Þjóðviljinn - 24.09.1953, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 24.09.1953, Blaðsíða 1
Hinir nheHhrigSu" verzlunarhœftir á íslandi: Hversvegna skráir Framleiðsluráðið aðeins verð á „súpukjöti^ en leyfir kjötsölum frjálsa álagningu allt upp í 56% á lærum, „sneiðum úr læri“4, „hrygg^ og „kótelettiun66? Fimmtudagur 24. septcmber 1953 — 18. árgangur — 214. tbl. Jón Rafnsson. Neytendur hér í Reykjavík og víðar um land hafa stundum verið að velta þessum spurningum fyrir sér: Ilversvegna er kjöt jafndýr vara og raun ber vitni? Hversvegna fæst í kjötverzlunum yfirleitt ekki annað en svonefnt fyrsta flokks kjöt, dýrasta tegund? Þjóðviljinn leitaði sér í gær upplýsinga í kjötverzlunum hér í Reykjavík um verðlag á kinda- kjöti, og virðist ljóst af þeim upplýsingum að kjöt- verzlunin sé vettvangur stórfellds ráns bæði aí neyt- endum og framleiðendum. Verður ekki betur séð en Framleiðsluráð landbúnaðarins, er lögum sam- kvæmt ber að' ákveða kjötverð, hafi gert sig sekt um vítaverða vanrækslu í starfi sínu, eins og nú skal greint. ^ Aðeins „súpukjöt” er verðskráð. í „Auglýsingu frá Fram- leiðsluráði landbúnaðarins um haustverð á kindakjöti" frá 17. september um daginn segir svo m.a.: „Smásöluverð á súpukjöti. 1. verðflokkur kr. 19.00 pr kg. 2. verðflokkur kr.16.05 pr. kg. 3. verðflokkur kr. 15.20 pr. kg 4. verðfl. kr. 12.25 pr.kg. í sömu auglýsingu er birt heildsöluverð á „kindakjöti' (Nýju og freðnu)“, og er það 18% lægra í öllum flokkum. Það er að segja: Kjötsalar hafa viðurkennt leyfi til að leggja 18% á „súpukjöti“. Lengra nær verðskráning Framleiðsluráðs ekki. Eftir þessu að dæma kaupa kjötsalar allt kjöt sem súpukjöt. En — þeir selja það í fjórinn flokkum að auki: sem læri, kótelettur, sneiðar úr læri, og hrygg. Þessar tegundir eru hvergi verðskráðar, heldur á- kveða kjötsalar sjálfir eða fé- lag þeirra verðio, og þar með á- lagninguna. Og það lítur þann- ig út: ^ Álagning udp í 56 prósent. Lærið er selt á 22,05 kr. kilóið, eða með 37% álagningu miðað við heildsöluverð á súpu- kjöti. Kótelettur kosta 24,15 kr kílóið, álagning 50%. Sneiðar ■ úr læri kosta 25,15 kr. kílóið, álagning 56%. Hryggur er seld- ur á 23,05 kr. kílóið, álagning 42%. ^ Hversvegna er verðið ekki skráð? Það sjá allir að hér er um hreint okur að ræða, þótt ekki sé óeðlilegt að t.d. kótelettur kosti ofurlítið meira en síða í súpu, þar sem slögin eiga ekki að fyigja kótelettunum. Hins- vegar er reynslan sú að hús- mæðrunum gengur illa að fá gott súpukjöt. Þeim er einmitt boðinn bringukollurinn — og auk þess slögin og fremstu hálsliðirnir: þeir hlutar hryggs og síðu sem af ganga þegar búið er að selja kótelettumar og hrygginn sem „hrygg“. Hér væri því ekki um mikið tap að ræða þótt hryggurinn væri seld ur á sama verði sem súpukjöt og „hryggur". En aðalatriðið er þetta: Kversvegna skráir Framleiðsluráð landbúnaðarins ekki verð á þessum fjórum flokkum kjöts? Hvað veldur því að kjötsölum er í sjálfsvald sett álagningin á þessa vöru? Þjóðviljinn skorar hér með opinberlega á Framleisiui’áð landbúnaðarins að svara þess- um spurningum undanbragða- laust. Framhald á 8. síðu. S@x rriilijónir ítala í verkfalii í morgun hófst verkfall í öllum verksmiðjum og iðn- fyrirtækjum um gervalla Ítalíu. Fyrri fréttir hermdu að fjór- ar mjlljónir verkamanna myndu taka þátt í verkfallinu en í gær var sagt að það myndi ná til sex milljóna. Öll þrjú verkalýðs- sambönd ítaliu, almenna sam- bandið, samband hægrikrata og samband kaþólskra, standa að verkfallinu í sameiningu. Yfirlýst marknrð \erka- manna með verkfallinu er að vara atvinnurekendur við og gera þeim Ijóst, á hverju þeir mega eiga von ef þeir þverskallast öllu lengur við að taka til greina kröfur verkalýðssamtakanna um Nýjar tröllasögur Sögurnar um Lavrenti Bería, himi brottvikna innanríkisráð- herra Sovétríkjanna, verða sí- fellt fáránlegri. Sú nýjasta er að harui hafi svifið til jarðar í fallhlíf á Spáni og sé þar í fel- um. Æsifréttablöð hafa einnig sagt hann dvelja í Bandaríkj- unum, Sviss, Argentínu og Mexíkó. Nixon, varaforseti Bandaríkjanna, segir stjórn sína vera að rannsaka, hvort nokkur fótur sé fyrir þessum sögusögnum. hælíkað kaup verkafólki tsl handa. Verkfallið á morgun nær að- eins til iðnverkamanna en því verður fylgt eftir 5. október með sólarhrings allsherjarverk- falli landbúnaðarverkamanna. Þeir eru tvær milljónir talsins. Haína þýzkrí krvæðingu Miústjórn Verkamannaílokks- ins brezka samþykkti í gær stefnuyfirCýsingu í utanríkismál- um. Þar er lýst yfir algerri and- stöðu við liervæðingu Vestur- Þýzkalands og aðild þess að Vestur-Evrópuher meðan ekki hefur verið haldin váðstefna Sovétríkjanna og Vesturveld- anna til að reyna að ná sam- komulagi um sameiningu Þýzka lanðs. Þá leggur flokkurinn t'l að Kórea og kínverska eyjan Taivan, þar sem stjórn Sjang Kaiséks situr, verði gerð hlut- Iaus svæði. Yfirlýsingin öll verður birt á laugardaginn en daginn eftir hefst þing Verka mannaflokks'ns. Þorva'ídur Þórarinsson. Sösalistafélag Reykjavíkur hefur vetrarstarfið með alnienn- um félagsfundi sem lialdinn verður í kvöld í Iðnó. Hefst fundurinn kl. 8.30 stundvíslega. Aðalmál fundarins verður fé- lagsstarfið á vetri komanda og hefur Jón Rafnsson formaður fél-agsins fr.amsögu. Að ræðui hans lokinni verða frjálsar um- ræður. Að loknum umræðunum un félagsstarfið flytur Þorvaldur Þórarinsson lögfræðingur erimdl frá för sinni til Rúmeniu. í félagsstarfinu í vetur eru framundan mörg og stór verk- efni og því brýn nauðsyn á að allir flokksfélagar taki virkart þátt í umræðum um þau og undirbúningi öllum frá byrjun. Fjölmennið því á fundinn í kvöld og takið með ykkur nýja meðlimi. Verkczlýðssamtökizi gera gagnráðstaf- anir sé desembergrundvellinum haggað Dagsbrún seitiir fulltrúa á 1 þing Alþjóðasambands verkalýðsfélaganna „Vegna þeirra hækkunar sem nú heíur verið á* kveðin á verði innlendra landbúnaðarvara, vill íunaurinn vekja athygli á því, að allar ráðstaíanir tii verðhækkana írá þeim grundvelli, sem ákveðinn var með desembersamkomulaginu 1852, hljóta að leiða til gagnráðstaíana af hálfu verkalýðshreyíing- arinnar. Fundurinn mófmælir sérstaklega öllum ráð- stöfunum hins opinbera, er verða til þess að lengja að nýju bilið milli verðlags og kaupgjalds og minnka kaupmátt launanna, og er hér átt við hvortveggja: beinar verðhækkanir og niðu^greiðslur úr ríkissjóði á einstökum vörum, sem viðheldur og þyngir hinar óþolandi tolla- og skattabyrðar á alþýðu manna.” Framanskráð ályktun var einróma samþykkt á Dagsbrún- arfundinum í Iðnó í gærkvöldi- Eðvarð S:gurðsson ritarí Dagsbrúnar flutti ýtarlega framsöguræðu um kaupgjalds- og verðlagsmál, en sem hér er ekki rúm til að rekja. Þá samþykkti fundurinn með öllum atkvæðum gegn 5 eftir- farandi tillögu um að Dagsbrún sendi fulltrúa á 3. þing Al- þjóðasambands verklýðsfélag- anna. „Fundur í Vcrkamannafé- laginu Dagsbrún, haldinn 23. september 1953, samþykkir þá ákvörðun stjórnar og trúnaðarráðs að félagið taki boði Alþjóðasambands verk- lýðsfélagaima um að senda fulltrúa á III. heimsþing' þess í Vínarborg í næsta mánuði'. Frá fundinum verður nánai' sagt síðar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.