Þjóðviljinn - 22.10.1955, Page 10

Þjóðviljinn - 22.10.1955, Page 10
4 Laugardagur 2Z. október — 1. árgangttr — 33. töluWað Kom draumanótt Ljóð eftir Jón frá Ljárskógum við lag eftir Foster. Ilúmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að ægi gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. — Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró! Syngdu mig inn í svefninn, Ijúfi blær! Sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær. Draumgyðjan Ijúfa Ijá mér vinarhönd og leið mig um þín töfraglæstu friðarlönd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. — Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró! , Orðsendfxigar Ættjarðarljóðin. Fyrstu bréfin með vali ættjarð- arljóðanna hafa borizt. Hið fyrsta var frá telpu í Reykjavík. Hún segir: „Mín uppáhalds ættjarð- arljóð eru þessi: 1. Þjóð- söngurinn, Ó, guð vors lands eftir Matthías Joch- umsson, 2. Ég vil elska mitt land eftir Guðm. Magnússon, 3. ísland ögr- um skorið eftir Eggert Ólafsson." „Steinar Jóhann, Ytri- Völlum, V-Hún. Það var sannarlega gaman að fá íþróttafréttirnar frá ykk- ur drengjum. Bréf þitt þarst í hendur ritstj. í dag (20. okt.), svo að tími vannst ekki til að vinna úr skýrslu þinni fyrr en undir útkomu næsta blaðs. En af öllu virðist mega ráða, að táp og fjör og frískir menn séu í umhverfi þínu.“ Myndir í samkeppnina eru teknar að berast. Fjögur bréf með mynd- um bárust í dag (20. okt.) Alltaf jafnkaldur f kuldakasti varð karli einum sunnanlands að orði: — Já, alltaf er land- nyrðingurinn jafnkaldur, á hvaða átt sem hann er. Pósthólfið Mig langar að komast í bréfasamband við pilt eða stúlku á aldrinum 10—12 ára. Margrét Bjamadóttir, Stöðulfelli, Gnúpverja- hreppi, Ámessýslu. Ég óska eftir að kom- ast í bréfasamband við dreng eða telpu 9—10 ára (mynd fylgi). Sæbjörn Valdimarsson, Skjaldartröð, Hellnum, Snæfellsnessýslu. Hvernig Rómverjar mötuðust Kennari einn var að flytja erindi um háttsemi Rómverja hinna fornu. Hóf hann mál sitt svo: „Eins og þið vitið, hátt- virtu áheyrendur, sátu Rómverjar ekki á stólum, eins og vér, er þeir möt- uðust, heldur þjgu þeir kringum borðið, studdust á annan olnbogann, en mötuðust með hinum“. Orðaleikur Einn morgun segir Óli við Ara félaga sinn: — É'j get stokkið hærra en húsið þitt. — Hvaða grobb er nú í þér, sagði Ari. — Eigum við að ;veðja, ég skal veðja krónu að ég get stokkið hærra en húsið, sagði Óli. — Já sagði Ari, ég skal veðja krónu á móti, að þú getur það ekki. Óli vann veðmálið. Á hvem hátt? Skáldaþátturinn Jón fró Ljórskógum Jón frá Ljárskógum, söngvarinn og skáldið, lézt aðeins rúmlega þrí- tugur að aldri. Síðan er liðinn áratugur, en mörg- um mun jafnvel finnast stundum svo sem hann sé enn á meðal okkar, einkum, þegar við hlust- um á djúpu, rólegu rödd- ina hans í lögunum, sem M.A.-kvartettinn söng inn á hljómplötur. Jón fæddist árið 1914. For- eldrar hans voru Anna Hallgrímsdóttir og Jón Guðmundsson, bóndi í Ljárskógum í Dalasýslu. Hann tók stúdentspróf á Akureyri 1934, las síðan heimspeki og guðfræði við Háskóla íslands, en hóf síðan kennslu og kenndi síðast við Gagn- fræðaskólann á ísafirði. Hann var kvæntur Jón- ínu Kristjánsdóttur, ætt- aðri frá ísafirði, eign- uðust þau einn dreng. Eru þau mæðginin bæði á lífi. Jón lézt á Vífil- stöðum árið 1945. Jón frá Ljárskógum sendi frá sér tvær Ijóða- bækur, „Syngið strengir“ og „Gamlar syndir og nýjar". Þá gaf hann einn- ig út safn ýmissa kvæða og nefndi „Hörpuljóð“. Yfir flestum Jjóðum hans er ástljúfur blær og heyrist tíðum tregi í hreimnum. Haustið 1932, þegar Jón var í 5. bekk Mennta- skólans á Akureyri, hófu þeir fjórir skólabræður að æfa kvartettsöng og stofnuðu M. A.-kvartett- inn, sem síðan söng sig inn að hjartarótum þjóð- arinnar sakir raddfegurð- ar og efnismeðferðar. Fé- lagar Jóns voru þeir Jakob Hafstein og bræð- urnir Þorgeir og Stein- þór Gestssynir frá Hæli. M.A.-kvartettinn hélt víða söngskemmtanir við geisiaðsókn og mikla hrifningu áheyrenda. Alls. munu þeir hafa haldið rúmlega 120 opinberar söngskemmtanir. Þeir sungu 8 lög inn á plöt- ur, hvert öðru fegurra. Jón orti langflesta texta við lögin, sem M. A.- kvartettinn valdi, og eru mörg Ijóð hans á hvers manns vörum. Það er ó- hætt að benda æskunni á Ijóð Jóns frá Ljárskóg- um, hann flytur henni ekkert Ijótt. Við helgum þessum söngvara og skáldi blaðið í dag. Framhald á 3. síðu. Bókin iini fslaiid Það er afráðið, að bók- in um landið okkar verði skrifuð af ungu kynslóð- inni, sem er innan við 16 ára aldur. Enn vantar þó þátttakendur úr ýms- um sveitum og kaupstöð- um. Sendið við fyrstu hentugleika tilkynningu um þátttöku ykkar. -10) — ÞJÓÐVJLJINN — Laugardagur 22. október 1955 Hvítárbakkaskólsnn Framhald af 7. síöu. afur Þ. Kristjánsson og Kristinn E. Andrésson. Þang- að var gott að koma úr fá- sinni og einangrun og bóka- leysi, nýir heimar bókmennta, sögu og almeimra mennta blöstu við. Þar var líka gott rúm fyrir þá sem komu með allmótaða lífsskoðun, og enda þótt hún væri andstæð lífs- skoðunum skólastjóra og kennará. Þeir áttu til að deila á hana á opnum málfundum, t. d. á sósíalisma, en í því frjálslega og prúðmannlega formi að það gat orðið nem- anda hvatning til að leggjast dýpra í kynningu á stefnu sinni og lífsskoðun. Umburð- arlyndi og frjálshyggja var aðal skólastjómar Lúðvígs Guðmundssonar á Hvítár- bakka og samstarfsmanna hans í kennaraliði. Það var meira að segja látið átölu- laust að í skólanum hefðu nemendur með sér sósíalista- félag, enda þótt það reyndist of mikil bjartsýni að það gæti til frambúðar fest rætur í skólanum og héraðinu. Þetta er þeim mun athyglisverðara að einmitt um þetta leyti tókst að bregða sorablæ jón- asismans og pólitískrar skoð- anakúgunar á nokkra skóla landsins og hrekja fátæka nemendur af námsbraut með misbeitingu ráðherravalds og skólastjóra. Námið þótti mörgum held- ur losaralegt á Hvítárbakka, en einnig það var að miklu leyti á valdi nemandans sjálfs. Bókakostur var allgóður. Og kennarar skólans töldu ekki eftir sér að sitja dag eftir dag í endurgjaldslausum auka- tímum með nemendum sem stefndu að prófi í öðrum skólum og þurftu að læra ann- að og meira en fyrirhugað var í námsskrá skólans. Mér er nær að halda að nám á Hvítárbakka, þessi síðustu ár skólans þar, hafi mörgum reynzt drjúgt. Og fleira var hægt að læra þar en náms- greinamar einar. Kennararnir reyndu aldrei að sýnast fjar- læg ofurmenni, heldur tókst þeim í raun að verða félagar og vinir skólafólksins, þeir virtu manngildi nemandans og persónuleik og leiðbeindu honum eftir megni, einnig á sviðum utan námsins. Þetta er skýrara fyrir mér nú og Iofsverðara. Hvítár- bakki var fyrsti framhalds- skólinn sem ég komst í, og ég veit ekki nema ég hafi haldið í fávizku minni að svona hlytu allir skólar að vera, þannig hlutu allir kenn- arar að breyta. Skólaheimilið, átti líka mikinn þátt í þvi að gera dvölina ánægju- lega, en hús Sigurðar Þórólfs- sonar var orðið gamalt og kalt og illnothæft síðustu ár- in. En skyldi nokkur nemandi hafa farið svo frá Hvítár- bakka, kvatt svo það gamla, kalda hús, að hann ætti ekki þaðan hlýjar minningar? I héraðsskólalögunum 1929 var kveðið svo á að Hvítár- bakki yrði einn héraðsskól- anna, og þar var einnig á- kvæði um heimild til að flytja skólann. í febrúar 1928 hófst í Borgarfirði hreyfing um flutning alþýðuskóla héraðs- ins að Reykholti, og beitti Ungmennasamband Borgar- fjarðar sér mjög fyrir mál- inu. Lúðvig Guðmundsson var um þriggja ára skeið stjórn- skipaður formaður bygginga- nefndar hins nýja skóla. En vorið 1930 skarst í odda milli hans og menntamálaráðherra um teikningu að skólahúsinu í Reykholti og var ekki að sökum að spyrja: Lúðvig var bolað frá skólanum. Lauk kennslu í Hvítárbakkaskóla vorið 1931 en hófst að hausti í Reykholti, og var í raun sami skólinn, þó skipt væri um stað. jafnað þannig aðstöðumuninn mikla sem áður var. Til eru þeir, sem harma þessa breyt- ingu, en þar mun eðlileg þró- un að verki, enda þótt núver-( andi skólakerfi þurfi að sjálf- sögðu að breytast og þróast. Tillögur liggja nú fyrir Al- þingi að taka einhvem héraðs- skólann út úr skólakerfinu á ný eða stofna með öðm móti grundtvígskan „lýðháskóla". Ekki er líklegt að sú tilraun yrði nú árangursrík. Hinsveg- ar er þörf skólastofnunar fyr- ir fullorðið fólk á öllum aldri, sem afla vildi sér almennrar menntunar. En tæpast yrði sú skólastofnun innblásin anda Gmndtvigs sáluga, heldur í senn gædd íslenzkari og sam- þjóðlegri blæ. Væri æskilegt að verkalýðshreyfingin tæki það mál að sér, og hefur ver- ið ymprað á því opinberlega. En hvað sem því líður mun viðurkennt, að alþýðuskólam- ir, héraðsskólamir, hafi verið merkur þáttur ísl. skólasögu í aldarhelming og sá þáttur hefur ekki verið rannsakaður og metinn sem skyldi. Því er nú rétt að minnast í dag brautryðjendastarfs Sigurðar Þórólfssonar og Hvítárbakka- skólans. S. G. Skrá yfir herstöðvar Framliald af 5. síðu. tugnm skiptir í Evrópu, Af- ríku, löndunum við Miðjarð- arhafsbotn eg Austur-Asíu. Lega hverrar flugstoðvar um sig er tilgreind. Fréttamenn í Washington segja að herstjómin hafi komizt að þeirri niðurstöðu að Rússar muni vita um allar flugstöðv- arnar og þvi sé ástæðulaust að vera að reyna halda legu þeirra Ieyndri. Bæjarpósturinn Framhald af 4. síðu. gagnvart sjúkdómi þessum. Þvi ég hef ekki heyrt það fyrr að „Morgunblaðið“ hafi fengið í kandmagann þótt einhver ung- ur „velmenntaður" maður hafi ráfað hér um atvinnulaus. Jón frá Pálmholti. Alþýðuskólaxnir, héraðs- skólarnir, em nú mnnir inn í hið almenna skólakerfi landsins og hafa breytt um svip, ekki sízt vegna þess að nú sækja þá yngri nemendur en áður og námstilhögun er öll önnur. Hefur sú skipan stóraukið tækifæri alþýðu- fólks utan Reykjavíkur og Akureyrar að komast á meg- innámsbraut skólakerfisixis og Þökkum innilega heimsóknir og heillaskeyti í tilefni af 50 ára afmæli félagsins. Alliance hi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.