Þjóðviljinn - 26.10.1954, Page 11
Þriðjudagur 26. október 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (11
Framkvæmd Sóknarsamninganna
Framhald af 4. síðu.
andi kaup- og kjarasamnings
félagsins.
Bæði ég og fleiri stúlkur, er
unnu á Kleppsspítalanum, höfð-
um kært þetta ástand fyrir
fyrrverandi stjórn félagsins,
án þess að fá neina leiðrétt-
ingu.
Snemma í sumar bað ég trún-
aðarmann félagsins i spítalan-
um að gera gangskör að því að
málinu yrði kippt í lag og ræddi
hún það við starfsmann full-
trúaráðs verkalýðsfélaganna og
núverandi varaformann félags-
ins, en einnig án nokkurs
úrangurs.
Þar sein þetta ástand hefur
nú ríkt í meir en hálft ár, óska
ég fastlega eftir því að stjórn
félagsins geri án frekari tafar
nauðsynlegar ráðstafanir til
leiðréttingar á hinum van-
goldna fæðisliluta miðað við
þann tíma, er núgildandi samn-
ingur félagsins tók gildi..
Reykjavík, 20. júlí 1954.
Með félagskveðju.
(Undirskrift).
Forstjórinn hyggst með vott-
orði sínu að færa sönnur á að
sending þessa kærubréfs sé
markleysa ein. Stúlkan hafi að
vísu fengið leiðréttingu á kaupi
sínu í janúar og febrúar kr.
52.50, en þá skilst að hún ætti
að hafa tekið það sem kallað
er fullt fæði en eftir það hafi
hún ætíð tekið fæði er fallið
hafi á vinnutíma. Hér stangast
staðhæfing gegn staðhæfingu
og erfitt að færa sönnur á mál
þetta til fullnustu að sinni,
þar se'm viðkomandi stúlka er
nú fjarvistum erlendis. En
ætla mætti að stúlkan geri það
ekki að nauðsynjaiausu að
kæra út af þessu atriði
og heldur ekki aðrar
þær stúlkur sem hún talar um
í bréfi sínu. Enda liggur fyrir
yfiriýsing frá tveimur þeirra
sem ég kýs að nefna hér B. S.
og E. V. um það að þær hafi
ekki fengið mál sín leiðrétt. t
Um þá fjórðu liggur fyrir sú
upplýsing að hún fái þetta
greitt og er hún eina stúlkan
á Kleppi af þeim sem búa þar
sem fær þannig greidd fæðis-
hlunnindi. Um þá fimmtu ligg-
ur ekki fyrir nein upplýsing
vegna fjarveru hennar úr bæn-
um, en mjög sterk rök hniga
að því að líkt sé ástatt um
hana og J. S., E. V. og B. S.
Auk þess er eins og fyrr grein-
ir upplýst að aðeins ein af
þeim stúlkum sem býr á Kleppi
og tekur laun sín samkv. samn-
ingum Sóknar fær greidd fæð-
ishlunnindi eftir vali og hefur
hún fengið það í gegn aðeins
vegna þess- að hún hefur
kært þetta. Það virðist
því ljóst að forstjórinn, stjórn
Sóknar og starfsmaður Fuli-
trúaráðs verkalýðsfélaganna
Skjaldbreið
vestur um land til Akureyrar
hinn 30. þm. Tekið á móti flutn-
ingi til Súgandaf jarðar, áætlun-
arhafna á Húnaflóa og Skaga-
firði, Ólafsfjarðar og Dalvíkur
í dag og á morgun. Farseðlar
seldir á föstudag.
Skaftíellinpr
fer til Vestmannaeyja í kvöld.
Vörumóttaka í dag.
hafa öll brugðizt því hlutverki
að tryggja að 3. gr. samnings-
ins sé haldin gagnvart fyrr-
nefndum stúlkum, sem eru og
verið hafa á Kleppi. Verður þvi
enn einu sinni að gera kröfu
til þess að þessir aðilar sjái að
sér og leiðrétti þessi mál öll.
Viðvíkjandi vangaveltum for-
stjórns út af því hvort ég sé
matreiðslukona eða starfs-
stúlka, er erfitt að skilja hvað
forstjórinr, er að fara eða hver
tilgangur hans er með slíkum
vangaveltum og væri heppi-
legra að hann talaði skýrar í
því máli. Hitt hélt ég að hann
sem forstjóri Ríkisspítalanna
vissi hvern starfa ég hef með
höndum og að ég hef aldrei gef-
ið mig út fyrir að vera_ „að-
stoðarráðskona“ á Landspítal-
anum né verið til þess ráðin;
því starfi gegnir allt önnur
kona. Þá segir forstjórinn orð-
rétt í lok bréfsins:
„Sömuleiðis hafa stjórnendur
spítalanna ekkert við það að at-
huga, þó að Margrét Auðus-
dóttir matreiðslukona í Lands-
spítalanum vilji gefa sig að mál-
efnum starfsstúlkna, ef hún
gerir það af sönnum áhuga fyr-
ir umbótum á kjörum þeirra og
aðbúnaði og beitir í þeirri bar-
áttu ^æmilega drengilegum
vopnum. En að vera ráðin hjá
Landspítalanum sem mat-
reiðslukona (aðstoðarráðskona)
með um 2.500 króna mánaðar-
launum, en gefa sig út fyrir
að vera starfsstúlka með um
1.900 króna launum á mánuði,
það eru óheilindi sem varða
stjórnendur ríkisspítalanna og
líklega starfsstúlkur í Sókn
einnig.“
Hvers konar tilburðir eru
þetta hjá forstjóranum eða eiga
þetta að vera almennar leið-
beiningar til verkafólks í land-
inu? Eru manninum ekki kunn
landslög í þessum efnum eða
heldur forstjórinn að hann lifi
á annarri öld? Slík afskipti at-
vinnurekenda af innri málum
verkalýðsins verða ábyggilega
ekki liðin af verkafólki og
starfsstúlkur munu hrinda af
sér öllum slíkum tilraunum til
afskipta af málum þeirra á
verðugan hátt. Þar sem hann
talar um stjórnendur Ríkis-
spit'álanna mætti e. t. v. spyrja
hvort hann tali þar fyrir hönd
stjórnarnefndar Ríkisspítal-
anna, ráðherra þess sem fer
með málefni þeirra, eða Htur
hann á sig sjálfan sem þann
er fer með allt vald sem undir.
þessa aðila heyrir?
Margrét Auðunsdóttir.
'i
Mæðrafélagsins
hefst fyrst í nóvember, ef næg' þátttaka verður.
Kennari: Brynhildur Ingvarsdóttir.
Upplýsingar í síma 5573, í dag og á morgun.
NYL0MREPE:
KVEN-
KARLA- og
DRENGJA-
BUXUR
Heildsölubirgðir
ISLENZK ERLENDA VERZLUNARFÉLAGIÐ h.f. \
Garðastilæti 2. — Sími 5333.
Kvöldvaka
Kvöldvaka íþróttafélags Reykjavíkur liefst í :
Vetrargarðinum kl. 8.30 í kvöld. Til skemmtunar |
veröur:
1. Ávaxpr
2. Kvikmyndasýning.
3. Öskubuskur syngja.
4. Dans. — Í.R.-tríóið spilar
jyrir dansinum. ,■
( • m
Í.R.-INGAR! Fjölmennið á þessa fyrstu vetfar- É
kvöldvöku ykkar og takið gesti ykkar með.
Stjórn Í.R.
Framvegis tekið á móti pöntunum til
heimsendingar
Amerískir
7
w
borðlampar og standlampar
Þýzka r
LOFTSKALAR og VEGGLAMPAR
Lítið í gluggana
iui