Þjóðviljinn - 01.10.1955, Síða 11
Laugardagur 1. október 1955 — ÞJÓÐVTLJLNN — (11
» . " 1 -----------------------..................
Hans Kirk:
Klitgaard
og Synir
M
«
4. dagur
Hipómennirnir berjast eins og óðir hundar, því að þeirra
bíður gálginn.
Bílar hlaðnir mönnum úr frelsishreyfingunni þjóta
um göturnar og um allt land birtast deildir andspyrnu-
manna. Það er eins og þær hafi sprottið upp úr jörðinni,
og morðingjum og landráöamönnum er þjappað upp á
vörubíla. Nei, enginn verður hengdur í ljósastaur. Allt
á að ganga heiðarlega fyrir sig.
Fjörugir frelsispennar fylla dagblöðin, og daginn áður
skrifuðu þeir allt annaö, en það var undir nauðung og
fólk átti aö geta lesið á milli línanna. Aldrei hefur
nokkur þjóð átt eins djaría og hugrakka blaðamenn.
Milli línanna. Og í hátölurum ómar liin djúpa og fagra
rödd góðvinar okkar, Brummels ráðsformanns, þar sém
hann hyllir andspyrnuna og fi'élsishreyfinguriá. Hann
hefur líka barizt að því er yirðist,, Hann hefuí barizt
ákaft og djai'flega og nú hefur hann sigraö, því að
Þjóðverjarnir veröa reknir burt úr landinu. Það er eins
og útvarpað sé úr virkisjaröhýsi Holgeirs danska á
Krónborg, og hinn prúði, trausti, danski Brummel reynd-
ist þá sannspár: Koma tímar, koma menn.
Hér ei*u mennirnir og þeir eru vopnaðir, það er ugg-
væniegast. Það er aldrei að vita hverju kommúnistarnir
taka upp á. Þaö eru ófáir stjórnmálamenn sem sofa illa
á næturnar, og sannarlega var auðveldara að fást við
Þjóðverjana en eiga svona vopnaðan lýö yfir höfði sér.'5'
Engir hermenn eru til taks, engin lögregla meö byssur,
táragas og kylfur, og undir þessum kringumstæðum er
spauglaust að vera lýðræðissinnaður stjórnmálamaöur.
Maður verður að kunna að sveigja sig og beygja og tala
fagurlega og lifa í voninni. Brátt koma Englendingarnir
og guði sé'lof aö það voru ekki Rússar.
Síminn hjá Tómasi Klitgaard hi'ingdi þetta milda
maíkvöld. Það var Abildgaard hæstaréttarlögmaður og
rödd hans var óvenju æst.
— Hefurðu heyrt þaö? spurði hann.
— Heyi't hvaö?
— Bi'ezka útvai'piö. Uppgjöfin. Nú er stundin komin.
Það kemur auövitaö engum á óvart, en þú verður aö (
koma undir eins. Og ef einhver kynni að spyrja eftir
þér á Mai’grét aö segja að þú sért á Jótlandi. Flýttu
þér, Tómas, það liggur mikið við.
— Ég kem undir eins, sagöi Tómas Klitgaai'd og lagði
tólið á. Svo fór hann inn til frú Margrétar.
— Þorsteinn var að hiingja. Þeir eru búnir að gefast
upp.
— Loksins! Þá kemur Gi’egei's heim.
— Ef til vill. En við vitum ekki .... hann var ekki
í hópi þeiri'a sem komu til Svíþjóðar. Viö veröum aö
vera við öllu búin, Margrét. Þessir tímar hafa krafizt
mikilla fórna. En ef einhver kynni að spyrja um mig,
þá er ég ekki 1 bænum. Ég er á Jótlandi. Þorsteinn baö
mig að skila því til þín.
— Hver ætti aö spyrja eftir þér? spuröi Margrét, en
svo fölnaöi hún. — Á hann við að þú sért í hættu?
Ætla þeir að handtaka þig? —• Hún strauk sér um enniö
og hélt áfram óstyrkri röddu: — Þú veröur a'ð fara aö
ráðum Þorsteins í einu og öllu. Hann er vitur, og ef þú
gerir það ekki getur farið illa fyrir þér.
Þungbúinn og dapur i huga yfirgaf Tómas Klitgaard
hið viröulega heimili sitt, því aö þetta voru launin fyrir
hin erfiðu sjálfsfórnarár. Hann ók í sporvagni eftir göt-
um sexn voi*u eitt iðandi mannhaf, leyfði fagnandi fólki
aö klappa sér á öxlina og reyndi að brosa til þess aö vera
glaðlegur, því aö þaö var hættulegt aö láta á sér sjá
kvíða eöa ótta. Hann heyrði vélbyssuskot úr fjaxska og
söng og hljóðfæraslátt á hvei'ju götuhorni og varö gagn-
tekinn angurværri utanveltutilfinningu. Hann var flótta-
maður, þótt hann hefði gert landi sínu og stjórn mikiö
gagn, en hvar var stjpmin niðurkomin í dag?
ERLENÐ TIÐINDi
Framhald af 6. síðu
upp og gera eins og þeim var
sagt. í öllum ríkjunum er það
herinn sem mestu ræður um
stjórnina og það er margreynt
að ef ríkisstjórn lætur undir
höfuð leggjast að sjá hernum
fyrir vopnum er hann fljótur að
hrinda henni frá völdum. En
Nasser hinn egypzki var ekki
af baki dottinn. Hann gerði það
sem vesturveldin höfðu sízt bú-
izt við, sneri sér til ríkisstjórna
í Austur-Evrópu. Hefur hann
nú gert samning um vopnakaup
við Tékkóslóvakiu og eru eg-
ypzkir liðsforingjar komnir til
Prag að taka við vopnunum.
Almælt er að vopnasala frá
Tékkóslóvakíu eða Sovétríkj-
unum til Sýrlands og Saudi
Arabiu sé einnig á döfinni.
MJ" veinstafi brezku og banda-
rísku stjórnanna um að
þessi vopnasala raski öllu
valdajafnvægi í hinum nálæg-
ari Austurlöndum og ógni þar
með friðnum á þeim slóðum
þarf ekki að taka alvarlega. Að
minnsta kosti höfðu þessar
sömu ríkisstjórnir ekki miklar
áhyggjur af áhrifum vopna--
sölu sjálfra sín til Iraks í vor.
Áhyggjurnar sem samningur
Egypta og Tékka hefur valdið
í London og Washington eru af
öðrum rótum runnar. Ráða- |
menn þar óttast að Egyptaland t
pg þau Arabaríki sem þvi
fylgja að málum muni aðhyll-
ast hlutleysisstefnu í utanríkis-
málum eftir að svo er komið að
þau þurfa ekki neitt til Vestur-
veldanna að sækja, ekki einu
sinni vopn. Vestrænu ríkis-
stjórnirnar voru svo vissar um
að ekkert gæti hnekkt aðstöðu
þeirra á þessum slóðum, að þær
skirrðust ekki við að setja rík-
isstjómunum þar auðmýkjandi
skilyrði, svo sem það að neita
að selja þeim vopn ef þær
reyndu að reka sjálfstæða utan-
ríkisstefnu. Nú hafa þær fallið
svo rækilega á sjálfra sín bragði
að brezku blöðin Times og
Manchester Guardian halda því
fram að Vesturveldin eigi þann
kost einan að fara bónarveg að
Sovétstjórninni ef ske kynni að
hún vildi vera svo væn að nota
ekki nýfengna aðstöðu sína til
að gjalda líku líkt. Bandalag
þeirra Dullesar og Edens, sem
átti að vei'ða stíflugarður gegn
sovézkum áhrifum í löndunum
við Miðjarðarhafsbotn, hefur
einmitt orðið til þess að ryðja
þeim þar braut.
TIL
LIGGUR LEIÐIN
Raimsólmaístöð á jaka
Pramhald af 5. síðu.
í ríki kuldans. I hinum köld-
ustu hafdjúpum er til dæmis
krökt af bakteríum.
Ekki er neitt sældarlíf að
hafast við mánuðum saman á
ísjökum á valdi vindis og
strauma. Búast má við því að
jákárnir sundrist fyrirvaralaust
af þrýstingnum sem er á ís-
breiðunum. Símaþræðir og raf-
leiðslur hafa hvað eftir annað
slitnað við það að jakar
sprungu. Enn hefur þó enginn
leiðangursmanna látið lnið af
slysförum.
Síðjakki með belii
M. T. O.
Púður er margs konar
Hér er mynd af amerískum
síðjakka með belti, en svona
jakkar eru nú mjög i tizku.
Jakkinn á myndinni er úr
jbykku, strálitu silkiefni og
! ’iann er notaður með þröngu,
| svörtu ullarpilsi. Silkijakkar
! eru að vísu ekki sérlega hent-
ugir, en sniðið á jakkanum fer
einnig ágætlega á ullarafnúm
aða öðrum stinnum efnuin.
' Það er að verða vandi að
púðra sig, því að nú eru á boð-
stólum svo margar og mismun-
andi tegundir af púðri. Að sjálf-
sögðu viljum við allar vera eins
fallegar og unnt er, og mai’gar
álítum við að það dýrasta í
þessum efnum sé einnig það
bezta, en það getur verið mesti
misskilningur.
Þegar um þurrt, púðurefni er
að ræða er eins gott að kaupa
það í lausri vigt og í dýrum
öskjum. Umbúðimar eru seldar
dýru verði, og hvað á maður
að gera við þessar glæsilegu
öskjur, þegar umbúoalausa
púðrið er alveg eins gott? Ef
maður vill sýna mikla sparsemi
er hægt að kaupa púðrið mjög
dökkt og blanda það síðan með
Ódýru, hvítu barnapúðri. Það
þarf mikið af hvitu púðri í
dökkt púður til þess að það lýs-
ist ögn og maður getur tvö-
faldað púðureign sína með staut
af barnapúðri. Það er ekki erfitt
að blanda púður sjálfur og
fljótlega lærist manni að
geyma ögn af gamla púðrinu
til að átta sig á litnum.
Öðru máli gegnir með fasta
púðrið. Þá borgar sig ven ■v.Vvga
betur að kau 'a dýrari tegurvdir.
Fast púður er dýrt í notkun ef
maður notar ekkert annað piið-
ur, en noti maður duftið dag-
lega og fast púður aðeins þeg-
ar maður fer út til að losna
við óþrif sem þurra púðrirvu
fylgja getur fasta púðrið enzt
mjög lengi.
Kafli út af fyrir sig eru bær
púðurtegundir sem smurðar em
á andlitið og hylja alla ágaila á
hörundinu. Þær stífia alíar
svitaholur og eru því ekki gcð-
ar til daglegrar notkunar, en
þær eru prýðilegar til notkunar
við sérstök tækifæri, þegar
maður vill gjarnan líta ve! út.
Sumt af þessu þarf að leysá
,upp í vatni áður en bví er
smurt á hörundið, sumt er í
stautum og því smurt beiut á
andlitið. Púður af þessu tag’ yiá
ekki nota að staðaldri, en ht'.fi
maður vanmetakennd vegna
ljóts hörunds er ágætt að nota
það við hátíðleg tækifæri.
Úigefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjóiar: Magnús Kjartansson (áb), Sigurður Guðmundsson — Fréttaril
N$£&B4Í!)EfIEL§Bff!lN stióri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjami Berædíktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi
óiafsson. — Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. ■— Sími: 7500 (3
lintr). — Áskriftarverð kr 20 á mánuði í Reykjavik og nágrenni; kr. 17 annars staðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsm. Þjóðviljan« hA