Þjóðviljinn - 09.12.1955, Síða 1
FöstuilaKiir 9. desember 1955 — 20. árgangur — 280. tölublað
Sósíalistar flytja frumvarp um a3
stofna lífeyrissjóð togarasjómanna
Mundi iryggja afkastamestu starfsstétt þjóðfélags-
ins mikilsverðar réttarbætur
Einar Olgeirsson, Sigurður Guðnason og Gunnar Jó-
Jiannsson flytja frumvarp á Alþingi um stofnun lífeyris-
sjóðs togarasjómanna, er tryggi þeim veruleg ellilami og
veíti þeim hagkvæm lán til íbúðabygginga, — Nokkur
höfuðatriði frumvarpshis:
★ 1. gr. kveður svo á: „Stofna
skal sérstakan sjóð til þess að
tryggja togarasjómönnum, er láta
af störfum vegna elli eða van-
heilsu, geymdan lifeyri, svo og
lífeyri ekkjum þeirra og börnum.
ftétt er og að lána togarasjómönn-
um úr slíkum sjóði til íbúða-
bygginga handa þeim sjálfum
með góðum kjörum. Ríkissjóður
leggur lífeyrissjóði togarasjó-
manna sem stofnfé tvær milljón-
ir króna, Landsbanki íslands
tvær milljónir króna og Útvegs-
banki Islands eina milljón
króna“.
★ Réttindi samkvæmt lögum
þessum skerða ekki rétt togara-
sjómanna til lífeyris eða bóta
samkv. öðrum lögum, heldur
bætast við slik hlunnindi. Ekki
skal heldur .skerða rétt þeirra til
lána á móts við aðra, þótt þeir
fái lán úr þessum iífeyrissjóði.
★ Sjóðsfélagar, sem eru allir
þeir íslenzkir ríkisborgarar, sem
starfað hafa 12 mánuði eða leng-
ur á ísl. togurum, skulu greiða
til sjóðsins 1% af heildarkaupi
sínu á togurum yfir árið. Launa-
greiðendur greiði 3% og ríkis-
sjóður 6% af heildarkaupi sjóðs-
félaga.
★ Við útlán til íbúðabygginga
skal taka tillit til ómegðar,
starfsaldurs og aldurs. Ekkjur
togarasjómanna, sem rétt hafa
til lífeyris, eiga og rétt til lána.
★ Sjóðfélagi, sem unnið hefur
á ísl. togara í 10 ár eða lengur,
þar af a. m. k. 5 ár eftir að lög
þessi öðlast gildi og annaðhvort
er orðinn 60 ára eða hefur unnið
á ísl. togurum í 30 ár eða leng-
ur, á rétt á árlegum lífeyri úr
sjóðnum.
Brezkir hermenn brjóta
upp klaustur á Kýpur
Níu munkar 09 prestar handteknir fyrir
að hafa vopn 09 sprengieíni í fórum sínum
Vopnaðir brezkir hermenn brutu upp klaustur á allri
Kýprn-1 dögun í gær og gerðu leit að vopnum og sprengi-
efntun.
Hersveitir sem í voru samtals
um 1000 manns umkringdu i
fyrrinótt 24 klaustur á eynni og
í dögun réðust hermennirnir inn
Pólska stjóniin tilkynnti í
gærkvöld að frá næstu ára-
mótum myndi hafinn heim-
sending þýzkra stríðsglæpa-
manna sem afplána refsingu í
Póllandi, og verða 600-1000
stríðsglæpamenn sendir heim
til Þýzkalands mánaðarlega.
í klaustrin. Var þar leitað hátt
og lágt að vopnum og sprengi-
efnum, brotnar upp hirzlur og
helgiskrín, og segjast Bretar hafa
fundið nokkrar vopnabirgðir.
Níu menn voru handteknir, m. a.
munkur sem hafði tvær vand-
aðar skammbyssur undir kufli
sínum.
Árásir voru gerðar á brezka
hermenn á Kýpur í fyrrinótt og
særðust fjórir í þeim árásum, en
enginn beið bana.
V'
erklýðsfélaganna á Ak-
nreyri kynnir verk nóbelsskáldsins
★ Upphæð lífeyris miðast við
starfstíma og meðalárstekjur
sjóðfélaga síðustu 10 starfsárin.
Eftir 10 ára starfstíma er lífeyrir
12,5% af meðalárstekjum, eftir
21 ár 40% og eftir 30 ár 70%.
Lengri starfstími og frestun á
töku lífeyris getur þó enn hækk-
að lífeyrinn.
★ Hver sjóðfélagi, sem verður
ófær til að gegna starfi eða
missir af iaunum vegna varan-
legrar örorku, á rétt á örorku-
lifeyri, ef örorkan er meiri en
10%. Ef örorkan er vegna starfs
á togara, er hámark hins árlega
örorkulífeyris jafnháft lífeyri
eftir 30 ára starfstíma.
★ Ekkjur togarasjómanna skuiu
njóta lífeyris eftir nánari ákvæð-
um í frv.
Ein merkustu nýmæli
í seinni tíð
Þetta eru nokkur helztu at-
riðin í þessu stórmerka frum-
varpi. Verður ýtariegar sagt frá
ýmsum öðrum ákvæðum þess
síðar. Enginn vafi er á því, að
þetta eru einhver merkustu ný-
mæli, sem komið hafa fram í
seinni tíð hvað kjör sjómanna
snertir.
í greinargerð frumvarpsins
rekja flutningsmenn hver und-
irstaða það er undir öilum þjóð-
arbúskap vorum, að til starfa
á togurunum veljist beztu og
liæfustu menn og að þeir sjái
sér fært að stunda þessa at-
vinnu að staðaldri og til fram-
búðar meðan aldur og heilsa
leyfir.
Samskonar réttindi
og ríkisstarfsmenn
og þó lieldur meiri
Þetta frumvarp miðar að þvi,
að veita togarasjómönnum sams-
Rentan og •(
áhrif hennar
á veralniynetMia
konar öryggi um eftirlaun, eili-
og örorkulífeyri og fjölskyldum |
þeirra um dánarbætur og starfs-
menn ríkisins hafa nú, og þó
að tvennu leyti meiri: Togarasjó-
menn skulu njóta réttinda al-
mannatrygginganna auk þessara
réttinda og greiða iitið gjald, 1%,
en ríkið greiðir aðalgjaldið. Rök-
in fyrir þessu eru sú þjóðamauð-
syn, að gert sé vel við þessa
afkastamestu starfsstétt þjóðfé-
lagsins, sem auk þess stundar
Framhald á 3. síðu.
Mendes-France
Halldór Halldórsson, arkitekt,
skrifar grein sem birt er á 7.
síðu í dag um rentuna og n-
hrif hennar á verðniyndunina í
landinu. Sýnir Halldór fram á
það ineð Ijósum rökum hve
gífurlegan þátt hinir óeðiilega
háu vextir sem hér er krafizt,
eiga í dýrtíðinni og verðbólg-
unni. Telur Halldór að miðað
við heildartölur frainfærslu-
kostnaðar sé hlutdeild rent-
unnar í verðlagsinynduninni
milli 25-40% af heildarverði,
eða um þriðjungur framfærslu-
kostnaðar. Eru lesendur blaðs-
ins eindregið hvattir til að
lesa þessa grein með athygli,
því hún hefur mikinn fróðleik
að geyma, er snertir þau inál
sem nú eru efst á baugi.
Mendes-France og Guy Mollet
gera með sér bandalag
Leggja til að næsta þing breyti kosninga-
lögunum, síðan verði þing aftur rofið
Þeir Pierre Mendes-France, varaforseti Róttæka flokks-
ins franska, og Guy Mollet, leiötogi sósíaldemókrata, til-
kynntu í gær aö flokkar þein’a myndu haía meö sér banda-
lag í þingkosningunum 2. janúar.
Þeir Mendés-Franee og Moll-
et komu saman á fund árdegis
í gær og gáfu út þessa til-
kynningu að honum loknum.
Bandalag flokka þeirra sem
nefnist Lýðveldisfylkingin
stendur opið öðrum flokkum,
sem styðja vilja sameiginlega
stefnuskrá sem þeir hafa gefið
út. Helztu atriði hennar eru að
þingið sem kjörið verður 2.
janúar semji ný kosningalög,
síðan verði það rofið og efnt
til nýrra kosninga hið bi-áð-
asta. Þeir Mollet og Mendés-
France komu sér einnig saman
um grundvöll að málefnasamn-
ingi væntanlegrar ríkisstjórnar
sem þeir munu mj nda ef banda
lag þeirra fær þingmeirihluta.
f yfirlýsingu þeirra er einn-
ig ráðizt harðlega á Edgar
Faure og stuðningsmenn hans,
„mennina sem áttu sök á Dien-
bienphu, óförum Frakka í N-
Afríku og í utanríkismálum."
Gerið skil fyrir selda miða — Takið miða til
sölu — Skrifsiofur happdrættisins eru að
Tjarnargötu 29 og Skélavörðjstig 19
Nú eru aðeins rúmar tvær vikur þar til dreg-
ið verður í síðara sldptið í bílahappdrætti Þjóð-
viljans. Það þýðir, að síðari sóknarlotan er haí'-
|in af fullunr krafti.
Fyrri áfanginn gekk ágætlega eins og áður
Akureyri. Frá fréttaritara Þjóðviljans. | hefur verið teltið fram, og sá árangur sýhir
Fulltrúaráð verkalýösfélaganna á Akureyri gengst fyr- jokkur hversu mikla miiguleika við höfum tii að
ir kynningu á verkum nóbelsverðlaunaskáldsins, Halldórs
Laxness, á sunnudaginn kemur og veröur hún í sarnkomu-
húsinu kl. 4 síödegis.
Gísli Jónsson menntaskóla-
cennari mun þar flytja erindi
ím skáldið og verk hans. Jón
'íorðfjörð leikari stjómar flutn-
ngi á kafla úr íslandsklukkunni,
Jóhann Konráðsson syngur ljóð
eftir skáldið. Þeir Guðmundur
Gunnarsson, Kristján frá Djúpa-
læk og Jónas Jónasson les upp
úr verkum skáldsins.
uá þeirri heildarútkomu, sem við þuríum á að
jhaida til þess að Þjóðviljanum sé borgið næsta
jár.
Þjóðviljinn treystir því, að allir, sem bera
hag hans fyrir brjósti, og vilja veg hans og
gengi, taki nú þegar þátt í þessu síðasta átaki
happdræfctismiðasölunnar.
Þið, sem litið hafið aðhafzt, til þossa, dragið
ekki undir neinum kringumstæðum að leggja
höml á plóginn. Og þið, sem þegar hafið gerfe
skil, skoðið hug ykkar vandlega um það, livorfe
þið getið ekki gert ennþá betur.
Peningar fyrir liappdrætti Þjóðviljans liggja.
á lausu hjá fólki úti mn allt land. Það sýnip
oltkur reynslan. Þeir peningar ern öruggari en
í nokkrum banka, því að fólkið er sá eini banki,
sem aldrei liefur brugðizt Þjóðviljanum. Við
þurfum aðeins á góðu starfi að halda tii að
(ætta le komi blaðinu til góða.
Hjálpumst öll að þessu verki þemian hálfa
mánuð sem eftir er uudir kjörorðinu: Ilapp-
drættismiðarnir út til fólksins, peningarnir inn
til blaðsins.