Þjóðviljinn - 27.09.1955, Blaðsíða 10
JO)' — ÞJÓÐVlUINNw— Þrifijudagur 27. septexnber 1955
Ríkisvaldið gegn Kópavogi
Framhald af 7. síðu.
byggingaleyfi var til á lóðina
og fékkst ekki, og kofi sá sem
hann hafði keypt fékk því að-
eins að standa á lóðinni, að
hann viki hvenær sem væri
fyrir þvi skipulagi, sem gert
yrði. Staðreyndin er sú, hvort
sem rikisvaldið vill viðurkenna
það eða ekki, að nú ganga
kaupum og sölum lóðaréttindi,
þinglýstir lóðasamningar þar
sem engin framkvæmd hefur
verið hafin á lóðunum, þær
seldar vegna þess að rétthaf-
inn á þeim hefur komizt að
raun um að það er sitt hvað,
að hafa lóðaleigusamning og
byggingaleyfi. Þó er skýrt tek-
ið fram i lóðaleigusamningn-
um, að óheimilt sé að fram-
selja leigurétt lóðarinnar,
nema einhver fasteign hafi
verið mynduð á lóðinni. Það
er því ríkið sjálft, sem komið
hefur af stað stórfelldasta
lóðabraski, sem enn hefur orð-
ið í sögu íslenzka lýðveldis-
ins.
Mann ber ábyrgðina
Lóðamál Kópavogshrepps
heyra undir félagsmálaráð-
herra. Það er því hæstvirtur
félagsmálaráðherra, Stein-
grímur Steinþórsson, sem ber
ábyrgð á iþróun þessara mála.
Þeir, sem vinna verkið, eru
nafnleysingjar í þessu sam-
bandi, því þeir vinna á hans
ábyrgð, félagsmálaráðherra
staðfestir gerðir þeirra, með
því að láta þá einráða um
verkin og setja innsigli sitt
undir afglöpin. En mér er
Eínn
miði
í
Happdrætti
Þjóðviljans
veitir yður möguleika til
að eignast
spurn, vill Framsóknarflokk-
urinn endalaust bera ábyrgð
á því að selja leiguliðum á
leigu réttindalaus ríkislönd ?
Ég kalla það réttindalaust
land í mínar hendur, ef ég á
það undir öðrum en leigu-
sala, hvort ég fæ að byggja
á landinu eða ekki. Það kem-
ur sem sagt alltaf að þvi, að
ef ríkið ætlar sér að geta
staðið á verkum sínum í
Kópavogshreppi, þá verður
það að fá úr því skorið með
dómi, að hreppsfélaginu beri
skylda til að samþykkja bygg-
ingaleyfi á hverja þá lóð, sem
það úthlutar úr landi sínu í
Kópavogshreppi. Hitt er svo
ekki alveg víst, að dómurinn
myndi falla á þá leið — og þá
myndi kannski enn koma að
því, sem áður var sagt, að
þessi ráðstöfun verði nokkuð
dýr.
Hvenær fæst opinber
greinargerð?
Það má lengi velta þessum
málum fyrir sér, því það eru
endalausir agnúar á þessari
framkvæmd ríkisvaldsins, en
ég læt hér staðar numið. Þó
er ekki þvi að leyna, að mér
þætti fróðlegt, ef hæstvirt fé-
lagsmálaráðuneyti gerði opin-
bera grein fyrir þessum verk-
um sínum. Það mætti og varla
minna vera, þar sem um er að
ræða þrjúþúsund manna byggð
og að fjármunum fátækt
byggðarlag.
Ef félagsmálaráðherra hef-
ur gert alla hluti rétt í þess-
um lóðamálum okkar, og rétt-
ur okkar til meðferðar þessara
mála er enginn, þá held ég
að bezt* sé að hætta að tala
um sérmál eða sjálfstjórn bæj-
ar og sveitarfélaga.
Þá er skörin farin að fær-
ast upp í bekkinn, þegar rík-
isvaldið sjálft gengur á und-
an í því, að misbeita valdi
sínu. Þá er sýnt að sú gamla
setning er fyrir borð borin,
að með lögum skal land
byggja en ólögum eyða.
Það sem af er ævi okkar
Kópavogsbúa, sem hreppsfé-
lags, höfum við í flestu fengið
að kenna á ólögum og það
mest af hálfu hins opinbéra.
Samt trúum við því enn marg-
ir ihverjir, að svo fari áður en
langt líður, að við hljótum
jafnan rétt fyrir lögum, sem
aðrir menn og önnur sveitar-
félög.
Þá mun svo fara, að eftir
stendur aðeins á spjöldum
sögunnar sú spilling í með-
ferð ríkisvaldsins, sem við
ihöfum þurft að búa við og
standa af okkur í hvívetna,
síðan íhér var stofnaður
hreppur, og hræddur er ég um
að eftirkomendum muni ekki
þykja sagan fögur um þá
menn, sem hér hafa lengst af
farið með ofbeldi og víking á
hendur þessu byggðarlagi.
Pétur Sumarlíðason
Töframaðurinn
Framhald af 6. síðu.
um fjarska. — Það er ekki
á mínu færi að dæma um
sönglist, en fullyrða má að
tónar Mozarts njóta sín prýðis-
vel í flutningi leikhússins og
sýningin beri listfengi allra
og aðila ljóst vitni. Söngstjóm
og raddsetningu annast F.
Weisshappel, fimm manna
strengjahljómsveit leikur und-
ir forustu Bjöms Ólafssonar,
en hlutverkin þrjú eru falin
ungum og snjöllum söngvur-
um: Þuríður Pálsdóttir og
Magnús Jónsson eru elskend-
urnir ungu og Kristinn Halls-
san hinn göldrótti síðskeggur,
hjarðmaðurinn gamli. Söngur
þeirra brást áreiðanlega engra
vonum, en öll eru þau vinsæl
og virt af áheyrendum, ekki
sízt vegna ágætrar frammi-
stöðu í „La Bohérne" í vor.
í annan stað er leikurinn ærið
misjafn og hnökróttur eins
og gerist og gengur þegar ung-
ir söngvarar eiga í hlut, og
ekki verður sagt að skop verk«-
ins njóti sín til neinnar hlít-
ar. Þuríður Pálsdóttir virðist
góðum leikgáfum gædd, röddin
er björt og þýð, útlitið glæsi-
legt, framkoman eðlileg,
skemmtileg og glettin. Hin
mikla tenórrödd Magnúsar
Jónssonar brást ekki fremur
en endranær, en íslenzkufram-
burði hans er víða ábótavant
og leikurinn fálmkenndur og
lítt sannfærandi. Kristinn
Hallsson er jafnan fjörlegur og
hressilegur á .sviði, en leikur
hans ekki nógu hnitmiðaður og
vandaður að þessu sinni.
Galdrasöngurinn var mjög
skemmtilegur í meðförum hans,
og eitt bezta atriði íeiksins.
Á. Hj.
jBikum ogmálum
I þök
Sími 3S62
íbðð fil sölu
80 ferm. nýleg íbúðarhæð í
steinhúsi til sölu. Bílskúrs-
réttindi. Tilboð sendist afgr.
Þjóðviljans fyrir miðviku-
dagskvöld, merkt „Vogar“ —.
ALLT Á SAMA STAÐ j
DUNLOP I
■
!
svampgúmmí,
■
■
er nota má í staðinn fyrir j
gólfteppafilt, útvegum vér frá j
Englandi. — Gerir teppið j
þykkt og mjúkt. Eykur eml- j
inguna stórlega.
H.f.EgiIl Vilhjálmsson j
Laugaveg 118 — Sími 81812 i
Dvalarheimili
aldraðra sjómanna
Min nin ga rspjöld fást hjá:
Happdrætti D.A.S. Austur-
strætl 1, síml 7757 — Veiðar-
færaverzlunin Verðandi, sími
3786 — Sjómannafélag Reykja-
víkur, sími 1915 — Jónas
Bergman, Háteigsveg 52, sími
4784 — Tóbaíksbúðin Boston,
Laugaveg 8, sími 3383 —
Bókaverzlunin Fróði, Leifs-
gata 4 — Verzlunin Lauga-
teigur, Laugateirj 24, síml
81666 — Ólafur Jóhannsson,
Sogabletti 15, síml 3096 —
Nesbúðln, Nesveg 39 — Guðm.
Andrésson gullsm., Laugaveg
50 simi 3769
SKIPAfíTGCR'Ð
RIKISINS
Es ja
Telpu og drengja-
PEYSUR
Verð frá kr. 80.00 —
T0LED0
Fichersundi.
«*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■
vestur um land í hringferð hinn
2. okt. n. k. Tekið á móti flutn-
ingi til áætlunarhafna vestan
Akureyrar í dag og á morgun.
Farseðlar seldir á fimmtudag.
Herðubreið
austur um land til Þórshafnar
hinn 3. okt. Tekið á móti flutn-
ingi til Hornafjarðar, Djúpa-
vogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar-
fjarðar, Borgarfjarðar, Vopna-
fjarðar, Bakkafjarðar og Þórs-
hafnar á miðvikudag og fimmtu-
dag. Farseðlar seldir árdegis á
laugardag.
Skaftfellingur
fer til Vestmannaeyja í kvöld.
Vörumóttaka í dag.
Frá Barnaskólum Reykjavíkur
Mánudaginn 3. október komi börnin í barnaskól-
ana sem hér segir:
Kl. 2 e.h. böm fædd 1943 (12 ára),
Kl. 3 e.h. böm fædd 1944 (11 ára),.
Kl. 4 e.h. börn fædd 1945 (10 ára).
Þau böm, sem flytjast milli skóla, skulu
hafa meö' sér prófskírteini og flutningstilkynn-
ingar.
Kennarafundur laugardaginn 1. okt. kl. 3 e. h.
Sbólastjórarnir.
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■•■■■■■■•■■■M
Herbergi óskast
Okkur vantar herbergi, eitt eða fleiri saman,
handa starfsmönnum okkar.
Byggingafélagið BÆR h.f.
Sími 2967.
Frá og ineð 1. október n. k.
hækka iðgjöld meðlima samlagsins upp í
30.00 kr. á mánuði.
Stjórn Sjúkrasamlags Kópavogshrepps
Eiginmaður minn
Sigurjón Einarsson
Varmá, Hverageröi,
sem andaðist í Landspítalanum 22. þ. m., verður
jarðsunginn frá Fossvogskapellu föstudaginn 30.
þ. m. kl. 15.30.
Steinunn Sveinsdóttir