Þjóðviljinn - 20.12.1953, Page 8
!/5K!T,.ll7a<M«i: - í)'-lí -tvim- »' 02 t03f-b//nturí;
S) — ÞJÓÐVILJINN — Summdagur 20. de&embcr 1953
Alfur utangarðs
•"fr I
69. DAGUR
Bóndinn í Bráðagerði
Hann hrækti ennþá einusinni afturfyrir sig og sagði svo við
stúlkuna: Það er ástæðulaust að norpa hér leingur, rýjan
mín! I versta tilfelli getum við haldið á okkur hita með því
að róla eitthvað um þángaðtil vélreiðin leggur af stað.
Svo hyssaði hann pokaskaufanum ofar á herðablöðin og
arkaði af stað útí nóttina. Stúlkubjálfinn keifaði í slóð hans,
nöturleg ímynd sjálfs auðnuiej'sisins. Jón valdi götur þær er
afsíðis 'voru og skuggsýnar, því -hann hafði feingið nóg af
þeim, sem breiðari voru og betur lýstar. Sjálfum sér vor-
lcenndi Jón ekki hót, en tannaglamrið að baki hans gekk
honum til hjarta og linnti því ekki, þótt hann tæki trefil úr
poka sínum og linýtti um háls stúlkunnar.
Ef|ir alllánga gaungu úr einni götu í aðra, vissi Jón ekki
fyrr en hann gekk framá mannpersónu eina, sem læddist
um í skugga húsanna, næstumþví jafnósýnileg og hún væri
hluti af sjálfri nóttunni. Slík hlédrægni leiðir óhjákvæmilega
af sér þá grunsemd að undir búi eitthvað, sem ekki þolir
dagsins Ijós.
Hvað á þetta að þýða mannskratti, að læðast um einsog
þjófur á nóttu? sagði Jón byrstur og tók þéttíngsfast í öxlina
á þessum nátthrafni.
Mannvera þessi var eins og heyvisk í greip Jóns. Sýndi
sig ekki í því að bera fyrir sig hendur, en mimraði eitthvað
veikri gamalmennisrödd, sem gat verið bæn um miskunn.
Lofaðu mér að sjá framaní- smettið á þér, kunníngi! sagði
Jón og kippti þessum náttfara inní ljósgeisla frá næsta götu-
Ijósi. Raunar kom ekki sjónin til. Andlitið var tært og tor-
kennilegt öldúngsandlit, en þrátt fyrir öil torkenni var eitt-
hvað í þessu andliti, sem kom Jóni kunnuglega fyrir sjónir, og
þegar það ranu app fyrir l.onum hverjum þetta andlit til-
heyrði, sleppti haim takinu svo hastarlega, að öldúngurinn
var næstum dottinn.
Einsog ég er lifandi maður er þetta Jobbi frá Kúlu, sagði
Jón forviða. En mikið helvíti er þér afturfarið. Ókunnugir
gætu ímyndað sér, að þú værir draugur uppúr öðrum draug.
Kn komdu blessaður og sæll!
Ójá, mimraði öldúngurinn. Héma sérðu ræfilinn af hcnum
Jobba á Kúlu. En þú ert ennþá sjálfum þér líkur, Jón minn!
Það sé ég, þótt sjónin sé ekki orðin á marga fiska.
Ekki datt mér í hug, að ég mundi rekast á þig, kallinn!
sagði Jón. Það er mála sannast, að heimurinn er ekki stór
þegar öllu er á botninn hvolft. En hvað kemur tii að þú ert
að þessu næturgöltri?
Þegar maður er kominn á þenna aldur heyrir maður fremur
nóttunni til en deginum, tuldraði gamalmennið.
: Það er af sem áður vár, Jobbi sæll, sagði Jón. En hvar
átí u annars ‘heima ? Það kemur reyndar ekki til af góðu að
4g spyr. Það stendur þannig á, að ég er á hrakhólum með gist-
ípgn fyrir mig og þenna stúlkubjána, sem ég hefi í eftirdragi.
Jósep Jóakimsson fyrriun sjálfseignarbóndi á Kúlu í Veg-
leysusveit, sagðist að vísu geta léð gömlum sveitúnga þak
fyrir höfuðið eina næturstuna, en þvi miður væri hann ekki
ntaður fyrir meiru.
Þaí er lakur skúti, sem ekki er betri en úti, sagði Jón
3 t essilega og þótti útlitið vænkast. Ég man ekki betur en við
gistum stundum saman í gángnamannakofum lrér á árum
áður, Jobbi sæll, án þess að fást um, þótt eitthvað skorti uppá
þægindin.
Öldúngurinn bað gesti sína að fylgja sér eftir. Þreifaði
hann sig áfram inní biksvart húsasund og var fyrst niðurí-
móti að gánga. Fremur af kunnugleika eða eðlisávísun heldur-
en því að séð yrðu handarskil, rataði hann á hrófatildur að
húsabaki, sem var nánast í ætt við skúr, voru þar dyr á og
hékk fyrir hurð á einni löm. Þar fyrir innan tóku við tröppur
1 'ngra niður og þurfti kunnugleika til þess að sjá þar fótum
cínum forráð. Þegar aftur varð nokkurnveginn slétt undir
fæti varð fyrir önnur hurð og þegar innfyrir hana kom, brá
Af ávöxttniíun skulttð þér þekkju þá
ólaávextirnir
eru komnir
Grænmeti
niðursoðið:
Asparagus
toppar og heill.
Súpu Asparagus.
Olivin olía og Saladolía
01í\ ur fylltar.
Sveppar.
Piparrót.
Perluiaukur.
Blandað grænmeti.
IJbbý’s.
Mayonnaisc.
Sandwich Sprcad.
Salad Cream.
Belgbaunir, <
4 tegundir.
Vítamon og Maggi
kjötkraftur.
Súrar Gúrkur.
Picles í ediki og
sinnepssósu.
Cai>ers.
Kryddsósur, margar teg.
Rauðrófur.
Hunang,
ekta býflugnahunang.
Gulrætur.
Blómkál.
ITÖLSK úrvals EPLI
VlNBEH. sæt og salamikil.
APPELStNUR — MELÖNUR
MANDARÍNUR — GRAPEALDI — SÍTRÓNUR
Konlekt rúsínui — Döðlur, pk. og lausar.
Sjránskar Pea Nut — Fíkjur.
K E R T I glæsilegasta Enskt keX
úrval borgarinnar
SPIL — KNÖLL
STJÖRNUUÖS
Cocktail,
Blandað súkkulaði
í fallegum skrautöskjum,
hentugum til jólagjafa.
Konlektöskjur — Freyju, Silju, Nóa.
Avaxtasalar
Drjúgir og hressandi.
Crape
Apiælsín
Anmias
Epla
Sítrónu
Allt í jólabaksturinn og til koníektgerðar.
Nýtt rauðkál.
Hjá okkur eru það þér,
sem segið íyrir verkum.
XiUÍHimhu,
T 11
LIG6UB LEIÐIN
z' V — '
Everglaze Nýkomin gólffeppi
I stærri cg smærri-
-JL ljósum Einnig mottn-
LITUM sett i baðherbergi.
Verzl. Grótia Verzl. Grótia
Skólavöröustíg 13a Skólavöröystíg 13a
K
IÐJA. Lœkjargötu 10
i
— Handryksugurnar komnar aítur -
IÐJA, Lœkjargötu 10
.--r-".ArfVVV-r-v-r^vvvvvvvv^vvv»wvv,w