Þjóðviljinn - 18.01.1956, Síða 5

Þjóðviljinn - 18.01.1956, Síða 5
Miðvikudagur 18. janúar 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (5 VerSnr Paasikivi áfram Finnlands- forseSi? flrslií kjörmannakosning- anna kunn í dag Mikil þátítaka var í forseta- kosningunum í Finnlandi báða dagana, og var þó víða erfitt um kjörsókn vegna vetrarveðurs, einkum í Suður-Finnlandi. Kosnir voru 500 kjörmenn, sem koma eiga saman 15. febr. og kjósa forsetann. Kosningaúrslit verða kunn í dag. Þóttu horfur á því að Kekkonen sem er rfambjóðandi Bændaflokksins og Fagerholm, frambjóðandi Sósíaldemókrata fengju álíka mikið fylgi og væri | Þá víslast að flokkar þeirra kæmu sér saman um þriðja mann, og þá helzt núverandi Finnlandsforseta, Paasikivi. I lok síðasta mánaðar hélt bandarískur söngleikflokkur, ,Everyman’s Opera“, frum- ýningu á óperu Gershvjins yorgy og Bess í Sovétríkj- num. Frumsýningin fór am í menningarhöll sam- bands handiðnaðarmanna í eníngrad og vakti m.ikla rifningu áhorfenda. Síðan efur leikflokkurinn haldið ýningar á óperunni í íoskva, Kieff og víðar í lovétríkfunum. — Á annarri nyndinni sést. forstjóri Ip.ik- lokJcsin.s, Robert Breen clytja rœðu fyrir frumsýn- 'nguna, en á hinni pakka á- horfendur hinum banda- rísku gestum.. Flugumaður Sjangs Kajséks kom fyrir vítisvél í flugvél Brezku stjómarvöldin í Hongkong hafa krafizt að fá hann framseldan Stjórn Sjangs Kajséks hefur neitað að framselja mann, sem kom fyrir vítisvél í indverskri flugvél, sem flutti hátt setta kínverska embættismenn á Bandungráðstefnuna og fórst á leiðinni þangað. Frá þessu er sagt í opinberri Skýrslu sem brezku stjórnar- völdin í Hongkong liafa gefið út. Flugvélin hrapaði yfir Kyrra- hafi í apríl í fyrra og fórust 16 menn, þ.á.m. kínverskir emb- ættismenn og blaðamenn, sem voru á leið til ráðstefnunnar í Bandung. Tæpar 2 millj. í verðlaun Menn grunaði strax að um skemmdarverk hefði verið að ræða og nú segir í greinargerð brezku stjórnarvaldanna í Hongkong, að kinverskur flug- vallarstarfsmaður, Sjá Sjú, hafi játað að hann hafi komið fyrir vítisvél í flugvélinni samkvæmt tilmælum frá stjórn Sjangs Kaj- séks á Formósu, sem lofaði að greiða honum tæpar 2 milljónir króna fyrir verkið. Brezka stjómin hefur snúið sér til stjómar Sjangs Kajséks og beðið hann að framselja þennan mann, sem flúði til Tai- vans, meðan rannsókn málsins stóð yfir, en stjórn Sjangs hef- ur neitað að verða við þeim til- mælum. Gervitungl sent út í geintinn þegar i ór? Sovézkir vísindamenn senda dýr upp í há- loftin fil að undirbúa geimfarir Sovézkum vísindamönnum hefur heppnazt að senda mörg dýr, apa og hunda, upp í háloftin og koma þeim aftur lifandi til jarðar. Sovétríkin búa sig undir að auka viðskipti við S-Ámeriku Vilja selja þeim margskonar i&naSarvörur og kaupa í sta&inn landbúna&arafurBir Viðtal sem Búlganín, forsætisráðherra Sovétríkjanna jhefur átt við suðm’amerískt tímarit, Visao, hefur vakið mikla athygli. í viötalinu lýsir Búlganín yfir, að Sovét- |ríkin séu fús til aö efla mjög samvinnu og viðskipti við í'íki SuÖur-Ameríku, en þau hafa hingað til aðeins haft stjómmálasamband viö þrjú þeirra. Viðtalið fer hér á eftir. Dýrin voru send upp í geiminn til að vísindamenn gætu gert sér grein fyrir hvaða áhrif slíkt ferðalag muni hafa á mennina sem fyrstir verða til að leggja í Slíka ferð, en undirbúningi að geimferðalögum er langt komið í Sovétríkjunum. Allskonar mæiitæki voru einnig send upp í háloftin og á þeim mátti lesa ýmsar mikilvægar upplýsingar þegar þau komu til jarðar aftur. Gervitungl sent út í geiminn þegar í ár Einn af forvígismönnum geim- fararannsókna í Sovétríkjunum Meinlegt línubrengl varð í tmdirfyrirsögn hér á síðunni í gær. Undirfyrirsögnin átti að Mjóða þannig: „Lífskjör verka- tnanna bætt um 30% og bænda ttm 40%, stálframleiðslan aukin Wpp í 60 milljónir lesta“ prófessor Pokrovskí, skýrir frá því áð sovézkir vísindamenn þú- izt við að geta þegar í ár sent gervitungl út í geiminn. Banda- rískir vísindamenn hafa reiknað með að þeir þyrftú enn tvö ár til undirbúnings áður en þeir gætu sent gervitungl út í geiminn og virðast Sovétríkin því vera kom- in skrefi lengra en Bendaríkin á þessu sviði. Sex menn drepnir í BomS)ay Sex menn létu lífið í Bombay í gær er lögregla skaut á kröfu- göngu, sem farin var til að mótmæla ríkisstjórnarráðstöfun um stjórn borgarinnar. Hafði verið ákveðið að borgin skyldi heyra beint undir ríkis- stjómina og mótmæltu borgarbú- ar því kröftuglega. — Hafa Sovétríkin í hyggju að taka upp stjórhmálasamband við þau ríki Suður-Ameríku, sem þau hafa ekki slíkt samband við nú? — Sovétríkin eru að sjálf- sögðu fús til að taka upp stjórn- málasamband við þau riki Suð- ur-Ameríku, sem þau hafa ekki slíkt samband við nú. Við er- um fylgjandi því að samvinna sé aukin milli allra ríkja, eipn- ig ríkja Suður-Ameríku Viðskipti auglýst vandlega — Hvaða hag hafa Sovétrík- in af því stjórnmálasambandi sem er milli þeirra og Arg- entínu, Mexikó og Uruguay? — Samband Sovétríkjanna við Argentínu, Mexikó og Uruguay eru að okkar áliti báðum að- ilum í hag. Það auðveldar sam- vinnu milli þessara ríkja um verndun og eflingu friðarins og stuðlar að bættum efnabags- og menningartengslum milli Sov- étríkjanna og þessara ríkja. Við- skipti miili Sovétríkjanna og Argentínu hafa þannig aukizt verulega undanfarið. Búast má við því að tengsl okkar við ríki Suður-Ameríku muni eflast í framtíðinni, öllum aðilum til gagns og í þágu bættrar sam- vinnu á alþjóðavettvangi. Engin íhlutun í inn- anríkismál — Hvaða tryggingu geta Sov- étríkin gefið fyrir því að þau muni ekki hlutast til um inn- anlandsmál ríkja Suður-Ame- ríku? — Sovétríkin hluatst ekki til um innanlandsmál annarra ríkja og telja heldur ekki, að önnur ríki eigi að hlutast til um inn- anlandsmál Sovétríkjanna. Utan- ríkisstefna Sovétríkjanna bygg- ist á virðingu fyrir fullveldi allra þjóða, stórra og smárra, á viðurkenningu á rétti allra þjóða til þjóðfrelsis og óháðr- ar þróimar. Friðsamleg • sambúð Búlganín og vinsamleg sámvinna millí rikja, við hvaða stjórnarhætti sem þau búa, er mikilvægasta ! undirstöðuatriði utanríkisstefuu okkar. Allt þetta á að sjálfsögðu við um afstöðu Sovétríkjanna gagn- vart ríkjum Suður-Ameríku. Vilja auka viðskipti — Hafa Sovétríkin í hyggju að auka viðskipti sín við ríki Suð- ur-Ameríku og ef svo er, hvaða ráðstafanir verða gerðar í því skyni? Framhald á 10. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.