Þjóðviljinn - 31.01.1956, Page 1

Þjóðviljinn - 31.01.1956, Page 1
VILJINN Inni í blaðinu: Baráttumaðnr heiðraður 7. síða. Breytingartillaga við fjárlögin 3. síða. Þriðjudagur 31. janúar 1956 — 21. árgangur — 25. tölublað Nö dugar ekkert minna en að bið vinnandi iólk taki stjórnartanmana í sínar hendur Kauphækkcmirnar í vor námu adeins 30-40 þeirra skatta sem nú er verið að leggja á þjóðina ,,Eg veit að það má heita einróma álit verka- manna að nú sé kominn tími til að rísa til varnar. Og nú þarí að gera meira en að leggja til verkíalls íyrir hækkuðu kaupi til þess að dugi. Nú ætti það að vera ljóst hverjum manni, að það dugar ekkert minna en að hið vinnandi íólk taki höndum saman til þess að taka stjórnartaumana í sínar hendur." Þannig komst Brynjólfur sem orðin var — gæti réttlætt Bjarnason að orði i eldhúsdags- þessar nýju árásir: leggja á. Oliuliringarnir einir saman mundu leikandi geta greltt þessa kauphækkun alla af tveggja ára gróða. Greiðslu umræðunum í gær, en Lúðvik Jósefsson og hann hófu umræð- urnar' sem fulltrúar Sósíalista- flókksins. Ræddi Lúðvík sér- staklega úm hinar nýju og ó- hemjulegu álögur ríkisstjómar- innar. Sýndi hann fram á að hér væri ekki aðeins um að ræða einhverja stórfelldustu árás sem gerð hefði verið á lífskjör vinn- andi fólks á íslandi heldur efna- hagslegt glapræði sem draga myndi enn meiri ófögnuð á eftir sér. Sýndi hann fram á hvemig það væru milliliðimir sem hirða arðinn af útgerð á íslandi, og því bæri að leysa vanda útvegsins á kostnað þeirra. Rakti hapn ýt- arlega tillögur sósíalista um það efni og eru þær birtar hér á öðrum stað í blaðinu. Brynjólfur rakti í ræðu sinni <í> styrjöld valdhafanna gegn fólk- inu á undanförnum árum, þar til nú er svo komið að skattar einir saman sem lenda á alinenn- ingi nema ekki minna en 27 þús- «nd krómun á hverja fimm jnanira f jölskyldu, og eru þó ekki meðtaldir stighækkandi skattar. Ræddi Brynjólfur sérstaklega þá falskenningu að nauðvörn verka- lýðsfélaganna í vor — kaup- hækkunin sem aðeins bætti upp hluta af þeirri kjaraskerðingu „Sú staðhæfing, að kaup- liækkanirnar í vor eigi sök á þessum ráðstöfunum, er svo mikil firra, að furðulegt er að slíkt skuli kinnroðalaust borið á borð fyrir vitiborna menn. Þegar kaup lækkar um 20—30% og aðeins lítill hluti þessarar kauplækkunar vinnst aftur, hvernig er þá hægt að halda þvi frarn að kaup- liækkun eigi sök á vandræð- unum? Hvernig getur lækk- audi kaupgjald átt sök á verðþenslu í þjóðfélaginu? Öll kauphækkunin í vor verka- mönnuin til handa mun ekki hafa numið hærri upphæð, iniðað við eltt ár, en sem svar- ar um það bil 30—á0% þeirra skatta, sem nú er verið að Brynjólfur Bjarnasön afgangur rikissjóðs nálgast það að nema sömu upphæð og öll kauphækkunin í vor. Og aðeins litill hluti kauphækk- unarúuiar lendir á útgerðinni. Jafnvel íörmaður Framsókn- arflokksins lýsir því yfir í árainótagrein sinni, að kenu- ingin um að kauphækkanirn- ax eigi sök á verðþenslunni sé firra ein og fjarstæða. Hver heilvita maður veit að hin skefjalausa verkhækkun er orsök kauphækkunarinnar en ekki öfugt.“ I síðari hluta ræðu sinnar sýndi Brjmjólfur fram á að vinstri samvinna ein, heiðarlegt samstarf vinnandi fólks, er eina ráðið til þess að tryggja nýja stjómarstefnu í samræmi við hagsmuni almennings. Ræddi liann frumkvæði Alþýðusam- bandsins, undirtektir verklýðsfé- laganna og óbreyttra kjósenda i vinstri flokkunum öllum og til- raunir hægri mannanna í Fram- sókn og Alþýðuflokknum til að torvelda að af sliku samstarfi gæti orðið. Lokaorð hans voru þessi: „Alþingi er nú þannig skip- að að þeir sem þangað hafa komizt ó atkvæðum vinnandi manna til sjávar og sveita eru þar í meirihluta. Það er því ekki eftir neinu að bíða fyrir þá, sem raunverulega vilja und- anbragðalaust samstarf alþýð- unnar í landinu og vinstri rík— isstjórn á þeim grundvelli. Það er hægt að gera strax. Afstaða manna til stjómar- myndunar nú er því prófsteinn- inn á það, hvort þeir vilja raunverulega vinstri stjóm eða ekki, hvort þeim er alvara, þegar þeir segjast vera and- stæðingar íhaldsins, eða hvort þeir fara með fals eitt. En í öllu falli má það ekki koma fyrir, að þegar til kosninga kemur, hvenær sem það verð- ur, að þá gangi fulltrúar al- þýðunnar sundraðir til þeirra. Það er líísnauðsyn. fyrir ís- lenzka alþýðu og raunar fyrir íslenzku þjóðina alla að breyta skipan Alþingis, svo að þar verði raunverulegir vinstri menn í meirihluta, sem gangi heils hugar til samstarfs við alþýðusamtökin. Það verður að lýsa hvern þann varg í véum, sem reynir að koma í veg fyrir það samstarf, eða skerst úr leik. Og hvenær sem íslenzk alþýða verður kvödd að kjör- borðinu, þá verður hún að sýna það svo ekki verði um Framhald á 5. síðu. Cpaullistar ekkl mcð 1 dag skýrir franski sósíal- demókrataforinginn Guy Mollet þinginu frá . stjórnarstefnu þeirri, sem hann mun fylgja ef liann fær umboð þingsins til stjómarmyndunar, og birtir væntanlegan ráðherralista sinn. Ráðherrarnir eru nær allir sós- íaldemókratar eða úr róttæka flokknum. 1 gær lýsti Chaban- Delmas, foringi vinstri anns fyrrverandi gaullista, yfir að flokkur sinn myndi ekki taka við þeim tveim ráðherraemb- ættum sem Mollet bauð hon- um. Eru þeir fiokksmenn and- vígir stefnu forsætisráðherra- efnis í málum Alsír. Ékki er búizt við að atkvæði verði greidd fyrr en á morgun um stjómarmyndun Mollet. • • AUÐFELOGIN GREIÐISKATTANA Sósialistar leggja til oð milliliSirnir skili útgerS- inni aftur hluta af gróSa sinum í>ingmenn sósíalista, þeir Karl GuAjónsson og Lúðvík Jósefsson, báru í gær fram á þingi sérstakar tillögur um að felld skuli niður hin stórfellda skattheimta afturhalds- flokkanna, en í staðinn skuli fjár þess sem útgerðina skortir aflað með því að skattleggja nokkra milliliði og gróðabrallara, og sé þeim óheimilt að velta skattinum af sér með ver'ðhækkunum. Tillögur sósíalista um tekj- ur í framleiðslusjóð vegna út- flutningsins em á þessa leið: ★ Árið 1956 skulu Landsbanki Islands og Útvegsbanki ís- lands li.f. greiða skatt til írainleiðslusjóðs, sem sam- tals neinur 25 milljónum króna. Skattuppliæðin skipt- ist á milli bankanna í hlut- falli við gróða þeirra árið 1954. ★ Árið 1956 skulu eftirtalin olíufélög: Olíuverzlun Is- lands h.f. (B.P.), Oliufélag- ið h.f. og Hið ísienzka. stein- olíuhlutafélag og Shell á ís- landi h.f. greiða sérstakan skatt í framleiðslusjóð. Skatturinn nemi samtals 20 milljónum króna og leggist á félögin í hlutfalli við heild- arsöluveltu þeirra árið 1955. Árið 1956 skulu þau islenzk flutningaskipafélög, sem annast flutninga á íslenzk- um frainleiðsluvörum á er- lendan markað og fiytja vörur til landsins, greiða sér- stakan skatt í framleiðslu- sjóð. Skattur þessi nemi alls 15 niilljónum króna og legg- ist á félögin í hlutfalli við heildarvörumagn það, sem þau fhittu að og frá landinu árið 1955. Árið 1956 skulu öll starfandi vátryggingarfélög í landinu, nema bátaábyrgðarfélög, Samábyrgð fslands á fiski- skipum og Tryggingastofnun ríkisins, greiða framleiðsiu- sjóði sérstakan skatt, sem samtals nemi 10 milljónum króna. Skatturinn ieggist á félögin í sömu hlutfölluin og trysgingariimsetning þeirra var árið 1955. Árið 1956 skal leggja sér- stakan skatt á alla verktaka og verktakafélög vegna verksamninga, sem gerðir eru um verk vegna varnar- liðsins, hvar sem er á land- inu. Skattur þessi skal ná til allra slíkra verka, sem unn- in liafa verið árið 1955. Skatturinn skal samtals nema 15 milljómun króna og leggjast á aðila í hlutfalli við fjárhæð þeirra verka, sein imnin hafa verið. Ríkisstjórnin setur með reglugerð nánari fyrirmæli um álagningu og innheimtu skatta þessara. Óheimilt er öllum þeim, sem skattlagðir eru þannig að telja skatt þaiin sem þar um ræðir, til kostnaðar við vöruverð eða taka á annait hátt tillit til hans við verðákvörðun. Auk þess leggja þeir Karl og Lúðvík til að gjaldeyrisbank- arnir skuli skyldir til að lána sölunefnd innflutningsréttinda bátaútvegsins 26 milljónir kr. til þess að greiða fyrir upp- gjöri á bátagjaldeyrisréttindum. Lánið sé vaxtalaust, en tryggt með veði í innflutningsréttind- um. Skyldan til lánveitingarinn- ar skiptist á bankana i sömu hlutföllum og réttur þeirra til kaupa á gjaldeyri. Rússar í land- helgi við Noreg Norskir tundurskeytabátar tóku í gær fjögur sovézk skip að síldveiðum í norskri land- helgi og fóru með þau til hafn- ar í Álasundi. Einnig var móð- urskip sovézka síldveiðiflotans á þessum slóðum tekið og farið með það til hafnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.