Þjóðviljinn - 30.04.1954, Page 8
_ WÓÐVILJINN — Föstudagur 30. apríl 1954
flfgreilsla Þjéðviljans
vexðuí lokuS hk Mukkan Íð i.h. 1. maí.
iðemiiNN
Skólagarðar Réykjavíkur
Starfa sem aö undanfornu frá 15. maí til sept-
emberloka.
Aldurstakmark er 11-14 ára. Umsóknareyöu-
blöð liggja frammi í gagnfræða- og barnaskólum
bæjarins, skrifstofu fræöslufulltrúa, Hafnarstræti
20 og skrifstofu bæjarverkfræðings, Ingólfsstræti 5
Ræktunárráðunautur Reykjavikur.
r~
Kvenfélagið Hringurinn:
Happdrætti
tí! ágóða íyiif Baxnaspítaiasjóðinn
1. Málverk eftir Kjarval.
2. Málverk eftir Jóhannes Jóhannesson.
3. Þvottavél, kr. 3.620,00.
4. Flugfar til Hamborgar kr. 1.778,00.
5. Gólfteppi, indverskt kr. 1500,00.
6. Radering, eftir Baron (franskur).
7. CBoiler-rafmagnssteikarofn kr. 1.000,00.
8. Hárþurrka kr. 380,00.
9. Straujárn kr. 210,00.
10. Kökuspaði, ítalskur, kr. 200,00.
Verð kr. 5,00. — Dregið verður 10. maí.
Fullorðnir og börn, sem vinsamlegast vilja selja happ-
drættismiða, vitji þeirra að Hótel Borg, suðurdyr í dag
og á morgun kl. 2—6.
Góð sölulaun
S.G.T.
S.G.T.
FÉLAGSVÍST 0G DANS
í G.T.-húsinu í kvöld kl. 9 stundvíslega
Gömln og nýjn dansamir
Carl Billich stjórnar hljómsveitinni
Aögöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 3355.
Vmsamlega komið snemma til að forðast þrengsli
Þjóðviljaníi vantar nnglmg
um næstu mánaðamót til að bera blaðið til
kaupenda á
Grímsstaðaholti
HÓDVILJINN, Skólavörðustíg 19, sími 7500
# ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRl FRtMANN HELGASON
BENEDIKT JAKOBSSON
Þfálf un
Ég gat þess í upphafi máls
míns, að íþróttamaðurinn yrði
að hafa á því nokkrá þekkingu,
hvaða eiginleikar væru honum
vænlegastir í hverri sérgrein,
til góðs árangurs. Á ég þar
við, kraft, mýkt og hraða. Sér-
þjálfun stefnir að því að æfa og
þroska þessa séreiginleika og
samleik tauga og vöðva.
Vitað er( að vilji einhver ná
hámarksárangri í vöðvaþjálfuu,
verður álag viðkomandi vöðva
að nálgast hámarlsáreynslu.
Vöðvarnir verða sern sagt að
yfirvinna meiri mótstöðu, en
þeir eru vanir við, til að verða
sterkari. Vöðvana er hægt að
láta vinna á tvennan hátt, þ.e.
a.s. í kyrrstöðu, og í hreyfingu.
Með öðrum orðum, það er hægt
að styrkja vöðva með því að
halda ihonum samandregnum æ
ofan í æ, vinni hann á móti á-
kveðinni þyngd, og það er líka
hægt að láta hann starfa að
samdrætti og slökun á víxl,
gegn sömu þyngd. Framfarir,
hvað kraft snertir, verða svip-
aðar.
Nú er því svo farið í ýmsum
greimrm íþrótta, að orkan verð-
ur að birtast leiftursnöggt, eða
explosivt. Sprengifimur við-
bragðsflýtir er að öðrum þræði
erfanlegur, og að hinu leytinu
er hægt með snerpu og við-
bragðsæfingum að auka þenn-
an meðfædda eiginleika, sér í
lagi, sé það gert á vaxtar-
skeiði mannsins. Æfingar m?ð
þunga hnetti, sandpoka, lóð og
fleira eru vel til þess fallnar
að auka. vöðvaorkuna.
Sé oft æft með léttu álagi,
þ. e. a. s. lítilli byrði, verður
orkan sprengifim, en sé oft æft
með þungri byrði, verður oik-
an átaksþung.
Mýktarþjálfun er ekki fyrst
og fremst í því fólgin að tevgja
vöðvana og auka einhliða
hreyfividd hinna ýmsu liða-
móta og þá^oft og tíðum á
kostnað góðrar reisnar heldur
að samst.illa hreyfihæfni lið-
anna. Góð hreyfitælcni og þá um
leið hreyfihæfni, byggist á því
frumskilyrði, varðandi mýktar-
þjálfun, að vöðvarnir hafi eðli-
lega hvíldarlengd, séu eðlilega
spenntir og auðveldlega teýgj-
anlegir.
Við ák\eðið starf.
Við ákveðið starf er rétt að
skipa vöðvunum í samverkandi
og gagnverkandi vöðva. Töku.m
dæmi: Þegar hnénu er lyft við
hlaup eða stökk, vinna eða
dragast saman beygivoðvnr
mjaðmarliðsins, í þessu tiJiiíi
eru þeir samverkandi við hreyí-
inguna. Gagnvérkindi eru hins-
vegar vöðvarnir atta.i á iær-
leggnum og á sitjandanurn.
Starf þeirra vöðva, sem lyfta
h-aénu, er þríþætt. Fyrsta: Þeir
verða að yfirvinha og jyfta
þyngd fótarins. Annað: Þeir
þurfa að yfirvinna spennu
vöðvanna (tonus). Þriðja: Þeir
verða að yfirvinna vaxandi
mótstöðu fyrrnefndra gagn-
verkandi vöðva, en mótstaða
þeiiTa vex því meir. sern þeir
eru teygðir nær endamörkum
teygjanleika síns. Gildir þar
sama lögmál og um gúmmí-
band.
Af þessu er það skiljanlegt,
að þab eru tVær leiðir til þess
að auka hraðá hnélyftunnar:
Önnur er að auka kraft beygi-
vöðvanna og sprengifimi, hin
er að leitast við að skapa vöðv-
unum eðlilega speimu og æfa
upp sem rnýkst viðnáni hinna
gagnverkandi vöðva. Rólegar
teygjuæfingar, sem enda með
seigu átaki, en ekki rykk eða
htiykk, er bezta aðferðin til
þess.
Uppbyggjandi þjálfun.
Að æfa upp hraða einhvers
viðbragðs er vitanlega það
sama og að æfa upp stíl eða
tækni. Hraði einhvers viðbragðs
vex í réttum hlutföllum við
kraft og hreyfitækni. Því nær
sem einhver hreyfing eða
hreyfingar nálgast að vera
gerðar af 100% samverkandi
voðvum, því betri árangur og-
því minsii orkueyðsla.
Þýðingarmesta þjálfunin er
hin svonefnda uppbyggjandi
þjálfun. Henni er ekkert óvið-
komandi. Fyrsta slig hennar
er heilsurækt á víðtækum
grundvelli. Annað stig er
margslungin þol- og brekþjálf-
un, og því aðeins að þessa hafi
verið gætt, og viðkomandi úr-
skurðaður heilbrigður af ser-
fróðum lækni, hefst þriðja stig
þjálfunarinnar ,sem er séileg
þol-, þrek- og tækniþjálfun.
Það sem ég vil undirstrika
með þessu, er, að því aðeins
að líkaminn sé fyllilega heil-
brigður, og alhliða þjálfaður,
þolir íþróttamaðurinn að
spenna afreksgetu líffæraur.a
að yztu mörkum mannlegrar
„getu, og þo aðeins stuttan tíma
í einu.
Margra ára reynsla cg rnarg-
víslegar rannsóknir sýoa, að
hámarksgeta í íþróttum er
fyrst og fremst ’ltomin undir
persónulegum eiginleikum, sem
gefa sig til kynna í óvenjulegri
starfshæfni hinna ýmsu líffæra
líkamans, og að hinu leytinu
byggist afreksgetan á mark-
vissri margra ára þjálfun.
Að verða afburðamaður í
einhverri íþróttagrein, eins til
dæmis Zatopek, er raunar ekki
meira að býsnast yfir en að
einn er svarteygur og annar
bláeygur, en hvorttveggja fer
eftir vissum erfðalögrnálum.
Zatopek og margir fleiri í-
þróttamenn hafa feagið alveg
óvenjulega hæfileika í vöggu-
Framhald á 11. síðu.
Imtanféiagsméi KR í
ksinglu- ©g sSeggjukasii
Frjálsíþróttadeild KR hefur
auglýst innanfélagsmót í
kringlukasti og sleggjukasti á
morgun kl. 3 e. h. Félagið hef-
ur áður í vor haldið mót þar
sem keppt var í sömu greinum.
Úrslit urðu þá þessi: Kringlu-
kast: 1. Þorsteinn Löve 46.35, 2.
Friðrik Guðmundsson 46.24, 3.
Guðmundur Hermannsson 44.50,
4. Pétur Rögnvaldsson 37.38.
Sleggjukast: 1. Þórður Sigurðs-
son 45.07, 2. Þorsteinn Löve
40.24, 3. Pétur Rögnvaldsson
33.01.
Handknafileikskeppiiiíi í
Frá úrslitaleik íslandsmótsins í handknattleik milli ;
Ármanns og Fram.
Undirbúningsleikur fyrir
Svíakeppnina fer fram í kvöld
að Hálogalandi. Úrvalslið Reyk-
víkinga í II. flokki, sem leik-
ur við Hafnfirðinga í sama
ílokki, hefur nú verið valið og
er það þannig ekipað: Guð-
mundur Gústafsson Þrótti,
Kristinn Karlsson Á, Sigurður
Sigurðsson KR, Geir Hjartar-
son Val, Kristinn Jónsson
Fram, Hilmar Magnússon Val,
Árni Njálsson Val, Þorvarður
Búason Á, og Guðmundur
Axelsson Þrótti.
í sambandi við leikina í kvöld
verður efnt til smáhappdrættis
til ógóða fyrir heimsókn Sví-
anna.
Svíarr.ir leika hér fjóra leiki,
tvo við úrvalslið og fer annar
fram inni en hinn úti, og tvo
leiki við einstök félög, Ármann
og Val.