Þjóðviljinn - 12.02.1956, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 12.02.1956, Qupperneq 5
Sunnudagur 12. febrúar 1956 — ÞJÓÐVTLJINN — (5 Hörmungarástand suður í álfu vegna kuldanna Hörmungarástand er nú víöa á meginlandi Evrópu vegna mestu fxosta sem þar hafa komið um mjög langt skeiö. ísinn í Eystrasalti, dönsku sundunum, Oslóarfirði og Katt- egat þykknar stöðugt og er nú víða svo þykkur að jafnvel stærstu skip komast ekki leið- ar sinnar án aðstoðar ísbrjóta. Um 200 skip og bátar í dönsku sundunum hafa beðið um að- stoð, en ísbrjótarnir geta að- eins komið þeim til hjálpar sem verst eru stödd. ís lokar nú öllum helztu höfnum Dan- merkur nema Esbjerg. Leiðangur vísindamanna frá ýmsum pjóðum eru nú komnir til Suðurskautslandsins til að vinna par að rannsóknum á álpjóðlega jarðeðlisfrœðiár- inu. Bandarískir og sovézkir leiðangrar eru vel á veg komnir að búa um sig í bcekistöðvum, en leið- angri brezkii samveldispjóðanna hefur gengið erf- iðlega að koma sér fyrir vegna mikilla ísalaga par sem skip hans lagði að landi. Á myndinni sést stór- skipið Ob, flaggskip sovézka leiðangursins, leggja úr höfn í hina löngu siglingu til suöurhafa. <s>- V. Mælist illa fyrir að láta Brúðu- heimili Ibsens jFara vel” Samtök norskra rithöfunda og kvenna mótmæla tiltæki sænsks leikstjóra Leikritió Brúðuheimilið eftir Henrik Ibsen vakti haröar öeilur fyrir 75 árum þegar þaö var fyrst sýnt, og nú hefur fyrirhugxiö sýning á því í Svíþjóö oröið ágreiningsefni. Leikstjórinn Per Axel Brann- er á að stjórna sýningu á Brúðuheimilinu fyrir. Rikste- atern og hefur hlotið mikið ámæli fyrir að ætla að sýna hið fræga verk í annarri mynd en þeirri, sem Ibsen gekk upp- haflega frá. iÞvdngaður til að skrifa pýjan endi. Branner hefur grafið upp annan endi, þar sem leikritið er látið „fara vel.“ Ibsen gerði pessa breytingu sárnauðugur, þegar þýzkt leikhús tilkynnti jhonum, að ella yrði einhver annar látinn skrifa nýjan endi.' Fyrir 75 árum þorði engin Jjýzk leiklcona að leika Nóru eins og Ibsen hugsaði sér hana I upphafi, konu sem yfirgefur eiginmann og börn þegar henni verður ljóst að hjóna- bandið er farið útum þúfur. Norskir ritkðfundnr mótmæla Fyrirætlun sænska leikstjór- ans að taka upp þýzka endinn á Brúðuheimilinu hefur mælzt illa fyrir. Hefur hann sætt ámæli í sænskum blöðum. Norðmenn eni Branner æva- reiðir fyrir að ætla að vekja upp aftur gamla fölsun á einu kunnasta verki höfuðskálds þeirra. Noi’ska rithöfundafé- lagið hefur farið hörðum orð- um um tiltæki lians og hótar höfundarréttannáli. Sömuleiðis hafa samtök norskra kvenna mótmælt því að Brúðuheimilið sé sýnt afbakað. Aðaifundur Veizlunarmannaíélags Beykjavíkui veröur haldinn í SjálfstæÖishúsinu mánudaginn 20. þ.m. og hefst kl. 20.30. DAGSKRÁ: Venjideg aðalfundarstörf Lagabreytingar. Fundargerð síðasta aðalfundar liggur frammi í skrifstofu félagsins. Félagar sýni skírteini við innganginn. STJÓRNIN. Brezku diplómatarnir Framhald af 1. síðu. leynt því, að hann hafi verið kommúnisti á námsárum sínum í Cambridge. Að lokum segja þeir félagar, að dvöl þeirra í Sovétríkjunum hafi sannfært þá um, að þeir hafi breytt rétt þegar þeir fóru til Sovétríkjanna. Háttsettir embætt- ismenn Þeir félagar voru báðir hátt- settir embættismenn í brezku utanríkisþjónustunni þegar þeir tóku þann kost að fara til Sov- étríkjanna. Maclean var yfirmað- ur bandarísku deildarinnar í brezka utanríkisráðuneytinu, en Burgess var annar ritari í brezka sendiráðinu í Washington. Þeir vissu því meira en flestir menn aðrir um hina raunveru- legu stefnu ríkisstjórna Bret- lands og Bandaríkjanna í utan- ríkismálum á þeim árum þeg- ar kalda stríðið stóð sem hæst. Þéir hurfu að kvöldi 25. maí 1951. Burgess hafði komið heim til Bretlands frá Washington skömmu áður og undirbúið ferðalagið. Samkvæmt skýrslu sem brezka stjórnin gaf út í haust fóru þeir með skipi frá Southamp- ton til St. Malo í Frakklandi og þegar þangað kom, skildu þeir eftir mestallan farangur sinn um borð, en komu ekki aftur að ná í hann. Enginn varð þeirra var í lestinni frá St. Malo til Parísar, en síðar fréttist, að tveir menn sem líktust þeim, hefðu farið í leigubifreið frá St. Malo til Rennes og tekið næturlestina þaðan til Parísar. En síðan frétt- ist ekki af þeim. I Dularfull bréf og símskeyti Þrem dögum síðar uppgötv- aði' brezka utanríkisráðuneytið hvarf þeirra og yar þegar haf- in leit að þeim, en svo virtist sem jörðin hefði gleypt þá. Nokkrum dögum síðar fengu kona Macleans og móðir hans skeyti sem nafn hans stóð und- ir. í ágúst fékk kona Macleans bréf frá honum, og var hans rithönd á því, Það hafði verið póstlagt í þorpi einu í Englandi. Á næstu mánuðum fengu þær fleiri bréf sem vafalaust voru skrifuð af honum, en leit brezku leynilögreglunnar bar engan árangur. Kona Macleans hverfur Nokkrum mánuðum síðar fór kona Macleans ásamt móður sinni og börnum sínum þrem til Genfar í Svisslandi. Brezka leyniþjónustan fylgdist að sjálf- sögðu með ferðum þeirra, en ekkert bar til tíðinda fyrr en um haustið 1953. 11. september það ár sagði kona Macleans móður sinni að hún ætlaði að fara með börnin í heimsókn til gamalla kunn- ingja sem bjuggu skammt frá Montreux. Síðan spurðist ekk- ert til hennar né barnanna, en bifreið hennar fannst í Laus- anne. Þaðan var talið að þau hefðu farið með lest til Austur- ríkis, en ekkert var með vissu um það vitað. Aðeins hlýnaði i veðri sum- staðar á Norðurlöndum í gær, en víðasthvar var jafnkalt og áður og búizt við að enn kólni. Sunnar í álfunni hefur veðr- ið kólnað síðan í fyrradag og víða meira frost en mælzt hef- ur í marga mannsaldra. Þann- ig var í gær meiri kuldi í Prag en komið liefur þar i 180 ár, í Sviss mældist 32 stiga frost og hefur aldrei mælzt meira þar, í Brennerskarði var frost- ið 35 stig. Heldur er hlýrra þegar vestar dregur, en þó kaldara en venjulega á þessum tíma árs, 7-13 stiga frost í Frakklandi og í sólskinsbænum Nice á Rivieraströndinni var í gær 9 stiga frost. Hörmungarástand ríkir viða á meginlandinu vegna kulda og hríðarveðra, einkum í suður- hluta álfunnar þar sem fólk er illa búið undir slíka veðr- áttu. Á suðttr- og miðhluta ítalíu var enn víða blindhríð í gær. Þar eru mörg hundruð þorp án sambands við umheim- inn og hefur verið reynt að senda íbúum þeirra,*sem skipta mörgum tugum þúsunda, mat- væli og eldsneyti með flugvél- um, en hjálparstarfið hefur gengið illa sökum slæmra flug- skilyrða. 75 eru taldir hafa króknað á ítaliu síðustu daga. Svipaða sögu. er að segja frá Grikklandi og ástandið i Frakk- landi er víða ekki mikið betra. Matvælaflutningar til Parísar bæði á landi og eftir Signu hafa teppzt. Island var í gær eina frost- lausa landið í álfunni að und- anteknum Gíbi-altarskaga. Sjómaimalélaci Reykjavíkur Atkvæðagreiðsla um nýgeröa togarasamninga fer fram á skrifstofu félagsins mánudaginn 13. jþ.m. frá kl. 10-12 og 2-6. AtkvæÖisrétt hafa allir togaramenn Sjómanna- félags Reykjavíkur, Sjómannafélags HafnarfjarÖ- ar og Fiskimatsveinadeildar S.M.F. STJÓRNIN. Ú t boð Vafnsveita Reykjavíkur óskar eftir tilboöum í vatnsmæla. Útboöslýsingu má sækja á skrifstofu Vatnsveit- unnar, Skálatúni 2. VATNSVEITUSTJÓRINN.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.