Þjóðviljinn - 20.12.1953, Side 6
ig) ÞJÓÐVILiJINN*W-- Sunnú'dáguí 20. desembeí* ÍSÖS' -
þJÓOVILJINN |
Útgefandi: Sameiningarnokkur alþýðu — Sósiaiistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Préttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Slgurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. ;
Ajigiýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðjá: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 Hnur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
aflnars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prenjtsmiðja I'jóðviljans h £.
•Ji)
Lærdómsríkur kaupskapur
Frá bandaríska hernámsliðinu til íslenzkra agenta þess
liggja gullnir þræöir. Þótt flíkað sé annarlegu „hugsjóna“-
lijali í ræðum eru raunveruleg tengsl tryggð á mun á-
þreifanlegri hátt og segja til sín 1 fjárhirzlum þeirra
sem þarfastir eru í þjónustunni. Ágætt dæmi um þetta
eru síðustu viðskipti Vilhjálms Þórs við hína erlendu
vini sína. Hernámsliðið þarf að láta gera hús. Það leitar
tilboða og fær þau. Önnur tilboðin eru tvöfalt hærri en
hin, og bjóða þau þó mun verri hús. Það virðist því
eins^tt hvor kosturinn verður valinn — en þaö er eitt sem
skilujr. Dýrari tilboðin eru komin frá fyrirtæki Vilhjálms
Þór$ og í þeim felast mjög drjúgur milliliðagróði til
þess. Ekki er vitaö hvernig samningar fóru fram, en nið-
urstööur urðu þær að Bandaríkjamenn tóku dýra tilboð-
inu um lélegu húsin — og tryggðu fyrirtaSki Vilhjálms
ágóðahlutann.
En það voru fleiri aðilar að þessum kaupskap. Tilboö
Vilhjálms fól í sér að inn skyldi fíutt erlent vinnuafl,
vatn, grjót og sandur í stórum stíl, og ríkisstjórn ís-
lands þufti að leggja blessun sína yfir þau nýstárlegu
viðskipti. Þetta stóð í henni — þar til Framsóknar-
maðurinn Kristinn Guðmundsson var gerður utanrík-
isráðherra. Þá varð það eitt fyrsta verk hans að sam-
þykkja þennan innflutning og lýsa yfir fullu fylgi við
hann. Honum var fyllilega Ijóst til hvers var af honum
ætlazt í ráöherrastóli.
Það hefur orðið fátt um varnir í Tímanum fyrir þennan
kynlega kaupskap. Þó segir blaðið í gær aö einkennilegt
sé að Þjóðviljinn hafi nú allt í einu fengið slíkan áhuga
á því að Bandaríkjamenn geri hagkvæm kaup á húsum.
Þjóðviljinn hefur ekki snefil af áhuga á því og óskar
þess heitast að öll þeirra hús hér á landi sökkvi norður
og niður sem allra fyrst. En þaö er fróðlegt fyrir almenn-
ing að kynnast kaupskap þeim sem hernáminu fylgir.
Þar er að leita skýringanna á hernáminu sjálfu og af-
stöðu þeirra flokka sem að því standa. Gróðabrallsmenn-
irnir meta svívirðu íslands til ágóöahlutar, flokkar þeirra
aðstoða við kaupskapinn og hernámsliðið '1 stendur við
sinn hlut — meöan það er að koma sér sem tryggilegast
fynr.
NýBOKum CHAPLIN
N
ankamir verða lokaðir
laugardaginn 2. janúar 1954, en auk þess verða
sparisjóösdeildir þeirra lokaöar fimmtudaginn 31.
desember n.k.
Athygli viðskiptamanná er vakin á því að víxl-
ar, sem falla í gjalddaga 30. des. veröa afsagðir 31.
des., séu þeir eigi greiddir fyrir kl. 12 á hádegi
þann dag.
Landsb&pJ(s Islaztás
Úívegsbanki íslamls h.S.
Búnaðarbanki Islands
Iðnaðaibanki Islands hi.
SUNDHðLLEN
verður fyrst um sinn opin fyrir bæjarbúa almennt,
því að sund skólanemenda og íþróttafélaga fellur
niður fram yfir hátíðar.
V—............................................. ■.
.
mesta kvibmyndasuill-
ing, sem nú er uppi.
Hún lýsir fátækt
hans í œsku, hinni
œfintýralegu leiö
hans til heimsfrœgö-
ar, hinum óviöjafn-
anlegu hæfileikum
hans í leiklistinni, -
cg endurteknum ást-
aræfintýrum.
Bókin cr með mörg-
um myndum úr kvik-
myndum Chaplins.
Magnús Kjartansson'
ritstjóri hefur þýtt bók-
ina.
Lesiö bókina um
CHAPLIN áður en
kvikmyndin verður
r.vnd hér. en hún
veröur jólamyndin í
ár í Trípólíbíó.
Bókaútgáfan
Heimskringla