Þjóðviljinn - 01.10.1955, Side 9
Lwogardagar 1. október — 1. árgangor — SO. töloblað
Æskunnar ómar
(Pfeiffer — Þorsteinn Sveinsson. Sungið af
Noru Brockstedt á hljómplötu íslenskra tóna.)
„Sofnaðu rótt, senn kemur nótt“,
segir hún manuna og vaggar mér hljótt.
„Lokaðu brá, liðin er hjá
Ijómandi dagur í kvöldhúmsins sjá.
Dimmir nú ótt, því að dagsbirtan þver,
í dúnmjúkri sænginni hvílir þú hér.
Bernskunnar gull, sem bættu þinn hag,
bros þitt þú veitir og þakkar í dag“.
Góða nótt öll, gullin mín kær,
gott er að dreyma og hafa ykkur nær.
Þökk mamma mín, þökk pabbi minn,
þvílíka gleði og ástúð ég finn.
Kettlingurinn, sem er kátur og frár
kúrir hjá eldstónni og sleikir sitt hár:
Fuglana smá upp’ á fjaUsins brún,
finn ég á morgun og Iokka út á tún.
Ár liða, öll gull eru gleymd,
geymd uppi’ á lofti í ryki og leynd.
Barnanna þrá, blíðra og smá,
breytist er æskan er Uðin þeim frá.
Eitt man ég þó jafnan árla og síð,
sem ómar svo fagurt frá æskunnar tíð:
Traustustu vináttu, tryggð og ást,
trúaðrar móður, sem aldrei mér brást.
Orðsending:
Lótus. Þökk fyrir smá-
scgumar og kvæðið. í
na sta blaði birtist önnur
smásagan. Þú biður um
leiðsögn um hvernig eigi
að binda inn fyrsta bindi
Óskastundarinnar. —
Svo sem þú veizt fást
möppur, sem eru hæfi-
Jegar utan um 30 blöð.
Einfaldast er að stokka
blöðin vel saman, svo að
þau séu sem jöfnust í
kjölinn, bera síðan gott
lím. yfir kjölinn, leggja
þau inn í möppuna og
strjúka vel að kili og
hliðum meðan límið er
að þoma. Gott er að
hafa farg á möppunni
fj^rst í stað. Blöðin má
einnig sauma saman
eins og gert er í venju-
legu bókbandi, en það
er töluvert vandasamt,
en einnig miklu hald-
betra.
Til lesenda i
Reykjavík
Disa í Dal, sem á
heima hér í Reykjavík,
skrifar: „Mig hefur allt-
af langað til að safna
Óskastundinni, en það
hefur alltaf farist fyrir
að klippa hana út, þang-
að til það var um sein-
an, og svo hef ég alltaf
srgt: Mig vantar nokkur
blöð, svo það þýðir ekk-
ert að fara að safna og
enn sem komið er á ég
ekki nema 2 blöð, 6. og
26. Nú langar mig að
að spyrja: Get ég fengið
þau blöð, sem mig vant-
ar?
Svar: Það er orðið
erfitt að fylla svona
miklar eyður. Þó er
reynandi fyrir Dísu í
Dal og aðra lesendur í
Reykjavík, sem vantar í
Óskastundina, að snúa
sér sem fyrst til af-
greiðslu Þjóðviljans á
Skólavörðustíg 19
Grímsey, Grímsey!
Okkur vantar einhvern
Grímseying, 16 ára cða
yngri, til þess að segja
frá Grímsey og 'lífinu
þar. í bókinni um ísland
eiga að vera átthagalýs-
ingar, frásagnir úr dag-
lega lífinu, frá atvinnu-
háttum, skemmtanalífi,
félagslífi, hugðarefnum,
námi og skólum, sér-
kennilegum stöðum, sið-
um og háttum fólksins,
sögustöðum o.s.frv. Svo
sem nærri má geta, má
ekki vanta Grímseyj'ar-
þátt í bókinni um ísland.
Afmælisrabb
við útkomu 30. tölublaðs Öska-
stnndarinnar
Kæru lesendur.
Nú eru komin út 30
tölublöð af litla blaðinu
okkar. Við skulum þess
vegna staldra svolitið
við og skyggnast um.
í fyrsta blaðinu sem
kom út 5. febrúar s.l.,
var þessi setning í á-
vai-pi: „Það er ekki aetl-
unin, að sá sem sér um
þéttinn, skrifi hann einn,
heldur leggi margir
hönd að verki tíl þess
að gera Óskastundina
skemmtilega og fjöl-
breytta. Þið eruð þess
vegna beðnir, kæru ungu
lesendur, að senda efni
tii birtingar“. Og lesend-
ur hafa brugðizt vel við.
Fyrsta bréfið var frá
Hrísey, Flateyjar
tvær, Vigur, Æðey
Lesið orðsendingu í
þessu blaði til Grímsey-
inga. Þessu er jafnframt
beint til ykkar, heiðruðu
lesendur, sem eigið heima
á ofangreindum eyjum.
7 ára telpu í Reykjavík
og barst á 5. degi frá út-
komu blaðsins. Upp frá
því fóru að berast bréf
á strjálingi, en fjölgaði
jafnt og þétt, og nú má
segja að bréfin streymi
til Óskastundarinnar
á hverjum degi og stund-
um mörg á dag. Þetta
t-r ákaflega mikils virði
fyrir blaðið, því að í bréf-
unum er margskonar
efni til birtingar, óskir
og tillögur og myndir
Lesendur koma með
bendingar um ýmsa
þætti, sem eru tii
skemmtunar og fjöl-
breytni. Er öllum bréf-
riturum þakkað fyrir á-
gaeta samvinnu.
Hvað hefur svo ver-
ið efni þessara 30 tölu-
biaða, sem út eru kom-
in?
í blaðinu hafa birzt
alls 55 gátur og auk þess
46 aðrar þrautir. Það
hefur birt 47 myndir,
12 texta við dans- og
dægurlög og auk þeíis
nokkur önnur Ijóð og tek-
ið upp skáldaþátt. ÞsS
hefur birt ferðasögur,,
frásagnir, vísur, sögur„
ævintýri og bréfkafia
írá 36 lesendum, auk þe
eru nafngreindir 124
aðrir bréfritarar, eð-a
alls 160. 18 hafa sett
nafn sitt í pósthólfi.5
til þess að auglýsa éít-
ir bréfasamböndurn.
Verðlaunasamkeppni hel-
Framhald á 3. síðu.
tJB ISLENZKU
UMHVEBFI
★
Þessa mynd ásamt via-*
samlegu bréfl sendi okkajr
10 ára stúlka i Ámessýsl x.
Það er fyrsta sendingta
hennar til biaðsins ok.k.:.."„
% ÍÞRdniR
HITSTJÚRl: FRlMANN HELGASOIt
Hessse Jeppson heldur heim
Hollenzk sund-
kona setnr heims-
met
Hollenzka sundkonan Atie
Voorbij bætti nýlega heimsmet
sitt í 100 m flugsundi. Var tim-
inn sem hún náði 1.13.1. Stúlka
þessi er aðeins 14 ára gömul og
var met hennar frá 26. ágúst
1.13.2, sem enn hefur ekki feng-
ið staðfestingu. Hið opinbera
met hennar er 1.13.7 og var það
sett 14. júli s.l.
Norsk stáíka setiir
NorSurlandámet í
fíMmtarþraut
Norska stúlkan Jorun Tang-
en setti nýlega norskt met í
fimmtarþraut kvenna, náði hún
3202 stigum. Árangur hennar
í hinum ýmsu greinum var:
Kúla: 10.44, hástökk: 1.45, 200
m hlaup: 26.3, 80 m grind: 11.8
sem er jafnt norska metinu,
langstökk: 5.03 m.
Jorunn átti eldra metið sem
var 3050 st.
* Sænski knattspymukappinn
Hasse Jeppson er sagður kom-
inn heim frá ítalíu. Er hann
óánægður yfir meðferð á sér í
Neapel knattspyrnufélaginu.
Varð Jeppson að kæra til
stjórnar knattspyrnusambands-
ins eftir samtal sem hann átti
við borgarstjórann og útgerðar-
manninn Lauro sem á félagið.
Jeppson sagði að upphaflega
hefði honum verið boðnar 25
millj. líra, eða um 850 þús. ísl.
króna, til að koma aftur til fé-
lagsins, en þegar til kom var
„aðeins“ um 10 millj. líra að
ræða. Jeppson bauð þá 15 millj.
með því skilyrði að hann gæti
losnað úr félaginu á keppnis-
Laugardagur 1. október 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
árinu, en þessu var neitað af
Lauro. Höfuðástæðan fyrir
þessu bramli er sú að hann hef-
ur verið „frystur" út úr liðinu
og félagið vill heldur ekki, að
hann fari í önnur félög.
Jeppson var hér með Djur-
gárden á sínum tíma og hefur
nú undanfarin ár verið dáður
knattspyrnumaður á Italíu.
Grefsen
í úrslituiaa
Norska kvennaliðið í hand-
knattleik sem hér var í sumar
og keppti við kvennaliðin hér
hefur staðið sig vel í keppninni
um Noregsmeistaratitilinn. Um
síðustu helgi kepptu þær í und-
anúrslitum við Borg frá Gren-
land og unnu 2:1 eftir erfiðan
og tvísýnan leilc. Þegar eftir
voru aðeins nokkrar mínútur
af leik hafði Borg í :0, en
stúlkurnar hennar Lailu tóku á
í lokin og settu tvö mörk.
Hvenær úrslitaleikurinn fer
fram var ekki áltveðið þegar
siðast fréttist.
Dómararnir
fegnir!
Bogaskyitan á myndinni er pólski meistarinn Wisniowska.
Hún sést hér taka þátt í keppni á Vináttuleikjunum
í Varsjá í sumar.
ítalskir knattspymudómarar
létu í byrjun þessa keppnis-
tímabils í ljósi mikla ánægju
yfir því að bakvörður eimi
hafði lýst því yfir að hann væri
hættur keppni. Ekki var það
fyrir það að leikmaður þessi
væri háskalegur í leik sínum
gegn mótherjum eða að hann
„brúkaði munn" í þess orðs
merkingu. Eigi að síður kom-
ust þeir oft í vandræði hans
vegna. Maðurinn var nefnilega
snjall búktalari og gerði dóm-
ara og mótherjum oft miklar
skráveifur með ,,list“ sinni!
Fregninni fylgdi að nú hefði
hann ákveðið að leggja „dói::-
arastörf“ fyrir sig.
Og þá veltu dómararnir þ:i
fyrir sér hvort hann gæti noh-
að þennan eiginleika sinn v-IS
dómarastarfið, en þeir komus:
ekki að neinni niðurstöðu í þ .í
máli. ,