Þjóðviljinn - 04.01.1956, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 04.01.1956, Qupperneq 1
 Inni í blaðinn Kvikmyndaf réttir: 4. síða Hernámsliðið á að „hatcBft uppi lögum og rétti“: ; 6. síða Sálmurinn um blómið: 7. síða ■ ' Miðvikudagur 4. janúar 1956 — 21. árgangur — 2. tölublað Glæsilejíur sisfur íranskra kommúnista Juku þingstyrk sinn um meira en helming Kommúnistaflokkur Frakklands vann glæsilegan sigur í þingkosningunum í fyrradag. í öllum kosningum síðan heimsstyrjöldinni síð- ari lauk hafa kommúnistar verið stærsti flokkur Frakklands og þeir styrktu nú enn þá aðstöðu sína. Þingstyrkur franskra kommúnista efldist þó miklu meira en atkvæðaaukningunni nam, um rúman helming. í þessum kosningum kom á- kvæði kosningalaganna, sem heimilar kosningabandalagi sem fær meirihluta atkvæða að hirða öll þingsætin sem um er kosið, til. framkvæmda í mjög fáum kjördæmum, en í síðustu kosn- ingum bitnaði þetta ákvæði hart á kommúnistum. Hugsjón Mendés-France úr sögunni Sigur kommúnista verður enn meiri þegar þess er gætt, að fyrir frumkvæði Mendés-France fyrrverandi forsætisráðherra var nú gerð ■tilraun til að taka af þeim forustu vinstri aflanna í Frakklandi. Mendés-France myndaði kosningabandalag af þeim hluta Róttæka flokksins sem honum fylgir, sósíaldemó- krötum, vinstri mönnum í hópi Gaúliista og nokkrum smáflokk- um, í þeim yfirlýsta tilgangi að skapa „vinstrimeirihluta án kommúnista“. Kosningaúrslitin sýna, að það er vonlaust verk. Bandalag Mendés-France hafði til samans fengið 153 þingsæti þegar síðast fréttist, eða ein- um tveim sætum meira en konunúnistar einir. Allir flokk- arnir sem að því stóðu töpuðu þingsætum, en komúnistar uku þingmannatölu sína um lielming. Poujade heggur skörð í raðir ílialdsmaiuia Það var frá upphafi ljóst að bandalag Mendés-France gat alls ekki unnið meirihluta á þingi. Hinsvegar töldu ýmsir líklegt að bandalag íhaldsflokkanna, undir forustu þeirra Faure for- sætisráðherra og Pinay utanrik- isráðherra, gæti náð meirihluta í skjóli ránsákvæða kosningalag- anna. Það fór á annan veg. Einungis 13 menn úr þeim MAURICE THOREZ foringi Kommúnistaflokks Frakklands, tek- itr nú aftur virkan pátt í störfum flokks- stjórnarinnar eftir langvarandi veikindi. ..-------- armi róttæka flokicsins sem fyigdi Faure í deilu hans við Mendés- France hafa náð kosningu. íhaldsflókkur Pinay hefur einnig "goldið mikið afhroð. Veldur því "hinn nýi flokkur Poujadista, sem -~rW' Áíall fyrir A-bandaladð Fréttamenn í París segja að hvergi hafi úrslit frönsku kosninganna vakið annan eins harmagrát og tanna- gnístran og í stöðvum yfir- herstjómar Atlanzhafsbanda lagsins. Öttinn við Alþýðu- fylkingarstjórn, sem myndi gera verulegar breytingarl á stefnu Frakklands í utan- ríkismálum og landvama- málum, heltekur bandaríska yfirhershöfðingjann Gruent- er og aðra æðstu menn A- bandalagsins. í Washington og London létu bandariskir og brezkir ráðamenn í ljós þungar á- hyggjur vegna þeirra áhrifa sem kosningaúrslitin kunna] að hafa á samstarf Vestur- veldanna. Poujade á móti öllum en veit ekki hvað hann vill „Ef nýjar kosningar fæm fram á morgun myndi ég fá 300 þingsæti,“ sagði Pierre Poujade í gær við fréttamenn- ina sem eltu hann á röndum hvar sem liann fór í París. Þetta nýstimi á himni franskra stjórnmála er *eitt- hvert kynlegasta fyrirbæri sem þar hefur sést, og er þá langt til jafnað. Fýrir tveim árum Pierre Poujade í rœöustól var Pierre Poujade óþekktur bóksali í smábæ í Suður- Frakklandi. 1 kosningunum í fyrradag vann hreyfing sem hann hefur stofnað og stjómað með einræðisvaldi 49 þingsæti. Hvernig má slíkt ske? Ekki einn einasti fréttamaður í Frakklandi telur sig enn hafa svarað þeirri spurningu til hlítar, en hér skal rakið það helzta sem þeim ber saman um. Síðan heimsstyrjöldinni síð- ari lauk hafa orðið djúptækar breytingar á frönsku atvinnu- lífi. Stórfyrirtæki og smásölu- hringir hafa þrengt kosti smá- fýrirtækja, handverksmanna og smákaupmanna. Jafnframt hafa öþinberar álögur þyngzt vegna hérvæðingarinnar, og nýlendu- stýrjaldaiina i Indó Kína og Norður-Afríku. Franski smáborgarinn hefur alltaf álitið skattheimtumenn ríkisvaldsins erkióvini sína. Poujade fann púðrið þegar honum datt í hug að smáat- vinnurekendur ættu að bindast samtökum um að hindra endur- skoðendur og uppboðshaldara Frh. á 10. siðu. kom öllum á óvart. Poujade 'sjálfur sagði fyrir kosningarnar ’áð hann gerði sér í hæsta lagi 'vonir um að koma að 30 mönn- um, en flokkur hans telur nú 49 menn á þingi. Kaþólski flokkurinn, sem éinnig stóð að hægribandalaginu, tapaði einnig verulega. f fyrstu kosningunum eftir stríð hafði hann næstum því jafn mikið fylgi og kommúnistar. Framhald á 12. síðu. Alger óvissa ríkir um stjórnarmyndun Fréttaritari brezka útvarpsins í París, Thomas Cadet, var dauf- ur í dálkinn í gær. Hann sagði meðal annars: • „Kosningaúrslitin sýna að franska þjóðin er klofnari en nokkru sinni fyrr. Allar getgátur um það, hvernig hægt verði að koma saman þingmeirihluta til að styðja ríkisstjóm, eru jafn mikið út í bláinn.“ Annar fréttaskýrandi í brezka útvarpinu, Eric Ashcroft, kvað Atkvæði, þingsæti Hér fara á eftir siðustu tölur sem bárust í gær um þingstyrk og kjörfylgi frönsku flokkanna. Þingsætatölurnar ná til kjör- dæma þar sem kosnir voru 553 þingmenn. Atkvæðatölumar sýna hvernig atkvæði skiptust þegar búið var að telja 17 milljónir af um 22 milljónum atkvæða sem greidd voru í Frakklandi sjálfu, Ókunnugt er nm úrslit í nýlendum þar sem kosnir eru 43 þing- menn. Kosning fór ekki fram í Alsír, en 30 menn þaðan eiga sæti á franska þinginu. 1 svigum eru til samanburðar endan- legar hlutfalls- og þingsætatölur úr síðustu kosningum, sem fram fóru 1951. Þingsæti Kommúnistar 151 (98) Sósíaldemókratar 93 (105) UDSR (í bandalagi Vinningur eða tap Unnið 53 Tapað 12 Atkvæði 4.300.000 25% (26%) 2.800.000 16% (14%) M-Fr.) Mendés-France róttækir Faure róttækir Kaþólskir Gaullistar Ihaldsmenn Poujadistar Aðrir 7 ( 23) Tapað 16 53 ( 76) . Tapað 10 1.500.000 9% 13 68 ( 85) 16 ( 72) 96 (139) 49 ( 0) 7 (11.5%) 400.000 2,4% Tapað 17 2.000.000 12% (12%) Tapað 56 800.000 4,2% (17%) Tapað 43 2.500.000 14% (18%) Unnið 49 2.000.000 12% ( 0%) þrjá möguleika fyrir hendi. í fyrsta lagi að breyta kosninga- lögunum, taka upp einmennings- kjördæmi, rjúfa þing og kjósa á ný. Hann taldi útilokað að meirihluti fengist á þessu þingi fyrir einmenningskjördæmum úr því að fyrra þing felldi það fyrirkomulag. í öðru lagi kvað Ashcroft hugsanlegt að kommúnistar, sós- íaldemókratar og fylgismenn Mendés-France mynduðu nýja Alþýðufylkingu. Ekki taldi hann líklegt að af því ýrði í bráð, en vildi engu spá um það sem gerast kynni eftir nokkra mánuði. í þriðja lagi er sá möguleiki að Faure og Mendés-Fraice éti ofan í sig stóru orðin sem þeir hafa viðhaft hvor um annan í kosningabaráttunni og fylkingar þeirra, eða það af þeim sem nægir til að mynda stjóm, taki höndum saman. Á þvi að slíkt megi ske eru mikil vandkvæði. ekki er hægt að gera sér í hugar- lund hvemig sósíaldemókratar og íhaldsmenn, sem báðir yrðu að standa að slíkri stjóm, gætu komið sér saman um stjómar- stefnu. Nú verður innan skamms að taka úrslitaákvörðun um stefnuna í Alsír. Annaðhvort verður að hefja algera styrjöld gegn sjálfstæðishreyfingunni þar eða taka upp samninga Við hana. Franskir landnemar í Alsír og íhaldsmenn á franska þinginu mega ekki heyra samningaleíðina nefnda. Hinsvegar hafa sósíal- demókratar og aðrir stuðnings- menn Mendés-France svarið þess Framhald á 12, síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.