Þjóðviljinn - 23.03.1955, Síða 9

Þjóðviljinn - 23.03.1955, Síða 9
Miðvikudaguí 23. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 A ÍÞRÓTTIR RlTSTJÓRl FRÍMANN HELGASON ----------------------- Emil Tómasson: Gunnar M. Magnúss: Börnin frá Víðigerði Er sjálf þjóðaríþróttin að verða lýtalaus eða er verið að búa til nýja glímuíþrótt sem fær svo glæsilega dóma? Fullorðna fólkið þarf nú mest að hugsa um dótið, kassana og kyrnurnar, svo að engu verði stolið út úr höndunum á því. Það má svo sem ekki tapast mikið af því, sem farið verður með.“ Þeir höfðu gengið samsíða smalarnir. Geiri sleit upp pun’tstrá öðru hvoru og tuggði leggina. „Mig langar svo sem ekkert til þess að fara“, sagði hann. „Það er ekki svo vont að vera hér“. „Já, þér finnst þetta, af því að þú ert svo lítill,, en fullorðna fólkinu, sem mest þarf að hafa fyrir lífinu, finnst nú annað“. „Við höfum hér góðan bæ“, sagði Geiri. „Hæ! En hvað heldurðu að þér finnist, ef þú sérð húsin í Ameríku. Þetta eru bara torfbæir hérna. Svona kofar eru bara hafðir fyrir svína- stíur í Ameríku.“ „Okkur hefur samt alltaf liðið vel hérna. Við höfum haft nóg að borða“. „Ja, hvað kallarðu mat. Allt upp úr súru!“ Stjáni hló dátt og skældi sig. En Geiri var síhugsandi um það, hvað gott væri að eiga heima á íslandi. „Hér koma aldrei fellibyljir“, sagði hann. „Ég hef heyrt', að fellibyljirnir rífi upp trén í skóg- unum, tæti upp húsin og skrúfi skipin í háa loft“. „Það tekur þá fljótt af. Heldurðu, að það sé betra að verða úti hérna í grenjandi kafaldsbylj- um. Alltaf er einhver að verða úti hérna milli fjárhúsanna, þegar bylgusa kemur. Nei, Geiri rninn, þú ert bara hræddur við að fara íil Ame- ríku“. „Ég er viss um, að það er ekki skemmtilegra þar. Hér eru áreiðanlega fallegustu fjöllin, fal- legustu fossarnir og lækirnir og árnar og falleg- ustu dalirnir“. Stjáni hélt nú all-langa ræðu með miklum og tilhlýðilegum sannfæringarkrafti. Til hinna yngri manna. Eiginlega er þessu rabbi um gömlu glímuna beint til ykkar yngri glímumanna og annarra sem kynnu að hafa áhuga fyr- ir þjóðaríþróttinni og vilduð kannski endurskoða hana frá fleiri en einni hlið. Búast má við að þið þekkið ekki annað glímulag en þetta eina sem ykkur hefur verið kennt og sem þið nú lifið og hrærist í. Rétt er því ykkar vegna að skýra enn nánar frá gömlu glímunni en ég hefi gert hér að framan. Einkum er það þetta, sem þdð skuluð gefa gætur, að þegar glímutök voru tekin í glímunni lögðu þeir er við áttust brjóst við brjóst og fætur við fætur, byrjuðu leik- inn með góðlátlegu fótafálmi í hægum snúningi réttsælis. Þetta var aðeins forspil að leiknum, sem brátt snerist upp í liina hörðustu viðureign, sókn og vörn. Þegar vanir og vaskir áttust við var oft unun á að horfa. Það er ekki nema eðli- legt þó þið trúið því vart að menn skyldu þora að ganga fast í fang hvors annars — beint í voðann — en ykkur er óhætt að trúa því að það er svo langt- um betra en að bolast eins og þið gerið, því að með því finn- nr maður bezt í öllum hreyf- ingum og viðbrögðum mótleik- arans hvað hann hyggur að gera á þessu og hinu augna- blikinu, þá fyrst reynir á glímuleiknina, að vera við öllu búnir og vel snöggir og fljót- ir til að ná vörnum og hrinda af sér áföllum. Sömuleiðis fann maður bezt í viðureigninni hvar mótleikarinn stóð höllum fæti. Geta þá boð- izt augnablikstækifæri að ná honum í þetta eða hitt bragðið, sem beinast lá við, áður en hann næði jafnvægi aftur og kæmi vörn við. Glímumanns- listin lék á því þá hve eld- snöggur maðurinn var á hinu rétta augnabliki að ná bragð- inu og skapa um leið hreina og fallega byltu. Hér þýddi ekk- ert seinlætistusk né ófimar stimpingar. Flýtir glímunnar gömlu er ekkert sambærilegur við það sem nú er, því eru glímurnar gagnólíkar. Þá lék saman skörp hugsun og líkam- leg leikni góðs glímumanns. Og rétt er að taka það fram að hér gat maður neytt allra sinna krafta með leikninni og flýtinum, en allt varð það að vera í réttum og samstilltum hlutföllum eins og góður söng- kór, svo leikurinn væri hríf- andi. Aldrei fulllærð. Islenzka glíman á svo mikið til af fjölhæfni og list að hún verður aldrei fulllærð. Það virðist því brosleg fáfræði þegar menn geta verið að tala um „lýtalausar glímur“ á sama tíma og glíman virðist í afturför. Ég veit ekki betur en að glíman sé útþurrkuð í Mý- vatnssveit og er þá bæði langt gengið og mikið sagt, því eng- in sveit á landi hér hefur gert meir að því að halda glímunni uppi á umliðnum tímum eða öldum má segja, og engin sveit og enginn kaupstaður hefur átt jafnmarga ágæta glímumenn að ég hygg. Hér syðra hafa þeir. frændurnir og prestarnir séra Þorsteinn Jónsson frá Reykjahlíð (f. 1809) og séra Helgi R. Hjálmarsson (f. 1867) orðið frægastir fyrir glímur sínar, séra Þorsteinn í Bessa- staðaskóla nálægt 1830 en séra Helgi fyrir stofnun Glimufé- lagsins Ármanns hér í Rvík um 1888. Þar að auki hafa Mývetningar átt fjölda glímu- manna sem ekki hafa staðið þessum tveim, sem nefndir eru, langt að baki. Allt að þessu hefur fundizt lífsmark með glímunni í Reykja dal. Það munu aðallega vera þeir synir Jóns bónda Haralds- sonar á Einarsstöðum, sem gengizt hafa. fyrir því að glím- an hyrfi ekki með öllu úr sveitinni. Svo mun hún hvergi, mér vitanlega, lifa í borg né byggð á landinu utan Reykja- víkur og Haukadalsskólans. Á þessu má sjá þann bláþráð sem glíman stendur nú á. Hvaða líf og áhugi er það fyrir sjálfri þjóðaríþróttinni, þó gamlir og áhugasamir glímumenn, sem sjálfir eru hættir að stunda hana reyni í beztu mein- ingu að halda sem lengst líftórunni í henni með því að skrapa saman átta til tíu menn, og ekki alla vel þjálfaða stundum, til að leika frammi fyrir fjölda áhorfenda tvisvar á ári hverju (íslandsglíman og Skjaldargliman) í borg sem telur 62 þús. íbúa? Of mikið af æskumönnum snýr baki við glímunni. Síðustu árin hefur glíman haldizt mest uppi hér í Reykjavík af all snjöllum glímumönnum, sem komið hafa frá Haukadalsskólanum og víð- ar að, og áhrifum frá þeim. Hefðu þeir aldrei komið hygg ég að hin oftnefnda þjóðar- íþrótt væri undir lok liðin eins og blessaður geirfuglinn. Heildaryfirsýn Skjaldarglímunnar. Áður en ég skil við þetta glímurabb er þess sennilega vænzt af sjálfum glímumönn- unum, að ég greini frá hvernig mér kom þessi Skjaldarglíma fyrir sjónir. Ég vona að þið, vinir mínir, verðið ekki upp- vægir út af því þó mér kunni að farast ver við ykkur en Morgunblaðinu. En það sem ég segi það meina ég. Fyrst skal það fram tekið að mér verður jafnan starsýnt á ykkur þegar þið gangið sam- an að glímunni og takið tökin. Þetta breiða bil sem millum ykkar er þykir mér eitthvað ófétlegt og get aldrei vanizt því. Stundum segir blessað kvenfólkið að þetta og hitt fari í taugarnar á sér. Eg vil orða það sem svo að það fari í skapið á mér. Svo þegar sjálf viðureignin hefst breikkar bilið enn meir. Þá verðið þið álútir mjög og niðurdregnir og haldið hver öðrum svo langt í burt sem handleggjalengd ykkar leyfir, rassinn kemur það langt út að við liggur að bakið bogni. Þá er glímustaðan komin. En mér er spurn, hvernig hugsið þið ykkur svo að ná til bragða í slíkri uppstillingu? Mér virð- ist það aldeilis ómögulegt. Ég vildi þá heldur fyrir mína parta sleppa beltishönkunum og fara í axlatök eða jafnvel hrygg- spennu. Þetta þykir ykkur máski ósanngirni gagnvart glímunni okkar gömlu og góðu. En ef satt má um hana segja þá finnst mér hún lítið annað orðin en kraftatusk og rysk- ingar. (Niðurlag á morgun). Körfuknattleiks- ! mótið Körfuknattleiksmótið hélt á- fram í fyrrakvöld. í öðrum flokki sigraði þá Gosi ÍR 26—15 og Ármann A-lið Ármann B-lið 58—22, en í meistaraflokki sigr- aði ÍR ÍKF 31—22. Kl. 8 annað kvöld verður mótinu haldið á- fram og keppa þá í 2 flokki: Ár- mann A-lið og Gsi og Ármann B-lið og ÍR, en í meistaraflokki Gosi og ÍS. Mótiiiu lýkur á föstudagskvöldið. Firmakeppni Skíðaráðs Rvíkur Firmakeppni Skíðaráðs Reykja- víkur fór fram við Skíðaskálann í Hveradölum s.l. sunnudag. Keppt var í svigi. Sólskin var en gekk á með mjög hvössum vind- sveipum og reif upp snjóinn og gerði það keppendum og starfs- mönnum erfitt fyrir, frost var 10 gráður. Skíðafærið var hart og grófst því brautin lítið, en hún var um 300 m. löng með 38 hlið- um og 90 m fallhæð. Brautar- stjóri(iyar Þórir Jónsson, Áhorf- endur voru margir og var notað- ur hátalari til að lýsa keppn- inni sem fór vel fram og var Framhald á 10. síðm Sovézki meistarinn í fimleikum kvenna, Söfía Muratova, í jafnvœgisæfmgu á slá.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.