Þjóðviljinn - 08.09.1954, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.09.1954, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 8. september 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 I Gönguferð með Hítará Það var 5. ágúst. Tvo und- anfarna daga höfðum við gist í fjaligönguskála Hraunhrepp- inga í hinu forna túni Björns Hitdælakappa að Hólmi. Leif- ur bóndi í I-Iítardal haði flutt okkur þangað aðfaranótt þjóðhátíðardagsins 2. ágúst. Bræðurnir, Jósef og Óskar Eggertssynir, ættaoir úr Hítar- dalnum fengú veiði Hítarvatns á leigu í tvo daga og ég flaut með til þess að fullnæg'ja hinu gamla orðtaki „allt er þegar þrennt er“. Við höfðum ferðazt alla leið að hinum fornu býlum innan Hítarvatns. Við höfðum leitað að Bjarnarhelli í Foxufelli, en ekki fundið. Við höfðum heim- sótt svartbakinn í hólmunum og við höfðum veitt meira en við höfðum búizt við. í dag var von á Leifi bónda til þess að sækja okkur. Næstu veiðimenn voru þegar komnir í veiðiferð út á vatn og okkar tími var þegar búinn, Leifur átti að koma með þrjá hnakk- hesta og einn reiðingshest. En þegar Jósef var búinn að salta silunginn í kassana sá- um við að það myndi verða nægur flutningur á einn hnakkhestinn að auki. Ég tók þá að mér að fara gangandi niður að Hítardal og ákvað að leggja þegar af stað þó að Leifur væri ekki kominn. Ekki var hægt að segja að ég væri göngumannlega búinn er ég lagði af stað upp úr há- deginu frá Hólmi. Það var sum- arblíða, en ég bjó mig líkt og ég væri að fara í útilegu að vetrarlagi og fór í öll þau föt er ég hafði haft með mér. Ég var í tvennum utanyfirbux- um og fullháum gúmmístíg- vélum, og að síðustu. fór ég í hettuúlpu skinnfóðraða utan yfir jakka, peysu og tvær skyrtur. En ég ætlaði heldur ekkert að flýta mér. Ég hélt á veiðistönginni reiddri um öxl i annarri hencií, en hafði tösku í hinni hendi. Ég retiaði ekki að fara hina venjulegu götu- troðninga. Ég ætlaði að fara niður með Ilítará alia leið að eyðibýlinu Hróbjargarstöðum. Ég þekkti vel þessa leið fyrir fullum aldarfiórðungi síðan og hlakkaði til að fara aftur um fornar stöðvar. Alla þessa leið rennur Hítará meðfram Hólms- hrauni, að vestan verðu við það. Á hina hönd árinnar eru fellin, fyrst Klifsandur, en síð- an Valfell. Feltin eru víðast hvar þver- hnýpí við ánn eða þá brattar skriður og alla þessa leið, um 7 km, rriá segja að áin renni í gljúfrum nema stuttan spöl milli Klifsands og Valfells. Strax við Klifsand byrja gljúfr- in og ég fór niður í þau að ánni. Hún er bar allsstaðar stórgrýtt og ill yfirferðar. Ég þræddi hina mjóu bakka henn- ar og fór yíir hana sitt á hvað því víða voru þverhnýpt björg- in alveg að ánni og hún of djúp til, að vaða meðfram þeim. Sumsstaðar höfðu stórbjörg hrunið úr fellinu og nærri fyllt upp gljúfrin svo að aðeins grillti í ána á milli þeirra. Ég renndi í ána á stöku stað, þar sem mér þótti einna veiðileg- ast, en árangurinn var frekar litill. Ég vissi frá fomu fari að silungur var vænni og betri í ánni en vatninu, og er ég íór niður í gljúfrin hjá Valfelli vissi ég að a. m. k. þrír af silungum þeim sem komnir voru x tösku mína voru um 3 pund hver. Ég var því hinn á- nægðasti þó að íerðalagið hefði verið erfitt og seinlegt. Niður gljúfrin, meðfram Valfelli íór ég aðallega með ánni að sunnanverðu meðfram hrauninu. Víða voru þar hraun- urðir alveg út í ána, en óvíða var hraunveggurinn það nálægt ánni að ekki væri hægt að klöngrast fyrir hann. Sumsstað- ar voru gi’ösugir hvammar inn í hraunið með fjölbreyttum gróðri og margvíslegum lita- skrúða. Á einum stað fann ég minkaslóð méðíram ánni, á öðr- um stað sá é.g minkaholur í hálfgróinni stórgrýtisurð alveg við ána. Tvisvar sá ég pai'ta af silungum i ánni, sem ég taltíi bera þess merki að þar lxefði minkurinn gengið frá leifðu. í hrinum grösugu hvömmum og hraunbökkum voru víða kindur, ýihist á beit, eða lágu og jórtruðu, en allar rulcu þær upp á hraunbrúnina þegar þo^r sáu mig og sumar voru svo ósvífnar að hvæsa á mig, verulega reiðar og hneykslaðar yfir að vera ónáð- aðar á þessum yndislegu stöð- um í þessu indæla veðri. Þeg- ar ég kom á móts við suður- enda Valfells fór ég yfir ána, því þá! dr miklu greiðfærari leið, vestan rnegin árinnar, heldur én meðfram hrauninu. Fellið lækkar þar og vestan megin eru grónar hlíðar og sandeyrar. Ég vissi að nú var góður og greiðíær vegur það sem eftir var til Hítardals og fór því upn í brekku sunnan nndir Valfelli settist þar niður og hvíldi mig. Veðrið og staðurinn var hvoru- tveggja hið ánægjulegasta. Skógurinn ilmaði, en þarna sunnen í Valfelli er eini skógai’- bletturinn i Hítardalnum vest- an Hítarár. Krækiberin voru þarna fullsprottin í hverri þúíu og í brekkunni voru líka full- þroskuð bláber. Ég fékk mér þvi nokkrar „lúkur“ af berj- urn, lagðist síðan út af og sofnaði vært. II Harmleikur í hraunhvammi Ég svaf vist lengur en ég ætl- aði. Svefnííminn hafði verið dálítið óreglulegur undanfarn- ar tvær nætur, og lxvíldarstað- urinr. þarna í brekkunni vest- an undir Valfelli var yndisleg- ur. Klukkan var farin að ganga sjö þegar ég vaknaði. Ég fékk mér ennþá tvær eða þi’jár berja-„lúkur“ og labbaði svo af stað niður með ánni. Lítill klettasnagi náði þar al- veg niðui’ að ánni. Ég fór því upp á melkastið fyrir of- an hann og gekk ..eítir því. Ég' var kominn. niður undir Beinbrotsá. Hún rennur á sand- eyrum í Hítará að vestanverðu, litil og meinleysisleg, . en nokkru ofar er hún í stórgrýtt- um gljúfrum og af þeim hluta hennar muri nafnið dregið. Það var orðið það framorðið að ég ætlaði ekki að „renna‘‘ meira, því ég vissi að félagar mínir myndu vera komnir niður að Hítardal og biðu þar eftir mér. Hinumegin órinnar var hraunið grátt og úfið og ætlaði ég að fara niður fyrir það og þar yfir ána og austur að Hítardal fyrir norðan Hró- björgin. Er ég gekk niður mel- inn sá ég eina hvíta kind hinu- megin áx’innar. Ég veitti því fyrst litla eftii’tekt, því það var ósköp eðlileg og venjuleg sjón á þessu ferðalági, en allt í einu stoppaði ég þó og starði á bennan hraunhvamm sem kindin var í. Hversvegna va» ltann svona mórauður? Ég starði án afláts á kindina og þennan hraunhvamm sem hún var í. Gegnum huga minn flaug sem leiftur af þeim hræðilega harmleik sem hér hafði farið fram, mitt í öllum dásamleik sumarbliðunnar og staðárins. Hraunbergið myndaði liálfhring um hvamminn. Það var nær allsstaðar þverlxnýpt, en þó stallar á því að sunnanverður. Við ána voru þverhnýpt hraun björgin á báða vegu og vestan við hvamminn rann áin stór- grýtt og sti’öng með háum bökkum. Norðan megin var dálítill skúti undir hraunbergið og þar lá dauð kind. Hvíta kindin sem stóð þarna í ráða- leysi í miðjum hinum mórauða hvammi var lamb, en móðir þess var auðvitað hina dauða kind undir skútanum. Hvamm- urinn var mórauður vegna þess að þar var allur gróður upp étinn, jafnvel mosinn og aðeins flag eftir. Ég óð þegar yfir ána. Hún er þar stórgrýtt og ströng, en ekki dýpri en í hné. Mér datt í hug að varla hefði það fé sem ég þekkti í fyrri daga, vílað fyrir sér> að fara þar yfir ána, frekar en drppast úr hungri, horfandi, á hina indælu grasbrekku hinu meg- in árinnar. En Vestfjarðaféð er víst óvant straumvötnum og hrætt við að leggja út í þau. Ég gekk fyrst að dáuðu kind- inni, það var hvít, kollótt ær, nýlega rúin að sjá og dauð fyrir alllöngu. Markið á eyr- unum var stýft hægra, sneitt aftan og gagnbitað vinstra. Krummi haíði auðsjáanlega heimsótt hana eftir dauðann og smakkað á innvolsi henn- ar og augum. Hún lá undir litl- um skúta við norðurenda þessa litla hraunhvamms. Þar hefur hún að síðustu lagzt til hvíldar og ekki getað staðið upp aftur vegna hors og hungurs. Ég sneri mér svo að lambinu. Það var hvít gimbur, með sama marki. og ærin og litlum kyrk- ingslegum hornum. Ég gekk í átt til lambsins. Það ætl'aði að hlaupa undan mér, en fæturn- ir voru lélegir og óvanir slík- um hreyfingum, það datt um sjálft sig’. Ég stóð þögull og kyrr og horfði á það brölta aftur á fætur. Það rölti svo af stað og staðnæmdist hjá ær- hræinu. Enn virtist það þó hafa þá hugsun að þar værl helzt verndar að leita fyrir þessum ókunna gesti. Ég gekk til þess og tók það, án þess að það gerði nokkra verulega tilraun til undankomu. Ég bar það yfir ána. Það var létt, holdlaust og strengt. Ég setti það niður á eyrinni vestan við óna, og reyndi til að láta það drekka úr ánni. Það vildi ekki drekka. Ég tók það því upp aftur og bar það upp í gras- brekkuna og setti það þar nið- ur. Það fór strax að bíta hið græna gras. Ég settist niður við hlið þess og hoi’fði á það. Nú vissi það sýnilega ekkert af mér. Nú virtist það ekki vita af öðru en grasinu sem það beit með mikilli áfergju alveg við hliðina á mér. Því var al- veg sama hvort það var víðir, bláberjalyng eða venjulegt gras, það bara stóð kyrrt og beit og beit. — — Ég leit yfir ána á hinn mó- rauða hvamm, luktan hraun- bjargi á alla vegu, nema þar sem áin rann. Einhverntíma í vor hefur hann verið grösugur og girnilegur, svo að æriri sem nú lá dauð undir hamra- veggnum hefur hoppað niður í hann, stall af stalli til að gæða sér á gróðri hans. Og litla gimba, dóttir hennar hefur komið á eftir henni. Fyrstu dægrin hafa verið dásamleg fyrir þær í þessum litla grös- uga og skjólgóða hvamrni, en smátt og smátt hefur gróður- inn minnkað. Hægt og hægt hefur sigið á ógæfuhlið. Hægt og hægt hefur krafturinn dvín- að til að ráðast til uppgöngu og kjarkurinn minnkað til að leggja út í ána. Litla gimba hefur haft það betra, þó að gróðurinn í hvamminum eydd- ist. Hún hafði þær ódáinsveigar ’njá móður sinni sem öllu öðru voru betri, og þó að þær minnkuðu með clegi hverjum var bara fastar og faslar af þeim teigað. Hægt og hægt hefur lambið þannig sogið lí-fi móður sinnar bar til hún lagð- ist til hinztu hvildar undir skútanum. Þá fyrst hefur hinn verulegi þrautatími lambsins byrjað. Harmsögu þessa mó- rauða hraunhvamms getur víst enginn skráð nú. Þorgils Gjall- andi og Þorsteinn Erlingsson eru ekki lengur til. — Ég gekk greitt, það sem eft- ir var leiðarinnar niður að Hítardal. Mér varð hugsað til níræða öldungsins sem ég heim- sótti í fyi’rasumar, Jóns Eyj- ólíssonar á Kletti í Reykholts- dal. Hann var fjallkóngur á Arnarvatnsheiði í fulla hálfa öld og hafði frá mörgu að segja. En nú fyrst skildi ég á- huga óg tilfinningar þessa dýralæknis og dýravinar er hann var að segja mér frá gjám og sprungum í Hallmund- arhrauni bar sem sauðfé hefði soltið til bana, og þungann í áherzlu lians á því að þetta yrði lagfært eftir því sem kostur væi’i á. Ég hafði aldrei áður komizt í snertingu við slíka atburði. Samtalið við öld- unginn veldur því m. a. að mér finnst rík ástæða til að segja fi’á þessu opinberlega, því víða mun pottur brotinn í þessu efni í hraunum landsins. Mér er nokkur forvitni á að vita hvort litla gimba, sem ég bar yfir ána, í afi’éttarland Kolhreppinga lifir til rétta, eða hvort hún heíur þolað þessa bi’eytingu á lífsviðurværi. Hitt er þó aðalatriðið, að slíkir hraunhvammar sem þessi séu gerðir hættulausir. Frk Hítarvatni, Tröllakirkja t.h. og Foxufell t.v. í baksýn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.