Þjóðviljinn - 14.01.1956, Side 5
Laugardagur 14. janúar 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (5
r fá nýtt
í barátt
B S S oi
uhnn
nýja lyfiS bœfir úr
reynzf
Nýtt lyf hefur gefið mjög góða raun viö lækningu á
sykursýki. Með því er glúcagon-hormóninu, sem brisiö
gefur frá sér, haldið í skefjum í blóöinu og sykurinnihaldi
blóðsins um leið haldið niðri.
Sænskur læknir. dr. Bo And-
ersson, birti nýlega grein í
Svenska Liikartidningen, þar sem
hann segir frá reynslu sinni af
þessu nýja lyfi. Sykursýki hefur
verið talin stafa af því að bris-
ið framleiddi of lítið insúlín,
sem nauðsynlegt er til að líkam-
inn geti hagnýtt sér sykurinn
í hlóðinu. En brisið framleiðir
einnig hormónið glúcagon og
læknar hafa upp á síðkastið ver-
ið að komast á þá skoðun, að of
mikið glúcagon i blóðinu geti
verið höfuðorsök sykursýkinnar.
I
Góður árangur
Nú segir þessi sænski læknir,
að á sjúkrahúsi því sem hann
Starfar á hafi hið nýja lyf, BZ
55, sem er þýzkt og súlfanomíd-
tegund, verið gefið tíu sykur-
sjúkum mönnum með góðum ár-
angri, en það dregur úr glúcagon
innihaldi blóðsins, sem áður seg-
ir.
Ekki fullnægjandi skýring
Þegar kanadísku læknunum
Branting og Best tókst að fram-
lelða fyrsta nothæfa insúlínið á
árunum 1921—1922, héldu menn
að fullnægjandi skýring væri
fengin á orsökum sykursýkinnar
og afleiðingum og einnig full-
komið læknislyf við henni: Sjúk-
dómurinn stafaði af insúlínskorti.
En brátt kom í ljós að þessi
skýring var ekki fullnægjandi.
Það gerði t. d. strik í reikning-
inn, að áhrif insúlíngjafar á
Sjúklinga voru mjög mismun-
andi. Sjúklingar sem þurftu
Stóra skammta af insúlíni, gátu
t. d, hætt að nota insúlín án
þess að missa meðvitund. Hins-
vegar voru einnig dæmi um það,
að menn sem gátu haldið sjúk-
dómnum í skefjum með mjög
litlum skömmtum af lyfinu,
þoldu ekki að vera án þess og
misstu meðvitund þegar þeir
tóku það ekki.
Uppgötvun sem mönnum
sást yfir
Þegar skömmu eftir að insú-
íínið var framleitt, eða árið
1923, var gerð merk uppgötvun,
sem læknum sást þó yfir þá. í
•■■■■■■■■■■■■■■■■■■aMauBaaaaaaaaftMBBavuaaMsa
Enn f jölgar
glæpum í USA
Á siðasta ári voru framdir í
Bandaríkjunum 2.255.000 meiri
háttar glæpir — þ. e. fjórir á
mínútu að jafnaði. Frá þessu
segir í skýrslu frá yfirmanni
sambandslögreglunnar FBI, J.
Edgar Hoover. Ofbeldisárás-
um, þifreiðaþjófnuðum og
umferðadrápum hefur fjölgað
i mjög frá árinu áður.
«■■■■■■■■ ■«■■■!
brisinu fannst efni sem verkaði
andstætt við insúlín, þ. e. jók
blóðsykurinn i stað þess að
minnka hann. Það var ekki fyrr
en á árunum 1928—1937 að gerð-
ar voru ýtarlegar rannsóknir á
þessu blóðsykuraukandi efni, sem
kaliað var glúcagon og reyndist
síðar meir vera hormón.
Það líktist mjög insúlíninu
að kemískri byggingu og það var
því mjög erfitt að skilja efnin
í sundur. Árið 1946 tókst þó
dönskum vísindamönnum að
framleiða insúlín, sem var al-
gerlega laust við glúcagon og nú
hafa Svíar t. d. framleitt glúca-
gon, sem er alveg laust við
insúlín.
Breytingar í brisinu
Insúlínið er framleitt af frumu-
hópum í brisinu sem kallaðir
eru „Langerhans-eyjar“. Þetta
eru svonefndar: beta-frumur, en
aðrir frumuhópar, sem svonefnd-
ar alfa-frumur mynda, framleiða
aftur á móti glúcagonið. Komið
hefur í Ijós að hlutfallið milli
þessará tveggja frumutegunda er
nær alveg fast í heilbrigðum
mönnum, en í sykursjúkum
breytist það og fjölgar þá alfa-
frumum á kostnað beta-frum-
anna.
Skýringin er talin 'vera sú, að
offramleiðsla af glúcagoni valdi
því að betafrumurnar auka fram-
leiðslu sína af insúlíni. Þetta
aukna álag á betafrumurnar ríð-
ur þeim að fullu og afleiðingin
verður að líkamann fer að vanta
insúlín. Þessi efnaferli virðast
taka skamman tíma i börnum,
enda hefur komið í ljós, að í
fuHnœgjandi,
jbess
sykursjúkum börnum finnas'
stundum aðeins alfa-frumur.
Insúlínbirgðir
í eldra fólki
Hinsvegar virðist roskið fóll
og gamalt þola þessi efnaferl
án þess að verða meint af og m
því ætla, að það liafi mikla
varabirgðir áf insúlíni, segir di
Andersson. Þetta nýja lyf hefu
sama mátt og kóbolt til að Ú1
rýma alfafrumunum, en hinsvep
ar ekki eiturverkanir þess. Þa
er því hægt að nota það t.il þes
að koma á aftur jafnvægi mil1
alfa- og beta-frumanna í bri:
inu og þar með stuðla að jafr
vægi milli alfa og beta-frumann
í brisinu og þá um leið at
jafnvægi milli insúlíns og glúca-
gons í blóðinu.
Kemur ekki í stað
insúlíns
Það er ekki hægt að nota hið
nýja lyf í staðinn fyrir insúlín,
sykursjúkum mönnum verður að
gefa insúlín eftir sem áður. En
BZ 55 er nýtt vopn gegn sykur-
sýkinni og getur orðið upphaf
þess að hún verði algerlega sigr-
uð.
Houand /cejur nyceya yejiö Sameinuou pjoounmii svo-
nefndan Foucault-pendúl, sem sýnir snúning jaröarmnar.
Pendúllinn er 100 kílóa pung gyllt kúla sem hangir i 17
metra löngum stálprœði og sveiflast í síféllu yfir rafsegli
sem vegna snúnings jarðar snýst hœgt réttsœlis. Hann
fer eina umferð á 36 klukkustundum og 45 mínútum og
er pað í samræmi við hnattstöðu New York borgar par
sem aðalbœkistöðvar SÞ eru. Rafsegullinn myndi fara
umferðina á nákvœmlega einum sólarhring á heimskaut-
unum, en hreyfast hins vegar ekki á miðbaugi jarðar.
Pendúllinn er nefndur eftir franska eðlisfrœðingnum Jean
Foucault, sem sannaði með slíkum pendúl árið 1951 í
Pantheon í París ,aðjörðin snýst um öxul sinn.
ISB'i'
Hvetur þá til oð láta af andstöSu sinni gegn
alþýSustjórninni og leggja henni US
Titul Petrescu, fyrrv. formaður sósíaldemókrataflokks-
ins í Rúmeníu, hefur ritað blaðinu Scanteia í Búkarest
bréf, sem það birtir. í bréfinu skorar hann á fyrri flokks-
félaga sína, sem nú dveljast í útlegð, aö snúa heim og
taka þátt í uppbyggingu sósíalismans.
Það mun ekki líða langur
tími, varla meira en tvö-þrjú
ár, þar til tannlæknar geta bor-
að í tennumar én þess að sjúk-
lingurinn finni fvrir því.
Þetta segir danskur tann-
læknir, Dreyer Jörgelisen, í við-
tali við Land og Folk. Hann
skýrði frá því að smíðaðir hafa
verið nýir harðir málmborar
sem vinna mildu fljótar en þeir
sem nú eru notaðir svo að sjúk-
lingurinn verðúr minna var við
þá. Hann sagði ?ð menn væru
að hverfa frá tilraunum með
hina svonefndu „köldu bora“,
en leituðu í aðrar áttir. M.a.
hefði verið reynt að blása dufti
á tannflötinn, svonefnd „air
dent“ aðferð, og gerðar hafa
verið tilraunir með plötu sem
látin er titra svo ört að sveifl-
umar verða 30.000 á sekúndu.
Þessar tilraunir hafa gefið svo
góða raun, að búast má við að
kvalalaus tannborun verði al-
menn eftir tvö-þrjú ár.
í blöðum sósíaldemókrata á
vesturlöndum hefur það marg-
sinnis verið fullyrt, að Petres-
cu væri ,,fórnarlamb“ kommún-
ista. Hann barðist á sínum
tíma ■ gegn alþýðustjórninni í
Rúmeníu og sameiningu verka-
lýðsflokkanna og var þá rekinn
úr sósíaldemókrataflolcknum.
Hann kemst m.a. svo að orði
í bréfi sínu:
— Sem sósíalisti verð ég að
viðurkcnna þann árangur sem
náðst hefur í Rúmeniu, enda
þótt við hefðum heldur kosið að
aðrar leiðir hefðu verið farnar.
Eins og allir aðrir ólilutdrægir
áliorfendur verð ég að viður-
kenna, að afrek verkalýðsins í
iðnaðinum, rafvæðjugunni og
uppbyggingunni leggja grund-
völl að nýrri, auðugri og ham-
ingjusamari tilveru.
„Kemur ykkur sjálfsagt
á óvart“
Verkamenn og bændur Rúm-
eníu hafa sýnt i verki, að
kleift var að byggja á skömm-
um tíma upp sósíalismann í
landi okkar, enda þótt margir
okkar hefðu talið það ófram-
kvæmanlega draumsýn. I dag
hlýt ég að fallast á að Verka-
lýðsflokkur Rúmeníu hefur
fylgt réttri ste'nu.
Þessi breytta afstaða mín
gagnvart núríkjandi stjórnar-
fari í Rúmeníu kemur nokkrum
af fyrri félögum rnínum sjálf-
sagt á óvart — þar á ég fyrst
og fremst við þá vini mína,
sem dveljast hinum megin
landamæranna. En ég held ekki
að það geti talizt furðulegt að
sósíalisti taki slíka afstöðu,
miklu heldur er sá stórfelldi
sósíalistíski árangur furðuleg-
ur sem hefur n"ðst í Rúmeníu.
Það er eina skýringin á þess-
ari nýju a stöðu minni, sem
ég mun ekki hvika frá.
Ég beini orðum mínum til j
vina minna í útlöndum, sem ef
til vill hafa búizt við annars
konar orðsendingu frá mér. Ég
vænti þess að þeir láti sér
•skiljast, að þjóð okkar er núj
að byggja upp nýtt þjóðfélagj
án okkar, og að það er skylda
þeirra að snúa heim til föður-
landsins til að leggja þjóð sinni
lið í þessari baráttu hennar.
Sem sósíalisti og föðurlands-
vinur sný ég mcr til ykkar,
vina minna og flokksfélaga, og
skora á ykkur að hætta við
þá iðju sem þið hafið stundað
hingað til og engan árangur
getur borið. Hún brýtur í bága
við hagsmuni þjóðar okkar nú
og í framtíðinni. Ég skora á
ykkur að snúa baki við þeim
sem skilja eklri rás sögunnar.
Stjórnarvöld alþýðulýðveldis-
ins bera engan hefndarhug
i ykkar garð eða annarra. 1
ykkar hópi eru menn sem hafa
orðið fyrir miklu mótlæti,
stundum að óverðsku'duðu. En
manni verður að skiljast, að
Við slíkar sögulegar aðstæður,
þegar gífurlegar breytingar em
að eiga sér stað, eru mistölc
óhjákvæmileg. Við skulum
gleyma því sem liðio er. Við
skulum hor'a fram á veg, fram
til sósíalismans, sem öreigarn-
ir í landi okkar eru að fram-
kvæma.
Ég lýk máli mínu með því
að skora enn á ykkur, vini
mína og félaga, að snúa aftur
heim til ættmanna ykkar og
átthaga og fullvissa ykkur um,
að þið þurfið ekki að óttast
neina hefnd. En haldið þið á-
fram starfi ykkar gegn landi
okkar, þá hafið þið vitandi vits
og án nokkurs vafa geugið í lið
með ^apítalistunum.