Þjóðviljinn - 15.12.1955, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 15. desember 1955
f------------------------N
iiiðmnuiNN
tjtgefandi:
Sameiningarflckkur alþýðu
— Sósíalistaflokkurinn —
<________________________/
40árafordæmi
Það var rifjað upp á Dags-
brúnarfundinum á mánudag að
fyrir réttum 40 árum buðu verk-
lýðssamtökin í Reykjavík fram
til bæjarstjórnarkosninga og
fengu kjörna alla þá fulltrúa
sem þau buðu fram. Sömu sögu
er að segja um fleiri staði, t.d.
Hafnarfjörð; einnig þar stóð
verklýðsfélagið sjálft að fyrstu
stjórnmálaframboðum alþýðunn-
ar. Verkafóik gerði sér þá þegar
ljóst að kjarabaráttan yrði einn-
ig að vera pólitísk; alþýðan yrði
að tryggja sér ráðin í bæjar-
stjórnum, á alþingi og í ríkis-
stjórn ef fullur árangur ætti að
nást í baráttunni fyrir betra
lífi. Þróunin varð síðan sú að al-
þýðusamtökin og Alþýðuflokkur-
inn urðu eitt um skeið, faglega
baráttan og stjómmálabaráttan
voru eitt og sama skipulags-
kerfið. En þetta fyrirkomulag
varð smátt og smátt úrelt —
sökum þess að Alþýðuflokkur-
inn megnaði ekki að koma fram
sem pólitiskur fulltrúi verklýðs-
samtakanna í heild.
Þegar verklýðssamtökin voru
leyst undan yfirdrottnun Al—
þýðuflokksins, reyndu ýmsir
að túlka það sem sönnun þess
að Alþýðusamband íslands ætti
ekki að skipta sér af stjórnmál-
um. Hafa auðstéttarfulltrúar
auðvitað hampað þeirri skoðun
í tíma og ótíma, en það er kyn-
legt að heyra hana einnig af
vörum sumra leiðtoga Alþýðu-
flokksins, þeirra manna sem um
skeið vildu einir drottna yfir
stjórnmálabaráttu verkamanna.
En auðvitað er þessi skoðun al-
röng; það er ekki minni ástæða
nú en fyrir 40 árum fyrir verka-
fólk að tryggja stjómmálavöld
sín, aðeins þarf að finna aðr-
ar og betri leiðir en þær sem
fólust í stjórnmálaeinræði Al-
þýðuflokksins.
Og þær leiðir eru hvorki
flóknar né dularfullar; þær fel-
ast í því að stjórnmálaflokkar
þeir sem alþýðan hefur stofnað
vinni saman að málefnum þeim
sem verkíýðssamtökin berjlast
fyrir. Ágreiningur um málefni
þessi ætti ekki að þurfa að
verða til fyrirstöðu, því ekki hef-
ur stefnuyfirlýsingu Alþýðusam-
bands íslands verið mótmælt í
einu atriði. Alþýðusamband fs-
lands hefur nú hafið sókn til
að tryggja vinstri samvinnu og
víða í bæjarstjórnum hefur hún
verið reynd um skeið með góð-
um árangri. Þetta frumkvæði
Alþýðusambandsins hefur feng-
ið einróma undirtektir verka-
fólks um land allt, en nú þarf
enn að herða sóknina. Það reyn-
ir á það næstu vikurnar hvort
unnt verður að mynda vinstri
stjórn. Torfæran er aðeins
persónulegir hleypidómar vissra
stjórnmálaleiðtoga eða annarleg
sjónarmið, fjarskyld hagsmun-
um verklýðshreyfingarinnar.
En það er ekki rangsnúin af-
staða þessara manna sem úrslit-
um ræður, heldur vilji og at-
hafnir fólksins sjálfs. Ef alþýðah
skipar sér undir merki einingar-
innar bíða hennar miklir stjórn-
málasigrar á sama hátt og fyrir
árum.
Sameiginlegar ályktunartiUögur Guðmundar Vigfússonar, Alfreðs Gíslasonar, Gils Guðmundssonar, Inga R. Helga>
sonar, Petrínu Jakobsson og Þóröar Björnssonar um
íbúðabyggingar, virkjun Efri-fossa, verkamannahús, skóla-
byggingar, leikvelli, biðskýli, tómstundaheimili, hags-
munamól úthverfanna, rekstur bœjarins o.fl.
Fulltrúi hægri krata neitaði samstarfi og stendur einangraður!
Sex bæjarfulltrúar minniMutaflokkanna, Guömundur
Vigfússon, AlfreÖ Gíslason, Gils Guðmundsson, Ingi R.
Helgason, Petrína Jakobsson og Þóröur Björnsson hafa
lagt fram sameiginlegar ályktunartillögur í sambandi við
fjárhagsáætlun Reykjavíkur fyrir 1956. Veröa þær til um-
ræöu og afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar í dag samhliöa
fjárhagsáætluninni, en viö hana flytja allir bæjarfulltrú-
ar minnihlutans saineiginlegar breytingartillögur, eins og
greint er frá á öðrum staö í
Heildarsamkomulag um á-
IyktunartiIIögurnar strandaði
á Magnúsi Ástmarssyni, full-
trúa hægri mannanna í Al-
þýðuflokknum, sem ekki mun
þó mæta á bæjarstjórnarfund-
inum í dag heldur láta vara-
mann sinn Óskar Hallgríms-
son taka sæti! Man þessi af-
staða Magnúsar og ofstækis-
fyllstu hægri klíkunnar mæl-
ast illa fyrir meðal Alþýðu-
flokksmanna almennt, enda
árangurinn sá einn að fulltrúi
hægri manna stendur einangr-
aður vegna þessarar augljósu
þjónustusemi við íhaldið.
Ályktunartillögur sósíalista,
vinstri jafnaðarmanna, Þjóð-
varnar og Framsóknar fara
hér á eftir:
Hukmar íbúðabyggmgar*
— Samkeppni um
ieikningar
Bæjarstjórnin ákveður að
hefja á árinu 1956 byggingu
150 íbúða í sambýlishúsum til
viðbótar við þær íbúðabygg-
ingar sem þegar eru sam-
þykktar, og heimilar 20 millj.
kr. lántöku í því skyni. Vill
bæjarstjóm með þessari á-
kvörðun hraða útrýmingu her-
skálaibúða og annars lieilsu-
spiliatUdi húsnæðis og, leggur
áherzlu á að framkvæmdum
verði hraðað svo sem kostur
er á.
Bæjarstjórnin ákveður að
láta fara fram samkeppni um
teikningar að íbúðum þessum
og skipulagi umhverfis þær.
Verkamannahús við
Heykj'avíkurhöfn
Bæjarstjórnin ítrekar fyrri
samþykkt sína um að láta
reisa verkamannahús við
Reykjavíkurhöfn og ákveður
að hefja framkvæmdir á
næsta vori og hraða þeim
svo sem unnt er. Vill hæjar-
stjórn hafa sem nánast sam-
starf við Verkamannafélagið
Dagsbrún um allt er snertir
undirbúning og fyrirkomulag
byggingarinnar. Leggur bæj-
arstjórn áherzlu á, að hið
fyrirhugaða verkamannahús
fullnægi sem hezt óskum og
þörfum verkamanna um þjón-
ustu og fyrirgreiðslu alla, og
telur eðlilegt að í því verði
m.a. ráðningarstofu ætlað
hæfilegt húsrými og starfs-
skilyrði.
Ikn fil virkj'unar
Efri-fossa
Bæjarstjórnin lítur svo á að
ekki megi lengur dragast út-
blaðinu.
vegun lánsfjár til virkjunar
Efri-fossa í Sogi, þannig að
framkvæmdir geti hafizt strax
í vor og verði lokið eigi síðar
en 1959. Að öðrum kosti er
fyrirsjáanlegur almennur
skortur á rafmagni, sem ekki
verður mætt nema með hinni
óhagkvæmu og dýru fram-
leiðslu Toppstöðvarinnar við
Elliðaár. Telur bæjarstjórn
rétt að stjóm Sogsvirkjunar-
innar fái sjálf heimild til láns-
fjáröflunar til virkjunarfram-
kvæmdanna.
Skipulagsmál — Sfað-
sefning ráðhúss
Bæjarstjóm Reykjavíkur
telur óhjákvæmilegt, að tekin
verði hið fyrsta endanleg á-
kvörðun um framtíðarskipu-
Iag miðbæjarins og felur hæj-
arráði að undirbúa það mál
og leggja fyrir bæjarstjóm á
þessum vetri.
Þá vill bæjarstjóm henda á,
að endanlega er ekki unnt að
ganga frá skipulagi miðbæjar-
ins, fyrr en væntanlegu ráð-
húsi hefur verið valinn stað-
ur. Er því bæjarráði einnig
falið að athuga og gera til-
lögu um staðsetningu ráðhúss,
áður en fyrrgreind skipulags-
mál verða til lykta leidd.
Biðskýli og sölufurnax
Bæjarstjórnin leggur á-
herzlu á, að biðskýlum á við-
komustöðum strætisvagna
verði fjölgað að mun fyrir
næsta haust. Ennfremur sam-
þykkir hæjarstjóm, að þar
sem henta þykir, skuli í sam-
bandi við biðskýlin byggðar
litlar sölubúðir (söluturnar)
sem bærinn síðan leigi út
til ákveðins tíma í senn, og
skulu fatlaðir rnenn ganga þar
fyrir öðrum. Felur bæjar-
stjórn bæjarráði og borgar-
stjóra að hefja þegar undir-
búning þessara framkvæmda.
FéSags- @g tómsfunda-
heimili í úfhveríum
Bæjarstjórn álítur, að ekki
megi dragast lengur, að bær-
inn hefjist handa um bygg-
ingu félags- og tómstunda-
heimila í úthverfum bæjarins,
sem gætu orðið einskonar mið-
stöðvar fyrir félags-, memiing-
ar- og skemmtanalíf úthverfa-
húa, og felur borgarstjóra og
bæjarráði að hef ja þegar nauð-
synlegan undirbúning og
framkvæmdir.
Skólabyggingar
Bæjarstjórnin felur bæjar-
ráði og fræðsluráði að hlut-
ast til um að á næsta fjár-
hagsári verði hafnar fram-
kvæmdir við a. m. k. einn
nýjan bamaskóla, auk skól-
ans í smáíbúðahverfinu, sem
nýbyrjað er á. Þá telur hæj-
arstjóra að ekki megi lengur
dragast að undirbúnar séu
framkvæmdir í því skyni að
sjá gagnfræðaskólanemendum
í bænum fyrir fullkomnu
skólahúsnæði og felur við-
komandi aðilum einnig undir-
búning þess.
Leikvellir
Bæjarstjórnin telur hrýna
nauðsyn til bera, ekki sízt
vegna hraðvaxandi bílaum-
ferðar og slysahættu, að
framkvæmdir verði stórlega
auknar á næsta fjárhagsári
við gerð nýrra leikvalla. Er
leikvallanefnd falið að vinna
að þeim málum og sjá um
framkvæmd þeirra. Jafnframt
leggur bæjarstjóm áherzlu á,
að nauðsynlegar umbætur séu
framkvæmdar á þeim leikvöll-
um sem fyrir eru, einkum að
því er snertir girðingu vall-
anna, fjölbreyttari leiktæki
og aukna gæzlu.
Hagsmunamál úthverí-
anna
Bæjarstjórnin leggur áherzlu
á, að framkvæmdum í út-
hverfum bæjarins verði hrað-
að eftir föngum, svo að séð
verði sómasamlega fyrir þörf-
um íbúanna þar og kröfum
þeirra fullnægt í samgöngu-,
heilbrigðis- og menningarmál-
um.
Telur bæjarstjóm að leggja
þurfi sérstaka áherzlu á að
hraða gatna- og leikvallagerð
í úthverfunum og bæta vem-
lega götulýsingu þar frá því
sem nú er.
tJtsvör lækki á
lágiekium
Bæjarstjórnin beinir því til
niðurjöfnunamefndar, að gæta
þess við ákvörðun útsvars-
stiga á árinu 1956 að útsvör
láglaunamanna og manna með
miðlungstekjur lækki verulega
frá því sem verið hefur. Þá
telur bæjarstjóm að ekki beri
að leggja á tekjur einhleyp-
inga sem hafa undir 20 þús-
und króna árstekjur né tekjur
fjölskyldumanna undir 30
þúsund krónum. Ennfremur
að taka skuli tillit til húsa-
leigugreiðslu manna við á-
kvörðun útsvarsins.
Endurfeæfur á rekstrs
S.V.B.
Með því að sýnt er, að á
þessu ári verður vcrulegur
halli á rekstri Strætisvagna
Reykjavíkur og gert er ráð
fyrir auknum rekstrarhalla
hjá fyrirtækinu á næsta ári,
telur bæjarstjóra rétt og skylt
að láta fram fara athugun á
öllum rekstri fyrirtækisins og
ályktar að kjósa fimm manna
nefnd, einn frá hverjum
stjórnmálaflokki, í því skyni.
Felur bæjarstjóm nefndinni
að taka sérstaklega til athug-
unar hvort ekki yrði hag-
kvæmt að S.V.R. kæmu upp
fullkomnu viðgerðarverkstæði
annaðhvort einir eða í sam-
vinnu við önnur bæjarfyrir-
tæki, svo og eigin verkstæði
til yfirbygginga,
Nýlr tekfustofnar
Bæjarstjórn Reykjavíkur
vill vekja athygli stjómar-
valdanna á þeirri staðrejmd,
að úrgjaldabyrði bæjar- og
sveitarfélaga hefur á síðari
ámm verið þyngd í sífellu,
án þess að þeim hafi, nokkuð
sem nemur, verið séð fyrir
nýjum tekjustofnum til að
mæta útgjöldunum. Eru þvi
útsvörin svo að segja einu
tekjur hæjar- og sveitarfélag-
anna, en takmörk fyrir þvi
hvað unnt er að leggja á al-
menning með þeim hætti. Bæj-
arstjórnin telur því óhjá-
kvæmilegt, að bæjarfélögunum
séu skapaðir nýir tekjuöflun-
armöguleikar, er létt geti út-
svarsbyrðamar og skorar á
Alþingi að finna hið fyrsta
leiðir að því marki.
Viitnuaflið fil fram-
leiðslusiarfa
Bæjarstjóm ályktar að fela
stjórn Ráðningarstofu og hag-
fræðingi bæjarins að afla upp-
lýsinga bæði um hve margir
Reykvíkingar starfa nú við
framkvæmdir hins erlenda her
liðs og vinna önnur störf í
þágu þess svo og hve margir
em á framfæri þeirra. Enn-
fremur að" gera tillögur til
bæjarstjórnar um hverjar ráð-
stafanir séu tiltækastar fyrir
bæjaryfirvöldin til að t.ryggja
þessum Reykvíkingum næga
atvinnu við framleiðslustörf.
tlfboð á feenzíni og oliu
Bæjarstjórnin ályktar að
fela bæjarráði að láta rann-
saka hver er heildarbenzín-
og olíunotkun Reykjavíkur-
bæjar og láta síðan fara fram
opinbert útboð á öllu benzíni
og allri olíu, sem bærinn þarf
að kaupa. Felur bæjarstjóm
bæjarráði að ákveða nánari
tilhögun útboðsins.
Hsgkvœmari reksiur
bæjas ©g bæjarstofnana
Vegna þeirra stórfelldu
hækkana sem verða á rekst-
ursreikningum bæjarsjóðs og
bæjarstofnana frá ári til árs,
og með tilliti til þess, að lagt
er til að útsvör bæjarbúa
hækki á næsta ári um liðlega
40%, þykir bæjarstjórninni
sjálfsagt og eðlilegt að allt
rekstursfyrirkomulag bæjar-
Frh á 10 síðu.