Þjóðviljinn - 26.10.1954, Page 12
Framvörp Sósíalistaflokksins um
aukiiingu togaraflotans og opinberan
stuðninff við atvinnuframkvæmdir
HiðoviumN
Þriðjudagur 26. október 1954 — 19. árgangur — 243. tölublað
Fyrstu flutningsmenn frum-
varpanna, Karl Guðjónsson og
Gunnar Jóhannsson, fluttu ýt-
arlegar framsöguræður, skýrðu
frumvörpin og nauðsyn laga-
setningar um þessi mál. Bæði
íiumvörpin og ýtarlegar grein-
argerðir hafa verið birtar hér í
blaðinu.
Ræddi Karl togaraeign lands-
manna síðustu áratugina og
þróun togaraútgerðarinnar.
Sýndi hann fram á með skýr-
Um dæmum hver hyrningar-
steinn togaraútgerð væri at-
vinnulífi íslendinga, og hve
gífurlegum verðmætum hún
skilar þjóðinni á skömmum
tíma. Efling togaraflotans væri
því eitt brýnasta atvinnu- og
fjárhagsmál íslenzku þjóðar-
innar.
Gunnar Jóhannsson skýrði í
ýtarlegri ræðu frá frumvarp-
inu um opinbera aðstoð við at-
vinnuframkvæmdir bæjar- og
sveitarfélaga, en það frumvarp
flytja sósíalistar nú í þriðja
sinn. Frumvarpið kveður á um
bæjar- og sveitarfélaga
Komin til 2. umræðu og íjárhagsneíndar
neðri deildar
Tvö af frumvörpum Sósíalistaflokksins, um smíði
tveggja togara innanlands og kaup átta togara erlendis
frá, og frumvarpið um opinberan stuðning við atvinnu-
iramkvæmdir bæjar- og sveitarfélaga, voru til 1. um-
ræðu á fundi neðri deildar Alþingis í gær.
50 milljón króna lánsheimild,
og verði sú upphæð endurlánuð
bæjar- og sveitarfélögum til
verklegra framkvæmda. Benti
Gunnar á að frumvarpið hefði
vakið mikla athygli, m.a. hefðu
mörg verkalýðsfélög skorað á
Alþingi að samþykkja það. Nú
hefðu stuðningsmenn ríkis-
stjórnarinnar staðið upp á
þingi dag eftir dag og lýst
ömurlegu atvinnuástandi í
kjördæmum sínum vestanlands,
norðanlands og austanlands og
krafizt aðgerða svipaðra og
frumvarp sósíalista kveður á
um. Mætti marka af afstöð-
unni til þess hvort þetta væru
alvöruorð stjórnarflokkanna
eða hvort þau ættu aðeins að
vera til að flagga með.
Báðum frumvörpunum var
vísað til 2. umræðu og fjár-
hagsnefndar.
Trúnaðar-
manna- og fnll-
frúaráðsfundnr
n.k. miðvikndag
Fundur verður haldinn í
Fulltrúa- og trúnaðarmanna-
ráði Sósíalistafélags Reykja-
víkur n. k. miðvikudag, kl.
8.30 e. h. í Baðstofu iðnaðar-
manna.
Þar sem mörg áríðandi mál-
efni liggja fyrir fundinum er
þess vænzt að meðlimir
beggja ráðanna fjölmenni.
4>
Tögarasjó-
maður íerst
Á föstudagsmorguninn var
vildi þaft slys til á togaranum
Geir á miðum úti að *inn skip-
verja, Björn Friðriksson, féll út-
byrðis og drukknaði.
Björn var 24 ára, ókvæntur en
átti föður á lífi. Hann átti heima
hér í bænum, á Bergstaðastræti
10 C.
r •
ningar
bróðuleikhússins
Brúðuleikhúsið hefur haft
sýningar hér i Reykjavík og ná-
grenninu um vikutíma og ævin-
lega við góða aðsókn.
í dag verður skólasýning í
Iðnó, kl. 5 og 8 og er hún aðal-
lega ætluð börnum á skólasvæði
Vesturbæjarins og miðbæjarins.
Sýnd verður Hans og Gréta og
skemmtiþættir.
Minningarguðs-
þjónusta um
Einar Jónsson
Að tilhlutun ríkisstjórnarinnar
hefur verið ákveðið að minning-
arguðsþjónusta um prófessor
Einar Jónsson myndhöggvara
fari fram í Dómkirkjunni í R-
vík, laugardaginn, 30. október,
klukkan 14:00.
Biskup íslands, herra Ásmund-
ur Guðmundsson flytur minn-
ingarræðuna. Að ósk Ríkisút-
varpsins verður athöfninni út-
varpað.
Kosningar í Stúdentaróð
Næstkomandi laugardag fara fram hinar árlegu kosn-
ingar til Stúdentaráðs Háskólans. Sameiginlegt framboö
íhaldsandstæðinga strandaði á andstöðu Framsóknar,
sem virðist leggja kapp á aö halda opnum möguleikum
fyrír fasistana í Vöku til meirihluta í ráðinu, þrátt fyrir
vonlausan minnihluta þeirra meöal stúdenta.
í samræmi við þá samvinnu
allra íhaldsandstæðinga í Stúd-
entaráði, er verið hefur undan-
farið ár á grundvelli andstöðu og
baráttu gegn hinu bandaríska
hernámi buðu róttækir stúdent-
ar öllum samstarfsfélögunum í
meirihluta stúdentaráðs upp á
sameiginlegt framboð íhaldsand-
stæðinga og áframhaldandi sam-
starf á sama grundvelli að kosn-
ingum loknum. Þjóðvamar- og
Alþýðuflokksstúdentar voru
mjög til Viðræðu um slíkt sam-
eiginlegt framboð, en framsókn-
armenn höfnuðu eindregið, þrátt
fyrir það, að öllum stúdentum
sé Ijóst að eini vonarneisti íhalds-
Maliundur Félags ís-
leuzkza prjónlesiram-
leiðenda
Félag íslenzkra prjónlesfram-
leiðenda hélt aðalfund miðviku-
dag 20. okt.
Stjórn félagsins var endurkos-
in, en formaður' hennar er frú
Viktoría Bjarnadóttir.
Leitin að bátnnm árangarslaas
Fullvíst er nú talið að trillubáturinn Áfram RE 265,
sem á voru tveir menn, hafi farizt.
Eins og áður hefur verið frá
sagt fór bátiirinn í róður s.l.
fimmtudag. Sást síðast til hans
úti á flóa um fjögurleitið þann
dag. Þegar báturinn kom ekki að
landi á eðlilegum tíma var farið
að athuga um hann en öll leit
hefur orðið árangurslaus.
Á bátnum voru Jón Péturs-
son Kleppsveg 106. Hann lætur
eftir sig konu og 4 uppkomin
börn. Hinn maðurinn var Gest-
ur Sölvason Suðurpól 4 er læt-
ur eftir sig son uppkominn.
ins um nýtt valdatímabil er bólg-
inn í sundrungu andstæðinga
þess.
Félagi róttækra stúdenta hefur
aldrei dulizt þessi augljósa stað-
reynd og það hefur hagað baráttu
sinni samkvæmt því.
Aukið fylgi Félags róttækra
stúdenta í þessum kosningum
merkir því vilja stúdenta fyrir
skeleggari baráttu gegn innrásar-
hernum og fyrir frekari einingu
allra íhaldsandstæðinga innan
Háskólans. Þann vilja geta stúd-
entar ekki tjáð á neinn annan
hátt.
Lista Félags róttækra stúdenta
skipa eftirtaldir menn:
1. Jón Böðvarsson stud. mag.
2. Árni Björnsson stud. mag.
3. Jón Haraldsson stud. odont.
4. Bríet Héðinsdóttir stud. phil.
5. Loftur Magnússon stud. med.
6. Einar Jóhannesson stud. med.
7. Haukur Jóhannss. stud. polyt.
8. Geir Gunnarsson stud. oecon.
9. Baldur Vilhelmss. stud. theol.
10. Örbrún Halld.d. stud. philol.
11. Bjarni Guðnason stud. mag.
12. Guðm. Pétursson stud. med.
13. Jökull Jakopsson stud . theol.
14. Kristín Thorlacius stud.philol.
15. Jón Thor Haraldss. stud.phil.
16. Þórir Ólafsson stud. med.
17. Sig. V. Friðþjófss. stud. mag.
18. Einar K. Laxness stud. mag.
Fulltrúi listans í kjörstjórn er
Eberg Ellefsen stud. jur. Fram
munu komnir þrír aðrir listar þ.
e. íhaldslisti, listi Þjóðvarnar og
einn sameiginlegur listi fram-
sóknar og krata.
Lénsmaðurinn í myndinni Friðrik fiðlungur.
Mikil aðsókn að sýningum Brnnborg
Myndirnar eru sýndar aftur í kvöld
Óhemjuaðsókn var á sunnudaginn að barnasýningum
Guörúnar Brunborg á norsku myndunum þrem og verða
barnasýningar á þeim aftur í dag kl. 5 og 7.
Myndir þessar eru Úr djúpum
Oslófjarðar, litmynd er Per Höst
hefur tekið og hefur Haraldur
Einarsson talað á segulband skýr-
ingar sem fluttar eru með mynd-
inni. Önnur myndin er um ævin-
týri lítillar stúlku er þarf að fara
í sjúkrahús og sú þriðja er hið
kunna norska ævintýri: Friðrik
fiðlungur. Óskar Halldórsson
flytur skýringar á ævintýrinu.
Ný barnabók til ágóða
fyrir barna-
heimilissjóðinn
Thorvaldsensfélagið sér nú loks
fram á að koma í framkvæmd
hugsjón sinni um byggingu
barnaheimilisins og einn þáttur-
inn til að styðja þá framkvæmd
er ný barnabók er út kemur í
dag.
Barnabók þessi er eftir Norð-
manninn Thorbjörn Egner og
heitir Karíus og Baktus og seg-
ir hún börnum með skemmti-
legum hætti frá ýmsu sem þeim
er mjög nauðsynlegt að vita. Er
bókin prýdd mörgum myndum.
Jólamerkin komin út
Jólamerki Thorvaldsensfélags-
ins, — sem komið hafa út frá
því 1914 — eru nú komin út, og
er það óvenjulega snemma og
auðveldar það fólki að kaupa þau
og fást þau í flestum bókaverzl-
unum, svo og pósthúsinu og hjá
frímerkjasölum. Merki þetta er
eitt hið smekklegasta sem Thor-
valdsensfélagið hefur gefið út.
Stefán Jónsson hefur teiknað það.
Verið að teikna bygginguna
Þá gaf félagið á s.l. vori einn-
ig út póstkort af forsetahjónun-
um, en ágóðinn af því, barnabók-
inni og jólamerkjunum rennur
allur í byggingars.ióð barnaheim-
ilis félagsins. Það hefur nú fengið
lóð undir heimilið og Skarphéð-
inn Jóhannsson er nú að teikna
bygginguna, svo vonandi fer nú
senn að líða að því að konur
Thorvaldsensfélagsins fái að sjá
þetta baráttumál sitt rætast.
Frumskógur og íshaf
Fullt hús var einnig á sunnu-
daginh á sýningu myndarinnar
Frumskógur og íshaf, en hún er
auglýst í dag í siðasta sinni,
hvort sem svo verður, því senni-
lega komast færri að en vilja.
SOdveiðom Iiætt
Sandgerðis- og Akranesbátar,.
sem verið hafa á síldveiðum und-
anfarið, eru nú hættir. Er ástæð-
an einkum sú hve háhyrningur-
inn veldur miklu tjóni í netunum,,
og hafa herfarir og skothríð
gegn háhyrningum ekki borið ár-
angur.
Sandgerðisbáturinn Muninn
II hefur farið á þær slóðir sem
Ægir fann síldina á um dag-
inn, en telur þar vera smásíld
sem ekki festist í netunum.
Fulltrúakjör á
úng A.S.I.
þi
Verkalýðsfélagið Brynja á
Þingeyri kaus í fyrradag full-
trúa sinn á 24. þing A.S.Í. Að-
alfulltrúi var kosinn ritari fé-
lagsins, Ingi S. Jónsson og til
vara Steinþór Benjamínsson.
Samþykkt var á fundinum að
mótmæla liernámssamningnuiri
og krefjast uppsagnar hans
svo fljótt sem uppsagnará-
kvæði leyfa.
Ennfremur ,er kunnugt um
fulltrúakjör þessara félaga til
viðbótar því sem áður hefur,
verið greint frá: Frá Bílstjóra-
félagi Húsavíkur: Aðalsteinn
Sigurgeirsson. Frá Verka-
mannafélaginu Fram, Seyðis-
firði: Þorsteinn Guðjónsson og
Jón Sigfinnsson og til vara
Vilbergur Sveinbjörnsson og
Ari Bogaon. Frá Verkalýðs- og
sjómannafélagi Fáskrúðaf jarð-
ar: Gunnar Jónasson og Gunn-
ar Þórðarson. Fr i Verkalýðs-
félagi Stöðvarfjarðar: Kri.stjön'
Jónsson. Frn EÍ'atióraíéÍaginu
Valur, Akureyri: Jón Péturs-
son. Fr? Verkamannafélagi
Geithellnahrepps, Suðurmúla-
sýslu: Egill Guðmundsson.
Usidirskrifið kröfuna um uppsögn herverndarsamniiigsins