Þjóðviljinn - 22.10.1955, Page 7

Þjóðviljinn - 22.10.1955, Page 7
■f Laugardagur 22. október 1965 — ÞJC®VILJINN — (7 Drengur fæddist 11. júlí . 1869 að Holti á Barðaströnd. Foreidrar hans, hjónin að : Hoiti, voru ekki auðug t, venju- legum skilningi, en þau eign- uðust fimmtán börn. Sigurð- ur hét drengurinn og var Þór- ólfsson. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum til 16 ára aldurs, var heldur heilsulin- ur og ónýtur til erfiðisvinnu. Kunnugur maður segir svo frá drengnum að Holti: „Þessi ár las hann mikið af gömlum íslenzkum bókum, sem móðir hans hafði fengið eftir föður sinn. Spáðu því margir, að hann yrði auðnu- laus letingi, því að öllum stundum lá hann í bókum. Bókanna vegna tapaði hann oft af ánuin og bókanna vegna var hann oft sneyptur og jafnvel barinn. Á Barðaströnd þótti það í þá daga auðnu- leysis- og ógæfumerki, ef ungiingar lágu í bókum.“ (Gíslí Jónasson: Sigurður Þórólfeson, Víðir, 5. árg.) Haustið 1902 stofnar hann ' , ' kvöldskóla i ? Rej-kjavík „með lýðháskólasniði." Var hann í *: fyrstu óheppinn með kennar- ana, þeir áttu að vera auk hans ólafía Jóhannesdóttir og Ástvaldur Gíslason, en Ólafía forfallaðist og „Ástvaldur vildi hvergi koma nærri skól- anum þegar hann vissi fyrir víst um stefnu hans, taldi hann skólann eigi reistan á kristilegum grundvelli.“ „Þá komu sjálfboðaliðarnir........ til þess að kenna og uppi skólanum, málefnisins vegna, og þágu engin laun fyrir,“ og þeir ekki af verri endanum: Þórhallur Bjarnar- son, séra Ólafur Ólafsson frí- kirkjuprestur, Jón Jóiiasson, Jens B. Waage, Binar Þórð- arson, Guðmundur Magnússon skáld, Sigurður Jónsson keim- ari og Pétur Zóphóniasson. Nemendur voru 22. „Skólinn Skólahúsið að H\ ítárbakka Sextán ára flytzt hann til frænda síns eins að HlaðejTÍ við Patreksfjörð, „til vinnu og néms“, kemst þar í gott bókasafn og nýtur á vetrar- kvöldum tilsagnar f rænda síns í íslenzku, reikningi og fleiri greintun. Þessi frændi og móðir hans „voru einu manneskjurnar er trúðu því að úr honum yrði 'maður, ef hann kæmist á rétta hillu." (G. J.) Og Sigurður gefst ekki upp, með því að vinna erfiðisvinnu ár eftir ár tekst honum að- þokasér áfram á þeirri þröngu menntabraut, sem til var um hans daga á íslandi. Hann komst í búnaðarskól- ann í Ólafsdal og loks í Flens- borgarskólann - í ’ Hafnarfirði og lauk prófi við' kennara- deild þar. Nú tók hann að stunda kennsiu og búfræðí- störf, blaðamennsku og önnur ritstörf. Hvítárbakkaskólinn Sítrrn .'’t . gekk ágætlega og mætti engri óvild/4 segir Sigurður. Ekki var það þó ætlun hans að koma upp „lýðhá- skóla“ í Rej'kjavík, heldur hugði á skólastofnun í Ámes- i- ' Áuðskilið ætti að vera að manni sem svo hafði verið búið að í æsku gæti ofðið það ; hugsjón á manndómsárum að ; mennta íslenzka alþýðu, opna ungmennum, sem eins var á- statt um, nýjar færar leiðir til náms, menntunar og bóka. Starf hans á því sviði mun geyma minningu hans í sögu fræðslumála á íslandi. Sigurð- , ur Þórólfeson komst til Dan- merknr 1901, til að kynna sér alþýðuskóla Dana, að á- eggjan og fjrir stuðning Páls Briems amtmanns, en hann hafði „eins og kunnugt er, ó- venju mikinn áhuga á alþýðu- fræðshimálinu,“ segir Sigurð- ur. „Hugmynd Páls Briems var sú, að ég svo reyndi að koma á fót alþýðuskóla með lýðháskólasniði, og hafa skól- ann í sveit. Eg hafði þá ver- ið kennari í 8 ár við bama- skóla og auk þess kennt ár- lega mörgum ungmennum eft- ir fermingaraldur. Og ég hafði fyrir löngu ákveðið . að gera alþýðufræðsluna að ævistarfi mínu, aðallífstarfi, þótt eng- inn væri það gróðavegur." Hann kynnir sér svo eftir föngmn alþýðuskólahreyfingu Dana og kemur heim sann- færður um ágæti hennar. húsið. Lét hann þarfir skól- ans ganga fyrir öðru. „ÞrÖngt var fyrsta veturinn um mig og konu mína. Við urðum að láta ökkur nægja eitt, frem- ur lítið, herbergi í íveruhús- inu til s\-efns og setu og þar varð ég að hafa skrifborð mítt og um 600 bindi bóka, ■ sem ég þá ;átti. Áðgang að stofu, til þess að bjóða gest- um í hafði ég með ábúanda járðarinnar.“ (Jörðin losnaði ekki úr ábúð fyrr en vorið eftir). Þaraa hófet Hvítárbakka- skóiinn með vetrarbyrjun 1905, fyrir réttum 50 árum. um í lífinu, bæði í andlegum og líkamlegum skilningi; í einu orði sagt, það á að kenna nemendum skólanna að lesa sér til gagns. Með lifandi orði á að kenna þetta, með lifandi orði á að vekja og glæða beztu tiifinningar manns- hjartans, vekja og glæða ætt- jarðarástina og þjóðemistil- finninguna.“ Sigurður Þórólfsson sýslu eða Borgarfirði. Næsta ár fer hann að tilhlutan Al- þingis að skóla er stofnaður hafði verið í Búðardal, en fluttist síðar að Hjarðarholti og aftur í Búðardal, en fátt virðist hafa gengið þar vel, „ég var milli tveggja elda — eða jafnvel margra," segir Sigurður. Haim varð því þeirri stundu fegnastur er Fram- farafélag Borgfirðinga skor- aði á liann að „stofna þar í héraðinu skóla með lýðhá- skólasniði.“ Aðalforgöngu- mann þessa framtaks telur Sigurður Jósef bónda Björns- son á Svarfhóli. „Hann út- vegaði mér jörð undir skól- ann.“ „Jörðin kostaði 6000 kr. og fékk ég hana með ágætum borgunarskilmáhun." Jörðin var Bakkakot f Andakíls- hreppi, en Sigurður breytti nafni hennar í það nafn sem síðan varð . láhdskunnugt af skólasetri hans — Hvítár- bakki, enda mun jörðin hafa heitið BakM fyrr á öldum. Hann flytur að Hvítár- bakka vorið. 1905 og tekur þegar að byggja upp skóla- Hvers konar skóli vakti fjrir Sigurði, er hann hóf sjálfatætt skólastarf? Að sjálfsögðu er fyrir- myndin dönsku „lýðháskólarn- ir“ víðfrægu. 1 fyrirlestri „Kraftur hins lifandi orðs“ leggur Sigurður þunga á- herzlu á nauðsyn þess að gæða skólastarfið lifandi lífi, vitnar í setningu Grundtvigs „aftur með bókina, upp með munninn." En hann biður menn að skilja kjörorðið ekki þannig að alþýðan ætti að fjrirlíta bækur. Skólakennar- inn á að fyrirlíta í vissum skilningi öll þurr og stutt fræðiágrip sem kennslubækur. Kennarinn á ekki að láta sér nægja að nemendumir læri af bókum svo og svo mikið af ýmiskonar fróðleikshrafli sem enga menntun veitir. Kennarinn á að tala til tilfinn- inga nemendanna, um þau at- riði úr hverri fræðigrein sem göfga og bæta manninn. I al- þýðuskólunum á lifandi orðið að hafa meiri völd en bók- stafurinn. 1 alþýðuskólunum á að vekja hjá æskulýðnum löngun til bóklesturs, en um leið að beina huga hans að þvi einu, sem bætir en ekki skemmir, sem menntar og fræðir í þeim atriðum lífsins, - sem hyerjum alþýðumanni getur komið að mestum not- Hvítárbakkaskólinn, sem og aðrir þeir alþýðuskólar er komu í slóð hans, urðu þó allfrábrugðnir dönsku skól- unum. Við lok 15 ára starfs- ferils á Hvítárbakka er Sig- urði þetta Ijóst. „Grundtvigski skólaandinn þrífst eigi í út- lendum jarðvegi, á t. d. illa við sænskan og íslenzkan þjóðaranda." Hann segir Hvít- árbakkaskólann: hafa lagað sig eftir sænsku skólunum í ýmsu. „Þjóðimar eru ólíkar að skapferli, tilfinning og trúarbrögð búa við mismun- fj Lúðvíg Guðmonðsson andi lifskjör. Mér hefur því alltaf verið það ljóst, að ís- lenzkur lýðháskóli yrði að mestu að vera runninn úr ís- lenzkum andlegum jarðvegi, lagaður eftir staðháttum og andlegu lífi þjóðarinnar, hvað sem ytra forminu og kennslu- laginu líður, sem alltaf verð- ur sameiginlegt fyrir alla lýð- háskóla í hvaða landi sem þeir standa." „Skólinn vann bráðlega álit og traust, þótt hann he-'ði ekki próf að lokum," (G.J.) og var sótt þangað hvaðan- æva að af landinu. Varð að- sókn oftastnær það mikil að neita varð tugum umsókna. En ekki varð þessari skóla- stofnun haldið uppi án bar- áttu. Árið 1920 varð Sigurð- ur að láta skólann af hendi vegna heilsubilunar og tók sárt að hverfa frá „óska? barni“ sínu, sem hann nefn- ir svo, áður en hann fengi gert hann að þeirri stofnun sem hann óskaði. Hann lítur yfir farinn veg í blaðagrein um sögu skólans, (sem oft hefur verið vitnað til hér að framan) og segir: a=SSSS=3 „Ég bið alla góða menn, nú og í framtíðinni, að gæta þess, þegar þeir dæma um Hvítárbakkaskólann, að hann var stofnaður og starfræktur af fátækum manni, sem í ýmsu nexmti eigi að binda bagga sína sömu hnútum og samtíðin eða tízkan og heimskan heimtuðu. Ég var eigi „autoriseraður" af gyllt; um próístimpli æðri skóla, heldur sjálfmenntaður í fle^tyt því sem ég kenndi. Eg var eigi heldur einskonar með- limur klíku eða í heldri manna. samábyrgð, sem nú er svp almáttug í voru ísl. kotríki." „Af þessu öllu gerðu eiigir ménntamálamenn eða leiðandi menn sér neitt far ura að. kjmnast Hvítárbakkaskólan- um, beimsækja hann og hlusta á kennsluna í honum, svo þeir gætu vitað hvað hann var. Það átti að þegja hann í hel. En að sama skapi þreifst hann og stækkaði, sem kaldara blés í kringupa hann og skólastjórinn fanu meira til einstæðis síns.“ Sigurður fluttist til Reykja- víkur og vann m.a. við Morg- unblaðið. Hann hefur ritáð margt um dagana, m.a. Is- landssögu í tveim bindum, „Minningar feðra vorra", hátt á sjötta hundrað blaðsiðui. En dapurlegt er til þess áð hugsa að hann skyldi á efr; árum einnig skrifa bökiria „Jafnaðarstefnuri" þar sen% ráðizt er af þröngsýni og skilningslej’si að þeirri þjóð- málastefnu, sósíalismanum, e.r ein getur gert að veruleika, drauma fátæka drengsins frá Holti og annarra fátækra ung- menna á Islandi fyrr og síðar um „alþýðufræðslu" í víðasta og bezta skilningi þess orðs. a=ssa5== En skólinn á Hvítárbalcka hélt áfram. Þar höfðu skóla- stjóm séra Eiríkur Albérts- son, 1920-1923, og GústaV'A. Sveinsson (nú hæstaréttaríög- maður) 1923—1927. Þá tók við skólastjóm Lúðvíg Guð- mundsson, og varð skólinft aldrei fjölsóttari og álit-s- meiri, einnig í fjartógum landshlutum, en undir stjöm hans. Skólalífið var með frjálslegum, hressandi blæ, ög stuðluðu að því ungir óg á- gætir kennarar sem Lúðrik hafði með sér, ekki sízt Öl- Framh. á 10. síðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.