Þjóðviljinn - 26.10.1954, Side 5
Þriðjudagur 26. október 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Farið með stríðsglæpamenn sem
þjóðhetjur í ríki Adenauers
Mkisstjörn og emhœttiskerfi Westur-frýskaiands eru
gegnsmogin af imsistum* segir sœnskur prófessor
Allt stjórnarkeríi Vestur-Þýzkalands er gegn-
smogið aí háttsettum meðlimum úr nazistaílokknum.
Þetta er niðurstaða sænska sagníræðingsins Hugo
Walentins, prófessors við háskólann í Uppsölum,
sem hefur kynnt sér ástandið sjálfur.
í erindi í Uppsölum í fyrri
viku gerði hann grein fyrir
kynnum sínum af því, hvernig
nazisminn veður uppi undir
stjórn Konrads Adenauers í
Vestur-Þýzkalandi.
1 utanríkisráðuneyti Vest-
ur-Þýzkalands eru þegar 85
af hundraði af starfsliðinu
fyrrverandi meðlimir naz-
istaflokksins og hratt miðar
í sömu átt í Iögreglustjórn-
inni, dómsmálunum og öðr-
um greinum embættiskerfis-
ins, sagði prófessorinn.
Hættan er ótvíræð
Það er ekki lengur tímabært
að ræða um það, hvort nazism-
inn í Vestur-Þýzkalandi sé
hættulegur, sagði prófessor
Walentin. Hættan er orðin svo
áþreifanleg að menn hljóta nú
að spyrja sjálfa sig fullir kvíða,
hvaða ráð séu tiltæk í barátt-
unni gegn henni.
í sjálfu ráðuneytt Aden-
auers kanslara sitja hvorki
meira né minna en átta
inenn, • sem á . sínum tíma
voru athafnasamir flokks-
menn í nazistaflokknum.
Innanríkisráðherrann var of-
ursti í SS-hermdarverkasveit-
unum. Ritari Adenauers sjálfs
samdi á velmektardögum þriðja
ríkisins skj'ringar um lög naz-
ista um ofsóknir gegn gyðing-
um.
Kins og sigrandi hetjur
Nazistahreinsunin hefur al-
gerlega farið út um þúfur í
Vestur-Þýzkalandi. Hinn naz-
istiski andi ríkir enn ómengað-
ur meðal stóreignamanna og
annarra mektarbokka.
Stríðsglæpamönnum sem
lialda heim úr fangavist er-
lendis er tekið líkt og þeir
væru sigri hrósandi hetjur.
Bandamenn náða menn með
hin hryllilegustu illvirki á
samvizkunni hvern af öðrum
og þeir koma akandi í nýjum
bílum, sem þeir liafa fengið
að gjöf, heim að skrauthýs-
um, sem aðdáendur og skoð-
anabræður liafa einnig gefið
þeim. Öllum áróðurstækjum
er beitt tíl þess að koma því
inn hjá almenningi að glæpa-
mennirnir séu hinir frábær-
ustu föðurlandsvinir og liafi
því orðið fyrir barðinu á of-
sóknaræði sigurvegaranna.
Að loknu erindi Walentins
prófessors voru frjálsar um-
ræður og tóku margir til máls.
í áheyrendaskaranum bar mikið
á þýzkum háskólaborgurum
sem dvelja í Svíþjóð. Allir
ræðumennirnir úr þeirra íiópi
lögðust á sömu sveif og frum-
mælandi og kváðu liann sízt
hafa gert of lítið úr uppgangi
nýnazismans í Vestur-Þýzka-
Iandi undir verndarvæng Kon-
rads Adenauers.
Pólverjar láta
Bandaríkjamann
. lausan
Útvarpið í Varsjá skýrði frá
því í gær, að Bandaríkjamaður-
inn Herman Field hefði verið
látinn laus úr fangelsi, en hann
var handtekinn í Varsjá 1949.
Hafði hann farið að grennslast
um örlög bróður síns Noel og
■ konu hans Herthu, sem horfið
höfðu í Austur-Evrópu þá um
sumarið.
í yfirlýsingu frá pólskum yf-
irvöldum segir, að komið hafi í
ljós að Field hafi verið borinn
röngum sökum og verði þeim
refsað sem beri ábyrgð á því at-
hæfi. Sekastur sé Josef Swiatlo,
áður starfpmaður í pólska örygg-
ismálaráðuneytinu, sem hlaupizt
hefur í brott frá Pöllandi og
dvelur nú í Bandaríkjunum.
Swiatlo skýrði frá því nýlega í
Washington, að hann hefði hand-
tekið Herman Field.
Tillaga um slöðv-
un hervæðingar
Krishna Menon, fulltrúi Ind-
lands hjá SÞ, bar í gær fram
tillögu um að vígbúnaðarkapp-
hlaupið í heiminum verði stöðv-
að meðan verið er að semja
um afvopnun. Kvað hann
myndi erfitt að semja um af-
vópnun nema hervæðingin væri
stöðvuð fyrst. Stórveldin öll,
bæði Sovétríkin og Vesturveld-
in, hafa nú í fyrsta skipti sið-
an 1946 sameinazt um tillögu
um að afvopnunarnefnd SÞ
skuli falið að hefja störf á ný.
Albert Kessel-
ring, einn af
■ marsJcálkum
Hitlers og
dæmdur stríðs-
glœpamaður,
er einn af þeim
t nazistum, sem
nú láta mikið
til sín táka í
Vestur-Þýzka-
landi. Hann
var dœmdur
til dauða fyrir
fjöldamorð á
öbreyttum
borgurum á
Ítalíu en Bret-
ar náðuðu P**
hann og létu
síðan lausan.
Kesselring er
forseti Stahl-
helm, samtaka
uppgjafaJier-
manna, og
einn af ráðu- <
nautum ríkisstjórnar Adenauers um Jiervœðingu Vestur-
Þýzkalands. Á minni myndinni sést Kesselring heilsa
Hitler í Póllandi, en þar eins og siðar í Hollandi stjórn-
aði hann gerey&ingarárásum flugJiers nazista á varnar-
lausar borgir svo sem Varsjá og Rotterdam. Stærri mynd-
in sýnir hann, annan frá vinstri, í forsœti á þingi Stahl-
Jhelm í Braunschweig í Vestur-Þýzkalandi í fyrra.
Grátandí þingmaður játaði i sjónvarpi
að hafa logið um sig hetjudáðum
HafSi veriS tiflaður ,,ungur, bandariskur
afreksmaSur" og hlofiS lof Eisenhowers
Hvernig sem þingkosningarnar í Bandaríkjunum að’
viku liðinni fara að öðru leyti, þykir nokkurnveginn víst
að republikanar, stjórnarflokkurinn, tapi öðru fulltrúa-
deildarkjördæminu í Klettafjallafylkinu Utah.
Þingmaður þessa kjördæmis, Douglas R. Stringfellow,
hvarf úr framboði fyrir nokkrum dögum í miðri kosn-
ingabaráttunni eftir að uppvíst var oröið að hann hafði
gert sjálfan sig að þjóðhetju á fölskum forsendum.
Stringfellow játaði grátandi
í sjónvarpi og útvarpi frá Salt
Lake City, mormónaborginni
sem er höfuðstaður Utah, að
hann hefði logið frá rótum
sögu um hetjudáðir sínar í
heimsstyrjöldinni.
Þingmaðurinn vann Annað
kjördæmið í Utah í kosning-
unum 1952 af demókratanum
Walter K. Granger, sem hafði
setið á þingi fyrir það í tólf
ár samfleytt. Granger er enn í
framboði í ár.
Þóttist liafa rænt þýzkum
kjarnorkufræðingi
Stringfellow, sem bæklaðist
í styrjöldinni, lét það orð breið-
ast út að hann hefði gegnt
þýðingarmiklu hlutverki I
bandarísku víkingasveitunura
OSS. I Hvíta húsinu í Was-
hington hefði sér verið falið að
stjórna 38 manna flokki, sera
varpað hefði verið niður í fall-
hlífum í Þýzkalandi. Þar hefðu
þeir liandsamað þýzka kjarn-
orkufræðinginn Otto Hahn og
komið honum á vald Banda-
manna en víkingarnir hefðu
verið handteknir og varpað I
fangabúðirnar Belsen. Þaðau
kvaðsþ Stringfellow einn liafa.
sloppið en aðrir félagar sínic
Framhald á 8. síðu.