Þjóðviljinn - 09.12.1955, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 09.12.1955, Qupperneq 6
f?) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 9. desember 1955, tllðeVIUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn — s. _______________________S Landhelgin og löndunarbannið Þær fregnir, sem borizt hafa undanfarið einkum frá París og gegnum „Fishing News“, og verið birtar hér í blaðinu, hafa eðlilega vakið ugg með mönn- um. Enn alvarlegar leit þó út, er Morgunblaðið birti á forsíðu fréttir um þetta undir fyrir- sögninni ,,Sættir?“ Og nú verst ríkisstjórnin ailra frétta á Al- þingi um málið. Það er því nauðsvnlegt að iandsmenn séu betur á verði en nokkm sinni fyrr í landhelgis- rnálinu. Ríkisstjómin hefur áður látið í veðri vaka að hún sé reiðubúin að skjóta málinu undir Haag-dómstólinn, en slíkt nær vitanlega engri átt, því h§r er um íslenzkt innanríkismál að ræða, lögsögu yfir landgntnni Islands. En skilyrði rikisstjórn- arinnar fyrir slíku ólögiegu at- hæfi hafa verið þau að brezka auðvaldið aflétti löndunarbann- inu. En er oss íslendingum nokkur bagur að því að Rretar afnemi löndunarbannið ? Vissulega var það meiningi brezka auðvaldsins að beygja oss með því banni Síór-Bret- inn hélt að hann gæti leikið oss eins og hann hefur leikið ýmsar áðrar smáþjóðir, sem efnahags- lega áttu undir hann að sækja. En vopnin hafa snúizt í hendi brezka auðvaldsins. Vér höfum unnið úr togarafiskinum innan- lands, gert úr honum marg- falt meira verðmæti en ella, tryggt atvinnu við það verk fyr- ir mikinn fjölda fólks, sem ella hefði skort atvinnu, — og get- að selt allan þennan fisk og þó meira væri. Valda þar mestu um þau vinsamlegu við- skiptasambönd, sem komizt hafa á við Sovétríkin og önnur alþýðuveldi. Þeir íslenzkir aðiljar, sem nú bafa mestan áhuga fvrir af- námi löndunarbannsins, eru þeir togaraeigendur, sem fengju þá betri aðstöðu til gjaldeyris- flótta, og þau yfirvöld, sem álíta nauðsynlegt að koma hér á at- vinnulevsi, til þess að þjarma a.ð verkafólkinu og þrengja kjör þess. íslenzka þjóðin getur gjarn- an lofað brezka auðvaldinu að sitja við sitt löndunarbann þar t. il brezk alþýða sjálf knýr fram afnám þess. Vér Islend- ingar ei.gum ekkert undir náð Bretans, sakir þeirra öruggu viðskipta í austurveg, sem nú eru á komin. En sízt af öllu kemur til mála að á nokkum minnsta hátt sé farið að draga úr sókn okkar Isíendinga fram t.il víkkunar friðunarlínunnar. En upn á síð- kastið er það einmitt ríkis- stjórnin, sem staðið hefur í vegi fyrir þvi að kröfur fjölmargra þingmanna um stækkun friðun- arsvæðisins væru gerðar að lög- um. Friðrik Bjjarnason tónskáld Einn af ágætustu listamönn- um þjóðarinnar átti 75 ára af- mæli hinn 27. nóv. siðastl. Það var Friðrik Bjarnason, kennari, organleikari, söngstjóri og tón- skáld. Hann fæddist í Götu á Stokks- eyri 27. nóv. 1880. Faðir hans var hinn kunni formaður og organleikari Bjami Pálsson, sem einnig var tónskáld. Var hann bróðir ísólfs Pálssonar tónskálds (föður dr. Páls ís- ólfssonar) og Jóns Pálssonar organleikara. Er ö)l sú ætt al- kunn gáfu- og listamannaætt. Friðrik missti ungur föður sinn og varð snemma að sjá fyrir sér sjálfur Efni skorti til langskólanáms í þeim fræð- um,. sem hugur hans stóð eink- um til. En honum tókst að afla sér kennaramenntunar og góðr- ar undirstöðu í söng og organ- leik. Varð hann fyrst kennari austan fjalls, en síðar við bamaskólann í Hafnarfirði. Kenndi hann þar söng allan og bráðlega einnig í Flensborg- arskólanum, og var söngur all- ur í þeim' skólum með miklum ágætum, meðan hann kenndi hann. Friðrik, stofnaði karlakórinn Þresti og stýrði honum meðan heilsa leyfði. Einnig stofnaði hann og stýrði um skeið kvennakór, er nefndist Erlur. Var söngstjórn hans mjög róm- uð. Þegar kirkjan (þjóðkirkjan) var byggð í Hafnarfirði, gerðist Friðrik þar organleikari og hélt því starfi meðan heilsan leyfði. Beitti hann sér fyrir 75 ára því, að keypt var lítið, en mjög- vandað pípuorgel til hennar. Var það lengi notað þar, en nú hefur verið fengið þangað mjög fullkomið orgel. Friðrik Bjarnason er einn þeirra manna, sem alltaf eru að læra og nema. Hann hef- ur engu tækifæri sleppt til að afla sér þekkingar og kunnáttu, og áhugamál hans eru mörg og fjöibreytt. En mesta áhuga- mál hans er þó sönglistin, og þar hefur honum tekizt að afla sér óvenju yfirgripsmikill- ar menntunar og staðgóðrar að sama skapi. í organleik náði hann mikilli fullkomnun, og sem söngstjóri 'var hann frá- bær. Hann var mjög vandlát- ur og kröfuharður við sjálfan sig, og hann ætlaðist jafnan til hins sama af öðrum. Hann héfir líka notið óskoraðs trausts og virðingar allra, sem nokkuð hafa kynnzt honum og störfum hans. Friðrik starfaði einnig að út- gáfu söngmálablaðsins Heimis ásamt þeim Sigfúsi Einarssyni tónskáldi og dr. Páli ísólfs- syni. En það, sem óefað mun halda nafni Friðriks Bjarna- sonar lengst á lofti, eru hin fjölmörgu sönglög hans. Hann er afkastamikið tónskáld. Mikið a? tónverkum hans er enn í handritum, en mikill fjöldi laga hans hefur náð útbreiðslu og ákaflega miklum vinsældum. í tónverkum Friðriks koma allir hinir miklu kostir hans fram: ást hans á listinni, hæverska hans, virðing hans fyrir þeim, sem eiga að njóta listarinnar, takmarkalaus vand- virkni, samvizkusemi og strang- leiki við sjálfan sig, mikil og óvenjugóð kunnátta og framúr- skarandi ljós hugsun, næm til- finning fyrir „stemningu" Ijóðs- ins og hæfileiki til að túlka hana með einföldum laglínum, sem á augabragði ná tökum á sál hvers sæmilega söngvins manns, já hvers barns svo að segja. Lög hans eru flest mjög alþýðleg i bezta skilningi, ein- föld, en jafnframt unaðsfögur. Raddsetning er mjög vönduð og smekkvísleg, sumstaðar snilldarleg, en yfirleitt mjög aðgengileg allri alþýðu manna. Mörg þessara laga eru sann- kallaðir dýrgripir og sum ó- dauðlegar perlur, sem munu lifa, meðan íslenzk tunga syng- ur íslenzk ljóð með íslenzku lagi: Skal cg nefna til dæmis: „í Hlíðarendakoti", „Hafið bláa“, „Ðjúpt í hafi“, „Á fjöll- um friður", „Haust er á heið- um“, „Rigning", „Haínarfjörð- ur“, „Við skulum ekki . hafa hátt“, „Hóladans“ og fjölmörg önnur slík. Ég er ekki viss um að Is- lendingum sé það öllum ljóst, hvílík ómetanleg verðmæti þessi stórgáfaði og menntaði, kyrrláti listamaður hefur gefið þjóðinni — verðmæti, sem þjóðin getur sannarlega verið stolt af að eiga. Það má vel segja, að þessi fögru og djúpu lög séu fyrst og fremst spegilmynd af per- sónuleika Friðriks. B.jarnasonar, en þau eru engu síður spegil- nriypd af anda íslenzkrar al- þýðu. Höfundur þeirra er upp- runninn úr skauti íslenzku al- þýðunnar og finnur sig jafnan sem slíkan. Lögin hans eru líka rammíslenzk í anda, og þó hefur höfundurinn ekki gert neitt til þess, að þau skuli sýnast íslenzk, en þau eru það samt. Friðrik Bjarnason er óvenju víðlesinn maður og sannkall- aður fræðasjór, víðsýnn og' frjálslyndur í skoðunum, en hlédrægur að eðlisfari. Það er sannkölluð hátíð fyrir vini hans að hitta hann og ræða við hann sameiginleg áhugamál. Á þess- um tímamótum munu fjölmarg- ir senda honum hlýjar og þakk- látar hugsanir og óska honum friðsæls, bjarts og fagurs ævi- kvölds. Ekki sízt munu.bömin hugsa hlýtt til hans, en þau eiga honum að þakka ótölulega margar yndisstundir. Undirritaður hefur þekkt Friðrik um nær hálfrar aldar skeið, og hefur virðing hans fyrir honum og aðdáun á list hans farið sivaxandi með ár- unum. Þökk fyrir allt, kæri vinur. Hamingja og heiður sé jafnan með þér og þínum. Áskell Snorrason HANNESPETURSSON KVÆÐA Höfundurinn er nímlega tvítugur, og þetta er fyrsta bók hans, en kvæði eftir hann hafa birzt í tímarit- um og í Ljóðum ungra skálda 1954. Hafa menn sjaldan verið eins samdóma um afburða hæfileika ungs skálds — og hið óvenjulega hefur gerzt, að útgefendur hafa keppzt um aö fá þessa fyrstu bók hans til útgáfu. Hannes velur sér fjölbreytt yrkisefni, m.a. úr sögu fslands, viðhorf hans eru frumleg og málfarið á kvæðunum mjúktTog fagurt. Kvæðabók Hannesar Péturs- sonar er ungu kynslóöinni til vegsauka og útkoma hennar merkur viðburður í íslenzkri ljóðagerð. Kemur i hókaverzlanir i dag! Heimskringla

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.