Þjóðviljinn - 11.09.1954, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 11.09.1954, Blaðsíða 7
Laugardagur 11. september 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 þá sjáum við, að kyngöfgin stendur í beinu hlutfalli við landgæði héraðanna á þjóð- veldisöld (930-1262) nema e. t. v. norður í Skagafirði. Ár- nessýsla er auðvitað að fornu og nýju langfrjósamasta sveit landsins. Þar voru hreinar meðaltekjur bænda árið 1952 um 80 þús. kr. Bændur í Borg- arf jarðar- og Eyjaf jarðarsýsl- um stóðu næstir Árnesingum að tekjum og öfluðu 56 þús. nettó, en Rangæingar þeir þriðju í röðinni með um 50 þús. kr. En Árnessýsla er pkki einungis frjósamasta hérað landsins, heldur liggur hún einnig bezt við samgöng- þess að rétta hlut sinn. Þann- ig er Ásbirningavaldið í Skaga firði haukdælskt, en Skaga- fjörður og Árnessýsla verða eins konar öxulveldi í ís- lenzkri valdapólitík tímabils- ins, þau kljúfa ísland yfir þvert og takast í hendur á Kili. Ef sverð þitt er stutt. Rangárþing er annað frjó- samasta hérað landsins, en plágað af jarðcldi, vatnagangi og sandfoki frá því á land- námsöld. Rangæingar hafa Suðurlandsundirlendið er eitt hérað frá Hellisheiði aust- ur að Seljalandsmúla, en Þjórsá, mesta fljót landsins, skiptir því í tvo ójafna hluta. Björn Þorsteinsson: Oddaverjinn á Skálholtsstóli um á landi og sýnu betur við samgöngum á sjó en önnur liéruð Suðurlandsundirlendis- ins. Úr uppsveitum Árnes- sýsíu liggur greiðfærasti fjali- vegur landsins, Kjölur, norður yfir hálendið til Húnaþings og Skagafjarðar. Líklegt er, að engar auðnir hafi verið á þeirri leið fram eftir öldum. Sömu- leiðis lá allgreið leið úr Hreppum austur á Sprengi- sand yfir Þjórsá hjá Sóleyj- arhöfða, en af Þingvelli lá gagnvegur til Vesturlands um Biskupsbrekku og Kaldadal. Árnesingum var því auðvelt um útþenslupólitík, og kjörn- ir bandamenn þeirra á Norður- landi voru Ásbirningar, höfð- ingjar Skagfirðinga. Skaga- fjörður er einna gróðursæl- asta hérað Norðurlands, og Ásbirningar urðu voldugastir norðlenzkra höfðingja sökum bandalags við Árnesinga. Færu Ásbirningar halloka heima í héraði, gátu þeir á- vallt flúið suður Kjöl og feng- ið Haukdæli í Árnesþingi til Það er í sjálfu sér heimsku- legt að telja einhvern einn hluta lands vors öðrum feg- urri. Hvernig eigum við að mæla fegurðina? En hvaða staður, sem okkur kann að þykja fegurstur á landi voru, þá býr Suðurlandsundirlendið eitt yfir þeim töfrum, sem nægt hafa til þess að rugla konunga og stjórnmálamenn á pólitískri íínu, þegar þeir hafa lagt þar leið sína. Sagt er að Friðrik VIII. hafi sagt, þegar hann leit yfir þessi auð- ugu héruð: ,,Hér gæti verið heilt konungsríki." Þegar hann hafði ferðazt um Þingvelli, til Geysis og Gullfoss, austur yf- ir Þjórsá og kom úr þeirri ferð á Kolviðarhól snemma í ágúst 1907 hélt hann ræðu og sagði m.a., að takmark sitt væri einungis sann’eikur og rét.tlæti handa báðum ríkjun- um. Báðum ríkjimum, slík orð hafði enginn danskur stjcrnarherra vifthaft fyrr, því að Da.nir héjdu fram, að íslánd væri r nftski’ianlegur hluti Danavo1di-ii en kvnni konun.gs af ipndi c~ þjóð austan flM’s' ""n'. slík, að Island var orðið siálfstætt ríki í huga hans, þegar hann kom á Hólinn. Þessi .skipting hefur verið mjög örlagarík fvrir íslenzka þ.l'óðarsögu, þetta jötuneflda fljót, 225 km á lengd, sem fþyt- ur fram um 450 tonn af vatni á sekúndu, hefur verið meiri örlagavaldur en flesta grunar. Fljótið fellur í ungum farvegi fyrir neðan Tungnaá, því að einhvern tíma eftir ísöld hef- ur mesta hrpun, sem menn vita, að runnið hafi frá ein- um og sömu eidstöðvum í veröldinni, flæmt hana úr gamla farveginum. Það er nefnt Þjórsárhraun og hefur komið upp á Fiskivatnasvæð- inu suðvestur af Vatnajökli, en fallið niður um Land og Hreppa, Skeið og Flóa til hafs, og eru Hásteinar við Ölf- usárósa, í yztu brún þess. Sök- um þessarar æskp.sinnar fellur „Þetta jötuneflda fljót sem flytur fram um 450 tonn af vatni á sekúndu“. Þjórsá í grunnum, hlykkjótt- um og misbreiðum farvegi, og er víða á annan kílómetra á breidd, en nálgast fjóra kílómetra, þegar nær dregur ósunurn. Sums staðar þeytist hún eftir þröngum gljúfrum eins og við Þjótanda, þar sem 78 m löng brú nær að spenna yfir þetta mesta vatnsfall landsins. I ánni eru 8 fossar, fæstir mjög háir, og fjögur vöð, öll ærið glæfra- leg nema Nautavað eitt. Það er furðugott, en verður auð- vitað öldungis ófært, ef nokk- ur vöxtur er í ánni. Þetta fljót hefur auðvitað verið mikill farartálmi, sundr- að Suðurlandsundirlendinu og valdið því, að það varð aldrei eitt ættarríki á þjóðveldisöld, heldur risu hér upp tvö ríki: Haukdæla í Árnesþingi og Oddaverja í Rangá.rþángi. Þessi ríki voru hvort um sig langsterkustu ættarríki lande- ins, því að þau stóðu í frjó- sömustu héruðum þess. Hefðu þau verið sameinuð, hefði ættarhöfðinginn orðið ókrýnd- ur Islandskonungur, eins og sagt var um Oddaverjann, Jón Loftsson í Odda, en Þjórsá sundraði konungsríkinu. Sú spurning liggur opin fyrir, hvort við hefðum nokkurn. tíma gengið Noregskonungi á hönd, hefði Þjórsá ekki verið til. En hyrfi hún úr Islands- sögunni, þá væri óhætt að láta margt fylgja fljótinu, en það er vafasamt, að við vild- um missa það allt saman. Miðstöð þjóð- lífsins. Ef við athúgum gróður- kort af Islandi og kyngöfgi manna í einstökum héruðum, því jafnan staðið höllum fæti í sviftingum við Árnesinga, en þeir hafa þó oft átt þann metnað að verða engir eftir- bátar hinna voldugu nágranna sinna. Af metnaði og keppni Oddaverja og Haukdæla er margt hið ágætast í íslenzkri menningu sprottið, þar er að finna aflvaka skapandi menn- ingarstarfs. Seni stórhöfðingjar fundu Árnesingar snemrna til skyld- leika við stórfursta bæði á himni og jörðu og gerðust snemma kristnir og báru kristindóminn fram til sigurs á alþingi árið 1000. Þrátt fyrir andspyrnu Rangæinga, sem voru auðvitað manna lieiðnastir úr því að Árnesing- ar voru kristnir. I þessum á- tökum kristni og heiðni kemur fyrst fram alvarleg keppni milli þessara aðila og Árnes- ingar sigra. Flestir kannast við Árnesinginn Iljalta Skeggjason þó ekki væri fyrir annað en það, að hann á að m.k. íslandsmet í guðlasti. Þennan útlæga guíníðing láta Árnesingar skíra Runólf goða úr Dal undir Eyjafjöllum, að- alforingja heiðinna manna. Meiri lítilsvirðingu gátu þeir ekki sýnt sigruðum nágranna sínum, og Hjalti brást ekki vonum þeirra sem uppskafn- ingur og lítilmenni. Þegar hann dýfði goðanum í vatnið, því að þetta var niðurdýfing- arskírn, reigðist hann og sagði: „Gömlum kennum vér nú goðanum að geifla á salt- inu.“ Svo mörg voru þau orð, og hvað áttu nú Rangæingar að gera? Árnesingar sáu, að guðhræðslan er til ýmissa- hluta nytsamleg, sendu pilta í læri suður í Þýzkaland og stofnuðu biskupsstól í Skál- holti, og höfðu nú í héraði sínu bæði alþingi og biskups- stólinn. Áttu Rangæingar að taka við eins konar ámesk- um kristindómi? Um þessar mundir bjó í Odda á Rangár- völlum prestur að nafni Sig- fús Loðmundarson, og hefur hann sennilega numið lærdóm af engilsaxneskum trúboðs- biskupi. Sigfús var goðorðs- maður, en annars af engu merkari ætterni en margur Framhald á 11. síðu. k' „Árnesingar höfðu í héraði sínu bæði Alþingi og biskupsstólinn“. Þjórsá • •

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.