Þjóðviljinn - 05.01.1956, Page 7
Itilefni af því sem lesa má
í blöðum undanfama daga,
að búið sé að ákveða stað fyr-
ir væntanlegt ráðhús Reykja-
vikur í Tjörninni norðanverðri,
finn ég mig knúinn til að senda
þeim aðilum sem að þessu
standa fáein aðvörunarorð i
fyilstu vinsemd, meðan það enn
er ekki of seint. Ég býst reynd-
ar við því, að sprenglærðir
sérfræðingar og sómakærir
valdamenn telji sig ekki þurfa
að gefa gaum orðum leikmanns
í þessu efni; einnig að þeir
andstæðingar „kommúnista“,
sem standa fyrir Tjarnarhug-
myndinni, þykist of reyndir í
faginu til að ljá eyru aðfinnsl-
um „úr þeirri átt“. En því er
til að svara, að ég fæ hvorki
séð að mál þetta þurfi að vera
Jlokkspólitískt né sé það í eðli
sínu, enda sný ég orðum mín-
um alveg eins til þeirra sósíal-
ista sem annarra, er veitt hafa
samþykki sitt ofangreindri ráð-
stöfun.
’jC’g vil þá fyrst og fremst
biðja hina hugsjónaríku
Tjamarráðhúsmenn að reyna
að skyggnast andartak fram
í tímann, staldra við stutta
stund undir suðurvegg Alþing-
ishússins og ímyrda sér, að bú-
ið sé að reisa húsbákn það
sunnanvert við Vonarstræti,
sem ráðgert er með samþykki
þeirra. Gerum ráð fyrir, að
þetta sé á sólbjörtum sumar-
degi og borgin og umhverfi
hennar í sínu fegursta skrúði.
Hvað blasir þá við augum okk-
ar, sem stöndum þarna innan
um leifarnar af þinghúsgarð-
inum? : ;
Jú; margt hefur breytzt frá
því sem áður var — og sumt til
batnaðar, mikil ósköp. Búið er
að rífa öll hús fyrir sunnan
Alþingishúsið og Dómkirkjuna;
gcmla Gúttó er horfið, sömu-
leiðis Iðnó og aðrir nálægir
timburhjallar. Svæðið milli
Oddfellowhússins og Lækjar-
götu er óbyggt (Er þó ekki
sem okkur sýnist Iðnaðarbank-
inn gnæfa þama?); nokkuð af
því er slétt og hellulagt torg,
en sumstaðar grasreitir og
blómabeð, auk áðurnefndra
leifa af þinghúsgarðinum. Mest-
an hlutann hafa menn þó
neyðst til að taka undir bíla-
stæði.
Allt er þetta kannski gott og
blessað svo langt sem það nær.
Gömlu byggingarnar máttu svo
sem hverfa, og einhverstaðar
verður að hafa bílana. En hvað
er það sem blasir við fram-
undan okkur og veldur því, að
þrátt fyrir sumarblíðuna og
sólskinið er engu líkara en við
stöndum hér í forsælu? — Það
er steinbáknið sunnan við Von-
arstræti, þetta blessaða ráðhús,
pi*ýðilegasta bygging út af fyr-
3r sig (vonandi), en af skamm-
sýni og næsta furðulegi'i fljót-
fæmi sett á stað, þar sem
aldrei hefði átt að reisa hús. —
Sólin blindar augu okkar, þeg-
ar við vilju-.n athuga það nán-
ar, því enda þótt skuggarnir
af byggingunni nái næstum al-
veg þangað sem við stöndum,
er birtan þó það mikil ofanvert
við húsið og á bakvið það,
að húsið sjálft, forhlið þess
og línur .(„með öndvegissúlur
í svipnum“ samkv. tillögu borg-
arstjórans), hverfur í sinn eig-
inn skugga, því það snýr und-
an sólu — gegnt norðri. Torg-
ið framanvið, þar sem áður var
Fimintudágur 5. janúar 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Bæjarstjorn Reykjavíkur hefur nú ákveðið einróma að velja væntanlegu ráðhúsi stað
við norðurenda Tjarnarinnar. Ekki eru pó allir jafn ánœgðir með pá ákvörðun eins
og sjá má af grein peirri sem hér birtist. — Reykjavík er eina höfuðborg Norðurlanda
sem ekki hefur ráðhús, og pau eru hvarvetna hinar veglegustu byggingar. Myndin
sýnir ráðhúsið í Osló.
Vonarstræti, garðar og fáein
hús, er einnig í forsælu; sömu-
leiðis leifarnar áf Alþingishúss-
garðinum. En óhagganlegt
stendur ráðhúsbáknið úr því
sem komið er; og tjóar ekki
lengur að deila um það, hvorki
útlit þess og innréttingu né
á sem beztum stað? Svarið
hlýtur vissulega að verða já-
kvætt. En í því sambandi þarf
margt að athuga.
Ég efast ekki um, að sérfræð-
ingar bæjarins og ýmsir aðr-
ir viðkomandi aðilar hafa velt
þessu fyrir sér á marga lund,
Thames — og veitingaskálar
Tívolígarðsins í Kaupmanna-
höfn standa út í síkið og eru
uppljómaðir öll kvöld, svo
dæmi séu nefnd. Þetta er „af-
skaplega sætt“. Og það væri
svo sem nógu gaman að eiga
myndarlegt hús við tjörn,
MAR: _ Forhliðin í skugganum
- ákvörðun bæjarstjömarmnar
hvemig það sé í sveit sett,
því þarna er það niður kom-
ið og mun standa þar bjarg-
fast um aldur og ævi.
En okkur langar til að virða
húsið betur fyrir okkur (það
hafði nefnilega verið svo anzi
fallegt frá Tjörninni séð), og
göngum því norðurfyrir þing-
húsið og nyrzt út á Austur-
völl til að athuga „prófíl“
þess þaðan. Og hvað sjáum
við? — Að þrátt fyrir ýms
mistök og fljótfærni hafa ráða-
menn bæjarins haft vit á að
varðveita (alltént ennþá) forn-
menjar eins og Dómkirkjuna
og Alþingishúsið, og við reyn-
um að gera okkur ánægða með
það. — En hvernig njóta þau
sín nú, þessi gömlu lágreistu
hús í skugga ráðhússins, —og
hvernig nýtur sjálft ráðhúsið
sín að baki þeim? Kannski
vefst okkur tunga um tönn.
En svo mikið er víst, að í
hjarta okkar sannfærumst við
um það, þótt seint sé, að hús-
bákn sem þetta .hefði aldrei
átt að reisa norðanvert við
Tjörnina, hvorki ráðhús né
annarskonar hús.
En hrindum frá okkur þess-
ari leiðinlegu draumsýn
um stund og minnumst þess, að
enn — á áramótiim 1955—’56
— hefur ekkert hús verið reist
á staðnurh, þrátt fyrir nýgerða
samþykkt; að enn er hægt að
snúa við frá þeirri afleitu hug-
mynd.
Menn munu spyrja: Hvað
skal þá taka til bragðs? Eru
ekki allir sammála um, að
ráðhús þurfi að reisa og það
enda hafa komið fram tillög-
ur um ekki færri en 16 staði
fyrir þetta væntanlega tákn
og sentralbyggingu sjálfrar höf-
uðborgarinnar. Einhverntíma
var líka í dagblöðum birtur úr-
dráttur úr greinargerð skipu-
lagsnefndar fyrir því, hvaða
staðir kæmu til múla, og bent
á kosti þeirra og galla. En það
væri ekki vanþörf á að fá þá
greinargerð birta aftur, og helzt
óstytta. Fleiri en jafnvel ráða-
mennina grunar hafa áhuga á
þessu máli, og of seint er fyrir
bæjarstjórnina að koma með
einhverja slíka greinargerð sér
til afsökunar, þegar byrjað er
að reisa húsið eða jafnvel bú-
ið að því og engu verður um
þokað lengur.
Hvað Tjarnarhugmyndina
snertir hefur hún tvímæla-
laúst eitthvað sér til máls-
bóta, endaþótt fleira sé hitt,
sem mælir á móti henni, eins
og ég hef þegar bent á að
nokkru leyti og mun gera bet-
ur sxðar. Það er ofur skiljan-
legt, að menn langi til að
byggja glæsilega höll á vatns-
bakka (Flestir sem hugsa sér
ráðhús í Tjörninni sjá það víst
ekki nema frá þeirri hliðinni,
því miður), og segja má
kannski, að ekki sé nema til-
tölulega iítill hluti Tjarnarinn-
ar skertur þótt stórbygging
sé reist í vikinu norðanvert.
Erlendis tíðkast að reisa hús
við tjarnir, ár og jafnvel sjáv-
arstrendur: ráðhúsið í Stokk-
hólmi steildur við Malaren og
er upplýst með kastljósum á
kvöldin; Westminsterhallirnar í
London standa á bökkum
sömuleiðis uppljómað á kvöld-
in (kannski með gosbrunni í
tjörninni). En er ekki fleira,
sem gefa verður gaum í þessu
sambandi, virðulegu herrar,
hvort sem þið nú eruð heldur
íhaldsmenn, sósíalistar eða
eitthvað þar á milli? — Gef-
ið ykkur tóm til að hugsa
málið nánar, og ég hygg, að
þið mynduð ekki samþykkja
Tjarnarhugmyndina öðru sinni.
rátt fyrir allt sem bollalagt
hefur verið og athugað í
máli þessu á undanförnum ár-
um, jafnvel áratugum (a.m.k.
annað slagið), kemur hin nýja
samþykkt bæjarstjórnarinnar
manni fyrir sjónir eins og bráð-
lætiskennt flan: allt í einu skal
ákveða, hvar ráðhúsið skuii
standa, og allt í einu skal það
standa einmitt þarna. Gunnar
Thoroddsen borgarstjóri, sem
af ýmsum er talinn hafa list-
rænan sans, svo sem hann
á kyn til, er forgöngumaður
tillögunnar nú. Verkfræðingar
hafa sagt já og amen: undir-
staðan er nógu traust; húsið
mun ekki sökkva, ekki einu-
sinni hallast; Tjörnin mun að
visu minnka, en það verður
bætt upp með því móti að
stækka hana annarsstaðar;
ekkert er auðveldara en að
leggja niður Vonarstræti og
Skothúsveg, tvær af þeim sára-
fáu umferðaræðum milli Aust-
ur- og Vesturbæjar; — en auk
þess stóð bær Ingólfs Arnarson-
ar á þessum slóðum!!
Flest er nú tínt til. Ég veit
ekki betur en að ósannað sé
með öllu, hvar bær Ingólfs
stóð; sumir nefna Grjótaþorp-
ið, aðrir Arnarhól, enn aðrir
„kvosina milli Tjarnarinnar og
sjávar“, og er þá ekkert lík-
legra en að hann hafi staðið
þar sem nú er Sjálfstæðis-
húsið. Og er það ekki gott
og blessað? Eigum við ekki
alveg eins að segja það? Er
nokkuð sennilegra, að hann 1
hafi verið þar sem nú er'
tjörn — og verið ’nefur tjörn,
svo lengi sem sögur fara af?
Ef þeim ágætu mönnum, sem
bera svona fyrir brjósti sögu-
helgi þess bæjarhluta sem þeir
vilja eyðileggja, tækist að
,-Janna það óhrekjanlega að
Ingólfur Arnarson hafi reist
bæ sinn einmitt á Tjamar-
bakkanum, þá skyldi ég bera
mikla respekt fyrir þeim, senni-
lega ljá þeim atkvæði mitt
við næstu bæjarstjórnarkosn-
ingar. —
En í alvöru talað: Ég held,
að hæpin og uppáþrengd sögu- 1
frægð eins bæjarhluta sé ekki
heppilegur röksemdagrundvöll-
ur, þegar um skipulag nútíma-
borgar er að ræða.
Og er þá röðin komin að
öðrum „röksemdum" þeirra
Tjamarmanna. , .
Iræðu á fundi bæjarstjórnar
s.l. fimmtudag rakti borg-
arstjóri allýtarlega sögu ráð-
hússhugmyndar, allt frá Tóm-,
ási Sæmundssyni og fram á
þennan dag. Þetta hefur áreið-
anlega verið mjög fróðleg tala„
en að sama skapi raunajeg
hvað það snertir, að enn ér
ekkert ráðhúsið reist. Eftir
sögulega greinargerð sem þessa,
sem óefað hefur verið prýði-
lega flutt eins og borgarstjóra
er von og vísa, er ekki að
undra þótt bæjarfulltrúar
rumskuðu og fyndist nú þurfa
að hraða ráðhúsbyggingu „mál-
' ) .JvVíl.
efnisins vegna“, eins og einn
■ i':íí :ri
fulltrúinn komst að orði.
með leyfi að spyrja: Er svö
bráðnauðsynlegt að hraða þeim
framkvæmdum, að grípa þurfi
til þess að velja stað þar sém
fyrst þarf að rífa 4—5 hús
(síðar fjölmörg önnur til að
rýmkva umhverfið) og fylla
upp vatn — til þess síðan að
grafa grunn (!?) — heldur éh
reisa húsið t. d. á áður ó-
byggðu svæði? Ég held ekki,
þrátt fyrir ágreining hingaðtil
um aðra staði. Ég held, að all-
ir hljóti að vera því mótfalln-
ir aðrir en þeir sem eru sama
sinnis í verkhyggju og þeir
óforsjálu molbúar, sem reistu
gluggalaust hús og reyndu að
bera sólskinið inn í trogum,
og kannski þeir „verkfræðing-
ar“ sem hvað eftir annað þurfa
að lála rífa upp nýlagðai göt-
ur sökum þess þeir hí>fa
„gleymt“ að ganga frá leiðsl-
um í þær í tæka tíð.
Það er einnig mikill missldln-
ingur að ætla að gott og blessað
sé að reisa ráðhús i Tjarnar-
vikinu endaþótt verkfra >ing-
um komi saman um að undir-
staðan þar sé nægilega traust.
Segjum, að það sé rétt reikn-
að. En það eitt er enganveg-
inn fullgild ástæða fyrir að
velja þann stað — og engin
afsökun heldur, þegar urn aðra
staði er að ræða.
Sný ég þá nánar að umræð-
um fulltrúanna.
Alfreð Gíslason kveður of
þröngt vera fyrir ráðhiis
Framhald á 10. síðu.