Þjóðviljinn - 26.10.1954, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 26.10.1954, Blaðsíða 8
B) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 26. október 1954 Þingmaður laug á sig hetjudáðum Framhald af 5. síðu. íiefðu verið píndir til bana. Hlaut fraegð og frama Hetjuljóminn sem String- fellow fékk á sig við þessa Eögu gerði hann víðkunnan. Ekrifað var um afrek hans í folöð og tímarit og hann var eftirsóttur til að halda ræður á samkomum og segja þar frá ráni kjarnorkufræðingsins og þrengingum sínum í Belsen. Republikanaflokkurinn fékk þennan fræga mann til að bjóða sig fram til þings og enginn vafi er á að það voru hinar lognu hetjudáðir sem urðu drýgstar til að tryggja Jionum sigur í kosningunum. Sjónva rpsdagskrá Og skeyti frá Eisenhower 1 Því lengra sem leið þiví ó- fevífnari varð Stringfellow í ©sannindunum. Hann tók sjálf- tir þátt i sjónvarpsleikriti um afrek sín, sem sýnt var í janú- ar í ár. Eftir dagskrána sendi tolaðafulltrúi Eisenhowers hon- tim skeyti, þar sem hann segir að forsetinn hefði beðið sig að koma á framfæri heillaóskum sínum vegna „frábærrar fram- setningar á einstæðum afreks- .verkum yðar“. Nokkru eftir sjónvarpsdag- ekrána tilnefndi Samb. ungra kaupsýslumanna í Bandarikjun- urn Stringfellow einn af tíu ...rmgum, bandarískum afreks- Knönnum", sem því fannst sér- Stök ástæða til að heiðra. ! Keyndi fyrst að fcíóra í bakkann Fypr nokkrum vikum komst feá orðrómur á kreik bæði í ÍUtah og Washington að ekkert íj skjölum Bandaríkjahers stað- íesti frásögn þingmannsins. — tHerblaðið The Army Times .varð fyrst til að slá þessu föstu a prenti. 1 fyrstu brást String- fellow reiður. við og krafðist jþess að Eisenhower forseti Jeyfði birtingu léyndarskjala, sem hann staðhæfði að sönn- uðu sögu sína. Fyrrverandi trúboði Annað hljóð var komið í Eirokkinn nokkrum dögum síð- ar þegar þingmaðurinn birtist ífyrirvaralaust á sjónvarpstækj- fólks í Utah. Hann játaði sð hetjusögurnar um sig væru Ekáldskapur, hann hefði aldrei verið í OSS, sár sín hefði hann fengið af jarðsprengju í Frakk- íandi. Stringfellow, sem var um tíma trúboði fýrir mormóna, sagði m.a.: ,,Ég kem fram fyr- ir útvarps- og sjónvarpshlust- e'ndur auðmjúkur, sundurkram- inn og sáriðrandi maður. .. . Það veit faðir minn á himnum að ég vildi allt gefa til þess að bæta fyrir þetta brot og ég mun verja þeim árum sem ég á ólifað til þess að reyna að gera yfirbót og sýna sanna iðrun". Flokksstjórn republikana í Utah samþykkti einróma að þessi vellýgni þingmaður skyldi hverfa úr framboði fyrir flokk- inn. Söfnunarfregnir Framhald af 7. síðu. innan skamms innheimtir allir útfylltir listar og síðan farið í skipulagða söfnun eftir hverf- um og götum, svo sem í kosn- ingum. í fyrstu lotu hafa kom- ið á blöðin allir ákveðnustu og áhugamestu hernámsandstæð- ingar. Þegar hægt verður að tilkynna tölur sem sýna mikinn þunga sóknarinnar og vaxandi styrkleika okkar, koma hinir vafasömu inn í raðirnar fleiri og fleiri. Slik undirskriftasöfn- un er ekkert áhlaupaverk, og miklu meiru varðar að vinna með þrautseigju og þolinmæði þótt alllangan tíma taki, held- ur en gera snögg áhlaup og láta svo sókninni lokið. Við höfum ekkert tímatakmark, þó að æskilegt sé að árangur ná- ist sem fyrst. En ekki má hætta fyrr en allir Islendingar 18 ára og eldri, sem nokkur líkindi eru til að snúist á sveif með okkur, fái tækifæri til að skrifa undir. ■ Þessi undirskriftasöfnun á ekki einungis að vera mikið átak í þjóðfrelsisbaráttunni, heldur mesta átakið, sem fram- kvæmt hefur verið á þessum vettvangi til þessa. G. M. M. Ti S --------------------------------r:----------«) Vinnan og verkalýðurinn er eina verkalýðsmálatímaritið, sem út kem- ur að staðaldri liér á landi. Virnian og verkalýðorinn flytur greinar um verkalýðsmál, erlend sem innlend jöfnum höndum, ennfremur ál- mennan fróðleik, Esperantópátt, kvœði, vísnabálka o. fl. Afgreiðsla Skólavörðuslíg 19 — Sími 7500 einkasímar: Björn Bjarnason formaður Út- gáfufélags alþýðu 6297 — Jón Rafnsson ritstjóri 81077. r % ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRI FRÍMANN HELGASON V- — - -- - - - - - - .- Valur vann Hausfmotið Gerði jafnteíli við KR 1:1 í úrslitaleik á sunnudaginn Á sunnudaginn var fóru fram síðustu knattspymuleikir keppnistímabilsins 1954. Skil- yrði til knattspyrnuleiks voru mjög slæm vegna leðju sem á vellinum var eftir þýðviðrið og regnskúrirnar á frosna jörð- ina. Það sem gerðist var því flest mjög tilviljanakennt, sem að þessu sinni er auðvelt að skrifa á reikning færðarinnar. Knötturinn sat fastur í for- inni eða þeyttist óútreiknan- lega eftir því hvernig hann snerti völlinn. Úrslitaleikurinn milli KR og Vals var þó betri en hinn leik- urinn. Meiri knattspyrnulegir tilburðir ef svo mætti orða. Meiri hreyfing og ákveðnari spyrnur en öðruvísi þýddi ekki að hreyfa við knettinum. Valur lék undan vindinum í fyrri hálfleik og var ekkert mark sett í þeim hálfleik. Val- ur átti þó nokkur tækifæri en eins og fyrr segir var allt til- viljun hvernig til tækist með spyrnur og knött. Það var snemma í fyrri hálfleik sem Gunnari Gunnars tókst að skora með skoti innan á stöng. Guðmundur í marki KR áttar sig ekki á því að knötturinn veltur ekki eins og á ,,normal“ velli, bíður í stað þess að þjóta af stað, en Gunnar varð fljót- ur að notfæra sér möguleik- ann sem undir venjulegum kringumstæðum hefði verið ó- mögulegt. KR jafnar rétt eftir miðjan hálfleikinn. Var það Ólafur Hannesson sem skall- aði mjög vel í mark Vals eftir vel tekna hornspyrnu sem Gunnar Guðmannsson tók. Þrátt fyrir góðan vilja og ó- venjulega baráttíi beggja að j gera sigurmarkið tókst hvor- ; ugum að skora enda þótt tæki- 1 færi virtust fyrir hendi (raun- ar vissi maður aldrei hvað var tækifæri og hvað ekki). Eftir gangi leiksins, og hreyfingu var Valur miklu nær að vinna þennan leik. Vals- menn voru fljótari til og kvik- ari. Dómari var Haukur Óskars-1 son. Fyrri leikurinn var milli Þróttar og Fram. Til að byrja með lá mjög á Þrótti og á fyrstu mínútu leiksins fá Þróttarar á sig vítaspyrnu sem Haukur skorar úr, mark- maður hefði þó átt að verja vegna þess hve spyrnan var nærri honum. Þegar líða tók á hálfleikinn fór leikurinn að verða jafnari og gerðu Þrótt- arar alltaf við og við áhlaup. Hættan var þó alltaf meiri við Þróttarmarkið. Nokkru fyrir hálfleik skorar Skúli fyrir Fram eftir að knötturinn hafði orðið hálffastur í leðju og hefði að öllu eðlilegu átt að lenda hjá markmanni. í seinni hálfleik kom svo fyrir alveg sama atvik en nú skorar Þorsteinn úr Þrótti eft- ir að knötturinn hafði stöðvazt í leðju og með að spyrna yfir Magnús sem hlaupið hafði út úr markinu til að hindra. Nokkru fyrir leikslok fær Þróttur á sig aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig, Haukur Bjarnason tekur hana en markmaður Þróttar virðist ætla að grípa knöttinn í stað þess að slá hann burt. En knötturinn er blautur og þungur og hann snýst úr höndum hans og utaní stöng og þaðan í markið. Árangur Þróttar er sá bezti sem flokkurinn hefur náð í meistaraflokki hingað til í þeim mótum, sem þeir hafa tekið þátt í. Dómari var Haraldur Gísla- son. Lars Krogh selnr siýil norskt met í Kunningi okkar frá í vor Norðmaðurinn Lars Krogh setti á ’ Oslómeistaramótinu nýtt Lars Krogli norskt met í 400 metra skriðsundi, var tími hans 4.52,3, sem er 3,1 sek betra en fyrra metið sem hann átti sjálfur. Á sama móti setti kvenna- sveit frá félaginu Speed norskt met á 4X100 m fjórsundi, tíminn var 5.48.4 eða 2 sek betra en gamla. Tíminn í einstökum greinum var: Bak- sund 1.28.4; bringusund 1.34.0; flugsund T.30.2; frjáls aðferð 1.15.8. Övind Gunnerud synti 100 m. skriðsund á 59.7 sek. Kúts bætir heimsmet Chataways Sovézki hlauparinn Kúts setti nýtt heimsmet í 5000 metra lilaupi á íþróttamóti I Prag s.l. laugardag, hljóp vegalengdina á 13.51.2 og bætti þar með metið, sem Bretinn Cliris Chata way setti í keppni í London og Moskva fyrir fáeinum dög- um, um 4/10 úr sek. Kúts bætti einnig heimsmet sitt á 3 e. mílum, tíini lians á þeirri vegalengd var 13.26.4. Emil Zatopelc hljóp 5000 metrana á 14.19.0. KH ratm haustmót 2„ #1. Á laugardag fór fram úrslita leikur II. fl. haustmótsins. Hann átti raunar að fara fram fyrir um það bil mánuði síðan en enginn veit af hverji^ hann fór ekki fram þá. Úrslit urðu þau að KR vann Val 2:1. Að gefnu tilefni má geta þess að 6 menn í liði Vals, sem léku í Þýzkalandi, kepptu ekki í þessum leik vegna forfalla. Austiirbær vaim Vesterbær 2:0 . Á sunnudagsmorgun fór fram hin árlegi leikur í III, fl. milli Austurbæjar og Vest- urbæjar. Fóru leikar svo að Austurbær vann 2:0, er það 'í þriðja eða fjórða skiptið í röð sem Austurbær sigrar í keppni þessari. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ | Notaður i barnavagn ! | • og notuð barnakerra til j sölu á Háteigsveg 26, ; kjallara. : tunmecús si&URmaímrasoii Minningarkortin eru til sölu í skrifstofu Sósíalistaflokks- ins, Þórsgötu 1; afgreiðslu Þjóðviljans; Bókabúð Kron; Bókabúð Máls og menning- ar, Skólavörðustíg 21; og í BéÞaverzlun Þorvaldar Bjarnasonar í Hafnarfirði. ________

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.