Þjóðviljinn - 02.02.1954, Blaðsíða 11
Æðíkollurinn
Framhald a£ 7. síðu.
kosið. Hann mætti stunduni
vera hreyknari og ánægðari með
sjálfan sig, til að mynda þegar
hann les skrifurunum bréfið,
og meira mætti gera úr hinu
kostulega atriði þegar hann
missir vitglóruna í síðasta þætti.
Forkunnlegur er leikur Har-
alds þegar æðikollurinn lætur
bugast a£ armæðu, örvæntingu
og þreytu, þar nær list hans
hæst.
Pernilla heitir þjónustustúlk-
an ráðsnjalla og er í mörgu
skyld Toinette stöllu sinni, en
mildari og hjartabetri. Herdís
Þorvaldsdóttir lýsir henni af
skilningi og ánægjulegri smekk-
vísi, Pemilla hennar er sýnilega
hollviljuð húsbónda sínum þrátt
fyrir allar brellurnar, hún er
geðþekk stúlka, mjög góðleg.og
glettin og djörf í framgöngu, en
leikurinn mætti vera enn fjör
meiri á stundum. Hjálpaimaður
hennar er Krókarefur, skelmir
og hrekkjalimur að atvinnu og
birtist í fimm ólíkum gerfum,
margþætt, vandasamt og
skemmtilegt hlutverk og mjög
við hæfi Lárusar Pálssonar að
þvi ætla má. Rúrik Haraldsson
leikur gárung þennan af mikl-
um þrótti og fjöri og mergjaðri
en nokkuð grófgerðri kí'mni, og
vekur oftlega mikinn hlátur á,-
horfenda. Rödd leikarans og
framsögn er etin ekki tiógu
þjálfuð og sveigjanleg til þess
að túlka til hlítar allar ham-
farir Krókarefs, en hann lýsir
honum jafnan sem sönnum ær-
ingja; einkum er „lögvitringur
inn“ ágæt skopmynd, stór og
feitur og hæfilega ósvífinn, og
hefur af því sýnilega nautn að
kvelja hinn fáráða séryitring.
Þau Bryndís Pétursdóttir og
Baldvin Halldórsson fá í sinn
hlut elskendurna ungu, Leonóru
og Leander og leika eðlilega og
trúlega þótt ekki verði sagt að.
ást þeirra sé eldinum heitari.
Bryndís hefur oft glímt við svip
uð hlutverk áður og er að von-
um sjálfri sér lík, fríð og skart-
búin heimasæta en ekki vprU'
lega töfrandi að þessu sinni, dá-
lítið beygjuleg og lítilhuguðsem
vera ber, en hryggð hennar
varla nógu sterk og sannfærandi
þegar hún fréttir að hún eigi
að giftast hinum.hjákátlega bók
ara. Baidvin er hinn gervileg-
asti Leander, prúður í franv
göngu, skapfellilegur maður og
traustur.
Róbert Arnfinnsson á sérstak-
an heiður skilinn fyrir hinn vit-
granna og smáðe biðil Pétur
bókhaldara, og sýnir enn hversu
vel honum lætur að bregða sér
í ahnarleg gervi; rödd, útlit og
göngulag er ekki unnt að
þekkja. Róbert dregur UPP
skopmynd þessa með fáum, Ijós-
um og hnitmiðuðum dráttum,
og svo bráðlifandi og sannur er
piltungur þessi í meðförum hans
að alhr hljóta að þekkja af eigin
raun, kannast við hjárænuskap
hans og andlegar takmarkanir.
Valur Gísláson er faðir hans,
bókarinn eldri, og líka skemmti
Þriðjudagur 2. febrúar 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11
XIW
leg og skýr manngerð, boginn af
miklum skriftum, pærsýnn,
auragjam og samansaumaður.
Þeir feðgar hljóta ráðskonuna
að lokum, fertuga piparjótnfrú
sem orðin er hálfsturluð vegna
brennandi löngunar í hjónaband
og Emilía Jónasdóttir leikur af
ærnum ákafa og fjöri. Emilía
er óneitanlega fyndin en kann
sér varla hóf, hún er ef til vill
bezt í fyrsta þætti, önuglynd og
mædd af of langri bið eftir eig-
inmanni. Ævar Kvaran er hinn
skemmtilegasti rakari og þeir
Gestur Pálsson og Klemenz
Jónsson fara þokkalega með tvö
smáhlutverk hvor, Gestur er fá-
tækur leiguliði og síðar föður-
bróðir Leanders, Klemenz
skraddari og nótaríus. — Skrif-
ararnir -fjórir eru allir hinir
kátlegustu og leika af líf i og sál:
Þorgrímur Einarsson, Guð-
mundur Pálsson, Jón L. Hall-
dórsson og Helgi Skúlason, þeir
svíkjast um eftir nótum, ólmast
og hrekkja hvern annan eins og
óstýrilátir og illa vandir skóla-
strákar. Loks er Leónarð bróð-
ir Æðikollsins leikinn af Jóni
Aðils og er um leið ímynd Hol-
bergs sjálfs, virðulegur maður
og rólegur og stingur þægilega
í stúf við hið brjálkennda um-
hverfi; þó skortir Jón einlivern
innri þrótt til þess að verða
sannur fulltrúi hins mikla
skálds, Á. Hj.
Stórmerk nýjrnig frá GEFJUNi:
GRILON
Gefjunarga
Ullarverksmiðjumii GEFJUNI hefur nú, eftir umfangsmiklar
tilraunir, tekizt að framleiða nýja tegund af garni, stórum
betri og fullkomnari hér hefur þekkzt áður. Garn þetta
er íslenzkt ullargam blandað svissneska midraefninu
GRILON, sem hefur alla kosti. nylons og tekur við ullarlit-
um að auki. Þetta nýja GRILON-GEFJ UNARGAItN hefur alla kosti hinnár
ágætu íslenzku ullar, en kosti GRILON að auki. — Þessir kostir GRILON gera
garnið miklu sterkara en ella og auk þess verulega mýkra. Allir þeir, sem
notað liafa Gefjunargam, munu reyna þetta nýja gam af forvitni og eftir-
væntingu, og það mun standast prof raunina. Það mun tryggja sterkari og
mýlfri prjénavörur og konur munu haf a ánsegju af að prjóna úr þri,
GB IL ON-6EF |UN A-BG A.BN IÐ ©s: mfksa sg miiídu
sleíkaia eu aunað fáanlegl gaeis — Fjértán litir þsgar
fyririiggjandi.
GR ILON -G E F J UN A R G A RN I Ð fœst Jijá öllum
félögum, Gefjun-lðunni, Kirkjustfœti, Reykjavík,
og ýmsurn verzlunum.
kaup-
UlÍarverksm. Gefjun
Frá NottahúsÍMi Laug h.f
Þvottahúsið er flutt að
Langavegi 481*
Fljót afgreiösla.
l»vottahúsið Laug hJ.
Laugayeg 48 B
m
''ÚH&i'iWí
ÚTBOÐ
Tilhoð óskast í að reisa hús Náttúrulæk-ningaíé-
lags íslands í Hveragerði.
Uppdrátta og lýsinga má vitja í skrifstofu fé-
lagsins, Týsgötu 8, gegn 300 króna skilatryggingu.
-yq;
Aætlun Gullictxci
Crildir írá 1. íebrnar 1954
Frá og með 1. febrúar 1954 breytist áætlun
GULLFAXA. og verður hún sem hér greinir;
HEYKJAVÍK - PRESTWICK - KAUPMANNAHÖFN
Þriðjudaga
Fra Reykjank -.-......... 8.00
Tii Prestwic.k ............ 13 ;30
Frá Prestwick ............ 14:00
Til Kaupmannahafnar ...... 18:30
KAUPMANNAHÖFN - PRESTWICK - REYKJAVÍK
Miðvikudaga
S "
Frá Kaupmamiaþöfn ............ 12:00
Til Prestwick ................ 14:30
Frá Prestwick ................ 15:30
Til Reykjavíkur .............. 19:15
(Staðartímar)
UUGFÉLA G ÍSL ANIS H. F.
Síðdeqiskiólaeíni 4 50, 100 og 150 krónur
í kjóliiui
Motið þetta einsteða tokiiæri.
MARKAÐURINN
Bankasíræti 4.
Jarðarför mannsins míns
ÖSKARS LÁRUSSGN AR.
kaupmanns,
fer fram finuntudaginn 4. þ,m. kl. 2-e.lx. frá Dómkirkj-
•uirni.
Anua Sigurjón>dótti r.
... 41