Þjóðviljinn - 16.03.1955, Side 3
Miðvikudagur 16. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — Qjf'j
Ferðaskrifstofa ríkisins:
Fjórar ferðir til Norðurland-
anna og Suður-Evrópu
Nær fullskipað í allar ferðirnar
Ferðaskrifstofa ríkisins efnir til fjögurra hópferða héð-
an í sumar til meginlandsins. Tvær ferðanna verða um
Norðurlönd en tvær til Suður-Evrópu.
Þátttaka hefur orðið það mikil að fullráðið mun í ferð-
irnar að mestu.
Norðurlandaferð
I aðra Norðurlandaferðina
verður farið héðan 1. júní og
komið til baka 22. júní. Flogið
verður til Kaupmannahafnar en
þar verður farin hringferð til
ýmissa staða er ferðamönnum
þykir fengur að sjá. Fyrri hluta
næsta dags hafa menn til eigin
umróða, en síðan verða heim-
sóttir nokkrir staðir er ekki
vannst.tími til daginn áður. Þriðja
daginn verður ekið norður Sjá-
land, komið í Friðriksborgarhöll
og Krónborgarkastala og síðan
farið með ferju yfir til Svíþjóðar.
Daginn eftir verður ekið til
Gautaborgar, en hún er stærsta
hafnarborg á Norðurlöndum og
margt að sjá, verður dvalið þar
um kvöldið og daginn eftir. Á
næstu tveim dögum verður ekið
gegnum skóga og iðnaðarborgir
áleiðis til Stokkhólms. Verður
m. a. farið meðfram Vattern, sem
talin er ein fegursta leið í Sví
þjóð. Næsta degi .verður varið
til að skoða Stokkhólmsborg, en
of langt yrði upp að telja allt
sem þar er fyrirhugað. Næsta
degi geta menn varið að vild í
Stokkhólmi. Þá fer einn dagur
í ökuferð til háskólaborgarinnar
Uppsala og verður komið við í
Sigtúnum. Til Stokkhólms um
kvöldið. Næsta dag, sem er 12.
júní verður lagt af stað frá
Stokkhólmi og m. a. komið í
stáliðnaðarborgina Eskilstuna,
farið um Vermaland og gist í
Karlstað, er stendur við Vanem,
stærsta vatn Svíþjóðar. Daginn
eftir verður ferðast um Verma-
land, m. a. skoðað heimili Selmu
Lagerlöf. Hinn 14. júní verður
farið til höfuðborgar Noregs,
Osló. Fyrri hluta næsta dags
hafa menn til eigin umráða en
síðan verðá skoðaðir ýmsir kunn-
ir staðir í Osló, eins og ráðhúsið,
Frognergarðurinn þar sem högg-
myndir Vigelands eru, ennfremur
verða skoðuð ýmis norsk söfn.
Daginn eftir verður farið upp á
Holmenkollen, en kvöldið og
næsta dag hafa menn til eigin
umráða, en seinna um kvöldið
verður íslendingasamkoma. 18.
júni verður farið með Heklu á-
leiðis til íslands, en komið til
Þórshafnar í Færeyjum 20. júní
og m. a. verður hægt að fara og
skoða Kirkjubæ. Til Reykjavíkur
verður komið 22. júní,
Síðari ferðin
Sá hópurinn sem í síðari ferð-
inni verður fer með Heklu til
Bergen og hittast hópamir í
Osló. Seinni hópurinn fer svo um
sömu slóðir og hinn fyrri, nema
í öfugri röð: byrjar ferðina í
Osló og endar í Kaupmannahöfn
og fer heim þaðan.
Suður-Evrópuferðir
Síðari Evrópuferðin hefst 1.
júni og stendur í 30 daga. Verð-
ur flogið héðan til Parísar, en
þar hefur þá fyrri hópurinn lok-
ið ferð sinni og fer flugleiðis
heim. Ferðazt verður í íslenzk-
um bílum. Fer seinni hópurinn
hina sömu leið og sá fyrri, —
öfuga, þ. e. byrjar bílferðina í
París en endar í Kaupmanna-
höfn. í París verður dvalið í
tæpa þrjá daga og ýmsir merkir
staðir þessarar frægu borgar
skoðaðir og m. a. skroppið til
Versala. Frá París verður ekið
um Fontainebleu, Dijon, Gren-
oble og m. a. farið eftir svo-
nefndum Napoleonsvegi er hann
fór norður yfir Alpafjöll er hann
var að hrifsa til sín völdin. Tvo
daga verður dvalið í Monte
Carlo, skoðað sjóferða- og sæ-
dýrasafn, litið inn í spilavítið og
dvalið á baðströndinni. Hinn 9.
júní verður haldið til Genúa á
Ítalíu. Þaðan farið til Feneyja og
dvalið þar í 3 daga, enda er þar
margt að sjá í hinni frægu gond-
ólaborg. Þaðan verður haldið
um St. Gottharðsskarð norður yf-
' ir Alpaf jöll til Luzem í Sviss.
; Er þetta fræg leið fyrir fegurð.
| Frá Syiss verður haldið til
Þýzkalands til Heidelberg, elzta
háskólabæjar Þýzkalands og
dvalið þar í 1 dag. Síðan verður
haldið áfram um Köln, Hamborg,
Flensborg og Óðinsvé til Kaup-
Orlof efnir til 8 hópferða til
útlanda í vor og sumar
Latft ai stað í fyrstu ferðina, 25 daga ferð
til Italíu, í næsta mánuði
Ferðaskrifstofan Orlof h.f. hefur nú undirbúið nokkrar
utanlandsferðir í vor og sumar. Verður fyrsta ferðin 25
dag ferð til Ítalíu í næsta mánuði, en af öðrum ferðum
má nefna ferð til byggða Vestur-íslendinga í Ameríku
1 júní og 20 daga ferð til Austurríkis og Júgóslavíu í sept-
ember n.k.
mannahafnar og er margt að sjá
Framhald á 11. síðu.
Lagt verður af stað í ítalíu-
ferðina með Gullfossi þann 18.
apríl n.k. og haldið til Kaup-
mannahafnar. Þaðan verður svo
farið þann 19. með fyrsta fl.
lagferðavagni frá Linjebuss
suður um Þýzkaland og sviss-
nesku Alpana til Stresa á
ítalíu.
Feneyjar og Rómaborg.
Frá Stresa er haldið til Míl-
anó og staðið við í einn sól-
arhring, en síðan áfram til
Feneyja, þar sem viðdvölin
verður tveir sólarhringar. Frá
Feneyjum verður haldið áfram
suður eftir Italíu með járn-
brautarlest, allt til Rómaborg-
ar og heimsóttir allir helztu
staðir „bo.rgarinnar eilífu“, svo
sem Vatíkanið, páfagarður með
^Péturskirkjunni og söfnunum,
Gondólar í Canal Grande, „aðalgötu“ Feneyja en par verð-
ur dvalizt 13. og 14. dag ferðarinnar.
Morgunblaðið brýnir fyrir verka-
mönnum nauðsyn stjórnmálabaráttu
Morgunblaðið bendir á það í
forustugrein í gær að hag-
fræðingar Alþýðusambandsins
sýni m.a. fram á það í skýrslu
sinni að verklýðsfélögin hafi
verið rænd kjarabótum þeim
sem náðst hafa í öllum verk-
föllum síðan 1947. Þetta er
réttmæt ábending og þakkar-
verð. En það er tvennt sem
Morgunblaðinu láist að geta.
Ef verklýðssamtökin hefðu
ekki háð hina harðvítugu bar-
áttu sína hefði kjaraskerðing-
in orðið langtum stórfelldari.
Verklýðssamtökin hafa fýrst
og fremst háð varnarbaráttu
og árangur hennar hefur orð-
ið mjög mikilvægur, þar sem
hann hefur orðið til þess að
hrinda mörgum árásum auð-
stéttarinnar.
Ránið frá verklýðssamtök-
unum stafar ekki af neinu
efnahagslögmáli, eins og
Morgunblaðið vill vera láta,
heldur hinu að ríkisvaldið er í
höndum auðmannastéttarinn-
ar og því er beitt miskunnar-
laust til þess að skerða kjör
almennings. Andstætt því sem
nú tíðkast hafa menn dæmið
frá dögum nýsköpunarstjóm-
arinnar, þegar kaupmáttur
tímakaupsins fór stöðugt vax-
andi og verkamenn héldu að
fullu þeim árangri sem náðist
í kjarabaráttunni. 1 skýrslu
sem þeir hagfræðingamir Ól-
afur Bjömsson og Jónas Har-
alz gerðu á sínum tíma fyrir
Alþýðusamband íslands sýndu
þéir fram á að kaupmáttur
tímakaupsins hefði vaxið úr
Í00 árið 1939 unp i 156 árið
1947. Nákvæmlega sama þró-
un hefði getað átt sér stað á
undanfömum árum ef í land-
inu hefði verið ríkisstjórn sem
hefði haft vinsamlegt sam-
band við verklýðssamtökin.
Athugasemd Morgunblaðs-
ins brýnir því fyrir verka-
mönnum þau einföldu sann-
indi að ein saman verkfalls-
baráttu færir ekki fullan ár-
angur; það verður einnig að
koma til pólitísk barátta.
Flokkar verkalýðsins þurfa að
ná þeim styrk á Alþingi og í
ríkisstjórn að þeir geti haft
úrslitaáhrif á gang mála og
komið í veg fyrir ránsherferð-
ir gegn verklýðssamtökunum.
Forum Romanum, katakomb-*^
urnar, Colosseum o. m. fl.
Fegursta ökuleið heitns.
Frá Róm er ekið með lest til
Napoli og þar dvalizt einn dag,
en síðan haldið með bílum til
Pompei og áfram út með fló-
anum til Amalfi og Sorrento.
Er þessi leið talin ein fegursta
ökuleið í heimi.
Frá. Sorrento er farið með
ferju til Capri og dvalizt þar
einn dag, síðan haldið með
skipi til Napoli og þaðan með
lest til Rómar og áfram til
Nizza í Suður-Frakklandi.
Á baðströndinni í Nizza.
Til Nizza verður komið að
morgni og dvalizt á hinni glæsi
legu baðströnd við Promenade
des anglais í tvo daga, en
þriðja daginn skroppið til
Monte Carlo og um kvöldið
þann dag haldið með hraðlest,
„Bláu lestinni," til Parísar, þar
sem dvalizt verður þrjá síð-
ustu daga ferðarinnar og borg-
in skoðuð. >
Til þess að verða við óskum
sem flestra mun ferðin enda
í París þann 5. maí. Næsta dag
fara þeir sem óska heim til Is-
lands um London, sumir verða
eftir í París en aðrir fara til
Þýzkalands eða Norðurlanda og
þaðan heim síðar.
Margir óska að fara fyrr og
dvelja úti áður en suðurferðin
hefst og enn eru þeir sem hafa
ekki tíma til að fara héðan
þann 12. apríl en vilja fara
síðar með flugvél. Þar sem
hópurinn leggur af stað frá
Kaupmannahöfn þann 19. apríl
geta menn farið héðan að heim-
an fljúgandi hvaða dag sem er
fram að þeim 18.
Þátttakendur í ítalíuferðinni
geta orðið allt að 40, en þátt-
tökugjald mun verða um 670Ö
krónur og er þá allt innifalið
nema fargjald frá Islandi til
Parísar og þaðan heim aftur.
Ameríkuferð og ferð til Austur-
ríkis og Júgóslavíu.
Auk Italíuferðarinnar hefur
Orlof nú undirbúið 7 aðrar
utanlandsferðir í sumar.
Þann 14. maí verður lagt upp
í 20 daga ferð um Danmörk,
Þýzkaland, Holland, Belgíu,
Frakkland og Rínarhéruðin. 1
júní verður efnt til 16 daga
ferðar um Skotland og Irland
og mánaðarferðalags til byggða
Vestur-lslendinga í Ameríku.
I júlí verður farin 18 daga
ferð um Noreg, Svíþjóð og
Danmörku, í ágúst 14 daga
ferð til Rínarhéraða, í septem-
ber 20 daga ferð um Austur-
ríki og Júgóslavíu og í októ-
ber verður farin ferð sú, sem
átti að hefjast í dag til Suð-
urlanda, Egyptalands og Norð-
ur-Afríku. Fresta varð ferð
þessari vegna yfirvofandi verk
falls og af öðrum ástæðum. >