Þjóðviljinn - 16.03.1955, Side 1
Miðvikudagur 16. marz 1955 — 20. árgangur — 62. tölublað
Vinríuveitendasamband Islands þigg-
ur fjárstyrk frá hernámsliðinu
Gengur Hamilton í Vinnuveitendasamband Islands? — Jóni Sigurðs-
syni ætlað að stjórna verkalýðsmálum á Keflavíkurflugvelli!
Þjóðviljinn hefur öruggar heimildir fyrir því að Vinnu-
veitendasamband íslands hefur á undanfömum árum
fengið stórfelldar upphæðir frá bandaríska hernámsliðinu
ng Hamilton-félaginu. Hafa þessar upphæðir átt aö heita
greiðsla fyrir veitta aðstoð í deilum og samningum við
verkamenn á Keflavíkurflugvelli en í raun og veru hefur
þetta verið beinn fjárhagsstuöningur til þess að reyna aö
efla atvinnurekendur sem mest í átökunum við alþýöu-
samtökin — enda er það mikið hagsmunamál hernáms-
liðsins að kaupgjald hér sé sem lægst.
Það hefur oft áður verið rakið
hér í blaðinu hversu mikinn
beinan gróða Bandaríkjamenn
höfðu af gengislækkununum.
Með þeim hefur dollarinn næst-
nm því þrefaldazt í verði.
Greiðslur vegna vinnulauna á
vegum hernámsliðsins nema nú
um 250 milljónum á ári — en
ef gengi dollarans hefði haldizt
óbreytt myndi upphæðin nema
tæpum 650 milljónum króna. Ár-
legur sparnaður Bandaríkja-
manna vegna gengislækkananna
nemur því um 400 milljónum kr.
— og öll marsjal]-,,hjálpin“ verð-
ur smávægileg hjá þeim upphæð-
um sem þannig hafa græðzt síð-
an landið var hernumið. Kröfur
verklýðssamtakanna nú um 30%
kauphækkun myndu hækka út-
gjöld hernámsliðsins — að öllu
óbreyttu — um 75 milljónir
króna, sem ríkisstjórnin fengi
greiddar í dollurum, Hernáms-
liðið ætlast því til mikilla afreka
' af Vinnuveitendasambandi ís-
lands og telur sér hag í því að
greiða sinn drjúga hluta af
herkostnaðinum gegn íslenzkum
verkamönnum.
Hamiltcn í Vinnuveit-
endasamband Islands?
Jafnframt þessu mun fyrirhug-
uð enn nánari samvinna her-
námsliðsins og Vinnuveitenda-
sambands íslands — sem yrði
þannig samband íslenzkra og
bandarískra atvinnurekenda!
Þetta er þeim mun furðulegra
sem það var eitt af ákveðnustu
loforðum Kristins Guðmundsson-
ar utanríkisráðherra að Hamilton-
félagið yrði rekið úr landi um
síðustu áramót. Þegar ráðherr-
ann sveik það loforð hét hann
því á nýjan leik að félagið skyldi
fara á þessu ári — það ætti að-
eins eftir að ljúka smávægilegum
verkum! Innganga þess í Vinnu-
veitendasamband íslands bendir
hins vegar til þess að félagið
eigi að sitja sem fastast og
halda áfram atvinnurekstri sín-
um í þágu hernámsliðsins. •
Verkefni handa
Jóni Sigurðssyni
Tilgangurinn með því að láta
Hamilton-félagið ganga í Vinnu-
veitendasamband íslands er sá
að þar með yrði Vinnuveitenda-
sambandið aðili að samningum
um kaup og kjör á Keflavikur-
flugvelli, einnig fyrir hönd
bandaríska hersins. Jafnframt er
verið að vinna að því að kaup-
taxti sá sem unnið hefur verið
eftir á vellinum verði gerður
að samningi milli Vinnuveitenda-
sambandsins annars vegar og
verkalýðsfélaganna á Suðurnesj-
um hins vegar, og fái þau þá
forgangsrétt að allri vinnu á
Keflavíkurflugvelli. Á síðan að
setja upp sérstaka skrifstofu á
Keflavikurflugvelli til þess að
fjalla um verklýðsmál — á
kostnað bandaríska hersins — og
eiga þar að vera tveir yfirmenn,
annar frá Vinnuveitendasam-
bandinu og hinn frá verklýðsfé-
lögunum á Suðurnesjum. Sá síð-
artaldi er þegar ákveðinn — Jón
Sigurðsson, fyrrverandi frarrf-
kvæmdastjóri Alþýðusambands
íslands!! Hefur hann unnið að
því undanfarið að undirbúa þess-
ar breytingar, enda mun hann
telja að hann eigi inni verðug
laun fyrir veitta þjónustu á und-
anförnum árum. Og ekki stendur
á Bandaríkjamönnum að treysta
Jóni Sigurðssyni og umbuna hon-
um.
Reynt að
stöðvo Aruba
John MoClellan, formaöur"'
þeirrar nefndar öldungadeildar"
Bandaríkjaþings sem MeCarthy'
stjórnaði meðan republikanar"
höfðu meirihluta í deildinni,
skýrði frá því í gær að embætt—
ismenn í utanríkisráðuneytinu
hefðu fullvissað sig um að
einskis væri látið ófreistað til að
hindra að finnska skipið Aruba
komist með paraffínfarm til
Kína. Paraffín er hægt að nota,
til að knýja } ýs iloftsflugvél-
ar.
Dulles utanríkisráðherra.
sagði blaðamönnum í Washing-
ton í gær, að ríkisstjórnin álíti
að ekki sé rétt að láta sjöunda
flota Bandaríkjanna hertaka
Aruba enda þótt hún telji sig
hafa lagalegan rétt til þess.
Framhald á 5. síðu
Fæðingar vanskapninga hljót-
ast af eitrun andrúmslofts við
tilraunir með kjarnorkuvopn
Konur á brezka þinginu bera íram tillögu,
um ráðstaíanir til að varna voðanum
Sjö konur sem sæti eiga á brezka þinginu fyrir Verka-
mannaflokkinn báru í gær fram tillögu þar sem skorað
er á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því að tilraunum með
kjarnorkuvopn verði hætt.
Þegar íslenzk verklýðssamtök
hafna honum tekur hernámsliðið
hann upp á arma sína.
Dulles lýsir áætlun um
kjarnorkustríð gegn Kína
John Foster Dulles, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
lýsti í gær fyrir blaðamönnum í Washington áætlun
Bandaríkjastjórnar um kjarnorkustríð gegn Kína.
Biaðamenn spurðu Dulles, við
hvað hann hefði átt i útvarps-
ræðu sinni i síðustu viku, þegar
hann sagði að floti og flugher
Bandaríkjanna réði nú yfir nýj-
um, aflmiklum vopnum, sem
hægt væri að beita til að þurrka
út hvaða hernaðarskotmark sem
vera skyldi en þyrfti ekki að
valda gífurlegu mannfalli meðal
óbreyttra borgara.
Dulles svaraði, að hann hefði
átt við það að ef Bandaríkin
gripu til hernaðaraðgerða gegn
Kína myndi verða beitt eldflaug-
um með kjarnorkusprengihleðslu.
Þessar sprengjur megni að afmá
hverja samgöngumiðstöð eða
annað skotmark sem vera skal en
þær séu ekki svo stórar að
geislavirkt helryk frá sprenging-
unum dreifist um stór svæði.
. í
Árás úí mörgum áttum
Einnig var sú spurning lögð
Framhald á 5. síðu.
í greinargerð þingkvennanna
fyrir tillögunni segir, að sér-
fróðum mönnum beri saman um
að mannkyninu sé nú mikil
hætta búin af því að andrúms-
loftið verði sífellt geislavirkara
um heim allan vegna geislaverk-
unar frá tilraunasprengingum
kjarnorkuvopna. Þessi hætta
hafi margfaldazt síðan farið var
að reyna vetnissprengjur.
Mesta liættan er búin kom-
andi kynslóðum, ef geisla-
verkunin í andrúmsloftinu
heldur áfram að aukast jafnt
og þétt mun það fara stór-
lega í vöxt að börn fæðist
vansköpuð vegna geislunará-
hrifa á erfðavísana í kyn-
frumum foreldra þeirra eða
forfeðra.
V-SPRENGJUR MÆLAST
ILLA FYRIR.
I gær var birt í Bretlandi nið-
urstaða könnunar á skoðunum
manna á ákvörðun ríkisstjórn-
arinnar að láta smíða vetnis-
sprengjur. Enda þótt öll brezk
dagblöð nema eitt liafi stutt á-
kvörðun ríkisstjórnarinnar,
kom í Ijós að þeir sem spurðir
voru eru klofnir í tvo næstum
jafna flokka með og á móti
siníði vetnissprengja í Bret-
landi.
Jotor v/8-
skiptonjósnir
Landhöfðinginn í Gautaborg”
í Svíþjóð skýrði frá því í gær
að einn þeirra manna sem hand-
teknir voru þar grunaðir um
njósnir hefði viðurkennt að
hafa látið starfsmanni erlends
sendiráðs í té upplýsingar um
sænsk fyrirtæki og viðskipta-
sambönd þeirra.
Framhald á 5. síou.
Diem fmr
Ufvörð
Ngo Dinh Diem, forsætisráð—
herra í suðurhluta Viet Nam,
hefur kallað til höfuðborgar"
sinnar Saigon herfylki manna
sem ættaðir eru frá átthögum
hans í norðurhluta landsins,
þar sem lýðveldisstjórn Ho Chi
Minh fer nú með völd. Segja
fréttamenn í Saigon að Diem
Framhald á 5. síðu.
Yerkföllin eiga að hefjast aðra nótt
★ Nú er orðinn naumur tími til stefnu ef samningar eiga
að nást í vinnudeilunum án þess að til vinnustöðvunar komi.
Verkföllin hefjast á miðnætti aðra nótt verði ekki samið fyrir
þann tíma, og þannig eru tii umráða tveir dagar og ein nótt.
★ Sáttanefndin hélt fund með deiluaðilum í fyrrakvöld og
stóð hann til kl. þrjú um nóttina. Mun þar enn liafa endurtekið
sig hið sama: Atvinnurekendur buðu ekki fram eyrishækkun á
kaupi.
★ Nýir fundir hófust kl. fimm í gær og aftur að loknum
kvöldverði. Stóðu þeir enn þegar blaðið fór í prentun og höfðu
engar fréttir borizt þaðan um nokkurn jákvæðan árangur.
★ Það er alkunn staðreynd, sem öll þjóðin þekkir, og at-
vinnurekendur manna bezt, að það verður ekki undan því kom-
izt með nokkru móti að semja við verkailýðsfélögin um réttlætis-
kröfur þeirra. Það er vonlausast allra verka að ætla að kúga
verkafólk til hlýðni. Spurningin var og er sú ein hvort takist að
ná samningum án þess að til stöðvunar komi, stöðvunar sem er
til tjóns fyrir alla aðila. Afstaða atvinnurekenda til þess vanda
hefur til þessa verið algerlega neikvæð og verður það ekki kallað
annað en vísvitandi skemmdarverk. Það kemur í ljós í dag og á
morgun hvort atvinnurekendur ætla að halda þeirri afstöðu til
streitu. En verkalýðssamtökin eru búin undir hörð átök, ef til-
raunir þeirra til að ná samningum án vinnustöðvunar stranda.
á þröngsýni og ofstæki auðmannaklíkunnar í Reykjavík.