Þjóðviljinn - 05.01.1956, Síða 10

Þjóðviljinn - 05.01.1956, Síða 10
ÍQ) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 5. janúar 1956 Forhliðin í skugganum ■itX Framhald af 7. síðu. £ miðbænum. Það er nú svo. Ég mun gera tilraun til að taka :það atriði nánar fyrir i fram- haldi þessarar greinar og læt það því bíða. En þar sem Al- freð talar um aukna skerðingu Tjamarinnar í framtíðinni, sem menn geri sér almennt enga grein fyrir nú, hefur hann áreiðanlega lög að mæla. Af tæpl. 100 þúsund fermetrum hennar myndi ráðhúsið kannski ekki taka nema 2300 ferm. En það yrði líka það allra minnsta — og aðeins upphafið. Hver getur ábyrgzt, að einhvem- tíma þyki ekki nauðsynlegt að gera nýja uppfyllingu, jafnvel skrúðgarð, sunnanvert við ráð- húsið? Væri slík ráðstöfun ó- hugsanleg? Er vitað nema breikka þurfi Tjarnargötu og Fríkirkjuveg enn frá því sem nú er? — Nei, skerðing Tjarn- arinnar er ekki ráðleg, nú fremur en áður, sízt af öllu undir byggingar og að nauð- synjalausu. Núverandi borgar- stjóri væri fullsæmdur af því að taka heldur upp merki fyr- irrennara síns Knud Ziemsen, þess mæta manns, sem við Reykvikingar eigum það að þakka, að Tjörnin var varð- veitt og ekki byggt á svæðinu sunnanvert við hana. Knud Ziemsen var það nefnilega ljóst, eins og svo mörgum öðrum, að ekki má byrgja það víð- emi sem opnast manni suður af Vonarstræti, hvorki með byggingu í viki Tjarnarinnar né fyrir suðurenda hennar. Enda þótt ráðhúsmálið hafi ver- ið á döfinni um mörg undanfar- in ár, er engu líkara en að hin ákveðna og skyndilega tillaga borgarstjóra hafi komið bæjar- fulltrúum að óvörum á vissan hátt, eftir undirtektum þeirra að dæma. Margir fulltrúanna eru að sjálfsögðu menn sem lít- inn áhuga og skilning hafa á skipuiagsmálum, hvort heldur er einstakra bæjarhluta eða húsa. Ég er næsta viss um, að borgarstjóri sjálfur hefur meira hugsað um þau efni en hinir flestir, enda láta þeir hér und- an honum, er hann lætur til skarar skríða, — gleyma meira að segja allri pólitík af hrifn- ingu. En undirtektir fulltrú- anna bera einnig vott um þreytumerki; — þeir eru orðn- ir dauðleiðir á því að standa í frekara þrefi um ráðhús; og endaþótt þeir hafi sumir hverj- ir haft einhverjar hugmyndir áður um annan stað fyrír það, rétt eins og skipulagsnefnd, láta þeir nú gott heita að hlýðnast borgarstjóra. — í fyrsta iagi segir hann verk- fræðinga fullyrða, að grunnur- inn sé traustur (samt eru nú víst einir 16 metrar niður S ,,fast“); í öðru lagi er staðurinn fallegur, jafnvel söguríkur; í þriðja lagi þarf að „hraða ráðhúsbyggingu“, og í fjórða lagi er málið ekki póli- tískt, — „aðeins“ dálítið fag- urfræðilegt smekksatriði. Hversvegna skyldi maður þá ekki samþykkja tillögu borgar- stjórans eftir hans ágætu ræðu? I þessum staðrejmdum ligg- ur svarið. Málið hefur alls ekki verið hugsað til þrautar enn, þrátt fyrir ailt. Menn hafa ekki nennt því; og ekki nennt að bíða lengur. Þeir sem einhvern áhuga hafa haft á því að finna ráðhúsinu annan stað, gugna og reynast skammsýnir þegar til kastanna kemur, endaþótt þeir kunni að vera allir af vilja gerðir til að sýna virðing- arverðan framkvæmdahug. Ef einhver skyldi ætla, að bæj- arstjóm sé það afsökun í þessu sambandi að enn hefur ekki verið samþykkt neitt heildar- skipulag af miðbænum, þá er það ekki svo, heldur einmitt hið gagnstæða. Tillaga Guð- mundar Vigfússonar varðandi hugmyndasamkeppni um skipu- lag miðbæjarins er áreiðanlega mjög tímabær, og má furðulegt heita að engum öðrum hefur áður komið til hugar að bera slika tillögu fram á bæjar- stjórnarfundi — og enn furðu- legra ef því verður ekki sem fyrst komið í verk sem í til-<v lögunni felst, helduf allt lát- ið dankast enn um ófyrirsjá- anlegan tíma. Maður skyldi þó ætla, að ákvörðun um skipu- lag þessa bæjarhluta væri enn brýnni en bygging ráðhúss, ekki hvað sízt ef slíkt hús á að standa í gamla miðbænum eða í grennd hans. En gleymum svo ekki því, að mikið hefur verið rætt — og einnig ritað — um tilfærslu ekki heyrt um það enn, að ákveðið sé að leggja hann niður fyrst um sinn. Og á meðan hann er við lýði, iilu heilii, er tæplega hægt að ráð- gera margra hæða hús sunn- an Vonarstrætis. — Eða hvað finnst ykkur? Vel má vera, að hinn fyrir- hugaði Gunnarshólmi í viki j Tjarnarinnar kynni að standa af sér straumþunga væntan- legra bygginga umhverfis, líkt og nafni hans í Þverá eystra hefur þraukað þrátt fyrir á- gang vatns og veðurs; sjálf- sagt yrðu húsin í þessu gamla | hverfi reist með tilliti til hans í framtíðinni. Höfuðborgin | myndi líka verða einni stór- byggingunni ríkari, óneitanlega.; En ætli hún myndi ekki á hinn bóginn einhvers missa við? — Athugið þetta emi einu sinni,1 kæru samborgarar. Hér er eng- in skönun að því að hika. Kom- andi kynslóðir myndu verða ykkur þakklátar. Elías Mar % RÍKISINS Esja sentrum höfuðborgarinnar austur um land til Akureyrar Mnn 11. þ.m. Tekið á móti Reyðarfjarðar, austur á bóginn, jafnvel aust urfyrir núverandi byggð. Ekk- Norðfjarðar, ert er sennilegra en að slík tilfærsla sé eða verði nauðsyn- flutningi til Fáskrúðsfjarðar, Eskifjarðar, Seyðisfjarðar, Þórshafnar, Raufarhafnar, Kópaskers og Húsavíkur í dag leg í framtíðmni. Mun ég Qg ^ morgun. Farseðlar seldir á þó ekki lengja mál mitt með mánudag. Skaftfellingur Vörumóttaka í dag. því að ræða það atriði hér. En ef svo yrði —hvað ætti þá að gera við „ráðhús“ í Tjöm- inni? Breyta því í íbúðir handa húsnæðisleysingjum, kannski? . . ...... í . fer til Vestmannaeyia í kvold. austar í bæjarlandinu hafa menn látið sér koma til hug- ar ýmsir aðrir staðir fyrir ráð- hús. Nefnd hafa verið t. d. Klambratún og svæðið við Háaleiti. En stuðningsmenn þeirra staða og annarra hafa sem sagt fallið frá þeim til- lögum nú. Ekki vegna þess að þeir séu allt í einu orðnir svo hrifnir af Tjamarhugmyndinni (og það var jafnvel sjálfur Gunnar Thoroddsen ekki hér áður fyrr, ef ég man rétt); þeir taka það beinlínis fram, að það séu þeir ekki, þótt þeir hafi nú samþykkt hana — hangandi hendi, eíns og ég hef áður nefnt, og er ofur skilj- anlegt. Skyssa bæjarstjómar og skipulagsnefndar er nefnilega sú, að þessir aðilar hafa flýtt sér að staðsetja ráðhús fyrir Reykjavík, áður en búið er að ákveða — í fyrsta lagi: hvar! miðbærinn skuli yfirleitt vera I í framtíðinni og í öðru lagi:| skipulag þess miðbæjar, hvar svo sem hann verður. Þetta eru vinnubrögð, sem ég! tel að vægast megi kalla bráð- lætiskennt flan. A ð lokum: Skyldu þessir að- ilar svo hafa gert sér grein fyrir því, hvað stórhýsi fyrir Tjarnarendánum hlyti að tor- velda lendingu á einni af aðal- brautum flugvallarins? Það er þó atriði sem vert er að gefa gaum. JMaður ..hefur nefnilega, jRafmagns-samlagningavélar Taka 99.999.999.99 í útkomu Beinn frádráttur, Kreditsaldo Tveir. gluggar eru á vélinn, sem sýna jafnóðum útkomu og hvað stimplað er hverju sinni. Verð kr. 3900,90 Sama vél, handknúin Verð kr. 2850,00 Raimagns-ritvélar m/tugadálkastilli, sem er ómissandi við alla skýrslugerð og reikningskrift, gleiðletursstillingu sjálfvirkum valsi og sjálfvirkri undirstrikun. Verð kr. 7.600,00 og 7200,00 Skrifstofu-ritvélar m/24—62 om valsi tugadálkastilli fyrir skýrslugerð og reikningaskrift, valsinn má taka af og láta annan á, stærri eða minni eftir ástæðum. 5 línubil gleiðletursstilling 6 ásláttarþungar. Verð frá kr. 3290,00 Ferðáritvélar 4 ásláttarþungar. Leturarmana má taka úr og láta í með einu hand- taki, þannig að hafa má á sömu vélinni nær öll tákn og stafi, sem hver og einn óskar. Verð kr. 1505,00 RHEINMETALL verksmiðjurnar í Þýzkalandl eru stærstu skrifstofuvélaverksmiðjur í Evrópu. RHEINMETALL vörur eru heimsþekkt gæðavara. RHEINMETALL hefur áratuga reynslu á tslandi. Athugið að ofangreint verð hækkar vegna hækkunar á bátagjaldeyri þegar næsta sending kemur (nema ferðaritvélar). B0RGARFELL h.f. Klapparstíg 26 — Sími 1372 ÚTSALA Iívenskór ★ Karlmanna- skór A ALLSK0NAR SKÓFATNAÐI Barnaskór ■éM Gómmískó- fatnaður Skóverzlun Þórðar Péturssonar & Co. Aðalstræti 18

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.