Þjóðviljinn - 09.07.1954, Qupperneq 1
Föstudagiir 9. júlí 1954 — 19. árgangur — 150. tölublað
Sigfúsarsjóður '
Þeir sem greiða smám samaa
framlög sin til sjóðsins eru
minntir á.að skrifstofan á Þóra-
götu 1 er opin alla daga kl«
10—12 og 2—7, nema laugar-
daga aðeins fyrir hádégi.
50-70 skip lengu síld í fyrrinói!
Sum ágætan afla — Söltun hófst á Siglufirðl í gær
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans
Síldveiði mátti heita ágæt í íyrrinótt. Munu 50 til
70 skip hafa fengið síld, sum góðan aíla, önnur
minni- Síldarútvegsnefnd hefur ekki gefið söltunar-
leyfi enn, en söltun hófst samt á Siglufirði á einni
stöð í gær.
Síldin veiddist austan Gríms-
eyjar, á stóru svæði, og tvö skip
fengu síld úti af Rauðanúpi. Á
svæðinu austan Grímseyjar var
Fiska Norðmenn
á Skagagrunni?
Heyrzt hefur fyrir norðan
að Norðmenn hafi fengið síld
í snurpinætur á Skagagrunni.
Síldarleitarflugvélin flaug
þangað siðdegis í fyrradag, en
varð engrar síldar vör.
veiði almenn og munu 50—70
skip hafa fengið veiði.
3 skip sprengdu nótina
Nokkur skipanna fengu góðan
afla. Bjarmi frá Dalvík fékk
tlrepirí
Kenia á 3 inán.
Tilkynnt var í Nairobi í gær,
að undanfarna 3 mánuði hefðu
hersveitir nýlendustjórnarinnar
drepið 1300 Kíkújúmenn, en
handtekið 3475, sem grunaðir
eru um hollustu við þjóðfrelsis-
hreyfingu landsmanna. Á sama
tíma hafa rúm 300 fallið fyrir
vopnum frumbyggjanna.
Tilræðismenn
dæmdir í USA
í. gær var kveðinn upp dómur
í máli þeirra Puerto Rico-búa,
sem skutu af áhorfendasvölum
yfir þingheim í Washington 1.
marz s.l. Einn þeirra, 34 ára
gömul kona, hlaut 16—50 ára
fangelsi, hinir 25—75 ára íangelsi
hver. Voru það þyngstu refs-
ingar, sem lög heimiluðu.
Gefið ykkur fram
í ferðalagið
Eins og sagt var frá í gær
býður Æskulýðsfylkingin öllu
starfsfólki útimótsins í Ilvalfirði
til ferðalags að Múlakoti á
sunnudaginn. Farið verður árla
morguns og komið aftur nm
kvöldið. Öllum Fylkingarfélögum
og velunnurum hennar er heimil
þátttaka gegn vægu gjaldi.
Nauðsynlegt er, vegna bílapant-
ana, að þátttakendur gefi sig
fram í dag. Er skrifstofan á
Þqrsgötu 1 opin kl. 5—7, sími
7512.
650 mál i einu kasti. Pétur Jóns-
son, Húsavík, fékk 550 og Von
frá Grenivík 500 mál. Togarinn
Jörundur fékk svo stórt kast að
hann sprengdi nótina, en náði þó
500—600 málum. Tvö önnur skip
fengu svo stór köst að þeir
sprengdu nótina.
Ekki veiftllegt í gærkvöldi
í gærkvöldi leit ekki líklega út
með veiði, því veðurhorfur voru
ekki góðar á miðunum, var þar
austan- suðaustan kaldi.
Söltun hófst í gær
Síldarútvegsnefnd hefur enn
ekki- veitt leyfi til söltunar, en
ein stöð hóf söltun í gær (á eig-
in ábyrgð), íslenzkur fiskur h.f.
(Vigfús Friðjónsson). Var salt-
aður á stöðinni afli Bergs VE 44,
180 tunnur.
SR fengið 9500 mál
í gærkvöldi höfðu Sildarverk-
smiðjur ríkisins á Siglufirði
fengið 9500 mál samtals. Rauðka
hafði þá fengið 700—800 mál í
bræðslu.
Önnur kjarnorkurafsföð í
miðum í Sovétrikjunum
Sovétríkin vilja styrkja znenningar- og
viðskiptatengsl við V-Þýzkaland
Nú er unnið að smíði annarrar kjarnorkurafstöðvar í
Sovétríkjunum og er hún mun öflugri en sú, sem tekin
var í notkun 27 .júní s.l.
____________________ Aðstoðarverzlunarmálaráð-
herra Sovétríkjanna, Kömygin,
skýrði frá þessu á fundi Efna-
liags- og félagsmálanefndar SÞ
í Genf í gær. Hann sagði, að
Sovétstjórnin myndi fagna svip-
uðum árangri í friðsamlegri
hagnýtingu kjarnorkunnar með-
al annarra þjóða.
Jvomygin gerði viðskipta-
tengsl Sovétríkjanna við önnur
lönd að umtalsefni og sagði m.
a. að þau væru fús til að taka
upp nánara menningar- og við-
skiptasamband við Vestur-
Þýzkaland en þau hefðu nú.
Ho Qiú Minh
U 099111
rlnnar?
Það er svo að sjá sem ríkisstjórnin sé staðráð-
in í því að ganga svo írá hnútunum að megin-
þorri togaraílotans verði stöðvaður til hausts,
en um 30 skip eru nú bundin — á sama tíma
og íslendingum bjóðast hinir beztu og traust-
ustu markaðir.
Eins og kunnugt er kaus Alþingi nefnd til
að fjalla um vandamál togaranna. Hefur hún
setið að störfum á annan mánuð og ríkis-
stjórnin sífellt tafið störf hennar. Þó er nú
sagt að nefndin hafi lokið verki sínu fyrir síð-
ustu helgi og gengið frá áliti og tillögum seip
gætu leyst vandkvæði útgerðarinnar — en
ríkisstjórnin hafi þá skorizt í ieikinn og beðið
nefndina að skila ekki tillögum sínum fyrr
en betur væri búið að fjalla um málið innan
stjórnarflokkanna!!
Það er ástæða til að kreíjast skýrra svara
um það í stjórnarblöðunum hvort þetta
sé rétt. Ef ríkisstjórnin bætir nú gráu ofan á
svart með því að koma í veg fyrir að fullunnið
verk sé hagnýtt, geta skemmdarverkin ekki
lengur dulizt nokkrum manni.
Skeiðará tekin að váxa og fylgirf
brennisteinsfýla i
Skeiðará tók að vaxa s.l. sunnudag, varö dekkri á lit-*
inn og fylgdi vatnavextinum brennisteinsfýla, en þaiS
þykir mönnum austur þar merki um að hlaup sé í aðsigi
og e.t.v. gos í Grímsvötnum. /j
Óvenjulega langt er nú liðid
Yfirlýsing frá Ho Chi Minh
vefcur bjarfsýni í París
Allir utanrlkisráSherrar stórveldanna
nema Dulles halda til Genfar
Mikil bjartsýni er nú meðal stjórnmálamanna í París
um það, að samið verði vopnahlé á síðasta hluta Genfar-
ráðstefnunnar, sem er í þann veginn að hefjast, símar
fréttaritari Reuters. Tilefni þessarar bjartsýni er yfirlýs-
ing, sem barst frá Ho Chi Minh, forseta stjórnar Viet
Minh, í gær.
Þessi yfirlýsing barst út um
heim fyrir milligöngu kínversku
fréttastofunnar Hsinhua. 1 henni
segir Ho Chi Minh, að enda þótt
samningaumleitanimar ‘í Genf
hafi gengið seint, hafi þær engu
að síður rutt veginn fyrir friði
í Indó Klna.
Svo fremi sem báðir aðilar
leitast við af sáttfýsi og einlægni
að ná samkomulagi, er enginn
vafi á því, að ófriðnum mun
Ijúka, segir Ho Chi Minh.
Einlægni Viet Minh
ekki efuð
Fréttaritari Reuters í Paris
segir, að þar i borg hafi þessari
yfirlýsingu forseta Viet Minh
verið fagnað mjög og dragi
stjórnmálamenn ekki í efa, að
hún sé mælt í fullri einlægni.
Fréttaritarinn segir ennfremur,
að Mendés-France sé nú vonbetri
en áður um að árangur náist
. á Genfarráðstefnunni, sem er nú
* að komast á lokastig.
Allir nema Dulles
Allir utanríkisráðherrar stór-
veldanna, nema
Dulles, utanrik-
isráðherra
Bandarikjanna,
munu mæta á
fundum ráðstefn
unnar, sem hefj-
ast upp úr helg-
inni. Molotoff
kom til Genfar
fyrstur þeirra í
gær, Mendés-
France fer þang-
að á morgun,„Sjú Enlæ er vænt-
anlegur um helgina, en Eden
mun koma þangað á mánudag.
Hann vantar
síðan gos hefur orðið í Gríms-*
vötnum og mun dr. Sigurðuf*
Þórarinsson hafa átt von á aff
fljótlega gæti tekið að gjósa í
Grimsvötnum, því í viðtali er
fyrrasumar, er hann var að
fara til að taka við prófessors-
starfi í Stokkhólmi, sagði Sigurð-
ur að hann hefði ráðið sig til
starfsins með þvi skilyrði að
»mega tafarlaust hverfa heim ef
Grímsvötn skyldu gjósa.
\
Fyrst lilaup — svo gos
Kenning Sigurðar Þórarins-
sonar í sambandi við gos í
Grímsvötnum er á þá leið að
þegar orðið hefur hlaup í Skeið-
ará og vatnið runnið burt úr
Grimsvatnaskálinni, og þar með
þunga þess létt af skálarbotn-
inurn, auðveldi það gosi að
brjótast út. Rökstyður hann þá
kenningu með‘ þvi að hlaup í
Skeiðará hefur alltaf orðið á
undan gosi i Grímsv.ötnum.
Einkenni er benda til aft
gos sé væntanlegt
Þjóðviljinn hafði í gær tal aí
Framhald á 11. síðu.