Þjóðviljinn - 07.10.1953, Blaðsíða 8
•— ÞJÓÐVILJINN — Mióvdkudagur 7. október 1953
Alfue utangakðs
5. dagur;
7
■ \
Mér finnst, góðir hálsar, að við séum komnir útfyrir efnið.
Ég neita því þó ekki, að þetta mál einsog öll önnur mál, hefir
margar hliðar, en ég legg til, að við höldum okkur við þá hlið
málsins; hvað við getum gert til þess að halda únga fólkinu
heima í svsþinni. Fer það ekki burt afþví við getum ekki boð-
ið því úppá lífsskilyrði, seni því getur hlotnast annarstaðar. Við
höfum )ítið haft af þessum nýmóðins framförum að segja,
og mér er r.ær áð halda, að þessvegna sé allt ikomið einsog kom-
ið er. Við þurfum að fylgjast betur með tímanum, góðir hálsar!
Við þurfum að fá veg inní sveitina, bílveg, og við þurfum að fá
vélar til þess að létta undir með vinnubrögðio. Ég hefi góðar
heimildir fyrir því, að í sumum sveitum eru þeir famir að búa
með vélum að mikiu leyti. Svo.þurfum við síma og rafmagn og
helst stássstofu á hverjum bæ. Þetta er 'það sem únga fólkið
sækist eftir. Þið munið kannski segja, góðir hálsar, að þetta
kosti alltsaman penínga. Það er satt og víst, að allar framfar-
ir kosta penínga. En þegar á það er litið, að mönnum er
borgað stórfé fyrir að leggja í kostnað, þá er það ekki svo kostn-
aðarsamt að leggja í kostnað þegar öllu er á botninn hvolft.
Þarsem oddvitinn hafði aldrei verið bendlaður við nýúngagirni
um skör fram, voru menn ekki viðbúnir því að meðtaka slíkan
hoðskap af hans munni, boðskap, sem nánast var í ætt við bylt-
íngu. Eftirað mæðin sleit ræðu hans, sátu menn dolfallnir, og þau
húkhljóð ein rufu þögnina, sem áttu sér annarstaðar upphaf
helduren í raddböndum fundarmanna. Jón í iBráðagerði snýtti
sér svo hraustlega, að hrikti í þeim fáu rúðum, sem ennþá voru
eftir í gluggum.
Þú segir nokkuð, oddyiti góður, sagði hann hressiíega. Þáð er
þó ekki svo að skilja, að ég sé yfirmáta trúaður á þennan svo-
kallaða vélabúskap, og aldrei fjölgum við mannfólkinu með 'æl-
um hvað sem öðru líður. Ég vóna áð minnsta kostí, áð drottinn
hlífi okkur við slíkum framíörum. Afturámóti er ekki nema sjálf-
sagt að leggja í kostnað ef það getur orð:ð manni að kos.tnaðar-
Jausu.
Mér hefir líka flogið í hug, hélt oddvitinn áfram, að við reynd-
um að fá eitthvað af þessum útlenda vinnukrafti, sem þeir eru
farnir að flytja inn þarna fyrir sunnan. Það gæti ráðið bót á
bráðustu fólkseklunni. Útlendíngar eru þó aldrei nema menn,
endaþótt þeir séu útlendíngar. x
Mér líst ékki á þetta með útlendíngana, greip Stjana framí
og það var hryllíngur í rödd hennar. Ég gæti ekki á heilli mér
tek:ð, ef ég vissi af útlendíngum nálægt mér. Alltaf eru þeir í
stríðum og svoleiðis, og drepa enda alsaklaust fólk, þegar þeim
býður svo við að horfa. Hvernig hagaði ekki Tyrkinn sér hérna
á árunum? Það er ékki við merkilegu siðferði að búast af mönn-
um, sem einginn skilur, jafnvel ekki guð almáttugur!
Stundum höndlaði maður við Fransarana á duggunum liérna
úti fyrir í gamla daga, sagði Jón í Bráðagerði, Og það var oft
hægt að fá hjá þeim b:skví og brennivín, fyrir lítið, þótt vaðall-
in<i í þeim væri ekki líkur neinu kr:stilegu mannamáli. Og þó
þeir stæðu hvorki aftur eða framúr hnefa, litu þeir út fyrir að
vera ósporlatir, og slíkt kemur sér betur í Vegleysusveit.
T.'l þess að fundurinn verði ekki alltof lángur, leyfi ég mcr að
koma fram með tillögu, sagði oddvitinn. Ég stíng uppá því, að við
leitum til þess opinbera um aðstoð. Uppá vissan máta má segja að
það opinbera sé skyldugt að hjálpa uppá sakirnar. Ég legg því
til, að við sendum mann suður til þess að tala við það opinbera.
Þetta er ekki svo vitlaust hjá þér, oddviti góður, sagði Jón.
Erum við e'kki alltaf að borga skatta og skyldur til þess opin-
bera? Mér þætti gaman að vita hvað þe'r gera við alla þá pen-
ínga. Og hvernig var það með þíngmanninn okkar? Ég man ekki
betur en að hann lofaði okkur að minnsta kosti vegi fyrir síðustu
kosníngar? Ef hann er búinn að gleyma því er sannarlega kom-
inn tími til þess að hressa uppá minnið hans. Ég veit ekki hverj-
um það stendur nær af utansveitarmanni, en einmitt honum að
gora eitthvað fyrir þessa sveit, því hatan væri ekki þíngmaður
Fjarðasýslu núna, ef við hefðum ekki gre'tt honum atkvæði við
síðustu kosningar.
Að sjálfsögðu ber að snúa sér til þíngmannsins, sagði oddvit-
inn. Og það væri ekki úr vegi að láta þess get;ð, að það kynni að
&axast eitthvað á at'kvæðin hans í framtíðinni ef Vegleysusveit
færi í eyði. — En svo v:ð snúum okkur að efninu, góðir hálsar!
Eru ekki allir samþykkir því að senda mann suður?
Tillagan hlaut einróma samþykki. Stjana ein gerði þá grein
íyrir atkvæði sínu, að sendimanni yrði um leið falið að útvega
prest og orgel í ikirkjuna.
En þegar að því kom að velja mann í þetta veglega trúnaðar-
starf tók aftur að syrta í álinn. Einhverjir stúngu úppá oddvit-
RITSTJÓRl. FRtMANN HELGASON
Frá þúsundasta fundi KRR
Það var all söguleg stund er
formaður Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur setti þúsundasta
fund ráðsins í viðurvist flestra
fyrrverandi ráðsmanna og
nokkurra annarra.
Fyrsta mál fundarins var að
formaður Ólafur Jónsson bauð
gesti velkomna, og gaf síðan
greinargóða skýrslu um funda-
hald, starf og fulltrúafjölda frá
byrjun ráðsins. Sá sem lengst
hefur átt sæti í ráðinu er Er-
lendur O. Pétursson eða alls 13
ár ög setið rúmlega 200 fundi.
Sá sem flesta fundi hefur setið
er Sveinn Zöega eða tæpa 400
og hefur hann verið formaður
lengst allra eða um 5 ár. Nú-
verandi stjórn skipa: Ölafur
Jónsson, formaður, Sveinn
Zöega, Haraldur Gíslason, Ólaf-
ur Halldórsson og Ari Jónsson.
325 mót og 2020 leildr.
Antiað málið var sögulegt.
Þar sem Haraldur Gíslason
lagði fram skrá ,yfir alla þá
sem keppt höfðu fyrir KRR í
úrvalsliðum og við hvaða lið og
hve marga leiki, og fylgdu víða
með myndir af viðkomandi
öiönnum. Afhenti hann ráðinu
þetta að gjöf. og er þetta
skémmtileg og söguleg skrá.
Hefur Haraldur lagt mikla
vinnu í að safna þessu, en
skrásetningar leikja voru ná-
kvæmar til að byrja með. Var
gerður góður rómur að bók
þessari.
Haraldur las líka upp skrá
yfir þá leiki sem úrvalslið K.R.
R. hafa íkeppt hér við erlend
lið og er sú skrá ótrúlega hag-
stæð þegar tekið er tillit til að
hijngað hafa komið góð lið, á
okkar mælikvarða. Kepptir
hafa verið 42 leikir, 18 unnizt,
4 jafntefli en tapað 20. Sett 92
mörk og fengið 96. Erlendis
hafa leikir liða KRR farið þann-
ig að 12 hafa verið leiknir, 4
unnizt, 1 jafntefli og 7 tapaðir,
Sett 22 mörk en fengið 47.
Taldi Ilaraldur að leiknir hafi
verið til þessa dags um 2020
leikir í 325 mótum allra flokka.
Ný mótafyrirkomulags-
nefnd.
Þriðja mótið á fundinum var
tillaga um skipun nefndar til
að gera tillögur um fyrirkcmu-
lag móta. Hafði Sveinn Zöega
framsögu í málinu og taldi þörf
breytinga. Benti hann á nokk-
ur atriði, sem skýrðu tilgang til-
lögunnar nánar.
I nefndina voru kosnir þeir
Sigurgeir Guðmannsson, Guð-
mundur Ingimundarson og
Einar Jónsson.
Hér á íþróttasíðunni hefur
oft verið bent á-að fyrirkomu-
lag mótanna og skipulagsléysi
sé til stórskaða okkar ágætu í-
þrótt. Það ber því að fagna
þessari tillögu og vona að tak-
ast mogi að Ikoma þessurn mál-
um í forsvaranlegt horf. Þessi
nefnd er ekki sú fyrsta sem
skipuð hefur verið ém tregða
hefur verið á öllum breytingum
og jafnvei þó þær hafi verið
samþykktar hafa þær stundum
ekki verið framkvæmdar.
Hin almenna óánægja með
skipan þessara mála er orðin
svo mikii að vonandi fæst sú
lausn sem allir raunverulega
bíða eftir.
Fyrstu árin rifjuð upp.
Eftir fu.nd ráðsins var gest-
um boðið til veitkiga. Voru
þar fluttar margar ræður og
skemmtilegar, frásagnir um
fyrstu starfsárin. Höfðu þeir
Ben. G. Waage, Pétur Sigurðs-
son og Erlendur Ó. Pétursson.
frá mörgu skemmtilegu að
segja. Auk þeirra töluðu Einar
Björnsson, Magnús Guðbrands-
son, Sigurjón Jónsson fyrir KSÍ
og Gísli Halldórsson fyrir iBR.
Þess má geta að KRR er 35
ára á næsta ári og gefst þá
tækifæri til að rifja upp staif-
semi þess fi’ekar en hér er gerfc.
Firniakeppnin 1953
Méðins hvitir
ehkert mtsrh íengið
Svokallaðri firmakeppni er nú
að vera lokið, aðeins einn le:k-
ur eftir sem enga þýðiagu hef-
ur fyrir úrslit keppninnar. Héð-
inn hefur verið sigursælast, unn
ið alla leiki sína og ekki fengið
neitt mark á sig. Að vísu stend-
ur Héðinn vel að vígi með vai úr
svo stórum og fríðum hópi sem
þar vinnur og því spurning
hvort þeir eigi ékki að senda
sveit í B-riðil líka.
Er svo komið að Héðinsmenn
hafa unnið til eignar bikarinn
og nú vantar bikar til að keppa
um næstu ár.
Er þess að vænta að eHthyert
gott, fýrirtæki gefi grip til að
keppa um, og satt að segja væri
Héðni jafntrúandi til að gefa
b’kar eins og að vinna bikar.
Þessi viðleitni starfsmanna-
hópa að halda uppi íþróttastarf-
semi er mjög virðingarverð og
margir fá þar útrás fyr'.r
íknattspyrnuþrá sína sem ekki
kæmust að í kinattspyrnufélög-
unum eða voru ekki nógu góðir,
en enginn er of góður til að
leika sér og ekki er lífsnauðsyn
að spyrja alltaf um hæfni.
Þó áhugamenn þess’r hafi
mætt miklum skilningi og hjálp-
semi vallarstjórans Bald-
urs Jónssonar sem þeir meta og
þakka, þá eru það vallarskil-
yrðin sem standa stöðugum æf-
ingum fyr'r þrifum en bak við
leiki og keppni verður að vera
æfing. Það mál verður að leysa
ef þessi góði vilji á að ná t'l-
gangj sínum.
Framkvæmd keppni þessarar
hefur að mjög miklu leyti hvílt
á Lárusi Hallbjörnssyni, en
dómarastarf hafa annast Sverr-
ir Kærnested og Hörður Ósk-
arsson.
Hér fara á eftir úrslit í báð-
um riðlum A og B.
A-riðill
Héðinn, Esso, EgiH Vilhjálms-
sen, Landssmiðjan, Hreyfill og
B. P.
Þar sem þrjú siðast töldu lið-
in skárust úr leik á síðustu
stundu urðu þátttakendur í riðl-
inum aðeins þrír, því miður og’
urðu úrslit þess;:
Héðinn - Egíll Vilhjálms. 4:0
Esso - Egill Vilhjálms. 5:1
Héðinn - Esso 4:0.
L L' J T S F St
Háðinn ........ 220080 4
Esso ........ 2101552
E.Vilhj. . . '...2 0 0 219 0
Þegar keppni þessi hófst fyrir
3 árum gaf B.P. fagran bikar til
að keppa um og hefur nú lið
Vélsmiðjunnar Héð:ns unnið
hann í 3. sinn og til fullrar eign
ar.
B-riðill.
Rétt til þátttöku í þessum
riðli eiga öll fyrirtæki í Rvík,
sem tilkynna þátttöku og greiða
Frarr>Sqld á 11. síðu.
Enska
m
Urslit 4. október 1953:
Arsenal 3 — Preston 2
Blaekpool 2 — Manch. City 0
Bolton 2 — Tottenham 0
Chelsea 2 — Sunderland 2
Huddersfield 4 — Aston Villa 0-
Liverpool 2 — Sheffield Wedn 2
Manch. Utd 1 — Burnley 2
Newcastle 0 — Charltcn 2
Portsmouth 1 — Cardiff 1
Sheff.eld Utd 3 — Wolves 3
W. B. A. 2 — Middlesbro 1
Birmingham 3 —Leeds 1
I. deild
WBA .... 12 9 2 1 33-14 20
Huddersf. 12 8 2 2 28-13 18.
Wolves 12 7 3 2 34-20 17
Charlton . . 12 8 0 4 33-18 16
Aston Villa 11 7 0 4 19-13 14'
Burnley . . 12 7 0 5 25-24 14.
Blackpool 11 5 3 3 22-17 13
Bolton- .... 11 5 3 3 18-15 13
Tottenham 12 6 1 5 20-19 13
Cardiff 12 4 5 3 12-14 13
Preston . . 12 5 1 6 28-18 11
Sheffield W. 13 5 1 7 21-29 11
Manch.Utd 12 2 6 4 16-19 10'
Newcastle- 12 3 4 5 21-27 10
Sheff.Utd 11 4 2 5 19-25 10
Portsmouth 12 3 3 6 27-32 9
Arsenal . . 12 3 3 6 16-22 9
Manch.City 12 3 3 6 13-22 9 1
Sunderland 11 3 2 6 27-31 8
Chelsea 12 3 2 7 19-30 8 ’
Liverpool 12 2 4 6 19-31 8
Middlesbro 12 2 2 8 17-35 6 '
Bolton - Manch. C'ty 1
Burnley-Portsmouth 1
Charlton-Blackpool x
Liverpool-Aston Villa (1) 2
Manch.Utd-Sunderland x (2)
Middlesbro-Sheffield U 2
Newcastle-Wolves 2
Preston-Cardiff 1 (2)
Sheffield Wedn-<Chelsea 1
Tottenham-Arsenal x (2)
W.B.A.-Huddersfield 1
Fulham-Derby x 2
KERFI 32 RAÐIR