Þjóðviljinn - 24.12.1955, Blaðsíða 9
Laugardagiir 24. desember 1955 —•. ÞJÓÐVILJINN — (9
Það vakti ekki mikla at-
hygli í önnumköfnu síldar-
þorpf, þegar spurðist lát gam-
allar konu einn sólskinsdag í
sumar.
— Fram í þorpinu blöktu
fjórir fánar í hægum sunnan-
þeynum ofan við skarkala
þorpsins og runnu saman við
bláan fjallgarðinn út með
ströndinni. —
En fannhvít sildarskipin ösl-
uðu inn á höfnina. — Það var
ys og þys á öllum síldarplön-
um. — Og verksmiðjan spúði
hvítum reykjarmökkum yfir
þorpið — það var sannarlega
mikið að gera. —
— Enginn virtist hugsa um
þessa gömlu bóndakonu, er
var horfin af sjónarsviðinu.
— En mitt í þrotlausu erf-
íði sólarhringanna leitar þó
hugurinn til Laugu gömlu.
— Maður er kannski að
velta síldartunnu og allt í
einu skýtur minningin upp
kollinum og þetta er í fyrstu
veikur ómur, en hann verður
sterkari og sterkari og að lok-
um situr eftir lilý minning
um gamla konu, er átti gott
hjartalag. —
— Það var sama þrotlausa
erfiðið, viku seinna, þegar
gamla konan var borin til
grafar. —
— Mér er þó ekki grunlaust
um, að gamla konan hafi ylj-
að fleirum, með sinni hóg-
væru og hiýju minningu, þar
eð þorpskirkjan var þétt skip-
uð fólki, þreyttu og syfjuðu
fólki, sem sat stirt og dofið
á kirkjubekkjunum, eftir erf-
iði og vökur undanfarna sól-
arhringa. —
Allir vildu kveðja þessa
gömlu konu hinztu kveðju.—
Þó var þetta aðeins gömul
sveitakona, án tignar, auðs og
metorða, en hún var búin svo
sönnum mannkostum —
tryggðin, góðvildin og hjálp-
semin í garð náunga síns og
það er kannski vegna þess,
að maður vill ekki gleyma
Laugu gömlu. —
— Kristlaug Guðjónsdóttir
var fædd 24 maí 1872 að Sult-
um í Kelduhverfi. —
— Foreldrar hennar voru
Þorbjörg Sigmundsdóttir og
Guðjón Jóhannesson, bæði ætt-
uð innan úr Aðaldal og
Reykjahverfi — suðurþing-
eyskur uppruni. —
— Kristlaug var næst yngst
þeirra systkina en önnur voru
Kristín gift Guðmundi H. Guð-
mundssyni, bjuggu lengstum í
Kötlu' í Presthólahreppi,
Sveinn og Elísabet, fóru til
Ameríku, og Stefán, er drukkn-
aði ungur í Ásmundarstaða-
vatni. —
— Kristín og Guðmundur
eignuðust þrjú böm, er upp
komu6t. — Friðjón, verka-
maður, var kvæntur Valgerði
Stefánsdóttur —- dó fyrir þrem-
ur árum, Kristmunda, býr í
Krossavík, — móðir hinna
mörgu Krossavíkursystkina og
Halldóra gift Ingva heitnum
Guðjónssyni, jámsmið — bú-
sett hér á Raufarhöfn.
— Á unga aldri missti Lauga
móður sína og flutti þá til
Kristínar systur sinnar, er
bjó þá í Grasgeira — núna
eyðibýli fyrir ofan Raufarhöfn.
— Það var gaman að hlusta -
á frásagnir Laugu gömlu frá
þessum árum, þegar aðeins voru .
tvö hús hér á Höfninni —
Búðin og Lúndshúsið eldra.
Gömul minni
ur
uppmkin við antUát Kristiaugar Guð'
fán&dóttur. Hnufarhöfn
Fædá 24. maí 1872 — Dáin 14. júlí 1955
— Þá var Gránufélagið til
húsa í Búðinni og mundi hún
þá tíð, þegar hún stóð sem
unglingsstúlka, með systur
sinni, fyrir framan búðarborðJ
ið og virti fyrir sér faktorinn
og fábreyttar vörur þessara
hörðu ísára, sem reyndar var
heil auðlegð í augum fátækr-
ar sveitastúlku. —
— Og svo var drukkið kaffi
i Lúndshúsinu — þá vaeð
henni stundum starsýnt á
fölan og grannholda vinnupílt,
er geispaði langt úti í einu
horninu. —
Og húsmóðirin sagði sem
svo:
„Ósköp er að sjá þig, tötr-
ið mitt“.
Síðan snéri hún sér að þeim
systrum.
Það er talið hér fyrir norð-
an, að Presthólar í Núpasveit
sé fyrirmynd að prestsetrinu
í Höllusögum Jóns Trausta,
bæði að innri húsaskip-
un og ytri staðháttum. —
dregið úr Ameríkuför, er var
komin á fremsta hlunn. —
Eíina ménntun .hlaut Lauga
öðrum fremur í þriggja ára
Garðsvist.
— Það var iæknislistin. —
„Nú hefur hann drollað yf-
ir bók í nótt. — Hann þykist
sosum lesa og skrifa, blessað- ^JgJI
ur hálfvitinn“.
— Það var Guðmundur
Magnússon, er síðar kallaði
sig Jón Trausta.
— Sextán ára réði Lauga
sig sem vinnustúlku til séra
Halldórs Bjarnasonar í Prest-
hólum og vann þar hjá klerki
í sjö ár.
— Séra Halldór var bróðir
Guðrúnar Bjamadóttur, er
lengi sat í bæjarstjóm fyrir
íhaldið í Reykjavík, og Páls
Bjamasonar, er lengi gekk
undir heitinu elzti stúdent
á landinu. —
— Þótti klerkur einna mest-
ur málaflækjumaður í allri
Þingeyjarsýslu og stóð í eilífum
erjum við sóknarböm sín. —
— Bændum í Núpasveit
og VestursléttU var flest bet-
ur gefið en hin kristilega auð-
mýkt, þegar landskikar og
jafnvel heilar jarðir voru í
húfi fyrir boðskap kristindóms-
ins.
— Það fór svo um Sigurð
heitinn á Snartarstöðum, að
klerkur stefndi honum á lík-
börunum — —
— Spunnust þessi málaferli
í fyrstu út af beitarréttindum
milli Presthóla og Efrihóla og
var Sigurður heitinn áreiðar-
maður í heiðinni, og dæmdi
Efrihólabændum í vil. —
— Síra Haildór taldi eign
kirkjunnar fomari að rétti og
gekk á ýmsu í sókn og gagn-
sókn, hafði . Snartarstaðabóndi
m. a. óviðurkvæmilegt orð-
bragð um guðsmanninn og
kallaði hann undir vitnum
„slúbbert" —
— Þá tók drottinn af skar-
ið — en klerkur vildi ekki
bíða hins himneska dómstóls —
„Mikið samdi annars séra Hall-
dóri vel við vinnufólk sitt“,
sagði Lauga gamla.
„En hann var harður í við-
skiptalífinu, blessunin".
Kristlaug með fyrri manni sínum Þórarni og elzta syni
pfiirra Halldóri, er dó ungur. — Myndin tekin
á Akureyri 1898.
Það staðfesti gamla kon-
an.
— En hver var þá klerkur-
inn?
— Þá brosti gamla konan
dulárfullt í barm sinn.
Það var ekki meira um það.
— I^nginn skyildi i^Ieyma
vist Laugu hjá Baldvin hómó-
pata i Garði í Aðaldal.
■— Það var merkilegt menn-
ingarsetur og vann Lauga þar
þrjú ár og lærði dönsku.
Þar var þá ungur og fjör-
mikill Möðruvellingur er stund-
aði bamakennslu og kankaðist
á við stúlkurnar — GuðmuncV
ur skáld á Sandi. -— Hann
eignaðist siðar fyrir konu Guð-
rúnu Oddsdóttur, bróðurdóttur
hómópatans, en það var mikil
æskuvinkóna Laugu og skrif-
uðust gömiu konurnar á fram-
í andlátið. —
*
Ekki er mér grunlaust, að
þessi vinskapur iiaíi siðar
Svo var hún innan handar
hjá þessum gamla lækninga-
meistara, að ein fékk hún að-
gang í eldforna kompu, þar
sem lyfin voru brugguð og
meistarinn sat dúðaður fram
á nætur við flöktandi kerta-
ljós og nam listina af gömlum
hauskúpum og rykföllnum,
þykkum ritum á framandi
tungum. —
Þó var hann svo fastheldinn
á helgidóminn, að nánustu
ættingjar fengu ekki aðgang. —
Þama nam Lauga leyndar-
dóma lijá þessurn þingeyska
Faust — enda brást ekki læri-
sveinninn.
— Þau voru orðin mörg
handarvikin hjá önnum kaf-
inni bóndakonu fyrir sjúka
og sorgmædda og var það ekki
ætíð efnaða fólkið, er naut
þessarar aðstoðar ríkulega. —
Sérstaklega var henni sýnt
um sinnisveikt fólk. Sterk lífs-
gleði, létt kímni og umhyggju-
söm mannelska óbrotinnar
..^veij.akonu.
Það var kannski leyndar-
dómurinn ásamt nokkrum for-
múlum yfir íslenzka jurtar-
drykki frá hinum aldna fræða-
þul. —
Tuttugu og sex ára giftist
Kristlaug Þórarni, elzta syni
Guðna bónda Kristjánssonar á
Hóli og einbirni fyrri konu
hans Helgu Þórarinsdóttur.
Það er sagt að Þórarinn
hafi verið hægur maður og
athugull, verkhygginn og bók-
elskur svo sem hann átti kyn
til. —
Guðni faðir hans var elzti
sonur Kristjáns Þorgrímssonar
í Hraunkoti í Aðaldal og fyrri
konu hans Halldóru Guðna-
dóttur og er mikil ætt komin
af þessum þingeyska bónda, ,
sérstaklega í norðursýslunni.
Kristlaug og Þórarinn hófu
búskap i Efrihólum og bjuggu
þar þrjú ár. —
Þar fæddist þeim sonur, er •
var skírður Halldór, en dó >
ungur. *
Sama ár gerðust þau tiðindi
á Hóli, að Guðni bóndi eign-
aðist dóttur, Guðrúnu; er hún
sæmdarkona og búsett á Húsa-
vík, en hvað gerist þá ekki
inn í Hraunkoti í Aðaldal —•
hálfáttræður eignaðist Kristján
ganili son — er það Helgi
bóndi í Leirhöfn, —
— Þannig eignuðust þrir lið-
ir barn á sama árinu og hafa
minni tíðindi gerzt ættfræðing-
um. —
Næst flytja þau Kristlaug og
Þórarinn búferlum að Sigurð-
arstöðum og búa þar tvö ár.
Flytja síðan í Kollavík, en
þar undu þau búskap í 17 ár.
Það hafa sagt mér gamlir
menn, að Kollavík hafi verið
í miðri þjóðbraut milli Mel-
rakkasléttu og Þistilfjarðar og
mikil gestanauð gjarnan mætt
á Þórarni bónda í Kollavík.
En þar var ætíð slík gest-
risni og alúð við þreytta
göngumenn, að slíkt var haft
að orði á þeim árum. Þó hef-
ur líísbaráttan verið hörð
hjá þessum einyrkjum með
stóran barnahóp í nyrztu harð-
indasveit okkar óblíða lands.
— Þórarinn dó árið 1925.
Þeim hjónum varð tíu barna
auðið. Sex dætur komust upp
auk ^innar fósturdóttur, er
gamla konan tók að sér þriggja
mánaða. Þær eru Friðný —
gift Árna . bónda Pálssyni á
Hóli — Helga — gift Einari
Borgfjörð, verkamanni á Rauf-
arhöfn — Þorbjörg — gift
Birni Haraldssyni, hreppstjóra
í Austurgörðum í Kelduhverfi
— Rakel — gift Tryggva Þor-
steinssyni, á Akureyri — Ilulcla
— búsett inni í Reykjahverfi
— Sigríður — gift Sidney
Foster, skrifstofumanni í
Southend-On-Sea í Suður-Eng-
landi og að lokum fósturdótt-
irin Kristin Stefánsdóttir —
gift Kristni Ágústssyni, vél-
stjóra á Kópaskeri.
Eftir lát bónda síns hætti
Kristlaug búskap í Kollavik
og flutti sig innar á strönd-
ina og hóf búskap í Vogi. —
Árið 1928 giftist hún Pétri
Björnssyni og bjuggu þau í
Vogi til 1938.
, . Þau fluttu þá til Raufarhafn-
ar og byggðu lítið hús uppi á
fallegri klöpp, er þaú kölluðu
Kveldblik og er áfast við
húsbyggingu tengdasonar iienn-
Framhald á 6. síðu.