Þjóðviljinn - 25.01.1956, Page 5
Miðvikudagur 25. jam'tar 1955 — ÞJÖÐVILJINN — (5
r á vesftsrlÉicliffi venna m
Tœplega 2 millfónír stúdenía stunda nú
nám þar, - vhmdaframfögín auksn um Vs
Blöð á vesturlöndum, einkum í Bandaríkjunum, lá.ta í
Ijós áhyggjui' út af hinni öru þróun vísinda og tækni í
Sovétríkjunum, eins og hún kemur fram 1 síöustu fjár-
lögum Sovétríkjamna og hinni nýju fimm ára áætlun.
1 sáðustu fjárlögum Sovét-
ríkjanna, sem samþykkt voru á
ftíndi Æðstaráðsins í síðasta
mánuði, er gert ráð fyrir að
auka fi-amlög til vísindarann-
sókna um fimmtung. Árið 1956
verða þessi framlög aukin um
13.600 milljón rúblur (um 55.
000 millj. ísl. kr.) frá því sem
þau námu í fyrra,
Tæplega 2 millj. stúdentar.
1.865.000 ungir menn, karlar
og konur, stunda nú ném við
háskóla og verkfræðiskóla í
Sovétríkjunum og nú ljúka ár-
Eden á iiirum
til USA
Brezka þingið kom saman
! gær að loknu jólaleyfi. Fyrsta
málið á dagskrá var hvitbók rík-
isstjórnarinnar um sölu aflóga
brezkra skriðdreka til Egypta-
lands. Þeir Eden forsætis-
ráðherra og Lloyd utanríkis-
ráðherra voru viðstaddir upp-
ihaf umræðunnar, en síðdegis
lögðu þeir af stað til South-
ampton, þar sem þeir fara um
borð í skipið sem á að flytja
þá til Bandaríkjanna til við-
ræðna við Eisenhower foriftta.
Heimastjórnar
Waies krafizt
Heimastjóm handa Wales og
Bérstakt þing er krafa fimm
ÍVerkamannaflokksþingmanna er
Bitja á brezka þinginu fyrir
kjördæmi í Wales.
Þeir hafa skorað á flokks-
bræður sina á þingi að rita
nöfn sín undir ávarp, þar sem
!þess er krafizt að Wales fái
Bjálfstjórn í eigin málum en
engin breyting verði á tengsl-
um atvinnulífsins þar við aðra
hluta Bretlands.
Flokksmenn Verkamanna-
flokksins í Wales og Skotlandi
hafa lengi barizt fyrir því að
flokkurinn taki sjálfstjórn fyr-
£r þessi lönd upp á stefnuskrá
sina en hefur lítið orðið ágengt.
lega um 200.000 háskólanámi. í
Ökraínu einni eru nú t.d. 133
háskólar og verkfræðiskólar þar
sem 325.000 stunda nám. Það
eru þannig fleiri stúdentar i
Ökraínu en í Frakklandi,
Belgíu, Hollandi, Sríþjóð, Dan-
mörku, Noregi, Grikklandi og
Tyrklandi samanlögðum.
Mildar áhyggjur í IVanda-
ríkjunum.
Sérfræðingui- bandaríska
blaðsins New York TSmes um
sovézk málefni, Harry
Schwartz, segir af þessu tilefni:
„Hin öra. fjölgun á útlærðum
visindamönnum og verkfræðing-
um í Sovétríkjunum hefur vakið
áhyggjur í Bandaríkjunum að
undanfömu. Saana máli gegnir
um framfarir Sovétrikjanna í
tækni, sérstaklega hernaðar-
tækni, svo sem í smíði vetnis-
sprengna og fjarstýrðra eld-
flauga.“
Finun ára rannsóknir óþarfar.
Schwartz nefnir dæmi sem
sýnir að það getur verið Banda-
ríkjamönniun dýrt að fylgjast
ekki með því sem gerist d vís-
indum og tækni í Sovétrikjun-
um. Einn af prófessorum tækni-
stofnunarinnar i Massachusetts,
Locke, komst að þvi að banda-
riskir •vósindamenn höfðu eytt
fimrn árum og 200.000 dollurum
i rannsóknir, sem löngu höfðu
verið gerðar í Sovétríkjunum
með góðum árangri.
Locke segir að árið 1950 hafi
birzt grein í sovézku visinda-
tímariti, þar sem sagt var frá
rannsóknum sem leiddu til
lausnar á ýmsum mikilvægum
vandamálum í sambandi við raf-
leiðslur. Bandarískum vísinda-
mönnum hafði sézt yfir þessa
grein og voru allt til ársins
1955 að glíma við þessi verk-
efni.
Betri verkfræðimenntim..
Schwartz staðhæfir eimug, að
sovézkir verkfræðistúdentar fái
betri menntun í námsgrein sinni
en bandarískir. Hami nefnir
sem dæmi að á öllum námstím-
anum séu kemislustundir í
tæknigreinum 20% fleiri í
Sovétríkjunum en í Bandaríkj-
unum.
Verkfræðinámið í Sovétríkj-
unum er mjög sérhæft og nær
ekkert annað kennt en náms-
greinin sjálf. Þó verða stúdent-
amir að lesa eitt erlent tungu-
mál og ljúka námskeiði í þjóð-
félagsvísindum.
Frakkar heims-
meisfarar í brids
Frönsk sveit vann heims-
meistarakeppnina í brids sem
lauk í París i síðustu viku.
Sveitin, sem áður vann Evrópu-
meistarakeppnina, vann banda-
ríska sveit með 54 Evrópustig-
um eftir sex daga keppni þar
sem spilaðar voru 22 gjafir.
Eftir bandaríska stigakerfinu
unnu Frakkamir með 4540 stig-
um.
Mikil aukning fiskveiða í
Sovéfríkjunum
í hinni nýju fimm ára áætlun Sovétríkjanna er gert
ráð fyrir að stórauka fiskveiðar á næstu fimm árum eða
mn 57%. Ráðgert er að fiskaflinn verði árið 1960 sam-
tals 4,2 millj. lesta..
Til þess að ná þessu marki verður lögð ndkil áherzla
á smíði fiskiskipa með kæliútbúnaði og fljótandi síldar-
verksmiðja. Einnig er ætlunin að aúka mjög hvalveiðar
og verða smíðuð anörg hraðgeng hvalveiðiskip og stór
móðurskip. Þá verður smíðaður fjöldi dieselknúinna flutn-
ingaskipa, 5—10.000 lesta og olíuskip, 20—25.000 lesta.
Brigitte Bardot heitir hún og
' cr talin ein efnilegasta unga
I (20 ára) leikkonan í frönskum
kvikmyndum. Ekki vantar hana
jndisþokkann.
I september í liaust tekur fyrsta arðbæra kjarnorkuraf-
stöðin í Bretlandi tíl starfa. Það er 50.000 kíióvatta stöð
í Calder Hall. Hér á myndinni sést gufuketill sem verið
er að smíða í stöðina.
«ii*iiiiiimiiaiiMiiiiHimfiHHiiiuiiimi»minHiMiii»u»Hii»u»aiuiia»uiii»>
Adenauer að missa meiri-
hluta í sambandsþingimi
Ágreiningurinn milli tveggja stærstu
stjómarílokkanna íer stöðugt vaxanai
Ágreiningurinn milli tveggja stærstu stjórnarflokk*
anna í Ves tur-Þýzkalandi, Kristilega lýöræðisflokksins og
Frjálsa lýðræðisflokksins, fer stöðugt vaxandi og eru nú
horfur á að ríkisstjórnin missi meirihluta sinn í efri deild
vesturþýzka þingsins.
Að undanfömu hafa staðið
yfir samningar milli stjómar-
flokkanna um ný kosningalög í
landinu. Kristilegi lýðræðisfiokk-
urinn, flokkur Adenauers, leggur
á það mikið kapp að lögunum
verði breytt, þannig að hætt
verði við hlutfallskosningar, en
í staðinn tekin upp einmennings-
kjördæmi. Með slíku fyrirkomu-
lagi telur flokkurinn sig geta
Olíuskip sprakk í
loftupp
Bandarískt 10.000 lesta olíu-
skip, Salem Maritime, sprakk í
loft upp í síðustu viku í höín-
imii í Lake Charles í Louisiana-
fylki í Bandarikjunum þar sem
það var að taka benzín. Um 20
menn af áhöfninni fórust í
sprengingunni.
Börnum leyft að horf a á af-
tökur í Bandaríkjimum
14 ára drengur horfði á að dauðadæmdur
maður var líílátinn í rafmagnssíól
Eiginmaður og fjórtán ára gamall sonur konu sem myrt
var í ágúst 1954 í Columbia í Bandaríkjunum voru á
föstudaginn viðstaddir aftöku 32 ára gamals manns sem
dæmdur var til að láta lífið í rafmagnsstól fýrir morðið.
fengið örug'gan meirihluta á
þingi i næstu kosningum, eri
hinsvegar myndu samstarfs-
flokkar hans í ríkisstjóminní
nær þurrkast út.
Geugu ekki að
máiainiðliinartillögu
Flokkar Adenauers hefur þesa
vegna ekki getað reitt sig á
stuðning hinna stjóirnarflokk-
anna í þessu máli og' hefur því
gert þeim það boð, að lögunum
verði breytt þannig, að þrír
fimmtu þingmanna verði kjöm-
ir í einmenningskjördæmum, en
tveir fimmtu hlutfallskosningum.
Viðræður um þessa málamiðl-
unartillögu hafa staðið undan-
farið milli fulltrúa stjórnarflokk-
anna tveggja, en þeim er nú
lokið án nokkurs samkomulags.
Missir Adenauer
meirihluta?
Horfur eru á að þessi ágrein-
ingur geti leitt til þess að Aden-
auer missi meirihluta í efri deild
þingsins. Stjórnir hinna einstöku
fylkja sambandslýðveldisins
kjósa fulltrúa í efri deildina,
sambandsþingið, og nú hafa leið-
togar Frjálsa lýðræðisflokksins
gefið í skyn að þeir muni hætta
samstarfi við hina borgara-
flokkana í fjórum fylkjum og
mynda fylkisstjórnir með sósíal-
demókrötum í staðinn.
Hinn dæmdi, . Henry Leo
Boone, hélt því fram til síðustu
stundar að hann væri sakiaus.
Sönnunargögn voru ekki óyggj-
andi í málinu, en hinsvegar var
hinn dæmdi af svertingjaættum.
Úg er viss um að hann var
sekur og verðskuldaði að láta
lifið, sagði eiginmaðurinn, Grov-
er Webb, eftir aftökuna. Fjórtán
ára sonur hans, Johny, sagði
að hún hefði ekki fengið hið
minnsta á sig.
Hiiin dauðadæmdi lýsti yfir
skömmu áður en straumnum var
hleypt á: „Annar maður lætur
mig taka út refsingu fyrir afbrot.
sem ég á enga sök á. En ég
treysti drottni, sem veit allt
bezt.“
Þ|óðiiýting
í Indlandi
Fjármálaráðherra Indiands
tilkyrmti í gær, nð stjórniu
hefði ákveðið að þjóðnýta öll líf-
tryggingafélög í landinu. Væri
þetta mikilvægt skref í átt til
algerðrar þjóðnýtingar á öllun*
peningastofnunum, sagði ráð-
herrann. ^