Þjóðviljinn - 17.11.1954, Blaðsíða 7
Beiðni til
menntamálaráðherra
AÐVORUN
TIL
FORELDRA
Nokkrum dögum eftir að
menntamálaráðherra landsins
og einn af bankastjórum Út-
vegsbankans lýstu yfir því í út-
varpið að þeir vildu umfram
all innræta börnum þjóðlega
menningu og kristna trú, barst
mér bréf:
„Herra ritstjóri. Ég sendi yð-
ur hér með þessu bréfi eitt af
þessum svonefndu hasarblöðum
sem eru til sölu hér í búðum,
en mér ofbauð svo efni þess er
ég las það, að mér fannst
það vera skylda mín að vara
foreldra við því að láta börn
sín kaupa þennan óþverra, sem
er ekkert annað en hryllingur
og ógeðslegar sögur er taka
öllu fram sem ég hef áður séð
í þesskonar blöðum, og hafa
þau þó ekki verið góð. Þess
vegna sendi ég yður þetta
blað og vona að þér komið
þessari aðvörun á framfæri.
Mér fannst að ,,Þjóðviljinn“
væri eina blaðið sem mundi
unar á þvi að ég kynni þetta
rit með nokkrum orðum og birti
sýnishom af myndum þeim sem
þar er að finna.
Fyrsta sagan fjallar um
mann sem drepur hundinn sinn
með svartagaldri og síðan
tengdaföður sinn. Þá er röðin
komin að eiginkonunni, en á
siðustu stundu verður hún fyrri
til, hengir mann sinn og sting-
ur hann í gegn með sex sverð-
um, otar að honum spjóti og
syngur fagnaðarsöng. —
Önnur sagan fjallar um unga
stúlku sem giftist sex sinnum.
Fyrsta eiginmanninn myrðir
hún með hnif, öðrum drekkir
hún, drepur þann þriðja með
eitri, kæfir þann fjórða, kast-
ar þeim fimmta út um glugga,
fleygir þeim sjötta fyrir borð á
hafskipi. Hvert morð er teikn-
að af nákvæmni og ruddaskap.
Að þessu loknu selur stúlkan
djöflinum sál sína (og segi
menn svo að þeir kunni ekki
í voo ooc.nooooo, PKErry oouy.
P UTTLB PINS TO ATAKE YOU JOWY.,
. CA&TA SPELL AND CHANT A CORSG,
NOW YGU'fta neAOY por thshbaítsb,.
, y'OOootí.Yffi'SPo.i ’ J* MSggÉ
..TCOLATE
FOR KBHDALLji
Sýnishorn af mynd úr einni sögunni. Það er ekki valið;
myndirnar eru svona allar.
vilja gera það. Hin blöðin eru
of viðkvæm fyrir þeirri hlið
bandarískrar menningar. Er
annars leyft að selja þessi
blöð hér á landl? En æskan
virðist vera mjög sólgin í svona
blöð, því drengir hafa staðið
i biðröðum ef þeir hafa átt
von á þeim. Ég vona að þér
varið foreldra við þessum blöð-
um. Vihsamlegast.
Þriggja barna faðir.“
Blaðið sem bréfinu fylgir
nefnist „Weird Mysteries“, gef-
ið út í New York og eintakið
var frá því í júlí i sumar. Ég
hef aldrei fengið andstyggilegri
óþverra handa á milli, og ég
bið lesendur Þjóðviljans afsök-
skil á kristinni trú fyrir vest-
an haf). Þá giftist hún þeim
sjöunda, og á brúðkaupsnótt-
ina hleypur hann á eiginkonu
sína með sveðju en djöfullinn
glottir í baksýn.
Óþarft er að rekja efnið leng-
ur; það er allt á eina lund
eins og það sé samið af brjáluð-
um mönnum: morð og aftur
morð, auk þess sem djöfullinn
kemur enn við sögu. Ein frá-
sögn er í heftinu án mynda og
fjallar hún um það að rotta
étur lifandi mann. Inn á milli
eru svo auglýsingar um töflur
sem böm eiga að éta til að
fá æskilegt holdarfar, aðrar
töflur. sem þau eiga að éta til
Miðvikudagur 17. nóvember 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7
a wan eroms io normm
oous, «osr peó«.£ woutv ccmstxn
»im Msnee. imsaxit/ coms 1«
MANV B7RMS JUOT AS POUS COMf.
W MANV FORMS. KtAP »
ÓHOOL TAL£
OA CkfMATlOd f
Þannig er káputeikningin á ritinu „Weird Mysteries“
sem einhver vinur pjóðlegrar menningar og kristinnar
trúar flytur inn handa íslenzkum börnum.
þess að hætta að pissa undir
í rúmum sínum o. s. frv. Það
dylst ekki hverjum framleiðsl-
an er ætluð.
Eflaust er þetta menningar-
tímarit eitt af versta taginu, en
flest eiga þó þessi bandarísku
myndarit sammerkt í því að
þau ala á ruddaskap og sið-
leysi, skírskota til dýrslegustu
hvata. Og innflutningur þeirra
er orðinn mikið vandamál hér-
lendis. Þeir sem komið hafa á
barnasýningar í kvikmyndahús-
um hafa veit því athygli að
þar ganga hefti þessi kaupum
og sölum milli barnanna; þarna
standa þau eftirvæntingarfull
í anddyrum kvikmyndahúsanna
með stóra hlaða i fanginu,
skoða hvert hjá öðru og hafa
skipti. Það ætti að vera óþarft
að rökstyðja hver áhrif slík
uppeldistæki hafa og allra sízt
l------------—--------------------
fyrir þeim sem hafa sérstaka
ást á þjóðlegri menningu og
kristinni trú. Þó er það stað-
reynd að þetta sorpritafargan
hefur færzt mjög í vöxt síðustu
árin, fyrst og fremst í tíð
þess ráðherra sem nú fer með
menntámál.
•k
■k ★
Nú er það fjarri mér að
vilja halda því fram að ráð-
herra sá sem stjórnar mennta-
málum hgfi einhverjar sér-
stakar mætur á þessari hlið
bandariskrar menningar; ef-
laust fer því mjög fjarri. En
það er ekki slíkt mat sem kem-
ur til greina, né heldur um-
hugsunin um þjóðlega menn-
ingu og kristna trú. Þarna er
að verki það hreyfiafl vestræns
þjóðfélags sem nefnist gróði og
mótar jafnt menningarmál sem
önnur. Þessi hefti eru gefin út
og seld til þess að græða fé
og þau eru flutt inn til íslands
í sama skyni; þar helgar til-
gangurinn meðalið. Innflytjand-
inn er eflaust siðavandur
borgari, vinur þjóðlegrar menn-
ingar og kristinnar trúar, sæk-
ir fundi í Varðarfélaginu og
fær rekstrarlán í Útvegsbank-
anum. Afskipti hans af menn-
ingarmálum mótast aðeins af
gróðareglu þjóðfélagsins. Af
sömu áStæðu hafa innlendu
sakamálatímaritin sprottið upp
eitt af öðru einmitt á • síðasta
ári, þótt fé hafi skort til ým-
issa brýnustu menningarstarfa.
Einmitt þess vegna vantat ekki
peninga til að byggja sjoppur
á hverju götuhorni, þótt skól-
arnir eigi erfitt með að sinna
verkefnum sínum vegna hús-
næðisskorts og æskulýðshöll
sé ævinlega jafn fjarlæg. Það
er sannarlega hvorki þjóðleg
menning né kristin trú sem
stjórna framlagi hinnar ráð-
andi stéttar til menningarmála,
heldur miklu áþreifanlegri
hvatir. Og ráðherra menningar-
mála er ákafastur máls'vari
þess skipulags.
★
★ ★
Bréfritarinn varar foreldra
við bandarísku myndablöðun-
um, og það er vert að leggja
áherzlu á þá aðvörun. Foreldr-
ar ættu að tala um þessi mál
við börnin sín, skoða hjá þeim
blöðin og fjarlægja allan hroða.
En það er einnig ástæða til að
bæta við þessa aðvörun beiðni
menntamálaráðherra að hánn
brjóti á þessu sviði þá megin-
reglu skipulags síns að gróð-
inn skuli drottna skefjalaus.
Það verður að banna innflutn-
ing á þessu bandaríska sorpi og
leggja við þungar refsingar þótt
einhver fái skertan gróða sinn.
Að vísu er það austrænt fyrir-
komulag og óamerískt athæfi,
en þó mætti ráðherranum vera
það nokkur stuðningur að nú
eru t. d. Danir og Bretax1 að
leggja inn á sömu braut. Og
þess ber einnig að minnast að
ef ráðherrann yrði við þeSsari
beiðni, myndi hann ásamt
bankastjóra Útvegsbankans
geta talað af nokkru eðlilegri
sannfæringarkrafti um ást .sína
á þjóðlegri menningu og k;rist-
inni trú næst þegar tækifæri
gefst.
M. K.
Frá 13. þingi Æskulýðsfylkingarinnar:
Ályktun um skemmtanalíf unga fólksins
13. þing Æskulýðsfylkingar-
innar bendir á, að einn af
brýnustu og þýðingarmestu
þáttunum í uppeldismálum
þjóðarinnar er að skapa
æskunni skilyrði til heilbrigðs
skemmtanalífs og tómstunda-
lífs. Bæði stjórnai'völdin og
forystumenn flestra æskulýðs-
sairtaka landsins hafa brugð-
izt unga fólkinu í landinu í
þessu tilliti og sem afleiðing
þess er ástandið í skemmtana-
lífinu vægast sagt uggvænlegt
og þróun þess undanfarin ár
ískyggileg.
Nær allir skemmtistaðir í
landinu eru starfræktir með
gróðasjónarmiðið eitt fyrir
augum. Af þeim sökum er
æskan ofurseld ósvífnum fjár-
plógsmönnum, ef húp vill
svala heilbrigðri skemmtana-
þörf sinni. Það eru undan-
tekningar að skemmtistaðir
séu reknir með velferð æsk-
unnar fyrir augum. Við slíkar
aðstæður verður æskan auð-
veldlega leidd afvega með
þeim afleiðingum að dryklcju-
skapur unglin^a á opinberum
samkomum og almenn laus-
ung fer vaxandi.
Ofan á þetta bætist, að
hinna óhollu áhrifa af dvöl
ameriska innrásarhersins í
landinu gætir mjög mikið ein-
mitt í skemmtanalífinu. Hinir
erlendu siðspillar þrengja sér
þar inn og ryðja afsiðuninni
braut með æ meiri þunga.
Dæmin um hin bandarísku
siðspillingaráhrif í skemmt-
analífinu einkum í Rvík og
nágrenni eru deginum ljósari.
Þetta ástand i skemmtana-
lífinu er stórhættulegt. 13.
þing Æskulýðsfylkingarinnar
lýsir ábyrgðinni á hendur
ráðamönnum þjóðarinnar, á
hendur þeim er kölluðu hið
erlenda herlið inn í landið.
Samtök 'æskunnar í landinu
verða að spyrna hér við fót-
um. Þrettánda þingið bendir
á, að einmitt samtök æskunn-
ar geta í þessu efni orkað
mjög miklu í jákvæða átt, ef
þau snúast til varnar hvert á
sínu sviði og samstilla krafta
sína. Um leið og þingið þakk-
ar þeim, er þrátt fyrir hinar
erfiðustu aðstæður, hafa stað-
ið fyrir skemmtunum með
menningarbrag, heitir það á
öll samtök æskunnar í land-
inu að taka höndum saman
til að vinna gegn siðspillingar-
áhrifum hernámsins og til að
skapa hér heilbrigt skemmt-
analíf og býður fram hönd
ÆF til samstarfs á þessum
vettvangi.