Þjóðviljinn - 09.03.1955, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 09.03.1955, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 9. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Um fátt eða ekkert hefur verið meira rætt á undan- förnum árum en dýrtíðina. Er það að vonum, því að fátt snertir meira líf hvers einasta manns í landinu. « Kjarni dýrtíðarmálsins Það er öllum launþegum brýn nauðsyn, að greina alltaf hinn einfalda höfuðkjarna dýr- tíðarvandamálsins. Og þessi einfaldi kjarni er sá, að spurn- ingin um dýrtíðina er fyrir launþegum s'purning um hlut- fallið milli raunverulegs dag- vinnukaups og þeirra lífsgæða sem hann fær fyrir þetta kaup. Fyrir lífsafkomu hans er þetta höfuðatriði. Ef kaupgjald fylgir eftir raunverulegu verð- lagi, þá stendur launþeginn jafnréttur hvort tímakaupið er 1 króna eða 10. Aftur á móti verkar hækkun verðlags án kauphækkunar, hækkun opin- berra gjalda, rýrð atvinna og Byggingaláð Er kaupandi að byggingarlóð án húsa, 2 TU f Vr. stofuj. h úsj & Gldhf* ÍBÉO , ■ oe eldhús 2 herberg. ,8sU. tii Fyr T~~— Upplýsingsw/x/ ,:itf>hn£y *Kal Z t"enit>tSal öss* 9 ó P '^yoo&' Vi-A' 0« " >v % V'- ^\\\>ov' rc&' & O* t o'W 0g \c'?v\ seV'lV jJ's's. ^ \ , ,v w-tGjvoss ^ y úW. \3.» - <. A vo y / þúsund krónur fær sá, sem útvegar að láni kr. 7’ þúsund í 1 ár. öru^g trygging. Mánaðarlegar af- borganiT. Góðír vextir. Til- boð, merkt: „Marz — 424“, sendist afgr. Mbl. sem fyrst. Lánsfjárskorturinn hefur í för með sér hamslaust kapp- hlaup eftir leiguhúsnœði og stuðíair að verðbólgu á flest- bein launalækkun allt sem Um SVÍðum. skerðing á lífsafkomu launþeg- anna. Hægt er með lengingu vinnudagsins þannig t. d. að bæta 2 eða fleiri eftirvinnu- kaupendurna. Afnám verðlags- ákvæða gerði auðveldara fyrir með þetta. Veit nokkur hve mikinn þátt okurlánin, sem eru afleiðing lánsfjárskortsins, eiga í aukn- ingu dýrtíðar síðustu árin? Það veit vitanlega enginn. En verð- bólguáhrif lánsfjárskortsins eru þarna augljós. Hamlar aukningu þj óðarteknanna Þá er einnig flestum vitan- legt, að vegna skorts á lánsfé hafa útgerðarfyrirtækin oft orð- ið að velja þá meðferð aflans, sem skilaði rekstursfénu fljótast til baka, þótt aðrar leiðir væru til að gera aflann verðmeiri. Togararnir hafa t.d. oft orðið að sigla með ísfisk, þótt hagkvæm- ara hefði verið að frysta fisk- inn eða salta, og gera hann þannig verðmeiri sem útflutn- ingsvöru, svo að ekki sé talað um ennþá meiri vinnslu, eins ©g niðursuðu og annað slíkt, stundum við dagvinnuna, að viðhalda því magni — þó ekki hlutfalíslegu — lífsgæða sem launþeginn fær í sinn hlut, þrátt fyrir hækkað verðlag, en í því felst aukin þrælkun, auk- ið arðrán og mjög alvarleg skerðing mannréttinda. Þegar þetta er athugað, þá er það ekkert undarlegt þótt þær ríkisstjórnir auðmannanna, sem setið hafa að völdum und- anfarin ár, hafi haldið uppi stöðugri viðleitni til að auka dýrtið, þrátt fyrir allt skraf sitt um hið gagnstæða, svo að mest- ur hluti dýrtíðaraukningar síð- ustu ára er beinlínis fyrir þeirra tilstilli. Menn verða að leggja sér það á hjarta, að ein- mitt dýrtíðin er ein af aðferð- unum sem auðmannastéttin beitir til að raska skiptahlut- fallinu milli höfuðstéttanna launþegunum í óhag. En þetta verður að dylja og til þess hef- ur auðstéttin sína hagfræð- inga og prófessora, sem hafa það hlutverk að skýra kjara- skerðingarnar sem nokkurskon- ar náttúrulögmál, sem enginn ráði við. Það er því ofur skiljanlegt að auðstéttin, ríkisstjórn hennar og sérfræðingar haldi uppi blekkingum í dýrtíðarmálunum. Af sama toga eru að sjálf- sögðu falskenningar þessara sömu aðila um aðra þætti efna- hagslífsins. Ein af kenningum þeirra er sú, að dýrtíðin stafi að veru- legu leyti af því að útlánastarf- semi bankanna sé alltof mikil, í samræmi við það er svo lagt til að minnka útlánin og hefur það þegar komið til fram- kvæmda. V erðbólguáhr if Því skal ekki neitað að ó- hófleg útlán hafi í för með sér verðbólgu. En eftir staðreynd- unum að dæma virðist því eins farið um of lítil útlán. Höfum við talandi dæmi um það. AllW' kannast við hve láns- fjárskorturinn hefur mjög hamlað nauðsynlegum bygg- ingaframkvæmdum. Valdhaf- arnir virðast hafa þá skoðun, LÁnsfjÁrskortar 09 vsrctbólga að engir eigi að byggja nema þeir sem hafi fullar hendur fjár. Þeir virðast haldnir þeirri firru að hús þau sem nú eru byggð og eru nær eingöngu úr svo varanlegu efni að þau end- ast um aldir, skuli endilega verða að borgast upp á einum áratug eða svo. Hverjar verða afleiðingarnar af þessum lánsfjárskorti? Þær eru augljósar. Kapp- hlaupið um leiguhúsnæði er slíkt að líkist brjálæðiskenndu uppboði. Menn eru neyddir til að greiða þriðjung eða jafnyel helming af launum sínum í húsaleigu. Hefur þetta farið stórlega hækkandi á siðustu árum. Fólk þarf að steypa sér í tugþúsunda kr. skuldir, e^það getur þá marið út lán í fyTÍr- framgreiðslur og það undarlega er, að svo virðist sem bankarn- ir séu miklu fúsari til að lána í fyrirframgreiðslur upp í húsa- leigu en til íbúðarkaupa eða bygginga. Þeir sem af litlum efnum hafa fest kaup á ibúð eða klambrað sér upp húsi, eru litlu betur stæðir og stundum ver. Þeir verða að greiða mik- inn hluta af launum sínum í vexti og afborganir af dýrum lánum til skamms tíma — þótt jafnvel sé nú ekki um okurlán að ræða. — Þeir mega ekki um frjálst höfuð strjúka í fjölda ára vegna ógreiddra lausa- skulda og verða oft að gerast húsaleiguokrarar til að geta komist út úr fjárhagsvandræð- unum. — En það er mikill siður núverandi valdhafa að siga einum hópi þegnanna á annan, sbr. bátagjaldeyriskerf- ið. — Þó er það á allra vit- orði nú, að söluverð húsa er langt fýrir. of^n.^ðlilegt kqgjn-; aðarverð, einkum þegar um er að ræða fokheldar íbúðir. Og gerist þetta í skjóli lánsfjár- skortsins. Það hefur ekki verið reiknað út, hve mikill hluti dýrtíðarinn- ar á rót að rekja til húsnæðis- vandræðanna, en þegar athug- að er hve mikið af tekjum manna fer í húsaleigu eða kostnað vegna íbúða, þá er ljóst að sá hluti er ekki smár. Og mestu um þessa dýrtíðar- aukningu veldur lánsfjárskort- urinn. Verðbólguáhrif lánsfjár- skortsins á þessu sviði eru því mikil og auðsæ. Okurlán í verzluninni Þegar ríkisstjórnin gerði hvorttveggja í senn hér á ár- unum, að hækka með gengis- fellingu verð allra erlendra vara um tvo þriðju eða vel það og einnig að auka stórkostlega innflutning m. a. með erlend- um lántökum, þá duldist engum að hið nýja vöruflóð myndi draga til sín gífurlegan hluta af veltufé þjóðarinnar. Þessi varð og líka raunin. Þetta varð því til að auka lánsfjárskortr inn, sem áður var tilfinnanleg- ur. Þrátt fyrir stóraukin útlán bankanna til verzlunarinnar nægði það hvergi nærri til. Það er nú á allra vitorði að verzl- anirnar hafa í stórum stíl orð- ið að leita á hinn svarta lána- markað eftir rekstursfé. Lán þau munu alltaf vera með 5—6 % mánaðarvöxtum. Þetta er dýrt fjármagn og ef slíkar lán- tökur eiga ekki að leiða til bráðs gjaldþrots verða kaup- menn að velta þessu yfir yá sem stóreykur gjaldeyrisverð- mæti aflans. Á þessu sviði verður því lánsfjárskorturinn til að minnka þjóðartekjurnar og þar með laimamöguleika vinnandi fólks, en það verkar eins og áður er sagt í sömu átt og verðbólga. Lánsfjárbann og spariinnlög Hér hefur nú verið bent á dæmi þess, hvernig lánsfjár- skorturinn beinlínis verkar til aukningar á dýrtíðinni og til að draga úr þjóðartekjunum. Fleiri dæmi mætti nefna, en þessi eru nægilega skýr. Og þetta eru jafnframt dæmi um, það hvernig draga mætti úr dýrtíðinni og auka þjóðartekj- urnar með skynsamlegri stjórn á lánastarfsemi og innflutnings- málum, Það mætti einnig ræða um lánsfjárbannið í sambandi við spariinnlög í bankana. En eins og allir vita er ástandið óðum að færast í þá átt, sem var áður en bankastarfsemi kom til sögunnar, að einstaklingar láni einstaklingum. Fé er tekið út úr bönkunum til að lána þann- ig. Sumir lána af hjálosemi og góðvild, aðrir nota sér neyðina og taka okurgróða. Útkoman verður sú að hinar eðlilegu lánastofnanir missa úr sínum höndum verulegan hluta veltu- fjárins. Út í þetta skal þó ekki farið frekar. Veltuféð á að þjóna efnabagslíf inu Dæmi þau sem nú hafa verið rakin, sýna hve óheillavænleg áhrif lánsfjárskortsins eru fyr- ir almenning í landinu. Þau sýna einnig hve fráleitar eru þær kenningar hagfræðinga ríkisstjórnarinnar og þjóðbank- ans, að það sé nú höfuðvanda- málið hvernig draga megi úr útlánunum. Reynslan sýnir að eftir að hert var á lokun bank- anna á s.l. hausti, hefur ástand- ið versnað um allan helming svo sem vænta mátti. Nú kann því að verða svarað til, að við þessu sé ekkert að gera, peningarnir séu ekki til og ekki sé hægt að lána þá peninga sem ekki séu til. En hér er ekki um það að ræða hvort það séu til peningar eða ekki, heldur er um að ræða hvert sé hið eðlilega veltufé þjóðarinnar. Ef einhver minnist á það að veltuféð sé of lítið, þá er því svarað til af hálfu valdhafanna með miklu yfirlæti og rembingi að slíkt sé barna- legt, því að með aukinni seðlaveltu sé stefnt til gengis- fellingar og verðbólgu, sem endi eins og í Þýzkalandi eftir fyrra stríð. En hér er um blekkingar að ræða. Enginn ætlast til að seðlaútgáfu sé beitt þannig. Það er óumdeil- anlegt að veltuféð á að þjóna atvinnu- og viðskiptalífinu og magn þess á að miðast við, að séð sé fyrir eðlilegri þróun efnahagslífsins. Veltuféð má ekki vera það lítið að það hefti þróunina, kyrki athafnalífið og jafnvel auki þá verðbólgu, sem i orði kveðnu er verið að forð- ast. Reynslan sýnir líka að magn veltufjárins er breytilegt. Allt móðursýkistal um að gera krónuna verðlausa með auk- inni seðlaútgáfu er alveg út í hött. Enginn hefur heyrst halda því fram. Tvennskonar viðhorf Það sem um er að ræða erut mismunandi viðhorf til þróunar efnahagslífsins. Þeir sem viljá heilbrigða þróun og eflingu at- hafnalífsins, næga atvinnu handa öllum við arðbær störf og að þjóðartekjurnar séu auknar svo sem framast er unnt með fyllstu hagnýtingu auðlindanna, þeir vilja að veltu- féð sé það mikið að slík þróuni geti átt sér stað og þeir hljóta að gagnrýna það þegar skortur á veltufé verður efnahagslífinu fjötur um fót. Þeir sem aftur á á móti vilja fyrst og fremst hlúa að sérhagsmunum fá- menns hluta þjóðarinnar, skapa nokkrum einstaklingum gróða- aðstöðu á kostnað fjöldans, vilja koma á „hæfilegu" at- vinnuleysi og leitast við að ræna af alþýðunni aftur með aukinni dýrtíð þeim kjarabót- um, sem hún hefur áunnið sér, — þeir vilja vitanlega nota umráð sín yfir veltufénu til að þjóna þessum tilgangi. Hér í þessu greinarkorni hafa verið dregin fram dæmi þess hvernig skortur á lánsfé veldur ' aukningu dýrtíðar og hamlar aukningu þjóðarteknanna. Öll skynsamleg rök hníga að því, að þetta sé leiðrétt með aukn- ingu lánsfjár þar sem þörfirs er mest. En slíkt rekst á einka- hagsmuni auðmannanna og braskaranna og það eru þeir sem ráða. Hvað eiga þeir að fá að ráða lengi? .

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.