er hún að bjóða öðrumi að gera slíkt hið sama; það er verknaðurinn en ekki umtalið sem máli skipttr, og þjóðarnauðsyn að fylgzt sé sérstaklega með afurðasölumálunum og framkvæmd þeirra, svo endem- isleg sem hún hefur verið árum saman. En þá tekur fyrst í hnúkana, þegar lélegir samningar eru látnir hindra það að unnið sé að því aS framkvæma þá sem hagstæðir eru. Þannig er ástatt um karfavið- skiptin eins og raldð var í síðasta blaði. Iíarfinn liefur verið seldur langt undir framleiðsluverði til Bandaríkj- anna, og togararnir hafa fengið svo lágt verð fyrir karfann að við stöðvun hefur legið af þcim sökum. Og nú hefur það verið hindrað vikum saman að togararnir veiddu karfa upp í mjög hagstæða samninga við Sovét- ríkin — vegna þess að einokunarherrarnir krefjast þess að hagnaðurinn af þeim sé notaður til að bæta upp hall- ann af Bandaríkjaviðskiptunum. Er hægt að komast öilu lengra í endileysunni? Flugvélin lenti í grjóturð og brann til ösku Eirnt maður lét lífið en 9 björguðust meira og minna slasaðir Um kl. 1.45 aðfaranótt lijugardagsins, varð það slys á Kefla- víkurflugvelli, að bandarísk herflugvél af gerðinni Boeing C-S7 Stratofreighter fórst í lendingu. Með flugvélinni voru 10 manns og sluppu 9 lifandi úr flugvélinni en einn lét lífið. Þeir sem björguðust munu allir hafa verið meira eða minna brendir og slasaðir. Sér- stök rannsóknarnefnd var skip- uð til að rannsaka tildrög slyss- ins. Samkvæmt þeim fregnum sem Þjóðviljanum hefur tekizt að afla sér af atburði þessum, varð slysið með þeim hætti, að flugvélin sem var af stærstu gerð herflutningaflugvéla, lenti í grjóturð um 30 metra frá flugbrautinni sem hún hugðist að taka. Mun flugmaðurinn hafa gefið henni inn benzín og ætlað að ná henni þannig upp úr urðinni, Tók vclin við það tvær eða þrjár veltur og varð fljótlega alelda. Er það álit kunnugra að ef vélin hefði verið stöðvuð þegar í stað hefði verið unnt að afstýra því að í henni kviknaði og þar með koma í veg fyrir manntjón. Við inngjöfina og velturnar sean henni fylgdi kviknaði strax í benzíngeymum flugvélarinnar og stóð hún þegar í björtu báli með þeim afleiðingum er fyrr getur. Flugvélin var að koma frá Bandaríkjunum. Sjú Enlæ uro Kóreuráðstefnuna Útvarpið í Peking flutti í gær yfirlýsingu frá Sjú Enlæ, forsæt- isráðherra Kína, um fyrirhugaða Kóreuráðstefnu. Sagði hann að þar yrði fyrst af öllu að ræða ■ um brottför iaills erlends herliðs frá Kóreu og sameiningu lands- ins. Þing SÞ ræddi ráðstefnuna enn í gær. Engir nema fultrúar Suð- ur-Ameríkuríkja hafa stutt l>á af- stöðu Bandaríkjastjórniar að meina Inctlandi aðild að ráðstefn- unni, en talið er að það muní nægja til að tillagan tim aðild Indlands nái ekki þeim tveim þriðju atkvæða, sem þarf til gildrar afgreiðslu mála á þing- inu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.