Þjóðviljinn - 17.09.1953, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 17. septembeí- 1953
þJÓÐVIDINIð
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Kitstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
S’réttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús 'íorfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Simi 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði i Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Atliygiisvcrður áhugi
Blöð stjórnarflokkaana hafa sýnt athyglisverö’an áhuga
fyrir því að vara Alþýöuflokkinn við því aö taka jákvæða
afstöðu til þess sam'vinnutilboös er Sósíalistafl. sendi
honum aö afstöðnum alþingiskosningunum í sumar. Hafa
Morgunblaðið, Vísir og Tíminn variö miklu rúmi til að
skýra það út fyriir forustumönnum Alþýðuflokksins hve
mikilsvert sé aö þeir gæti þess vandlega aö misstíga sig
ckki, þar sem fullvíst sé aö samstarf verkalýösflokkanna
beggja yrði til þess eins í reynd að „eyðileggja Alþýðu-
flokkinn“ eins og koimizt tr að orði í Tímanum í gær.
Þessi umhyggja stjórnarflokkanna fvrir velferö Alþýöu-
fJokksin? er skiljanlegri en. ella þegar það er haft í huga,
aö sjálfir hafa þessir atturhalds- og auðstéttarflokkar
notfært sér til hins ýtrasta þá sundrungu sem verið hefur
í rööum verkalýðsins og annarra vinstri sinnaðra manna
í landinu. í skjóli hennar hefur verið gengið á hlut verka-
manna og launþega yfirleitt á þann hátt sem alþjóð er
kunnur og óþarfi er að rekja nánar. En að sama skapi
hefur púki auðvalds og aíturhalds færzt svo í aukana aö
hin vinnandi alþýða er að sligast undir þunga ófreskj-
unnar.
Fram að þessu hefur fíckkum og hagsmunasamtökum
auðburgeisanna tekizt að virkja forkólfa Alþýðuflokksins
i þjónustu sína. Samvinna Alþýðuflokksins og stjórnar-
flokkanna í verkalýöshreyfingunni á höfuöþáttinn 1 þeim
árangri sem auðstéttin hefur náð í gagnsókn sinni gegn
verkalýöshreyfingunni síðan 1948. Fram aö þeim tíma var
alþýöan í sókn, bætti kjör sín og aöstöðu alla ár frá ári
og hafði tekizt aö afla sér einna beztu lífskjara sem nokk-
urri verkalýðshreyfingu auðvaldsheiimsins hafði þá tekizt
að knýja fram. Þetta gcrðist meðan sameiningarmenn
höfðu á hendi forustu Alþýðusambandsins og stjórn stétt-
ai'baráttunnar. Meö samfylkingarstjóm auöstéttarflokk-
anna og Alþýðuflokks’ns hefur allt hins vegar sigið á ó-
gæfuhliö og kjör verkafólksins verið stórlega rýrð.
Engan imdrar þótt auðstéttin og stjórnmálasamtök
hennar æski þess að halda þessari aðstööu óbreyttri.
Sundrung verkalýðsins og samvinna Alþýöuflokksins við
auðstéttina hefur vissulega fært henni mikilsveröa ár-
angra. Og þessir árangrar hafa ekki aöeins náðst á sviði
hagsmunabaráttunnar heldur og á vettvangi stjórnmál-
anna. Síöustu alþingiskosningar sýndu svo ljóst sem veröa
Tnátti að sundrung verkalýðsins í átökum stjórnmálabar-
áttunnar hrindir vonsviknu alþýðufólki og millistéttar-
fólki yfir 1 fang andstæðinganna. Úrslitin á ísafirði, í
Hafnarfirði og Siglufirði voru talandi tákn um þessa í-
skyggilegu þróun.
Alveg á sama hátt og það er í saimræmi við hagsmuni
auðstéttarinnar og flokka hennar að halda þessu ástandi
óbreyttu er það beiniínis lifsspursmál fyrir verkalýösstétt-
ina og aila albýðu að á þessu verði sem skjótust og gagn-
geröust breyting. Og að því marki er ekki til nema ein
leið: Aö verkalýðsflokkarnir, Alþýðuflokkurinn og Sósíal-
istaflokkurinn, hefji samstarf í verkalýðshreyfingunni og
í stjórnmálabaráttunni aö framgangi sameiginlegra hags-
munamíJa alþýöustétíanna.
Það er vissulega fagnaðarefni að formaður AlþýÖu-
flokksins hefur fyrir skömmu lýst því yfir í blaöi sínu,
aö tilboð Sósíaiistaflokksins um samstarf verði lagt fyrir
félög Alþýðuflokksins og rætt innan þeirra á þessu hausti.
Eru þetta aðrar og vænlegri undirtektir en fyrri sam-
starfstilraunir sósíalista hafa hlotiö af hálfu forráða-
manna Alþýöuflokksins. Og það eru án efa þessir vax-
andi möguleikar á samstarfi verkalýðsflokkanna í staö
innbyröisátaka og sundrungar sem er orsök þess óróa og
uggs sem gætir í skrifum málgagna stjórnarflokkanna.
Á bak við aðvaranir og heilræðin til Alþýðuflokksins býr
ótti auðstéttarinnar og flokka hemiar um aö sá tími kunni
brátt að vsra liöinn að íhaldspúkanum takizt að fita sig
á sundrungu alþýöunnar og vinstri aflanna.
Gisfl þrlsvar fcmgelsi Bretci,
er xiá í forsæti á þingi S1
Fru Vijaya Lakshmi Pandif gegnir œSsfa
embœffi, sem kona hefir hlofiS á alþjóS-
legum veffvangi
VIJAYA LAKSHMI PANDIT
Þegar gengið var til kosn-
ingar þingforseta á fyrsta
fundi áttunda allsherýarþings
Sameinuðu þjóðanna í fyrra-
kvöld, var vitað að fulltrúar
tveggja Asiuríkia komu einir
til grein.a að ná kosningu.
Annar þeirra var Wan Wait-
hayakon prins frá Thaiandi,
hinn indverska konan frú
Vijaya Lakshmi Pandit. Að
lokinnj •leynilegri .atkvæða-
greiðslu kom á daginn að frú-
in hafði orðið hlutskarpari,
hún var kjörin þingforseti
með 27 atkvæðum en prinsinn
fékk 22. Vijaya Lakshmi er
löngu víðkunn fyrir einarðan
málflutning fyrir land sitt á
mörgum þingum SÞ en prins-
inn frá Thailandi er þekktast-
ur fyrir fylgispekt við Banda-
ríkin. Fulltrúar auðsveipustu
fylgiríkja Bandaríkjanna, sem
einn'g eru flest i hópi þeirra
ríkja þar sem réttindamál
kvenna eru skemmst á veg
komin, má-ttu ekki til þess
hugsa að kona, kunn fyrir ó-
amerískar skoðanir sínar á al-
þjóðamálum, ætt,j að sitja i
forsæti yfir þeim á þingi þjóð-
anna. Kosning Vijaya Lakshmi
er því mikjil sigur fyrir híut-
leysisstefnu Indverja í heims-
átökunum og fyrir jafnrétti
kvenna við karla.
Vijaya Lakshmi er systir
Jawaharial Nehru, forsæt-
isráðherra Indlands. Faðir
þeirra var auðugur lögfræðing-
ur af stétt brahmína, sem er
ein hin æðsta meðal hindúa.
Börnin fengu beztu menntun
sem völ var á bæði í Ind’andi
og Bretland; og lifðu við alls-
nægtir. En þegar Vijaya
Lakshm; var ívítug kynntist
fjölsky'dap Mahaíma Ganöbi,
sem þá hafði um nokkur ár
fiutt boðskap sinn um baráttu
gegn Bretum fvrir sjálfstæði
Indlands. Það skipíi engum
togum að systkinin og faðir
þeirra köstuðu sér út í stjóm-
málabaráttuna og komust þar
brátt í fremsu röð sakir ó-
venjulegra hæfileika. Gagngerð
breyting varð á lifi Vijaya
Lakshmi. Öll menntun hennar
og þjálfun hafði beinzt að því
að gera hana eftirsóknarverð-
an kvenkosit á forna vísu, góða
og auðsveipa eiginkonu, scm
alla ævi yrðj nokkurs konar
sjálfviljugur fangi á heimili
bónda síns. Vijava Lakshmi
hafnaði þvi hlutverki eftir-
minnilega með þvj að strjúka
að heiman með stúdent, sem
ofan á al!t annað var mú-
Erlend
tíðindi
hameðstrúarmaður. Hjónaband
þeirra fór þó brátt út um
þúfur.
Strokið að heiman var merki
þess, að Vijaya Lakshmi
hafði fyrir fullt og allt brotið
af sér hlekki aldagamallar
hefðar og trúarlegra hlevpi-
dóma. Eftir ferð til Evrópu
giftist hún manni af sinni eig-
in stétt en lét ekki loka sig
inni bak við hlekki í dyragætt-
um eins og tíðkaðist hjá brahm-
Inum, Hún eignaðist þrjár dæt-
ur en lé>t ekkí heimilisstörfin
hindra sig i þáíttöku í opin-
beru Kfi. Daginn eftir að hún
haíði í fvrsta skipti fengið móð-
ur sína til að hætta sér á fund
Þjoðþmgsf'.okksins, sem haldinn
var til stuðnings v:ð chlýðnis-
baráttu Gandhis gegn Bretum
árið 1932, handtók brezka lög-
reg’an hana ásamt yngri systur
hennar c.g varpaði þeirn í farig-
elsi. Bróðir heirra o? faðir áttu
þá laiíga vist í tugthúsum
Breta að baki. í betta skipti
sat Vijaya Lakshmi ár i fang-
elsi en hún áttj aftir að kynn-
ast dýflissum Breta betur.
.(JViPÍnber störf tóku nú að
‘LPhiaeast á hana. Hún var
kjör.'n i borgarstjúrn Aliaha-
bad árið 1936. Næsta ár varð
hún fyrst kvenna til að gegna
ráðberrastöðu á Indiandi. Fór
hún með heilbrigðismál og
sveitarstjórnarmál í ráðuneyti
Þjóþingsflokksins 'í Samein-
uðu fylkiunum. Bretar ráku
hana frá störfum eins og aðra
ráðherra Þjóðþingsflokksins ög’
árið 1940 fangelsuðu þeir hana
í annað sinn fyrir að mótmæla
því að Bretar lýstu yfir striðs-
aðiid Indlands að Indverjum
forspurðum. Enn var henni
varpiað í fangelsi 1942. Bretar
sópuðu þá öllum leiðtogum
sjálfstæðishreyfingarinnar sem
þeir náðu til i fangelsin. I
þetta skipti stóð tugthúsvist
Vijaya Lakshmi í þrettán mán-
uði. Og nú létu Bretar
sér ekkj nægja að taka Þau
systkinin úr umferð, dætur
Vijaya Lakshmi fengu nú
einnig að kynnast fangaklefum
nýlendustjórnarinnar. Á stríðs-
árunum dó maður hennar.
Að stríðinu loknu fékk Ind-
land sjálfstæði og Nehru for
sætisráðherra skipaði systur
sína formann indversku sendi-
nefndarinnar á fyrsta þing SÞ.
Hún vakti Þar strax athygli,
fyrst fyrir útlit sitt, það sópaði
að þessari silfurhærðu fríðu
konu, sveipaðri í litskrúðugt
sarí, skikkju indverskra kvenna
innan um dökkklædda dipló-
maíana. Ekki þótti minna til
málflutnings hennar koma,
fulltrúar Suður-Afríku á þing-
um SÞ hafa .aldrei borið sitt
bar eftir þá ráðningu sem
Vijaya Lakshmi veitti þeim
á þessu fyrsta þingi fyrir með-
ferðina á þeldökku fólki í Sið-
ur-Afríku. Meira að segja Jan
heitinn Smuts taldi sér ekki
ráðlegt að ciga orðastað við
þessa indversku ekkju. Hún
iagði gi'undvöllinn að þeirri.
forystu fyrir hlutlau.su ríkjun-
um, sem Indland hefur jafnan
hafit á þingum SÞ. Strax i
fyrstu ræðum sínum benti hún
á, að aldrei gæti verið um
tryggan frið að ræða í heim-
inum fyrr en Vesturveldin hafa
gefið frelsþ nýlenduþjóðunum,
sem þau ráða nú yíir.
4rið 1947 varð Vijaya Lak-
shmi sendiherra Indlands í
Moskva og gegndi því embætti.
þangað til 1949. Frá Moskva
fór hún beina leið til Wash-
ington og var sendiherra Ind-
lands hjá Bandiarikjastjórn
þangað til 1951. 1 fj'rra veitti.
hún forystu fjölmennri, ind-
verskr: menntamannasendi-
nefnd, sem ferðaðst víða um
Kina í boði stjórnarinnar þar.
Hún hef'ý þvi víðtæka reynslu
af m.illirikjamálum og persónu-
leg kynni af ö’lum helztu rikj-
um jarðar að bakhjarli i æðsta
embætti, sem n'okkur kona
hefir gegnt i aiþjóðastofnun.
Ekki mun henni veita af því
á þinginu sem nú er að hefjast,
deilumálin sem koma til kasta
þess eru mörg og flókin. Meiri
athygli mun beinast að störf-
um ihennar en forscta nokk-
urs annars allsherjarþings. Þeir
fulltrúar, sem greiddu atkvæði
gcgn lienni að einhverju eða
öMu leyti vegna þess að hún er
kona, rnunu vart leggja sig í
lima til að auðvelda störf for-
setans. Ef d®ma má af ferli
hennar hingað til mun þó Vi-
jaya Lakshmi skiia af sér fund-
arstjórahömrunum, smíðisgrip-
um Ásmundar Sveinssonar og’
Ríkarðar Jónssonar, enn virt-
arf og viðurkenndari sem ein
hinna fremstu skörimga á þingi
þjóðanna, en hún tók við þeim.
M. T. Ó.