Þjóðviljinn - 14.11.1954, Qupperneq 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 14. nóvember 1954
,,Eigi svo laustækur í
málunum, sem hann er
rrr í gongunm
Nú fer Óxeigur í braut og skilja
beir Egill. Reikar Ófeigur nú
milli búðanna og er all-hældreg-
inn; er þó eigi svo dapur með
sjálfum sér, sem lxann er lirum-
ur að fótunum, og eigi svo laus-
tækur í málunum, sem hann er
lasmeyrr í göngunni. Um síðir
kemur hann til búðar Gellis Þor-
kelssonar og lætur hann út kalla.
Hann kemur út og heilsar fyrr
Ófeigi, Jxví að Ii.ann vár. lítil-
látur, og spyr, hvert erindi hans
er. Ófeigut* svarar: „Hingað varð
iiiér nú reikað“. Gellír mælti:
,>ú munt vilja tala um mál
Odds“. Ófeigur svarar: „Ekki vil
ég þar um tala, og segi ég mér
það afhent, og mun ég fá mér
aðra skemmtun“. Gellir mælti:
„Hvað vilt þú þá tala?“ Ófeigur
mælti: „Það er mér sagt, að þú
sért vitur maður; en mér er það
gaman að tala við vitra menn“.
Þá settust þeir niður og taka
tal sín í millum. Þá spyr Ófeig-
ur: „Hvað er iingra manna vest-
ur þar í sveitum, það er þér
þykir líklegt til mikilla höfð-
ingja?“ Gellir sagði, að góð völ
væru þar á því, og nefnir til
s.onu Snorra goða og Eyrarmenn.
„Svo er mér sagt“, kvað Ófeigur,
Úað vera muni; enda er ég nú vel
tíl fréttar kominn, er ég tala við
þann manninn, er bæði er sann-
orður og gegn“.
■ (Bándamanna saga).
1 1 dag er sunnudagurinn 14.
. nóv. — Friðrekur bysk-
' up — 31G. dagur ársins — Tungl
í hásuðri kl. 3:46 — Árdegishá-
l'Iieði kl. 7:39 — Síðdegisháflæði
kí. 20:06.
X dag verða gefin
s&man í hjónaband
ungfrú Viiborg Þor-
geirsdóttir kennari,
og Einar Sverris-
son, stud. oecon.
Heimili þeirra verður á Langholts-
'végi 27. —
Næturvörður
er í Ingólfsapóteki — Simi 1330.
LYF JABÚÐIR
áPÓTEK AUST- Kvöldvarzla til
URBÆJAR kl. 8 alla daga
• nema laugar-
HOLTSAPÓTEK daga til kl. 6.
Helgidagslæknir
er í dag Arinbjörn Kolbeinsson,
Miklubraut 1 — Sími 82160.
9:10 Veðurfregnir.
9:20 Morguntón-
leikar (pl.) (9:30
: Fréttir). . a) Út-
varpskórinn syng-
ur; Róbert A,
Ottósson stjórnar. b) Romance og
Scherzo úr sinfóniu nr. 4 e. Schu-
mann (Mozart-hátíðahljómsv. í
Paris; Walter stj.) c) Engel Lund
syngur þjóðlög frá ýmsum löndum.
d) Sinfónísk svíta fyrir píanó eft-
ir Carl Nielsen (Wilhelm Lanzky-
Ottó leikur) e) Annar þáttur úr
sinfóníu nr. 5 eftir Sibe ius (Sin-
fóníuhljómsv.' í Boston leikur;
Koússevitzky■ stj.) 11:00 -Messa í
kapel’.u Háskólans (sr. Jón Thor-
arensen. 12:15 Hádegjsútvarp.' —
13:15 Erindi: Rannsókna- og til-
raunastofnun fýrir’ sjávarútveg og;
fiskiðnað, — verkefni hennar og
verksvið (Dr. Þórður, .Þorþjarnar-
son fiskifræðingur). 15:30 Miðdeg-
istónleikar (pl.): a) Konzertstúck
í f-moll fyrir píanó og hljómsveit
eftir1 Weber (Casadeus og hljóm-
sveit; Bigot' stjórnar). b) Söngv- |
ar úr óperunni Töfraskyttah eftir
Weber. c) Forleikur og danssýn-|
ingarlög úr Rósamundu eftir Schu
bert (Ha'lé hljómsv. og Sinfón'u-
h'jómsveit Lundúna). 16:30 Veður-
freghir. 17:30 Barhatími (Helga
og Hulda Vej’.týsdætur): Leikrit:
Vala vekjaraklukka. — Þjóðsaga
ofl. 18:25 Veðurfregnir. 18:30 Tón-
leike.r (pl.): a) Tvær píanósónöt-
ur eftir Haydn (Solomon og Kath-
leen Long leika). b) Ser.enade í
D-dúr .fyrir fiðlu, víólu og eel’ó
op. 8 œftir Beethoven (Goldberg,
Hindemith og Feuerman leika). (c
Góði hirðirinn, svíta eftir Hándel
(Philharmoníska hljómsveitin í
London leikur; Sir Thomas Bee-
chám sjtörhar). 19:45 Auglýsingar.
20:00 Fréttir. 20:20 Einsöngur:
María Ma.rkan Östlund óperusöng-
kona syngur; Weisshappel aðstoð-
ar. 20:45 Leikrit: Jóhann síðasti
eftir Christian Bock. Leikstjóri:
Þorsteinn Ö,. Stephensen. Leikend-
ur: Lárus Pálsson,. Einar Pálsson,
Inga Þórðardójtir, Sigríður Haga-
Emilia Jónasdóttir, Þorsteinn
Ö. Steph.ensen og-Guðrún. Þ.. Step-
hensen. (Leikritið var áður flutt
5. júní ,§U 22:00 Fréttir og veður-
fregnir, 22:05 Dansiög af plötum
til kl. 23:30.
Útvarpið á ínorgun
Fastir liðir eins og venjulega. Kl.
13:15 Búnaðarþáttur: Frá vett-
vangi st'arfsins; I. (Kristófer
Grímsson ráðun.) 18:00 Dönsku-
kennsla; I. fl. 18:30 Enskukennsla.
II. fí. 18:55 'Skákþáttur (Guðm.
Arnlaugsson). 20:30 Útva.rpsh’jóm-
sveitin: a) Peter Schmoll, forSeik-
ur . eftir Webér. b) Romanze eftir
Tschaikowsky í hljómsveitarbún-
ingi Herberts Hriberscheks. 20:50
Urii daginn og veginn (Frú Gerð-
ur Magnúsdóttir). 21:10 Einsöng-
ur: Guðmunda Elíásdóttir syng-
ur; Páll Isólfsson leikur undir á
orgel. 21:30 Islenzk málþróun:
MáVýzkur (Jón Aðalsteinn Jóns-
son cand. mag.) 21:45 Náttúrleg-
ir h’utir (Óskar Ingimarsson grasa
fræðingur). 22:10 Útvarpssagan:
Bréf úr myrkri eftir Þóri Bergs-
son; II. (Andrés Björnsson). 22:35
Létt lög: Ken Griffen ieikur írsk
lög á orgel og kvartettinn De fire
syngur (pl.)
Málfundahópur Æskulýðsfylking-
arinnar tekur til starfa n.k. föstu-
dag. Hópurinn er fyrst og fremst
ætlaður fyrir byrjendur og verður
til húsa í Baðstofu iðnaðarmanna.
— Leiðbeinandi verður Guðmu'nd-
ur Vigfússon. Félagarnir eru ein-
dregið hvattir til :að tillkynna þátt-
töku sína nú þegar á skrifstofu
Æ.F.R. Þórsgötu 1.
Millilandáflug
Edda, millilanda-
fiugvél LofÚ'tiiða. er
[i.uivæntanleg, Atil : Rf.
, vikur síðdegjsj í
dag. frá,, N.. Y. ■—
Flugvéíin fer aftur áléwis til Os’.ó-
ár, Gautáborgar • og Hamborgai-
eftir háilfa aðra klukkustund., —'
Hekla, millilandaflugvél Loftléiða
er væntanleg til Rvíkur kl. 19:00
á morgun frá Hamborg, Ga/uta-
borg og Osló — Flugvélin fer
aftur á’eiðis till N.Y. kl. 21:00.
........ . .. Gullfaxi er vænt-
........... anlegur till Rvíkur
........... kl. 16:45 í dag frá
........... Kaupmannahöfn;
....... fer til Prestvíkur
og Lundúna kl. 8:30 í fyrramálið.
— PAA-flugvél er væntanleg frá
Helsinki, Stokkhcí.mi, Os’ó og
Presvtík í kvöld kl. 21:15 og
heldur áfram eftir sk’amma við-
dvöfl til New York.
Innanlandsflug: 1 dag er ráðgert
að fljúga til Akureyrar og Vest-
mannaeyja; á morgun til Akureyr-
ar, Bíldudals, Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar, Isafjarðar, Patreks-
fjarðar og Vestmannaeyja.
Kvenréttindafélag íslands
Vegna aða’fundar Bandal. kvenna
er félagsfundinum frestað til
mánudagskvöldsins 22. þm.
Krossgáta nr. 514
Bókmenntagetraun
Vísurnar sem við birtum í gær
voru úr kvæðinu Ferðaföggur eft-
ir Stephan G. Stephansson. 1 dag
birtum við eldri kvéðskap.
Þar sitr Sigurðr
sveita stokkinn,
Fáfnis hjarta
við funa steikir,
spakr þætti mér
spillir bauga,
ef fjörsega
fránan æti.
Þar liggr iReginn, kvað önnur,
ræðr um við sik,
vili tseJá mög',’ “ 1 :
þann es trúir hámun,-
berr af reiði _ -. .
röng orð samiin,
vill bölvasmiðr'
bróðr hefná.
Bridgekeppni Þróttar.
Eftir fjórar umferðir í tvímenn-
ingskeppni Knattspyrnufél. Þrótt-
ar er staðan þessi: 1. Grímar —•
Gunnar 251. 2. Jón -— Tómas 244.
8. Sigurður — Geiri 238’/2. 4.
Gunnar — Óla.fur 233 - 5. Gunn-
laugur —Júlíus 230%. 6. Einar —
Ingólfur 228%. 7. Pétur P. —
Guðmundur 225%. 8. Jón G. —
Gísli 225%. 9 Ari — Jón 221. 10.
HaraT.dur — Helgi 220. 11. Daníel
— Kristinn 217. 12. Thorberg —
Bjarni 212%, 13. Guðbjartur —
Bryndís 208. 14. Sveinn — Sigur-
þór 204. 15. Björn — Gunnar 203%.
16. Sigurður — Einar 201%. 17.
Oddur — Jóhann 201%. 18. Sigur-
jón — Óli 193. Í9. Guðmundur —
Snorri 184. 20. Guðmundur —- Axel
178 stig.
hóíninní
Lárétt: 1 skrokkar 7 tónn 8 óska
9 eldhóJf 11 skst 12 fangamark 14
leikur 15 bandarískur leikari 17
forskeyti 18 happ 20 hárlausir
hvirf'ar
Lóðrétt:--4- skref 2 efni 3 viður-
nefni„4r.þókhaldsmál 5 kvennafn
6 litur 10 á í Egyptalandi 13 hróp
15 fyrir utan 16 næl’a 17 dúr 19
ending
Lausn á„nr. 513
Lárétt: 1 skíði 4 KÁ 5 lá 7 aaa
9 lof 10 Nóa 11 inn 13 in 15 EA
16 ýtuna
Lóðrétt: 1 sá 2 Isa 3.H.4 kuldi 6
átaka 7 afi 8 ann 12 níu 14 rtý
15 ea
M E S S U R
Dómkirkjan
Messa, kl. 11 f.h. Séra Jón Auð-
uns. Síðdegisguðsþjónusta kl. 5.
Séra Óskar J. Þorláksson.
Barnaguðsþjónusta kl. 2 e. h. Séra
Óskar .J. Þorláksson.
Laugarneskirkja
Messa kl. 2 e.h. Séra Garðar Svavr
arsson. Barnaguðsþjónusta kl.
10:15 f.h. Séra Garðar Svavarsson.
Bústaðaprestakall
Messa í Kópavogsskóla, kl. 3 e h.
Séra Gunnar Árnason. Barnaguðs-
þjónusta s’ama stað kl. 10:30. Séra
Gunnar Árnason.
Hallgi-ímskirkja
Messa kl. 11 f.h. Séra Jakob Jóns-
son (Ræðuefni: Marteinn Lúther).
Barnaguðsþjónusta kl. 1:30. Séra
Jakob Jónsson. Síðdegismessa kl.
5 e.h. Séra Sigurjón Þ. Árnason.
Háteigsprestakall
Messa kl. 2 e. h. Barnasamkoma
kl. 10:30 árdegis. Séra Jón Þor-
varðsson.
I’ríki rk.jail
Messa kl. 5 e.h. Barnaguðsþjón-
usta kl. 2 e.h. Séra Þorsteinn
Björnsson.
Eimskip:
Brúarfoss fór frá Boulogne í gær-
kvö'.d til Hamborgar. Dettifoss fer
frá Rvík annað kvöld til N. Y.
Fjailfoss fór frá Hull 12. þm. til
Rvíkur. Goðafoss fór frá Kotka
12. þm. til Rotterdam og Rvíkur.
GuMfoss fór frá Leith í gær til
Kaupmannahafnar. . Lagarfoss fer
frá ,Rvík á morgun, y.eatur og
norður um land. R.eykja^íps kom
til Rvíkur um iiádégi i° gær frá
Akranesi. Selfoss’ fér frá Gauta-
borg á morgun til . Antve.rpen, og
Rvikur. Tröllafpss ,fór frá, Cork
12. þm. til Rotterdam, Bremen,
Hamborgar og Gdynia. Tungu-
foss fór frá Hafnarfirði í gærkv.
til Akureyrar og þaðan til Napoli.
Ríkissklp
Hekla er á Austfjörðum á norð-
urleið. Esja er í Reykjavík.
Herðubreið er á Austfjörðum á
norðurleið. Skja’dbreið fer frá
Rvík á morgun vestur um land
til Akureyrar. Þyrill er i Rvík.
Skaftfeliingur fer frá Rvík á
þriðjudaginn til Vestmannaeyja.
Togararnir:
Akurey fór á isfiskveiðár 4. þm.
Askur fór á ísfiskveiðar 12. þm.
Egill Skállagrímsson fór á isfisk-
veiðar 9. þm. Fylikir fór á ísfisk-
veiðar 10. þm. Geir fór á ísfisk-
veiðar 4. þm. Hafliði er í slipp í
Reykjavík. Hallveig Fróðadóttir
fór á ísfiskveiðar 9. þm. Hva’fell
fór á saltfiskveiðar 5. þm. Ingólf-
ur Arnarson fór á ísfiskveiðar 8.
þm. Jón Baldvinsson er á isfisk-
veiðum. Jón Forseti er á isfisk-
veiðurn. Jón Þor’.áksson var á
Önundarfirði í fyrradag. Karisefni
fór á ísfiskveiðar 4. þm. Marz er
á ísfiskveiðum. Neptúnus er , í
slipp í Reykjavik. Pétur HaKdórs-
son landaði á Þingeyri 9. þm.
Skúli Magnússon fór á ísfiskveið-
ar 8. þm. Úra.nus fór á ísfiskveið-
ar 11. þm. Þorkell Máni fór á
saltfiskveiðar 4. þm.. Þorsteinn
Ingólfsson kom' af' isfiskveiðum í
gærkvö’d.
Dagskrá Alþingis
Efri deild (á morgun kl. 1:30)
HHutatryggingasjóður bátaútvegs-
ins, frv. 2. umr.
Manntal í Reykjavík, frv. 2. umr.
(Ef leyft verður).
Prentfrelsi, frv. 2. umr. (Ef leyft
verður).
Veitingaskattur, frv. 1. umr.
Búseta og atvinnuréttindi, frv. —
1. umr. (Ef leyft verður).
Neðri deild (á morgun kl. 1:30)
Dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnu-
yega-nna, frv. 3. umr.
Yfirstjórn mála á varnarsvæðun-
um, frv. 3. umr.
Stimpilgjald, frv. 1. umr.
Skógrækt, frv. 1. umr.
En að lokum varð frostið svo mikið að ís- Þannig liðu sjö dagar í miklu taugastríði. En eldhúsmeistarinn, Lambi, sagði: Ekkert
breiða iagðist yfir hafið. Og nú skelfdfst
sjélfur aðmírál’inn, því að hann bjóst við
að óvinirnir mundu koma yfir ísinn og
brenna skipin. Hann skipaði því mönnum
sínum að hafa skautana tfibúna. En óvin-
urinn lét e-kki sjá sig.
Þá skipaði Ugluspegill svo fyrir að nú
skyldi halda dýrðlega veizlu fyrir háseta og
hermenn, svo að þeir gleymdu um stund
hinu gífur’ega frosti.
er eftir af birgðunum annað en létt vín og
annað ruafl. — Sæfc.rarnir Hfi, hrópaði lýð-
urinn. Veizlu skal halda meðan við bíðum
orustunnar. En Lambi sagði: Þeir sem mig
elska, fylgi mér.
— Hvað hyggst þú fyrir, sagði Ugluspegill
Enginn má yfil-gefa. skipið. — Sonur mini
sagði Lambi, nú hefur þú reyndar vöidi
en líttu á það að i fyrradag snæddum v
síðustu pylsuna. Sérðu ljósin á þessu
ríkmannlegan bónds-bæ.
Farþegatala jókst iim 24%
Framhald af 12. síðu.
-vík—London 739 og Reykjavík—
Osló 546. Vöruflutningar námu
122 smálestum og höfðu aukizt
um 27%. Póstur nam tæpum 16
smálestum og höfðu þeir flutn-
angar minnkað um 20%.
Brúttótekjur af millilandaflugi
siámu kr. 10.431.597,54 og nam
aukningin rúmlega 14% á árinu.
Samanlagður farþegafjöldi F. í.
á árinu 1953 var 42.076 farþegar
(11% aukning), vöruflutningar
námu samtals 916 smál. (20%
aukning) og póstflutningar námu
læplega 71 smálest (1% rýrnun).
Á árinu starfrækti F. f. sex flug-
vélar, þ. e. þrjár Dakotaflugvél-
ar, tvo Katalinaflugbáta og Gull-
faxa. Flugvélar félagsins voru
alls 5350 klst. í lofti, þar af var
Gullfaxi einn 1584 klst.
Eins og við mátti búast, var
nokkur aukning á starfsliði fé-
lagsins á árinu, og var fjöldi
starfsmanna milli 120—140. Fé-
lagið átti því láni að fagna, að
ckkert slys kom fyrir farþega
þ>ess eða áhafnir á starfsárinu.
Eins og undanfarin ár rak F. í.
skrifstofu í London í samvinnu
við flimskipaifélag fslands og
Ferðaskrifstofu ríkisins, en Jó-
hann Sigurðsson veitir nú þeirri
skrifstofu forstöðu. Skrifstofa fé-
lagsins í Kaupmannahöfn flutti í
nýtt og betra húsnæði í Vester-
hrogade 6 C, en Birgir Þórhalls-
son veitir skrifstofunni forstöðu.
Vegna mikilla þarfa fyrir aukið
fjármagn var ákveðið að leita
til hluthafa félagsins um aukn-
íngu á hlutafénu, en lög þess
heimila, að það sé aukið í kr. 6
milljónir.
Merki Blindrafé-
lagsins seld í dag
í dag verða merki Blindrafé-
lagsins seld á götum bæjarins og
úti um land, til ágóða fyrir starf-
semi þess. Þetta vinsæla félag
hefur þegar sýnt óvenjulegan
dugnað í starfsemi sinni. Á síð-
astliðnum vetri var saga þess
ítarlega rakin hér í blaðinu í
sambandi við sjötugsafmæli for-
manns félagsins. Skal þvi ekki
farið nánar út í að lýsa starf-
semi þess á liðnum árum, það
nægir að benda á að vinsældir
þessa félags fara sífellt vaxandi,
það sýnir meðal annars hinn sí-
aukni árangur merkjasölu þess,
sem haldin hefur verið árlega
frá því að félagið var stofnað.
Blaðið vill mæla fast með því
að böm og jafnvel eldra fólk líka
gefi síg fram til að selja merkin.
Ef ekki stendur á sölufólki, þá
þarf ekki að efa að nógir verða
til að kaupa. Það hefur reynsla
undanfarinna ára sýnt.
Framkvæmdastjórinn las því
næst upp endurskoðaða reikn-
inga félagsins og skýrði einstaka
liði þeirra. Tekjur af flugi árið
1953 námu kr. 18.946.378,83, og
Tekjur af millilandaflugi námu
um 55% af heildartekjum, en af
innanlandsflugi um 45%. Hreinn
hagnaður reyndist vera kr.
214.437,41 eftir fyrningar, sem
námu tæpum kr. 900.000,00 (níu
hundruð þúsundum). Þá var
skýrt frá því, að stjórn félags-
ins hefði ákveðið að leita sam-
þykkis fundarins um að hlut-
höfum skyldi greiddur4% arður
fyrir árið 1953, og þar það sam-
þykkt.
Þá greindi framkvæmdastjór-
inn, Örn Ó. Johnson, nokkuð frá
rekstri yfirstandandi árs. Fyrstu
tíu mánuði ársins höfðu flugvélar
félagsins flutt 48.353 farþega eða
um 24% fleiri en s.l. ár á sama
tímabili. Ennfremur var um
| mikla aukningu að ræða hvað
I snertir vöru- og póstflutninga.
Fest höfðu verið kaup á tveimur
! flugvélum á þessu ári, Douglas
Dakota flugvél, sem kept var í
Bandaríkjunum fyrir $80.000 og
kom til landsins 3. júní s.l. og
svo Skymasterflugvél, sem keypt
var frá Noregi fyrir $435.000, en
Bíræfir þjófar
Óvenju bíræfir þjófar voru að
verki í Kaupmannahöfn í fyrra-
dag og höfðu 48.000 danskar
krónur upp úr krafsinu.
I fyrradag komu tveir menn
inn í skartgripaverzlun í Breið-
götu, og sagðist annar þeirra
vera yfirmaður í bandariska
hernum, en hinn sænskur starfs
maður SAS. Bandaríkjamaður-
inn fékk að líta á ýmsa skart-
gripi og ákvað að kaupa nokkra
þeirra, sem voru að verðmæti
15.000 d. kr. En þar sem hann
hafði ekkert fé á sér, fékk
hann að leggja gripina í öskju,
sem hann hafði meðferðis, og
innsigla hana síðan, sagðist
mundu koma morguninn eftir
með greiðsluna.Skartgripasalinn
varð órólegur, þegar Banda-
ríkjamaðurinn kom ekki á til-
settum tíma, og opnaði öskj-
una. Var þá ekkert í henni
annað en nokkrir smáskilding-
ar.
Lögreglunni var tilkynnt um
þjófnaðinn, og hafði hún haft
spurnir af sams konar þjófn-
uðum í öðrum löndum. Skömmu
síðar kom til lögreglunnar ann-
ar skartgripasali sem hafði
verið svikinn á sama hátt um
33.000 d. kr. Svikahrappamir
eru taldir hafa haft tvær öskj-
ur meðferðis og tekizt að
skipta á þeim án þess að kaup-
mennimir yrðu varir við.
hún mun vera væntanleg hingað
til lands í næsta mánuði. Jafn-
framt tók framkvæmdastjórinn
það fram, að forráðamenn félags-
ins myndu stefna áfram að því
marki að athuga möguleika fyrir
kaupum á millilandaflugvél af
nýjustu gerð, enda þótt að því
ráði hefði verið horfið nú að
festa kaup á annarri Skymast-
erflugvél.
Almennur áhugi var ríkjandi
á fundinum fyrir áframhaldandi
viðgangi Flugfélags íslands, og
tóku eftirtaldir fundarmenn til
máls: Magnús Brynjólfsson, Ár-
sæll Jónasson, Egill Vilhjálms-
son, Sigríður Þorláksdóttir, Berg-
ur G. Gíslason og Guðmundur
Vilhjálmsson.
Svohljóðandi tillaga frá Magn-
úsi Brynjólfssyni var borin upp
og samþykkt samhljóða: „Aðak
fundur Flugfélags íslands, hald-
inn 12. nóvember 1954, beinir
þeirri áskorun til Flugmála-
stjórnar ríkisins, að hún vindi
bráðan bug að byggingu á nýju
flugskýli á Reykjavíkurflugvelli,
sem svo yrði leigt F. í. með sann-
gjörnu verði“.
Stjórn Flugfélags íslands var
öll endurkjörin, en hana skipa:
Guðmundur Vilhjálmsson form.,
Bergur G. Gíslason, varaform.,
Jakob Frímannsson, ritari, Frið-
þjófur Ó. Johnson og Richard
Thors. Varamenn í stjórn voru
einnig endurkosnir, en þeir eru
Jón Árnason og Svanbjörn Frí-
mannsson. Endurskoðendur ýé-
lagsins, Eggert P. Briem og
Magnús Andrésson, hlutu sömu-
leiðis einróma endurkosningu.
Olviðri í Dan-
mörku
Fárviðri geisaði í Danmörku
í gær. Viða slitnuðu símalínur
og háspennuleiðslur, tré tók
upp með rótum, og þök fuku
af húsum. Efnatjón varð þó
minna en á horfðist og ekki
var kunnugt um manntjón.
Joshida
í kröggum
ÍEin af nefndum japanska
þingsins hefur stefnt Joshida
forsætisráðherra fjrrir sig og
er ástæðan sú, að hann hefur
verið bendlaður við fjársvika-
hneyksli, sem hún rannsakar.
Joshida hefur einu sinni áður
verið stefnt fyrir nefndina, en
neitaði að hlýða. Samkvæmt
lögum má dæma hann í tólf
mánaða fangelsi, ef hann
þrjóskazt við að mæta fyrir
nefndinni.
Ókeypis ferð fil Varsjó
é heimsmót œskunnar
heitir Æskulýðsíylkingin að verðlaunum íyrir
ílesta selda miða í Þjóðviljahappdrættinu
Æskulýðsfylkingin hefur ákveðið að efna tíl sam-
keppni meðal félaga sinna um sölu miða í HAPP-
DRÆTTI ÞJÓÐVILJANS. Aðalverðlaunin eru ókeypis
ferð á heimsmót æskunnar í Varsjá á sumri komanda.
Tvenn eða þrenn verðlaun önnur verða veitt og verða
þau auglýst síðar.
,,Já eðo Neí"
annaS kvöld
Spurningaþáttur Sveins Ás-
geirssonar verður tekinn upp á
segulband í Sjálfstæðishúsinu
annað kvöld, mánudaginn 15.
nóv., og hefst upptakan að venju
kl. 9., en húsið verður opnað kl.
8,30. Aðgöngumiða er hægt að
panta í síma 2339 í aðgöngumiða-
sölu Sjálfstæðishússins á morgun
milli kl. 2 og 3, en kl. 3 hefst
miðasalan þar. í athugun er nú
að taka þáttinn upp utan Reykja-
víkur á næstunni.
Sunnudagur 14. nóvember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Eining vinstri aflanna
Framhald af 1. síðu.
felur fulltrúum sínum á 24.
þingi Alþýðusambands íslands
að styðja eftir mætti með at-
kvæðum sínum þá stefnu, að
fulltrúar einingar og vinstra sam-
starfs verði kjörnir í æðstu trún-
aðarstöður Alþýðusambandsins
næsta kjörtímabil".
• Verkafólk Stokks-
eyrar
Verkalýðs- og sjómannafélagið
Bjarmi á Stokkseyri komst þann-
ig að orði er fulltrúar voru kjörn-
ir á þingið:
„Fundur haldinn í Verkalýðs-
og sjómannafélaginu Bjarma ...
fagnar þeirri einingu og sam-
vinnu sem tekizt hefur á Akur-
eyri milli Alþýðuflokksmanna og
sósíalista um kjör fulltrúa á 24.
þing Alþýðusambands íslands.
Væntir fundurinn þess að fylgj-
endur .verkalýðsflokkanna í
landinu láti fordæmið frá Akur-
eyri verða leiðarvísi í þeim kosn-
ingum sem nú fara fram til þings
Alþýðusambandsins og kjósi þá
fulltrúa eina á þingið, sem í
anda samstarfs og stéttarlegrar
einingar vilja að því vinna að
má burtu áhrif atvinnurekenda
úr yfirstjórn heildarsamtaka
verkalýðsins í landinu“.
• A.S.B. í Reykjavík
Félag afgreiðslustúlkna í
brauða- og mjólkursölubúðum í
Reykjavík túlkaði afstöðu sína
á þennan hátt:
„Fundur haldinn í A.S.B....
fagnar því samkomulagi sem
náðst hefur innan verklýðshreyf-
ingarinnar á Akureyri, Siglufirði
og Stokkseyri og lýsir sig ein-
dregið fylgjandi því. Hvetur fé-
lagið önnur verklýðsfélög til að
fara að dæmi þeirra. Um leið
felur það fulltrúum sínum á 24.
þingi A.S.Í. að vinna að því öll-
um árum, að í stjórn heildar-
samtakanna verði valdir menn
sem starfa vilja í anda fyrr-
greinds samkomulags".
• Verklýðssamtök
Vestfjarða
Á þingi Alþýðusambands Vest-
fjarða — sem sótt var af full-
trúum allra verklýðsfélaga í
landsfjórðungnum — voru þessi
mál rædd og eftirfarandi ályktun
gerð:
„Þrettánda þing A.S.V. beinir
þeirri eindregnu áskorun til
verkalýðsfélaga á sambandssvæð-
inu að þau kjósi ekki þá menn
á þing Alþýðusambands íslands
sem eiga samstöðu með atvinnu-
rekendum. Telur þingið að innri
deilur hafi þegar valdið verka-
lýðssamtökunum miklu tjóni og
dregið úr baráttuþreki þeirra og
leggur mikla áherzlu á að allir
meðlimir verklýðsfélaganna vinni
að því að auka í hvívetna stéttar-
legan og pólitískan viðnámsþrótt
samtakanna“.
• Verkamenn
Reykjavíkur
Á fundi í Dagsbrún, stærsta
verklýðsfélagi landsins, voru
fuiltrúar á Alþýðusambandsþing
sjálfkjörnir og fengu þeir ein-
róma svofellda ályktun í vega-
nesti:
„Á annan áratug hefur bar-
áttueining verkalýðsins, fagleg
og pólitísk, verið meginstefna
Verkamannafélagsins Dagsbrún-
ar. Sameinaður um þessa stefnu
hefur verkalýðurinn unnið sína
stærstu sigra. Duglaus forusta
og sundrung í röðum verkalýðs-
ins leiðir hins vegar til ósigra
í átökunum við stéttarandstæð-
inginn. — Verkamannafélagið
Dagsbrún fagnar því þeirri öldu
vaxandi einingar og samstarfs-
vilja, sem nú er risin í verklýðs-
hreyfingunni og leggur áherzlu
á að verkefnin sem bíða eru ný
sókn í hagsmunabaráttunni, efl-
ing íslenzka atvinnulífsins, upp-
sögn herverndarsamningsins og
brottflutningur hersins. — En
hið nauðsynlegasta til nýrra sig-
urvinninga er að verkalýðurinn
heimti aftur yfirráðin í heildar-
samtökum sínum, Alþýðusam-
bandinu, í eigin hendur... Full-
trúum sínum á Alþýðusambands-
þingi leggur félagið þær skyldur
á herðar, að vinna ötullega að
því að eingöngu þeir me'nn velj-
ist í sambandsstjórn sem hafa
vilja og getu til að sameina alla
krafta verkalýðsins í faglegri og
pólitískri baráttu hans og gera
forustu heildarsamtakanna að
raunverulegri yfirstjórn verka-
lýðsbaráttunnar, sem sé alger-
lega óháð atvinnurekendum og
ríkisvaldi þeirra".
• Verkamenn Hafn-
arfjarðar
Verkamannafélagið Hlíf í
Hafnarfirði komst svo að orði:
„Um árabil hafa hinir andstæðu
hagsmunir verkalýðsins og gróða-
stéttarinnar mætzt í baráttu
milli verkalýðshreyfingarinnar
og ríkisvaldsins. Árangur alþýð-
unnar hefur ekki orðið sem
skyldi vegna sundrungar verka-
lýðsins, og stjórn heildarsamtak-
anna hefur ekki gætt hagsmuna
verkalýðsins sem átt hefði að
vera. — Ólíkar skoðanir á
stjórnmálum mega ekki verða til
þess að sundra verklýðshreyfing-
unni. Meðlimir verklýðshreyfing-
arinnar eiga allir að hafa sama
rétt til trúnaðarstarfa og í vali
í slík störf eiga ekki flokkssjón-
armið að ráða heldur hagsmunir
verklýðshreyfingarinnar einnar.
— Það er því höfuðnauðsyn að
verklýðsfélögin leggi niður inn-
byrðis deilur og hefji einhuga
baráttu fyrir því að gera heild-
arsamtökin, Alþýðusamband ís-
lands, aftur að sannri brjóstfylk-
ingu verkalýðsins".
I
I;
• Verkalýður Isa-
f jarðar og Akraness
Verkamannafélagið Baldur á
ísafirði og Verkalýðsfélag Akra-
ness gerðu samhljóða ályktun á
þessa leið:
„Fundurinn skorar á fulltrúa
félagsins á 24. þingi Alþýðusam-
bands íslands að þeir beiti sér
af alefli ’ gegn því að fulltrúar
atvinnurekendavaldsins fái aðild
að stjórn heildarsamtakanna,
enda telur fundurinn að hlutdeild
þeirra í stjórn verkalýðshreyf-
ingarinnar sé alþýðu landsins til
tjóns“.
• Áskorun íslenzkraif
alþýðu til fulltrú-
anna á A.S.I.
Enn fleiri ályktanir mætti
rekja, en hvarvetna er sami hug-
urinn: Vinstri öflin mega ekki
torvelda störf verklýðsfélaganna
með innbyrðis baráttu, það má
ekki lengur standa að auðmanna-
stéttin og atvinnurekendur hafi
nokkur áhrif, hvorki bein né
óbein á störf Alþýðusambands-
ins og stjórn þess. Fylgismenn
Alþýðuflokksins og Sósíalista-
flokksins verða að taka höndum
saman um öll þau stóru mál sem
sameiginleg eru og tryggja sem
sigursælasta baráttu.
Þetta er áskorun íslenzkrar al-
þýðu til fulltrúanna á 24. þingi
A.S.Í., sem hefst nú eftir nokkra
daga. Þeirri áskorun fylgja árn-
aðaróskir um giftudrjúg störf,
þar sem hugsað sé um hagsmuni
verklýðshreyfingarinnar en ekki
um annarleg pólitísk sjónarmið.