Þjóðviljinn - 28.10.1955, Blaðsíða 9
Föstudagur 28. októþer 1955 — ÞJtoVILJINN — <9
%
RITSTJÓFU FRtMANN HELGASON
Da&skrá vetrar-ÓL ákveðin
Framkvæmdanefnd O.L. í ’ að segja um 50 km. gönguna 2.
Cortina hefur nú fyrir nokkru
látið frá sér fara dagskrá leikj-
anna. Verða þeir hátíðlega sett-
ir 26. jan. kl. 11.30. Laugar-
daginn ki. 12 fer fram keppni í
500 m skautahlaupi.
29. jan.: 5000 m skauta-
keppni kl. 11.30 og kl. 14.30 fer
stökkkeppnin í tvíkeppninni
fram.
30. jan. kl. 14 fer fram 1500 m
skautg'hlaup. 31. jan. kl. 10.30:
10.000 m skautahlaup.
Keppnin í sumum greinum
byrjar snemma eða kl. 8 og eru
það bobsleðakeppendurnir sem
það verða að gera. Sama er
febrúar, sem byrjar kl. 8 að
morgni. Aðrar göngukeppnir
byrja seinna.
Stökkið fer fram sunnudag-
inn 5. febr. kl. 11. Sama dag
verður leikjunum slitið kl. 17.
Þess má geta að ákveðið hef-
ur verið að vígja stökkbrautina
8. janúar. Óvíst er um þátttöku
í því móti. Svíar munu senda
sína menn þangað, en Finnar
og Norðmenn elcki, því Holmen-
kollenkeppnin fer fram sama
dag. Um þetta leyti er líka
skíðastökkvika í Mið-Evrópu.
Þessa dagan er stökkbraut-
ai-sérfræðingur alþjóða skfða-
sambandsins (F.I.S.), Sviss
lendingurinn Reinhard Strau-
mann í Cortina að athuga
brautina sem senn verður full
ger. Það er fyrir löngu vitað
að braut þessi verður meistara-
verk í byggingarlist. Strau-
mann hefur lýst mikilli aðdá-
un á brautinni. Er hægt að
stökkva í henni frá 20—80 m,
þó ekki sé gert ráð fyrir 20
m stökkum. I fyrra stökk Finn-
Framhald á 11. síðu.
Hafði með sér 100 gullúr
Frá því segir að markmaður-
inn í austurríska liðinu sem lék
við Ungverja um daginn hafi
verið tekinn fastur af ung-
versku lögreglunni. Er hann
sakaður um að hafa smyglað
yfir 100 gullúrum inn i Ung-
verjaland. Austurriska knatt-
spyrnusambandið hefur gefið út
yfirlýsingu um að markmaður
inn verði útilokaður af sam
bandinu frá keppni og er þar
með slegið föstu að samband-
ið taki hart á öllum sem brjóta
tollalög. Er talið að maðurinn
fái fangelsisdóm í Ungverja-
landi. Þetta var í fyrsta sinn
sem hann lék í landsliði.
lesse öweus bezti
iþréttamaður allra tíma
Frjálsíþróttatímarit eitt í
Bandarik junum: Track and
Field Ne.u's ihefur leitað til rúm-
lega 100 sérfræðinga um allan
heim, og spurt þá hver sé að ■■ «■■ jra a ■ » ■
þeirra dómi mesti íþróttamaður ifallf 0^113 SHSlfIHÍSIIHg @^160^^3
allra tíma.
Svörin urðu þau að Jesse
Owens fékk 49% allra þeirra
er atkvæði greiddu. Bob Math-
ias fékk 12% og Zatopek og
Warmerdam 10% af atkvæðun-
run.
Mestu hlauparar heims voru
taldir Zatopek, Nurmi og
spretthlauparinn Mel Patton.
knattspyrnumanna
Talið ei' að margt bendi til
þess að rjúfa eigi bann það er
sett var á innflutning er-
lendra knattspyrnumanna til
Italíu.
Italskir ,,agentar“ hafa þetta
fyrir satt og eru þegar fyrir
nokkru komnir á hinn norræna
markað, Er talið að forseti
Bologna félagsins liafi tilbúinn
í skrifborðsskúffu sinni samn-
ing við Svíann Henry Thillberg
frá Malmö F.F. og á hann að
hljóða upp á 2 ár ef hann vill
samþykkja.
ítalskir „agentar" hafa líka
litið ágirndaraugum til norska
miðherjans Arne Kotte.
Þá má geta þess líka að eftir
Dana við Svía um daginn
fékk Ove Andersen tilboð um að
gerast atvinnumaður og átti
hann að fá 175 þús. danskar
krónur, en hann afþakkaði til-
boðið. Sagt er að Andersen liafi
látið þau orð falla að „pening-
ar væru ekki allt“. Hann er
aðeins 18 ára gamall.
Lífræn efni og hringrás....
Framhald af 7. siðu.
hlutar þurfa súrefni, þ.e. þeir
anda.
Áður var tekið fram að
jurtir gefa frá sér súrefni sem
myndast við aðlifun kolefn-
isins. Súrefnið sem jurtirnar
framleiða nemur meiru en
því sem þær þurfa til öndunar
og verðum við að gera ráð
fyrir að súrefni loftsins sé í
öndverðu til orðið vegna lífs-
starfsemi hinna grænu jurta.
Dýr og menn þurfa lífræn
næringarefni sér til viðurværis
og geta ekki lifað á ólífrænum
samböndum.
Gróður jarðarinnar er þvi
undirstaða dýralífsins og um
leið undirstaða mannlífsins á
jörðinni. Ræktun jarðarinnar
og húsdýranna getur því með
réttu talizt undirstöðu-atvinnu-
vegur í fyllstu merkingu orðs-
ins.
í iðnaði á framleiðslan sér
stað í verksmiðjum þar sem
hráefni og orku er þjappað
saman á einn stað. Þetta er
að vísu ekki hægt að gera í
landbúnaði. Ræktunin hlýtur
að vera dreifð yfir stórt svæði
eins og næringarefnin, ljósið
og' hitinn og jarðvegurinn,
sem jurtirnar eru bundnar
við.
Mest allt úrgangsefni sem
myndast við lífsstarfsemi jurta
og dýra eru lífræn efni nema
kolsýra og vatn sem mynd-
ast við öndunina og kolsýra
sem myndast við gerjun.
í jarðveginum eru smá líf-
verur svonefndir gerlar. þ>ess-
ar lífverur eru ósýnilegar nema
í smásjá, en fjöldi þeirra
nemur mörgum milljónum á
hvern fermetra lands. Gerl-
arnir breyta lífrænum efna-
samböndum í ólífræn þ.e.a.s.
þeir valda rotnun. Við rotn-
unina leysast hin flóknu líf-
rænu efnasambönd sundur í
einfaldari sambönd og ef um
fullkomna rotnun er að ræða
myndast kolsýra og vatn.
Á þennan hátt losnar það
kolefni sem bundið er í lif-
andi jurtagróðri og líkömum
dýra og í lífrænum úrgangs-
Frá landskeppni í frjálsum ípróttum milli Englands og
Tékkóslóvakíu í sumar. Zatopek tekur forustuna í 10
km hlaupinu pegar hlaupnir hafa verið 7 km. Á eftir hon-
um eru Englendingarnir Sando og Pirie. Zatopek
• vann hlaupið.
Skeid Noregs-
meistari í knatt-
spyrnu
Úrslitaleikurinn í Noregs-
meistarakeppninni í knatt-
spyrnu fór fram í Osló s.l.
sunnudag. Áttust við Lilleström
Sportsklub og Skeid. Skeid
hafði mikla yfirburði og hafði
tækifæri til að skora mörg fleiri
mörk en skotin voru ekki nógu
nákvæm. Skeid setti mark eftir
30 sek. og það eftir horn, og
15 mín. síðar hafði Skeid skor-
að aftur; þannig endaði hálf-
leikurinn.
Hraði Slceidliðsins var mikill
og ruglaði Lilleströmmenn svo í
ríminu að þeir náðu aldrei sínu
bezta. Þeir sem settu mörkin
voru vinstri útherjinn Jaclc
Farem sem skoraði þrjú, öll í
síðari liálfleik, og miðherjinn
Harald Henning, sem gerði tvö
mörk.
efnum frá lífsstarfsseminni og
verður að kolsýru í loftinu
sem nýjar jurtir breyta í líf-
' t
ræn efnasambönd á ný.
Það er athyglisvert að úr-
gangsefni þau sem myndast
við lífsstarfsemi eins flokks
lífvera er eitur fyrir þær líf-
verur. Engin iífvera getur lif-
að á sínum eigin úrgangsefn-
um. En þessi úrgangsefni geta
hinsvegar verið fæða og orku-
gjafi lífvera af ólíkum stofni
og með ólíka lífsstarfsemi.
Kolsýra er t.d. úrgangs-
efni frá efnaskiptum manna
og dýra. Dýr og menn geta
því ekki notað kolsýru sem
orkulind eða fæðu þótt hún
sé lífsnauðsynlegt efni í smá-
um mæli. Kolsýra er hinsveg-
ar eitt aðalfæðuefni jurtanna
eins og oft hefur verið tekið
fram.
Jurtirnar geta ekki lifað á
dauðu lífrænu efni, þ.e. sínum
eigin úrgangsefnum. En þetta
lífræna efni er aftur á móti
aðalfæðuefni gerlanna sem
leysa hin lífrænu efni sundur
í steinefni, kolsýru og vatn.
Gerlarnir og*sér í lagi rotn-
unargerlarnir eru þannig nauð-
synlegt millistig jurta- og dýra-
ríkisins. Ef engin rotnun yrði
mundi allt kolefni og mörg
önnur frumefni sem nauðsyn-
leg eru fyrir lífið safnast fyr-
ir sem dautt lífrænt efni. Eng-
in næring yrði til fyrir jurt-
irnar og lifið mundi deyja
út.
Lífið er ekki aðeins. liring-
rás efnis, ekki aðeins endur-
tekning þess sem var, heldur
einnig þróun fram á við og
upp á við frá því einfalda
til hins margbrotna, frá því
ófullkomna til hins fullkomna.
En þar erum við komin að
nýju viðfangsefni — muninum
á lifandi efni og dauðu.
í hinni lifandi náttúru gilda
að vísu hin almennu lögmál
efnisins en þar koma einnig
til greina ný lögmál sérkenni-
leg fyrir þetta hærra þroska-
stig efnis sem við köllum
líf.
^■■■■■■■■■■■■■■■■■■■i
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■,
Barnamúsíkskólinn
tekur til starfa um leið og kennsla í barnaskól-
unum hefst. Skólinn veröur til húsa í Austurbæjar-
barnaskólanum. Til viðbótar við aðra starfsemi
skólans veröa námskeiö fyrir börn 5—7 ára gömul.
Upplýsingar veittar og tekið á móti umsóknum
í kennslustofu Austurbæjarskólans (gengið inn frá
leikvellinum) föstudag 28. og laugardag 29. þ.m.
kl. 5—7 síðd.
Foreldrar barna á aldrinum 8 til 11 ára, sem
ætla aö sækja um upptöku í 1. bekk, eru beðnir
að hafa stundarskrá barnanna með sér.
H. Edelsfein.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■
i
Tímaritið
VENUS
leggur áherzlu á vandað efn-
isval og vandaðan frágang
Nóvemberheftið er komið út
8 siðuin stærra —• Sama verð
•*■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■•■■■■»••
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■,
PELS
3
Lítið notaður pels til sýn-
is og sölu á Laugavegi 58,
milli kl. 6 og 8.
■■■■■■■■w