Þjóðviljinn - 11.09.1954, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 11.09.1954, Blaðsíða 12
Voru þó öllu vægari en þeir fyrstu - Hœtfa á drepsóftum i kjölfar þeirra Frá því að hinn mikli jaröskjálfti varö í Alsír í fyrri- nótt þar til seint í gær mældust 1 Algeirsborg 67 meiri og minni kippir, sem áttu upptök í Orléansville og þar í grennd. Flestir þessara kippa voru mjög vægir, en 15 voru mjög snarpir. Einn þeirra, sem átti upptök í Orléansville, stóð í 12 sekúndur, en annar sem átti upptök í Ténés, um 40 km fyrir norðan Orléansville, stóð í 6 sekúndur. TJnnið að björgunarstarfi Unnið er af kappi að björg- unarstarfi, en litlar vonir eru til þess, að nokkrir þeirra, sem grófust undir húsarúscunum, séu á lífi. Þegar siðast frévt- ist höfðu um 600 lík verið dreg- in undan rústunum og þykir víst að fjöldi þeirra sem fórust sé a.m.k. yfir 1000 . Flóð og hætta á drepsóttum Það hefur torveldað björgun- arstarfið, að flætt hefur yfir stórt svæði í námunda Orléans- ville, vegna þess að stíflugarð- ur brast í jarðskálftanum. Flóðið hefur einnig aukið hættu á drepsóttum, sem fylgja oft í kjölfar jarðskjálfta. Fólkið liefst við undir berum himni I Orléansville þorir enginn að dveljast í þeim húsum, sem enn standa uppi af ótta við nýja kippi. 40.000 manns höfð- ust við undir berum himni þar í fyrrinótt og skorti flesta til- finnanlega skjólfatnað. Ofboðs- hræðsla greip fólk, þegar jörð- in tók að hrærast aftur undir dögun í gær. Þjóðarsorg í Frakklandi Lýst var í gær yfir þjóðarsorg í Fraklandi og nýlendum þess. Fánar blöktu, í hálfa stöng og útvarpsstöðvar útvörpuðu að- eins sörgartónlist. Sjónarvottur segir frá Hér fer á eftir lýsing sjón- arvottar á jarðskjáiftanum í Orléansville áðfaranótt fimmtu- dagsihs: Dómkirkjuklukkan hafði rétt s’egið eitt, þegar óg var að tekin á dagskrá ráðsins með fara í rúmið. Það var heldm' Öri§í§gisráMö á fundi Öryggisráðið kom saman í gær til að ræða kæru Banda- ríkjastjórnar yfir því, að sov- ézkar orustuflugvélar skutu niður bandaríska herflugvél við Síberíustrendur sl. laugardag. Vishinskí, fulltrúi Sovétríkj- anna, lagði til, að kærunni yrði vísað frá, þar sem sovézku flugvélarnar hefðu verið í full- um rétti. Bandaríska flugvélin hefði flogið inn yfir sovézka landhelgi, hefði óhlýðnazt fyr- irskipun um áð hafa sig á brott og hafið að fyrra bragíi skóthríð á sovézku flugvélarn- ar. Cabot Lodge, fulltr. Banda- ríkjanna, mótmælti þessum stáðhæfingum -og var kæran 10 átkvæðum gegn'atkvæði Vis- hinskís eins. svalt í veðri og ég lokaði þvi glugganum að svefnherbergi Eiffi llugvélanna skotin niðnr, önnuc löskuS mínu og ríkti þá alger kyrrð í bænum. Nokkrum andartök- um eftir að ég hafði lagzt í rúmið lieyrðust drunur og dynkir og jörðin skalf. Jarð- skjálftinn getur ekki hafa stað- ið yfir meira en eina mínútu, en mér fannst hann aldrei ætla að taka enda. Það var engu líkara en jörðin hefði fengið ó- stöðvandi hiksta .Tveir kippirn- ir voru harðastir. Eins og skotið væri af fallbyssum Þungar drunur heyrðust, eins og skotið væri af fallbyssum í fjarlægð. Það hljóta að hafa verið húsin sem voru að hrynja í rúst. Eg reyndi að kveikja ljós, en ekkert rafmagn var lengur. Ég kveikti á kerti og staulaðist út úr húsinu. Þeii-ri sjón sem bar fyrir augu mér þegar út kom verður ekki með orðum lýst. Á a’la vegu voru hús að molna niður og ang- istarvein fólksins sem undir þeim varð blandaðist ópum þeirra sem höfðu bjargazt út á stræti borgarinnar. Yfir borginni lá þykkt rykský, svo að ekki sást til himins. Sjón sein ekki gleymist Ég mun aldrei gleyma þess- ari sjón. Kona í hvítum nátt- kjól gekk kjökrandi yfir rúst- ir heimilis síns sem allir henn- ar nánustu lágu grafnir undir. Á götunni stóðu börn sem misst höfðu foreldra sína og grétu sáran. Ég furðaði mig á því, hve stillilega flestir tóku þess- um hörmungum. Jafnvel þeir sem misst höfðu ada sína nán- ustu brugðu strax við Hl að hjálpa þeim, sem lágu særðir í 'rústunum. Við gátum að vísu ekki mikið fyrir þá gert, því aö sjúkrahús bæjarins hafði einnig hrunið í rúst. En við reyndum eftir beztu getu að hjálpa þeim. Við höfðumst alla nóttina við undir berum himni, Flugvéiar Formósustjórnarinnar gerð'u enn loftárás á hafnarborgina Amoj á meginlandi Kína í gærmorgun. Var þaö fimmti dagurinn í röð sem slík árás er gerö á borgina. Herskip Formósustjórnarinn- ar skutu einnig af fallbyssum á borgina og stórskotahríð var einnig gerð á hana frá virkjum á Kvimoj. Flugvélar Formósustjórnar- innar flugu í fyrrinótt yfir Sjanghaj og Kanton og vörpuðu niður áróðursritum. enginn þorði að fara inn í hús- in af ótta við nýja kiupi . SENDIHERRAR Vestui-ve’danna þriggja í Moskvu afhentu í gær svar rikisstjórna sinna við boði sovétstjórnarinnar um stórve’da- fund. I gærkvöld hafði svarið ekki verið birt. KpiinprWur og balleUsýtiiiig Kynningarfundur með sovétsendinefndinni veröur aö Hótel Borg kl. 2 e.h. á morgun og ballettsýning í ÞjóÖ- leikhúsinu um kvöldiö. Eins og kunnugt er stendur nú yfir kynningarmánuður fé- lagsins MÍR, en það gengst fyr- ir nú í september fjölþættri starfsemi til kynningar á menningu og listum Sovétþjóð- anna. Einn liður í þessari starf- semi verður kynningarfundur með sendinefndinni frá Ráð- stjórnarríkjunum, sem hér er stödd, en til slíks fundar efnir Arbenz, fyrrum forseti Gua- temala, kom til Mexíkóborgar með flugvél í gær frá Gua- temalaborg. Hann og 20 aðrir fyrrverandi stjórnarleiðtogar í Guatemala hafa fengið griía- stað í Mexíkó og veitti Armas, sem United Fruit Co. setti í forsetastól í Guatemala, þeim leyfi til að fara úr landi, en þeir höfðu dvalizt í sendiherra- bústað Mexíkó í Guatemala síðan uppreisnarmenn tóku völd. !--------------------------\ Castríes komínn til Parísar Christian de Castries, hers- höfðingi 'kom í gær til Parísar 1 með flugvél. Honum var ekki | tekið með neinni viðhöfn, eins ■ og búazt hefði mátt við, eftir hið mikla lof sem hlaðið hefur verið á hann fyrir frammistöðu hans í Dienbienphu. Skýringin mun vera sú, að hann hefur látið í ljós bá skoðun, að Frakk ar hafi ekki barizt við „heims- i veldisstefnu kommúnista" í Indó Kína, heldur við þjóð- frelsishreyfingu landsmanna. De Castries villti á sér heim- heimildir á leiðinni heim og ferðaðist undir öðru nafni, en blaðamenn höfðu komizt á snoð- ir um, að hann væri vaentan- legur og tóku á móti honum á flugvellinum. Hann sagði þeim, að hann myndi ræða við Mendés France og aðra háttsetta menn í frönsku stjórninni, en halda brátt aftur til Indó Kína. MÍR á morgun kl. 2 e.h. að Hótel Borg. Þarna munu sendinefndar- mennirnir frá Ráðstjórnarríkj- unurn og fleiri flytja ávörp og drukkið verður sameiginlegt kaffi. Ekki er að efa að félagar í MÍR munu fjölmenna til hófs ijessa, og er þeim heimilt að taka með sér gesti. Ballettsýning verður í Þjóð- leikhúsinu annað kvöld og hefst hún kl. 21. Aðgöngumið- ar að henni eru seldir* í Bóka- búð Máls og Menningar Skóla- vörðustíg 21. Heílögum kúm slátrad Til uppþota kom í gær í Kalkútta í Indlandi )út af þeirri ákvörðun stjórnarvalda að leyfa að kúm væri slátrað. 1 trúarbrögðum Hindúa er kýr- in talin heilagt dýr og í ind- verskum lögum er lagt bann við því, að þeim sé slátrað fyrr en þær eru a.m.k. orðnar 14 ára gamalar. Út af þessari reglu hefur verið brugðið í Kalkútta og fóru ofstækistrú- armenn í mótmælagöngu um borgina í gær og lenti þá sam- an við lögreglu. álykfun þess efsis sam- þykkt emféma á þlagi biezka alþýðasasu- baadsms Þing brezku verkalýðsfélag- anna, sem nú er lokið, sam- þykkti einróma ályktun, þar sem lögð er áherzla á nauðsyn þess að austur-vesturviðskipti og reyndar öll milliríkjaverzlun verði aukin sem mest. Auk þess samþykkti þingið ályktanir þar sem skorað er á Verkamannaflokkinn að beita sér fyrir þjóðnýtingu fleii'i iðn- greina í Bretlandi. Stjórn Dagsbrúnar mótmœlir verBhœkkun á rafmagm ílík þróun hlýtur að lelða til gognráðstc ana af hálfu verk alýðssamtakanna ÍS9 Þetta var sjöundi dagurinn í röð, sem virki og herskip Sjangs Kajséks skjóta á Amoj og finxmti dagurinn sem loftá- rás var gerð á borgina. Til- gangurinn með þessum árásum virðist vera sá að reyna að hindra innrás alþýðuhersins á Kvimojeyjar, og var tilkynnt í Taipe, höfuðborg Taivan (For- mósu) í gær, að 5 skipum og 18 djúnkum á höfninni í Amoj "hefði verið sökkt í gærmorgun. Ein skotin niður, Ein af árásarflugvélunum var skotin niður, önnur löskuð, en hinum stökkt á flóta, áður en þær hefðu valdið verulegu tjóni, sagði kínverska fréttastofan Hsinhua í gær. Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi sem stjórn Verkamannafélagsins Dags- brúnar hélt 9. þm: „Stjórn Verkainannafélags- ins Dagsbrúnar mótmælir liarðlega fyrirbugaðri verð- hækkun á rafmagni til neyt- enda, sem rædd var á síðasta fundi bæjarstjórnar. Stjórnin viil benda á þá staðreynd, að Rafmagnsveitan hefur, með núvcrandi verð- lagi á rafmagni, skiiað ríf- legnm rekstrarafgangi á und- anfömnm árum og txieðan svo er telur stjórnin það vera ó- færa stefnu að leggja á bein- an neyzluskaft til að standa undir eðlileguin lánsfjárþörf- um Rafmagnsveitunnar. Þá vill stjórn Dagsbrúnar alveg sérstakiega benda á, að með hækkun rafmagnsverðs- ins er algerlega liorfið frá þeirri stefnu, er stjórnarvöld- in lofuðu að fylgja jiegar leyst voru verkföllin í desem- ber 1952, jteirri stefnu að auka kaupmátt launanna og lækka dýrtíðina. Launþegar fá ekki þessar eða aðrar verð- hækkanir bættar í vísitölunni nema að litln leyti og verða jtær því til jiess að breikka stöðugt bilið milii verðlags- ins og kaupgjaldsins, en slík þróun hlýtur að leiða til gagnráðstafana af hálfu verk- lýðshreyf«ngarinnar“.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.