Þjóðviljinn - 01.10.1955, Síða 3

Þjóðviljinn - 01.10.1955, Síða 3
Iiaugardagur 1. október 1955 — ÞJÓÐVILJINN — Bréf Finnbop Rðts Framhald af 12. síðu. hef mótmælt og get afsannað. Vegna sérstakra anna þessa daga læt ég nægja að þessu sinni að svara bréfi hins háa ráðu- neytis með örfáum spurningum: 1. Hvar eru í útsvarslögum ákvæði, sem skylda hreppsnefnd- ir til þess að hafa tvær umræður um fjárhagsáætlun? 2. Hver hefur hindrað fyrr- greinda hreppsnefndarmenn í því, að bera fram breytingartil- lögur við fjárhagsáætlunina? Hvaða fyrirvara ber sveitar- stjórnum að hafa, áður en fjár- hagsáætlun er borin undir at- kvæði? 3. Hvar er tillaga þeirra um tvær umræður? Hversvegna lögðu þeir hana aldrei fram? Og hversvegna stöðvaði ráðuneytið ekki afgreiðslu fjárhagsáætlun- arinnar eftir 1. umræðu hennar, skv. kröfu kærenda, ef það eru gildandi lög að hreppsnefndir skuli hafa tvær umræður um fjárhagsáætlun? 4. Treystir ráðuneytið sér ekki til þess, án rannsóknar, að fella úrskurð um það aðalkæruefni kærenda í bréfi þeirra 12. júlí s'.l., að hreppsnefnd Kópavogs- hrepps sé bæjarstjórn, skv. lög- um um bæjarstjórn í Kópavogi? 5. Hvaða sönnun hefur ráðu- neytið fyrir þeirri upplognu staðhæfingu kærenda, að þeim hafi ekki gefist „hæfilegt tóm“ til að kynna sér lista yfir ó- goldin útsvör? Hvað telur ráðu- neytið „hæfilegt tóm“ í því efni? 6. Þá vil ég enn spyrja: Hvar eru í lögum ákvæði, sem heimila ^áðuneytinu áð gefa byggingarnefndum og hrepps- nefndum fyrirmæii um að stað- setja hús á svæðum sem stað- festur skipulagsuppdráttur er ekki til yfir? Eitt af því, sem hið háa ráðu- neyti leyfir sér að víta mig fyrir, er, að ég hafi ekki orðið við eða svarað fjmirmælum þess um að staðsetja hús á lóðum, sem skjólstæðingur ráðuneytis- ins, Hannes, sem kallar sig fé- lagsfræðing, Jónsson, hefur leyft sér áð úthluta eftir „uppköstum" starfsmanna Skipulags bæja eða drögum að skipulagstillögum, sem sumar höfðu jafnvel ekki borizt hreppsnefnd, þegar „lóða- úthlutunin" fór fram. Sannleikurinn er sá, að ég hef hingað til hlíft hinu háa ráðuneyti við að svara þessum fyrirmælum þess. En ég endur- Að gefnu tilefni Að gefnu tilefni óskar Lúð- víg Guðmundsson, skólastjóri eftirfarandi birt: Vegna um- mæla minna hér í blaðinu í gær þess efnis, að Handíða- og myndlistarskólinn mundi í vet- ur fá inni í skólastofum í gamla iðnskólahúsinu síðari hluta kennsludaga, skal tekið fram, að mér í dag, 30. sept., hefur verið tjáð, að mál þetta hafi enn eigi verið tekið fyrir til afgreiðslu hjá fræðsluráði bæjarins. — Þótt nokkurra daga dráttur kunni að verða á því, að fræðsluráð fjalli um mál þetta, vænti ég þess, að engin breyting verði á þeirri lausn þess, er fræðslufulltrúi bæjarins og ég ræddum um fyrir nokkru. tek: Hvaða stoð hafa þessi íyrir- mæli ráðuneytisins í lögum? Káðuneytið mun hafa lagt sömu fyrirmæli fyrir skipulags- stjóra, en hann færst undan að framkvæma þau. Hversvegna hefur hið háa ráðuneyti ekki „gert reka að því“ svo notað sé fomlegt orðalag þess sjálfs, að láta þennan embættismann rik- isins, sem stendur beint undir ráðunéytinu, framkvæma þessi „fyrirmæli" þess? Eg neyðist til að minna hið háa ráðuneyti á það, því að það virðist stundum gleyma þvú, að ég er ekki einn af embættis- mönnum þess eða undirtyllum, heldur fer ég með umboð kos- innar sveitarstjórnar, en sveit- arstjórnir hafa skv. stjórnar- skránni rétt til að ráða málefn- um sínum sjálfar innan tak- marka laganna. Því ber hinu háa ráðuneyti skylda til að gera grein fyrir þeim lagafyrirmæl- um, sem það byggir á skipaftir sínar til.mín, fyrirmæli eða vít- ur, en þau fyrirmæli, sem það getur ekki byggt á lögum, mun ég hafa að engu. Að síðustu enn ein spuming. í dagblaðinu „Tíminn“ hinn 20. apríl s.I. segir svo m. a.: „Fer hér á eftir endurrit úr sakadómabók Gullbringu- og Kjósarsýslu: Ár 1955, þriðjudaginn 19. apríl var sakadómur Gullbringu- og Kjósarsýslu settur á skrifstofu oddvita Kópavogshrepps og hald- inn af fulltrúa sýslumanns, Jóni Finnssjmi, með undirrituðum vottum Fyrir tekið: Samkvæmt fyrirmælum íélags- málaráðuneytisins að rannsaka hvort samin hafi verið kjör- skrá sú í Kópavogshreppi, sem semja átti í febrúar 1955." Nú tjáði skrifstofustjóri fé- lagsmálaráðunejdisins, hr. Hjálm- ar Vilhjálmsson, mér í símtali daginn eftir að „sakarétturinn" hafði verið haldinn á skriístofu minni og heimili, að engin fyrir- mæli um réttarrannsókn þessa hefðu verið gefin af ráðuneytinu. Annar tveggja hlýtur að segja ósatt í þessu máli, skrifstofu stjórinn eða dómarinn. Eg krefst þess nú, að hið háa ráðuneyti upplýsi tafarlaust hið rétta í því efni. ‘ Af rannsókn þessari hefur ekkert spurst, síðan hún fór fram, en ég get sannað, að hér var farið með tilefnislausar og rangar sakargiftir. Vil ég þvi vita hvort ráðuneytið eða dóm- arinn átti upptökin. Eg krefst þess að síðustu að hið háa ráðuneyti geri hreint fyrir sínum dyrum um öll þau atriði, sem ég hef sett fram hér að framan fyrir kjördag bæjarstjómarkosninganna í Kópavogi, hinn 2. okt. n.k. Að öðrum kosti mun ég líta á „vítur“ þær, sem ráðuneytið hefur lejdt sér að veita mér, án þess að tilgreina þau lagafyrir- mæli, sem það telur að ég hafi brotið, sem vesæla tilraun póli- tísks ráðherra og pólitísks skrif- stofustjóra til þess að misbeita valdi ráðunejdisins til þess að hafa áhrif á kjósendur í harðri kosningabaráttu, sem að vissu leyti a m. k. er stofnað til af þeim pólitíska ráðherra, sem ber ábyrgð á gjörðum ráðuneyt- I insins." (Jr binni nýju Liverpoolbúð að Laugavegi 18 A. (Ljósm. Gunnar Rúnar), Liverpool opnar í dag nýja glæsilega sjálfvalsbúð að Laugavegi 18 A Vei’zlunin Liverpool opnar i dag nýja rúmgóöa og glæsilega búö í húsi sínu aö Laugavegi 18 A. Þetta er sjálfvalsbúö, verðmiði viö hvern hlut og taka kaupend- ur til sjálfir þaö sem þeir vilja kaupa og greiöa á leiöinni úr búöinni. Liverpool hefur um mörg ár verið í Hafnarstræti 5, en í júní í fyrra var byrjað að grafa grunn nýja hússins á Laugavegi 18A. Húsnæði það sem verzlun- in opnar nú er aðeins fyrsta hæð í væntanlegu 4—5 hæða verzlunar- og skrifstofuhúsi sem fyrirtækið hyggst reisa. Að loknu vali vöru sinnar getur kaupandinn snúið sór að afgreiðslufólki sem verður til staðar, eða farið sjálfur með vör- una að afgreiðsluborði þar sem búið verður um hana fyrir hann og tekið móti greiðslu. Lýsingu búðarinnar er þannig háttað að ljósum er komið fyrir í lokuðum ferningum uppi í loftinu, en loftinu er öllu skipt í jafnstóra ferninga og því hægt að færa ljósin milli þeirra og breyta lýsingunni að vild. 60 sm skilrúm er uppi í loftinu og heitu lofti blásið inn í skilrúmið, þaðan fer það niður í búðina og sogast loks út niðri við gólf, nið- ur í kjallara og er síað þar. smíðameistari var Tómas Vig- fússon. Rörlagningameistari var Zophonías Sigfússon. Rafneijtfl h.f. annaðist raflagnir. Smíði innréttinga framkvæn.dá Jónas Sólmundsson húsgagna* smíðameistari. Dúklagnir annað- ist Friðrik Sigurðsson veggfóðrx ari. Ljósatæki voru keypt frfl Philips. Húsnæðismálstjórnm Framhald af 1. síðu. anna, en eins og kunnugt er átti að úthluta lánunum sam- kvæmt helmingaskiptareglunni. Hefur mönnum óspart verið loí- að lánum og margir hafið bygg- ingarframkvæmdir í trausti slíkra loforða. Sérstaklega hefur Hannes félagsfræðingur Jónsson verið óspar á lofojðin við Kópa- vogsbúa; hann hafði þá ákjósan- legu aðstöðu að umsóknarfrestur rann út í nótt en kosningarnar eru á morgun! En staðrejmdirn- ar sem hér hafa verið raktar sýna glöggt hversu haldgóð þau loforð mun reynast. Það verða margir sviknir þegar 150 lán eiga að skiptast milli nærri 3000 umsækjenda um land allt, og auk þess er ekki að efa að braskaramir sem nú eru að í innréttingubúðarinnar (vegg-,byegja íbúðir hér í Reykjavík hillum og sýningartækjum á gólfi) kennir einnig nýrra grasa og höfuðáherzla er lögð á hreyf- anleika. Er fyrirvaralaust hægt að brejúa uppsetningu á vegg- hillum og staðsetningu sýningar- tækja á gólfi. Gólflagnakerfi fyrir rafmagn og síma er þannig fjrirkomið að fyrirhafnarlítið er að taka upp úr gólfinu síma- og raflagnir þar sem svo hentar hverju sinni -— án þess að þurfa að brjóta gólfið upp með loftpressu! Berklavaraadag- urinn á morpn Berklavarnadagurinn, hinn ár- legi f jársöfnunardagnr S. í. B. S. er á rnorgun. Verða merki sambandsins þá seld um allt land og tímaritið Reykjalundur, sem nú kemur út Uppdrætti og aðalumsjón með í stærra upplagi en nokkru sinni verkinu hefur annast Hannes Kr. Davíðsson arkitekt. Burðarþols- útreikningar voru framkvæmdir áður, 13500 eintökum. Merkin kosta 10 krónur að þessu sinni og verða jafnframt happdrættis- af Sigurði Thoroddsen verkfræð- miðar. Aðalvinningurinn er nú ingi. Útreikning á hitakerfi ann- fjögurra manna Morris bifreið, aðist Jóhannes Zoega verkfræð- en auk þess 300 aðrir smærri ingur. Raflagnir voru teiknaðar vinningar. Fé því sem safnast á af Ólafi Gíslasyni rafmagns- Berklavarnadaginn verður varið verkfræðingi. Málarameistarar til frekari framkvæmda að voru Ósvaldur Knudsen og Reykjalundi — og verður nánar Daníel Þorkelsson. Múrarameist- sagt frá starfseminni þar í blað- ari var Jón Bergsteinsson. Tré- inu á morgun. í gróðaskyni muni hafa fon» gangsrétt að þeirri litlu upphæ® sem tiltæk er. Dönsk knatt- spvrnukvikmynd sýnd hér v | Knattspyrnusambana fslanjíj hefur fengið til sýninga dansxai dómarakvikmynd, og verður h'im' sýnd í Trípólíbíói kr. 1,30 M morgun. Sýning hennar tekuifl um hálfan annan tíma. Myncíni er að sjálfsögðu einkum ætluS knattg^’rmidómurum og knatt* spyrnumönnum, en öllum áhuga* mönnum um knattspyrnu aP heimill aðgangur sem er ókejp« is. Nýr bankastjóri j Framhald af 1. síðu. hann starfsmaður Útvegsbankai Islands h.f. og hefur síðaní gegnt starfi þar sem lögfræl- ingur bankans og bankastjóra-- fulltrúi. Starfsemi Iðnaðarbanka Í5- lands h.f., hefur vaxið mjög ört frá stofnun hans fyrir rúmna tveimur árum og nema spari- fjárinnstæður í bankanum r.á, um 40 millj. króna. Bankinn hefur fengið naui- synleg leyfi til þess að hei'ja framkvæmdir innan skamms v:ð byggingu framtíðarhúsnæðis á lóð bankans við Lækjargötu 101 B í Reykjavik. Þangað til þ\5 hús rís af grunni og verð-.r fullbúið til notkunar hefaif bankinn tryggt sér aðsetur í húsi Nýja bíós við Lækjargötm 2, þar sem bankinn er nú, egj mun hann fá allverulega auk iÆ ‘húsrými til afnota þar frá næs'.Jl áramótum. t

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.