Þjóðviljinn - 09.12.1955, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.12.1955, Blaðsíða 3
Föstudagnr 9, desember 1955 — ÞJÓÐVTLJINN —• í3 - Sveinn Víkingnr hlutskarpastur Nefnd sú, er skipuð var til að dærna um leikþætti í verðlauna- samkeppni þeirri, sem Skálholts- nefnd efndi til, lauk störfum fyrir nokkru. Höfðu borizt níu þættir, og fékk þáttur er nefndist Leiftur liðinnna alda 1. verðlaun: 10 þúsund krónur. Höfundur hans reyndist sera Sveinn Vik- ingur biskupsritari. 2. verðlaun, 3000 krónur, voru veitt fyrir leikþáttinn í Skál- holti; hann var nafnlaus og ó- auðkenndur, og höfundur hefur ekki gefið sig fram. Væntanlega hefur honum nú skilizt að það er öldungis óhætt. ekla h/f heláir sýningu á heiiilis- Hekla h.f. opna'öi í gær sýningu í Listamannaskálanum á allskonar heimilistækjum og lömpum. Mun þetta vera fyrsta sýning sinnar tegundar hér á landi. Á sýningunni getur að líta flest þau heimilistæki, sem nú tíðkast, m. a. eru þar frá bandarísku Kelvinator-verk- smiðjunum margar gerðir a.f kæliskápum, frvstiskápum og frystikistum, sjálfvirkar þvotta vélar og strauvélar. Það heim- ilistækið, sem mesta athygli mun vekja á sýningunni er sambyggður frysti- og kæli- skápur, sem nefnist Foodrama Myndir frá Reykjavík Út er komin lítil handhæg myndabók er nefnist Mynd- ir frá Reykjavík. ,’Lofsöng vil ég syngja íslenzknm dreng- skap og íslenzkri vináftu" EggertshátíÖin, er vinir Eggerts Stefánssonar efndu til í tilefni af 65 ára afmæli hans, var haldin í Gamla bíó á þriöjudaginn var. Bjarni Guðmundsson blaða- fuíltrúi bauo gesti velkomna. Kvað hann það lán fvrir ís- land að eiga slíka fulltrúa sem Eggert „sem bera aðals- og fyrirmennskumót íslenzkrar menningar víða um lönd.“ Að loknura ávarpsorðum las Bjarni kafla úr bréfi er Hall- dór Laxness skrifaði Eggert 1940, en því lýkur á þessa leið: ..... því þegar þú syngur, ertu söngvari Islands, og þegar þú syngur þá lilusta náttúrukraftar landsins, og þeir eru góðir áheyrendur til viðbótar við hitt fólkið.“ Næst lék Gísli Magnússon á píanó 2 verk eftir Beethoven. Eggert las Óð sinn til ársins 1944. Guðmundur Jónsson óperusöngvari söng nokkur Kaldalónslög við undirleik Ró- berts A. Ottóssonar. Andrés Björnsson las ritgerð Eggerts: j Blöndu. Italski óperusöngvar- j inn V. Demetz söng nokkur ítölsk lög. Flutningur þeirra allra var með miklum ágæt- um. Var Eggert sérstaklega hylltur er hann flutti Óðinn. Að síðustu ávarpaði Eggert Stefánsson viðstadda. Fara lokaorð hans hér á eftir: Oít þegar ég áður söng fyrir fólkið Iangaði mig til að hætts og fara að tala við áheyrendur mína, til að sjá hvort ég með orðum gæti komizt nær þeim inn í hugarfylgsni þeirra og hjarta — og þannig látið þá skiija mig betur. Nú er ég gel talað eins og ég vil til ykkar langar mig til að syngja. Lof- 'söng — lofsöng vii ég þá syngja íslenzkum drengskap og íslenzkri vináttu, er mér er sýnd hér kvöld. Þakkir vil ég fiytja há tíðarnefndinni, og þeim er unnu verfkið, (síðan þakkaði hann hverjum einstökum). Lofsöng vil ég flytja Ítalíu og hinum göfugu tengslum minum við fegurðarinnar, listanna og snilldarinnar land. Taka hér und- ir með franska skáldinu Victor Hugo, að allir menn eiga sér tvö föðurlönd, sitt eigið og Ítalíu. En fyrst og síðast vil ég lof- syngja föðurlandið okkar — ís- land, og forlög, er létu mig fæð- ast á þessum örlagaríku tíma- mótum í sögu þess — endurreisn lýðveldis íslendinga, er yfir- gnæfir allt, sem á íslandi hefur skeð á þessari öld. Og iiú þegar ég hef þakkað fyrir þetta kvöld og minnzt þess, er ég unni, þá á ég samt eftir að lofsyngja það þýðingar- rnesta í öllu þessu — lífið sjálft. Þ\ú hvað eru sigrar, tign og mannvirðing hjá lífinu sjálfu, og þetta að vera maður, er lifir og getur notið þess að lifa. Sjá sólina rísa eða síga í sæ, í gull- brotum leifturs í vesturátt, finna ilminn af blómum og grös- um jarðar, Ijöðuð í dögg morg- unsins, er ris fagur sem guð og skrifar mannkyninu nýja sögu. En þrátt fyrir þetta allt finnst mér eitthvað vanta, er tákni af- mælisdaginn, og alla afmælis- daga og meiningu þeirra, og auð- vitað finn ég það í bók vitrings- ins og snillingsiris frá Reykholti, i Eddu Snorra Sturlusonar, og er það eiginlega texti dagsins og hljóðar hann þannig: „En hitt var ok mikit undur um fangið, er þú stótt svo lengi við ok fellt eigi meirr en á kné öðrum fæti, er þú fekksk við Eili — fyrir því at engi hefur sá orðit ok engi mun verða, ef svo gamall verðr at Elli bíður at eigi korni ellin öllum til falls.“ Og við þetta hef ég engu að bæta. Útgefandi ér Menningarsjóð- ur, en liann hefur áður geíið út á ensku bækurnar Staðreyndir um Reykjavík, og Staðreyndir um ísland, en báðar þessar bæk- ur hafa komið í góðar þarfir til að senda kunningjum erlendis. Og enda þótt æskilegt hefði vér- ið að meira hefði verið vandað til hinnar fyrstu myndabókar, sem ætluð er til þess að kynna höfuðborg íslands erlendis, þá mun mörgum kærkomið að fá slika bók, einmitt nú þegar jóla- póstarnir eru á förum. Höfundar bókarinnar éru fjór- ir. Gunnar Thoroddsen borgar- stjóri skrifar formála, Guðni Þórðarson blaðamaður og Har- aldur Teitsson völdu myndimar, en Lárus Sigurbjörnsson skjala- vörður bæjarins skrifaði skýr- Nýjar skreytingar í húsakynnum Leikhús- kjallarans Nýlega hefur verið lokið við endurbætur og skreytingar á hljómsveitarpalli Leikhússkjall- arans. Hefur Lothar Grund annast skreytingarnar. Leikhúskjallarinn hefur nú starfað í fjögur ár undir stjórn Þorvalds Guðmundsson- ar. Fyrstu árin var reksturinn nær eingöngu fólginn í kaffi- veitingum fyrir leikhúsgesti I sýningarhléum, síðar var farið að leigja salarkynnin út fyrir veizlur allskonar og hóf en nú síðast hefur verið stefnt að því að gefa leikhúsgestum kost á að geta gert leikliús- ferðina að einu alhliða skemmti kvöldi, þ. e. kvöldverður á und- an sýningu og veitingar á eft- ir. Njóta þessi leikhúskvöld aukinna vinsælda. Matreiðslumenn Leikhúskjall- arans eru Tryggvi Jónsson og Halldór Vilhjálmsson. ingar með myndunum. Myndir eru eftir samtals 15 menn. Minnizt barna- spitalasjóSsins Kvenfélagið Hringurinn tók upp þá nýbreytni um síðustu jól, að flytja inn skreyttar jóla- greinar og selja þær til ágóða fyrir barnaspítalasjóðinn. Vegna þess að smátt verður að skammta gjaldeyri til innflutnings þessa, má búast við að birgðirnar gangi skjótt til þurrðar. Greinarnar eru til sölu í mörgum verzlunum, og er þeirra getið þar á sérstökum auglýsingaspjöldum. Mikið fjör er nú í starfsemi Hringsins. Hefur fölagið nýlega efnt til happdrættis til ágóða fyrir barnaspitalann. Aðalvinn- ingurinn er Mercedes-Benz bif- reið, 220, en áuk þess margir aðrir vinningar. Er það von Hringsins að sem flestir minnist Barnaspítalans um jólin, bæði með því að gefa happdrættismiða i jólagjöf og skreyta gjafir sínar með jólagreinunum vinsælu, ekki sízt nú þegar bygging spítalans er hafin og mun vonandi ganga að óskum. og er alger nýjung á sviði matvælageymslu í heimahúsum. Frá Kenwood-vei'ksmiðjunum í Englandi eru sýndar þrjár gerðir hrærivéla og gufustrok- járn, einnig ýmsar gerðir af þvottavélum frá Rondo Werke í Þýzkalandi, borðstrokvél frá Speed Queen verksmiðjunum og fjölmargar nýjustu tegundir af amerískum borð- og gólf- lömpum. Loks má geta þess að á sýningunni er nýtízku elö- hús, þannig byggt að bökunar- ofninn er hafður uppi á vegg, innbyggður í eldhússkápinn, og suðuplöturnar innbyggðar við hliðina í eldhúsborðið. -.— Vélarnar á sýningunni verða hafðar í gangi og mun starfs- fólk verzlunarinnar stjórna þeim, lýsa eiginleikum þeirra og svara fyrirspurnum sýning- argesta. Kelvinator-verksmiðjurnar hafa sent hingað sérfræðing sinn, Eric Hoagberg, til að að* stoða við undirbúning sýning- arinnar. Sagði hann blaðamörm- um í gær, að verksmiðjurnar væru elztu framleiðendur raf- magnskælitækja til heimilis- notkunar og hefðu til þessa framleitt yfir 15 millj. heimilis- tækja. Sú nýlunda verður á sýn* ingunni í Listamannaskálanum,: að sýningargestum eldri en 16 ára gefst kostur á að taka þátt í ókeypis happdrættí. Vinningar eru þrír: 1. val millf Kelvinator kæliskáps C245K„ þvottavélar og strokvélar Ir- onite 800. 2. Kenwood hræri- vél. 3. Amerískur gólflampL Eru vinningamir að verðmæti samtals yfir 10 þús. krónur. Dregið verður í happdrættinu að sýningu lokinni hjá fulltrúa borgarfógeta. Aðgangur að sýningunni ef ókeypis, en hún verður opitt næstu 10 daga klukkan 7-10' síðdegis daglega. Lííeyrisjóður sjómasma i'ramhald af 1. síðu. ein erfiðustu og hættufyllstu störf þess. Ekki þarf að efa, að togarasjó- menn og aðrir, sem vilja heill þjóðarinnar, veiti þessu máli og viðtökum þess á Alþingi athygli. Þótt engin haldbær rök séu gegn þvi, mun framgangur þess þó fyrst og fremst byggjast á því hve kröftuglega sjómennirnir sjálfir taka undir. Hæsta og lægsta 'femásöluverð ýmissa vörutegunda í nokkrum smásöluverzlunum í Reykjavík, reyndist vera 1. þ. m. sem hér segir: Lægst Hæst Meðal kr. kr. kr. Suðusúkkul pr. 58,40 -64,00 -63,27 Rúgmjöl pr. kg. 2,25 Hveiti Hafram. Hrísg. Sagog. Hrísm. Kartöflum.- Baunir Te % lbs. - Kakao \ 2,50 - 2,40 2,60 - 2,95 - 2,75 3,10 - 4,00 - 3,71 4,80 - 6,25 - 5,92 5,00 - 5,85 - 5,33 3,95 - 6,60 - 4,90 4,65 - 4,85 - 4,76 ■ - 4,50 - 6,70 - 5,63 - - 3,40 - 5,00 - 4,51 libs. 8,30 -10,25 - 9,70 Molasykur Strásykur Púðursykur Kandís Rúsínur 4,35 - 4,60 - 4,48; 2,80 - 3,50 - 3,32 3,30 - 4,50 - 3,57 5,75 - 5,75 - 5,75 12,00 -14,40 -13,06 Sveskjur 70/80 15,00 -18,00 -15,89 14,00 -17,00 -14,95 4,85 - 4,85 - 4,85 Sítrónur Þvottaefni útl. pr. pk. Þvottaefni innl. pr. pk. 2,85 - 3,30 - 3,15 Á eftirtöldum vörum er sama verð í öllum verzlunum: Kaffi br. og malað pr. kg. 40,00 Kaffibætir - - 18,00 Mismunur sá er fram kemur á hæsta og lægsta smásöluverði getur m. a. skapazt vegna tcj- undamismunar og mismuna inn- kaupa. Skrifstofan mun elcki geia upplýsingar um. nöfn einstakra verzlana í sambandi við framan- greindar athuganir. (Frá verðlagsstjóra

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.