Þjóðviljinn - 14.11.1954, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 14.11.1954, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 14. nóvember 1954 ÞlÍeMlUlNN Útgefandi: SameiningarflokKur alp.vöu — Sósiaiistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartunsson, diguröur Guðmundsson (áb.) Fréttastjóri: Jón Bjarnason Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson. Bjarnl Benediktsson, Gutt- mundur Vigfússon, Ivar H. Jönsson. Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími 7500 (3 línur). Askrlftarverð kr. 20 á mánuðl í Reykjavík og nágrennl; kr. 17. annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. i Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Upphaf hetjusögu alþýðu- samtakanna á Islandi 60 ár eru liðin síðan nokkrir fátækir sjómenn, nokkrir sterklegir „skútukarlar“ þrömmuðu niður Skólavöröu- stíginn, syngjandi við raust „En þeir fólar, sem frelsi vort svíkja“. Þeir komu frá að stofna Sjómannafélagiö Bár- una í kjallara „Geysis“, hússins, sem stóð þá á Skóla- vöi'ðustíg 12 og nú stendur inni í Kleppsholti. Þeir voru að stofna verkalýðssamtökin á íslandi. Það var fótatak framtíðarinnar, sem kvað við á Skólavörðu- stígnum kvöldið 14. nóvember 1894. Þeir voru að gefa íslenzkri alþýðu það, sem hana hafði skort 1 þúsund ár, samtök hins vinnandi fólks gegn yfir- stéttinni. Þeir voi'u aö hefja þá göngu, Bárufélagarnir, sem ekki lýkur fyrr en verkalýðurinn í broddi fylkingai'innar fyrir alþýðustéttum íslands ræður landi voru og allir vinn- andi menn og konur fá sjálfir að njóta ávaxta erfiðisins, frjálsir af oki fátæktar og yfirstétta. ★ Það var reisn yfir þessum brauti’yðjendum, sem gáfu íslandi verkalýðssamtökin. Þaö var stói’hugur í þessum sjómönnum. Þeir voi’u eigi aðeins hetjur á hafinu, í hinni blóðugu baráttu við Ægi. Það drukknuðu 2096 menn á íslandi frá 1881 til 1910. Þeir voru líka hetjur í barátt- unni viö hið rísandi auðvald á íslandi. í fimmtán ár börð- ust Bárufélagarnir bai’áttu, sem aldrei gleymist, baráttu við kúgun yfirstéttar, við deyfð alþýðu, við aldalangt skilningsleysi og vantraust vinnandi fólks á eigin mætti. Bárufélögin féllu — en sigruðu. Eftir fimmtán ára hetjustríð leystust þau upp, en jarðveginn höfðy þau plægt og fræjunum höfðu þau sáð. Hin voldugu verka- lýðssamtök lands vors tóku við þeim fána alþýðufrelsis, sem Bárufélögin reistu fyrst allra og báru með heiðri alla sevi sína. Og þau munu bera hann fi’am til sigurs. * Það var „máttur og ægikyngi af nýjum toga“ í í’aust sjómannanna á Skólavöi’öustígnum fyrir 60 árum síðan. Og sú raust hefur aldrei þagnað síðan og mun aldrei þagna, hvað sem á gengur. Enginn stöðvar þá göngu, sem þá var hafin, þótt leiðin sé löng. Sterk verkalýðsstétt minnist í dag meö þakklátum huga og stolti brautryðjendanna frá 1894. En hún þarf að gera meir en þakka þeim. Verkalýður íslands hefur enn í dag margt af þeim að læra, ekki síst þrautseigjuna í félagsstarfi við vei’stu skilyrði — og svo hitt að láta ekkert mál sér óviðkomandi og herða í sífellu sóknina. ★ Það er eðlilegt að hugur alþýðu beinist í dag fyrst og fremst að einum þeiri’a manna persónulega, sem eftir lifir af Bárufélögunum: að Ottó N. Þoi’lákssyni, sem sjálf- ur stóð í stríði þeirra frá upphafi, ætíð fi’emstur meöal jafningja, og hefur tengt saman alla sókn íslenzks verka- lýðs frá upphafi vega, verið sem persónugerfing samheng- isins 1 sögu íslenzkrar alþýðubaráttu: Hann stofnaöi Báruna 1894, hann var fyrsti forseti Alþýðusambands- ins og Alþýöuflokksins 1916, hann setti stofnþing Kommúnistaflokks íslands 1930 og hann flutti stofn- þingi Sósíalistaflokksins fyrstu árnaðaróskirnar, er sósí- alistar íslands sameinuðust í einum flokki 1938. — Og «nn gneistar hjá honum 83 ái’a sami eldurinn sem tendi’- .aði verkalýðshreyfingu íslands þegar hann var 23 ára að ;aldri. Heiður og þökk sé Ottó N. Þorlákssyni og öllum félög- um Bárunnar, lifandi og dánum. Þeir ruddu þeim björg- um úr vegi, sem verst voru og erfiöust Þeir opnuðu sig- ui’braut fólksins. Viö hvern áfanga á þeirri braut mun ís- lenzk alþýða minnast þeirra og strengja þess heit að bera fram til lokasigurs mei’kið mikla, er þeir hófu: frelsi 'Vinnandi stétta á íslandi. Þennan dag fyrir réttum sextíu ánxm komu skútusjó- menn í Reykjavík á fund að Skólavörðustig 12 og stofn- uðu Sjómannafélagið Báruna. Samtökin sem spruttu upp af þeim fundi munu um alla tíma á Islandi höfð í heiðri og þeim vottuð aðdáun af Ottó N. Þorláksson formaður Stórdeildarinnar hverri nýrri kynslóð íslenzks alþýðufólks. Þar, í Bárufélög- unum, streymir fram þróttug- ust uppsprettulind íslenzkrar verklýðshreyfingar, þar takast beztu menn sjómannastéttar- innar í hátfan annan áratug á við máttarvöld aitðs og valda á Islandi. Þar skólast menn í baráttu, sem haft hafa djúptæk áhrif á þróun verka- lýðshreyfingarinnar á íslandi allt til þessa dags. ★ Mönnum hættir til að hugsa sér baráttu verkalýðssamtak- anna, einkum er frá lSður, sem stöðuga sókn af hálfu alþýð- unnar, þar sem það séu fyrst og fremst samtök hennar sem beijjadt. En sjálft hugtak baráttunnar gerir ráð fyrir andstæðingi, og það sést skýr- ast á bernskuskeiði alþýðu- samtakanna hversu hatram- lega menn og samtök auðs og afturhalds og valda berjast gegn verkalýðsfélögunum, hve langt þau ganga til að níða niður og berja niður þann visi að nýjum heimi, þá nýju reisn og þrótt alþýðunnar, sem býr í samtökum hennar. Þeir kunna að afneita stéttabarátt- unni í orði, en í lífinu sjálfu virðist engin bardagaaðferð of lúaleg, ódrengileg og miskunn- arlaus ef með henni mætti takast að kæfa veikan frum- gróður verkalýðsfélags, rífa upp með rótum ’ kvist hins nýja lífs sem þau boða lang- þjakaðri alþýðu. ★ Hálf öld er liðin frá þvi Plausor orti kvæði sitt til „Bárunnar", með spádómnum: Og það mun verða skrifuð hennar saga. Sú spá hefur ekki rætzt, enn er fátt annað á prenti um sögu Bárufélaganna en ágrip Péturs G. Guðmunds- sonar í tíu ára afmælisriti Sjómannafélags Reykjavíkur og Skúla Þórðarsonar í 25 ára riti sama félags, stutt frá- sögn í Sjómannasögu Vilhj. Þ. Gíslasonar og tvær grein- ar í Vinnunni 1943. í þess- ari blaðagrein skal ekki reynt að rekja sögu Bárufé- laganna, einungis drepa á nokkur atriði. En ekki ættu að þurfa að líða mörg ár þar til reynt verður að láta spá Plausors rætast og skrá sögu Bárufélaganna eftir því sem til heimilda næst. Vil ég heita á hvern þann, sem veit um heimildir til þeirrar sögu, fundargerðarbækur, gjaldkera- bækur, reikninga eða annað slíkt, jafnt um deildirnar 1 Reykjavík og á öðrum stöð- um, að gera mér viðvart og leyfa .mér að hafa þeirra not. Ekki er kunnugt hvar fundar- gerðabók Bárunnar no. 1 frá 1894-1902 er niður komin, en það mun vera ein bók. Ómet- anlegt gagn gerði sá sögu al- þýðusamtakanna á íslandi sem haft gæti upp á þeirri bók og komið henni í örugga geymslu. Bánifélaga sem á lífi eru bið ég einnig liðsinnis að segja mér sem mest frá þeim árum. ★ Engin reynsla af starfi verkamannafélaga né vitn- eskja um verkalýðshreyfingu erlendis var til hjá Ottó N. Þorlákssyni og Geir Sigurðs- syni, tveim fátækum nemend- um Stýrimannaskólans í Rvík, er þeir gengust fyrir stofn- un Sjómannafélagsins Bár- unnar haustið 1894, og þó er félagið frá byrjun hrein hagsmunasamtök. Með þeim hefst verkalýðshreyfing í sí- gildu formi, það er varnar- ráðstöfun verkafólks við þeim kjörum sem auðmögnuð fram- leiðsla skapar. Með þilskipa- útgerðinni síðustu áratugi nítjándu aldar hafði skapazt á Islandi auðmagnaður at- vinnurekstur, er töfraði fram fjölmenna launþegastétt og ríflegan gróða til eigenda framleiðslutækjanna, útgerð- armanna. Þeir byggðu flestir á kaupmannsgróðanum og létu hina byrjandi innlendu bankastarfsemi gefa sér byr í segl. — Árið 1854 gekkst Tryggvi Gunnarsson banka- stjóri fyrir því að keypt voru frá Englandi átta þilskip stór og vönduð, og hefst með þeim Jón Jónsson fyrsti formaður Bárunnar no. 1 blómatimi skútuútgerðarinnar í Reykjavík. Um aldamót eru 140 þilskip á landinu, með um 2000 háseta. Af þeim voru 61 við Faxaflóa (48 í Reykja- vík). Þilskipatalan nær há- marki 1905, og er þá 161 skip, en fer fækkandi úr því, vél- bátar og togarar taka við. ★ Sama ár og Tryggvi stuðl- ar að stóraukningu flotans, stofnar hann einnig til sam- taka útgerðarmanna, og var ekki farið dult með þann til- gang að samtökin voru gegn ,heimtufrekju sjómanna.' Enda þótt útgerðarmenn hefðu mörg árin ofsagróða af skútuútgerð- inni, reyndu þeir þegar að beita samtökunum til að rýra kjör skútusjómanna og gerðu þeir einhliða samþykkt um ráðningarkjör. Það var ekki sízt til varnar þeirri árás á sjómannakjörin, að Sjómanna- félagið Báran var stofnað síð- ar á sama ári og Útgerðar- mannafélagið, 1894. Þeir voru ekki félagsvanir í verkalýðsfélögum stofnend- ur fyrstu sjómannasamtak- anna á Islandi, en þeir höfðu nokkrir félagsreynslu úr öðr- um félagsskap, sem orðið hafði útbreiddari og alþýð- legri á íslandi en í nokkru öðru landi, Góðtemplararegl- Helgi Bjömsson gjaldkeri Stórdeildarinnar unni, en reynslan þaðan og bein hjálp templara við gróð- ursetningu verkalýðshreyfing- ar á Islandi mun seint full- þökkuð né ofmetin. Lög Báru- félaganna og fleiri verka- lýðsfélaga bera þess merki. Fyrstu lög Sjómannafélags- ins Bárunnar eru prentuð í ágripi Péturs G. Guðmunds- sonar. Einnig undirgengust félagsmenn skuldbindingu, er þeir gengu í félagið, líkt og gert er í Góðtemplararegl- unni. Báran snerist þegar eftir. stofnun sína til varnar gegn kauplækkunarherferð útgerð- armanna og tókst að talsverðu leyti að hindra hana, með milligöngu Skipstjórafélags- ins Öldunnar. Voru hagsmuna- málin aðalmál félagsins ár hvert og stóð í stöðugu þófi við útgerðarmenn, sem börð-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.