Þjóðviljinn - 20.10.1953, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 20.10.1953, Blaðsíða 7
Þriðnidagur 20. október 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Ári'ð 1938 kom út kvæða- bók, sem. bar heitið „Frá af- dal til Aðalstrætis". Það var fyrsta bók höfundar að nafni Ingibjörg Benediktsdóttir. En nafn skáldkonunnar var ekki óþekkt með þjóðinni. Kvæði höfðu birzt eftir hana í blöð- um og tímaritum, og þó var nafn hennar jafnvel enn kunnara fyrir ýmis konar fé- lagslega starfsemi, sem það var bundið við. Hafði húu látið til sín taka og gegnt trúnaðarstörfum í alþjóðarfé- lagssamtökum, svo sem U,M. F.Í., Stórstúku íslands og Kvenréttindafélaginu. En því minnist ég á þessa bók í upp- hafi minningarorða um Ingi- björgu Benediktsdóttur í til- efni af andláti hennar og út- för, að mér finnst titill bók- árinnar sérlega táknrænn þeirra sérkenna í fari Ingi- bjargar, sem sérstaklega eí- ástæða til að nema staðar við. Hún var að uppruna dal- anna barn, fæddist að B.rgs- stöðum í Hallárdal 11. ágúst 1885, dóttir hjónanna Bene- dikts Sigmundssonar og Ástu Þorleifsdóttur. er þar bjuggu. Dalurinn liggur upp frá Húnaflóa úti undir Skaga- strönd, austur í fjállgarðinn vestan Skagafjarðar, og hann er afdalur að því leyti, að um hann liggja lítt ferðir veg- farenda. í dalnum, þar sem fátt var mannafer'ða, þröngt fyrir auga í allar áttir, út- sý.ni byrgt á alla vegu af fjöllum, sem buðu auganu hlýjar brekkur að sumririu og mjalitæra tign að vetrinum, þar féltk útþrá gáfaðrar sveitastúlku byr undir vængi til að leit-a víðáttumeiri sjón- bauga í þeirri verö'd, sem ekkert hafði sýnt henni ann- að en fegurð, tign og hrein- leika. Dalurinn með sinni heitu þrá, lifsást og fegurð var alla tíð síðan sterkur þáttur í lífi hennar, hún bar hann í brjósti sínu út á ólg- andi aðalstræti lifsins, — þráin eftir víðáttumeiri sjón- Benediktsdóttir Tæáá 11. ágúst 1885. Dáin 9. október 1953 baug, tengslum við dýpri og bjartari menningu, var ef til vill dýpst tilfinning hennar fram á síðustu stund. Hallárdalur var henr.gr af- dalur. Hún færir honum kvæði, er hún flytur í burtu um tvítugsaldur. Þav líkir hún sér við jurt, sem kippt er upp með rótum úr jarðvegi sínum. En burt lilaut hún að fara. í því sama kvæði and- varpar hún yfir því hlutskipti að hafa alið aldur sinn í af- skekktum fjalladölum, frá- skilin umheiminum og fjarri öllum ipenntalindum. Andblær aldamótavorsins hafði borizt inn í dalinn hennar, og gerð hennar öll var sú, að hún gat ekki sætt sig við annað en að komast þangað, er hún gæti notið þeirra vorstrauma í rikari mæli en tök voru á inni í Hallárdal. — Og för hennar úr afdalnum er ekki atvinnuleit, heldur menntaleit. Afdalastúlkan stígur hiltfaust Ími á þá braut, sem fátroðin var af konum á þeim árum. Hún fór í Gagnfræðaskóla Akureyrar, sem' þá var þangað fyrir skömmu fluttur frá Möðru- vöilum í Hörgárdal og var > . vitund þjóðarinnar eitt glæsi- legasta menntasetur hennar. Frá skóla þegsum höfðu ár- lega komið. menn, sem í krafti aukins víðsýnis hÖfðu gerzt forystumenn í héruöum sínum og sumir á landsmælikvarða. Ingibjörg tók gagnfræða- próf frá skóla þessum 1909, 24 ára að aldri. A skólaárum sínum á Akureyri komst hún í náið samband við þá strauma, sem hún í sveitinni Kveðja frá rini Hve Ijú.jt og gott aS sojna í sœlli trú á sigur þess cr jirrir lifið grandi. Eg veit a'S einmitt þannig kvadciir jni — jsin j>rá var eins og morgunn yfir landi. Oo é» sé bezt i húmi haustsins nu ö «b hve heiðriktir og fagur var fsinn andi. Þitt orð var heitt — því hjartað sló þar með serii harpa stillt á gleSi allra t!Sa. 1 bliki atrgans bjó þitt mikla geS og brann af kvól meS 'óllum þeim sem liSa. Og þinni ást þaS yfirbragS var léS sem íslands beztu dcetur þykir prýSa. Ég kveS þig eins og fleyga söngvasveit á sumardaginn fyrsta úti i haga. Hvert vorsins fuglar fljúga enginn veit — en framtiSin er þeirra mikla saga. Þú bœSt komst og fórst scm fyrirbeit oo fyrirhcitiS iifir alla dagá. ÖLsdi iíí' ax.': 0 ’Jtti %’iörú‘ yrfáno i ari.-ublöJ í>o hafði haft fregnir af að voru til og hún hafði þráð að kynnast. Þá var ungmenna- félag á Akureyri, fjusta ung- mennafélagið á Islandi, ný- stofnað, og þá var þegar komið ungmennafélag innan gagnfræðaskólans. Af grein, er Ingibjörg skrifaði i af- mælisrit U.M.F.Í., er út kom á 30 ára afmæli ungmennafé- laganna, má sjá,- að hún hef- ur tekið þátt í störfum ung- hvernig tryggja mætti jafn- rétti og hagsæld allra í frani- tíð svo langt sem hugur eygði. Ilann var henni fyrsti boðberi nýrra lífs og þjóðfé- lagsstefnu, — sósíalismans. — Ekki veit ég, að hve miklu leyti kenning sú varð henni raunveruleiki þegar á þeim árum, enda gerði þátíminn ekki eins ákveðnar kröfur um afstööu á þeim vettvangi og síðar varð. En þá þegar birt- mennafélags skólans af lífi og sál. Þá var ei.nnig eitt brennandi augnablikið í sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar. er Uppkastið var á döfinni. 1908. Þá voru fáir staðir landsins ósnortnir og sízt fóru atburðirnir fram hjá skólaæskunni í Gagnfræða- skóla Akureyrar, þar sem skólameistari stóð framarlega í átökunum. Hér komst dala- stúlkan þegar í kynni við þau málefni, sem voru henni hug- fólgin alla daga, menningar- leg vakningasamtök og sjá^f- stæðisbaráttu ísle.nzkú þjóð- arinnar. En þar komst hún líka í kynni v;ð nýjar hug- myndir, sem hún hafði ekki haft skilyrði til að þrá í ein- veru afdalalífsins og aðeins fáir íslendingar höfðu þá gefið gaum. Frá skólaárunum minntist hún ekki fyrst og fremst glæsimennisins Stefáns skólameistara og hins göfga séra Jónasar frá Hrafnagili. Sá, sem hen.ni var minnis- stæðastur, var ungur kennari, Guðjón Baldvinsson, lítt sem ekki þekktur í sögu þjóðar- innar, enda varð honum skammra lífdaga auðið. En þessi ungi kennari átti ekki aðeins í brjósti sér drauma aldamótanna um frelsi og jafnrétti, vaxandi menningu alþýðu á íslandi og velsæld, hann hafði krufið þjóðfélags- málin til mergjar frá nýjum sjónarmiðum og gert sér ^rein • .fýrir .þ\ú ,á þann' há.t'íf sem . sYeilastúíkan háfðf ek’tcí fyrr látið sér í hug koma. ist hcnni sósíalisminn sem fegursta mannfélagshugsjón- in, sem hún hafði kynnzt, og þessi ungi kennari varð henni hugstæðari en aðrir kennarar á sama hátt og Þorsteinn Erlingsson og Stephan G. Stephansso.n voru licnni allra skálda hugstæðastir og And- vökur og Þyrnar allra Ijóða. Og það li'ðu að minnsta kosti aldrei mörg árin, þar til sósía’isminn varð þáttur, sem snerist i eitt með fegurstu hugsjónaþáttum þessara ára og slcóp með þeim það lífsvið- horf, er stóð óhaggað til ævi- loka. Að gagnfræ'ðaprófi loknu sneri Ingibjörg sér aö kennsJu. Á þeim árum var kennsla vegiegt hugsjóna- starf. að veita öðrum hlut- dedd í þeim auðæfum, sem hlotnuðust við skólagöngu. Á þann hátt lagði máður á á- hrifamestan hátt hö.nd á n'óginn til.að gera að veru- le'ka a'damótadraumana um menntaJ þn'óðlíf í iandi, sem þjóðin leit bjartari augum og rnn' meira en nok%ru sinni fvrr. Fyrstu tvö árin er hún farkennari, þá er hún önnur , tvö ár kenoari við kvenna- pt-óianr, á Biönduós1 og s’ðan við barnaskóla Reykjavikur, har til hún flvtur til Akur- eyrar með eig'.nmanni sínum, P+einhóri Guðmundswni. «em þá tók við skólastjóra- stöðu barnaskýlans , þar,. en haústinu . áður, og lielt hún þar enn áfram kénnslustörf- um 1 4 ár. Hve mikill kenn- ari hún hefur verið á mæli- kvarða nútímans, þar sem mest er komið undir lagni við hópa, sem ganga að námi. sem skyldustarfi, ósjaldao. þungbæru og leiðinlegu, veit ég ekki. En hitt veit ég, að hún var frábær kennari á- hugasamra og þroskaðra nemenda. Hún brann af á- huga á viðfangsefninu og hafði ágæta frásagnarhæfi- leika. Ingibjörg Benediktsdóttir. var bókmenntakona, las mik- ið, einkum skáldrit, en einnig' rit, er hnigu að fræðum hvers: konar, menningarsögulegum og dulspekilegum. Kunningjar hennar og vinir munu margir hverjir minnast lengst þeirr- ar skemmtun'ar, er var áðv viðræðum við hana um mcnn- ingarmál. Hún gekk heilhuga. að hverju viðfangsefni, um- ræðum í vinahópi,' eigi síður, en öðru, var þakklátur þiiggj- andi, er henni þótti eitthvað vel sagt, og kunni sjálf að setja fram skoðun sína á skýran og listrænan hátt, enda ræddi hún um þau mál- ein, er stóðu áhugaefnum hennar næst. — Hún brann af aldamótaáhuganum fyrir menningu og framförum og farsæld mannanna og lagðí. sig fram um þátttöku í hvers konar félagsstörfum, er stefndu til þeirra átta. Hún var heitur andstæðingur Bakkusar konungs, eins og' annarra siðlausra kúgara, og var um skeið mikilvirkur fé- lagi Góðtemplarareglunnar. Hú.n var einnig áhugasamur ungmennafélagi fram á fer- tugs aldur, og hygg ég, að á. þeim vettvangi hafi henní veri'ð Ijúfast að minnast þess, er hún átti þátt í því, að ungmennafélögin stóðu fyrir heimboði til handa Stephani G. Stephanssyni til landsins 1917. Þá stóð hún um langt skeið framarlega í félagssam- tökum kvenn'1,. ekki nízf þeim er helguðu sig einkum barátt- unni fyrir auknum þjóðfélags- réttindum kvenna. Eins og áður er getið var Ingibjörg gift Steinþóri Guð- mundssyni kennara 1917. Eignu’ðust þau 4 börn, sem öll eru á lífi og komin sem sjálfstæðir aðilar út á vett- vang dagsins. Lágu hugðar- ef.ni þeirra hjóna og lífshug- s.ión:r mjög saman. Við gömlu félagamir og kunningjarnir vottum S+einl ó”i hiartanlega. samúð við missi síns fé'aga, er st.að’ð hafði við hlið hans? um 36 ára ske’ð. Ingibiörg Benediktsdói t’r var fríð konn og svipmikil. Skýrast minn;st ég hennar er ég kom eitt sinn t;l hennar þreytti'ar e:ns og hún var oft li’.n síðari ár vanheilru sinnar, og ta'ið barzt að á- hugaefni hennar, hve andlitiði varð allt í einu unglegt og' geislaði af æskuáhuga. Og' þótt hún tæki oft næm sér menn'ngarþróun samtíðarin.n- p". J'ó bún ávallt, rð menningarsklmav ekki skrök'cga ein. he.’dnv liníga rök þ>’óunvtil biartari tima afi afstöðnum ilh’iðrum þeirra ám. sem vwi henrir síðustu. Við kuuniniriar her>n- ar og v-xiir kveðium, hana sem eina, hina.''<taik^aeíuátý,,i<^iS'' mer ví$’íic>'f‘uíh íiý'útíiít. Gunnar Benediktsson. v

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.