Þjóðviljinn - 15.04.1956, Qupperneq 6
8) — ÞJÖÐVTLJINN — Sunnudagnr 15. apríl 1956
ÞlÓÐVlLllNN
Útgefandi:
Sameiningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurinn
Óstjórn í algleymingi
/Vstjórnin og glundroðinn
sem samstjórn íhalds og
Framsóknar liefur leitt yfir
þjóðina blasir nú við allra
augum. Meira að segja mád-
gagn Framsóknar, Tíminn,
kemst ekki hjá því að viður-
kenna í orði hvernig komið er.
Skýrir blaðið frá því í leiðara
í gær að svo aumt sé ástandið
í gjaldeyrismálunum að fjórir
bændur austur í Flóa fái ekki
flutta inn áburðardreifara
vegna þess að gjaldeyrisleyfi
séu ófáanleg. Tíminn hefði
mátt bæta fleíru við, sem*gef-
ur enn fyllri upplýsingar um
blessun stjórntrfarsins. Síð-
ustu vikur hafa bændur t. d.
gengið v úr vertbin í
leit að girðingarefni en það er
nú ófáanleg vara á Isiandi.
Skortnr á efni til húsbygginga
gerir sífellt meir vart vjð sig.
Er það nú með öllu óþekkt
að ekki skorti langtímum sam-
an ýmsar þær vörutegundir
sem nota þarf við byggingar-
starfsemi og veldur það að
sjálfsögðu margháttuðum ó-
þægindum og beinu tjóni.
IT’n á sama tíma og mönnum
er meinað að kaupa nauð-
svnlegustu áhöld og efnivörur
sem eru í beinu sambandi við
framleiðsluna og aðrar að-
kallandi framkvæmdir í land-
inu svigna búðarhillur verzl-
ananna í Reykjavík og víðar
um land undan þunga hins
furðulegasta glysvarnings og
óþarfasem fluttur er til lands-
ins í stórum stíl fyrir dýr-
mætan gjaldeyri. Þeir sem
þennan innflutning hafa með
höndum raka saman miklum
gróða í skjóli þeirrar „fi'jálsu
verzlunar" sem postuiar
stjórnarfloklcánna hafa prísað
sem eitt sitt mesta afrek. En
samtímis er skortur á gjafd-
eyri til að kaupa áburðardreif-
ara,girðingarefni og bygginga-
vörur svo fátt eitt sé nefnt.
Þannig er stjórnin á inn-
flutnings- og gjaldeyrismálun-
um i höndum íhalds og Fram-
sóknar og þannig er það ,frelsi‘
i reynd sem þessir flokkar
hafa fært þjóðinni.
að er rétt hjá Tímanum í
gær að strand stjórnar-
skútunnar verður ekki lengur
dulio fyrir þjóðinni en jafn-
víst er hitt, að á þessu strandi
og öllum undanfara þess bera
stjórnarfloklcarnir sameigi?i-
lega ábyrgð. Stefna, sjónar-
mið og hagsmunir íhaldsins
hafa ráðið ferðinni sem farin
hefur verið en Framsókn hef-
ur verið því innilega sammála
i öllum greinum. Það er fyrst
þegar óttann við almennt fylg-
ishrun setur að forkólfum
Framsóknar sem þeir velja
þann kost að afneita eigin
verkum og þykjast litlu eða
engu hafa ráðið um stjórnar-
stefnuna. Þeim yfirlýsingum
verður áreiðanlega varlega
trúað af því fólki sem hefur
aðstöðu til að kynna sér
vinnubrögðin á stjórnarheimil-
inu og þekkir einnig brellur
og mánnaiæti foringjanna þeg-
ar kosningar eru í nánd.
Samheldnin vekur ótta
TT'rjáls þjóð birtir í fyrradag
* tveggja. ára gamla tO-
vitnun í Þjóðviljanum, þar
sem gagnrýnd var harðlega
framkoma Hannibals Valdi-
marssonar í sambandi við
stjómarkjör í Dagsbrún.
Morgunblaðið tekur svo þessa
tilvitnun upp í gær með mik-
illi velþóknun, enda verða nú
tengslin miíli Sjálfstæðis-
flokksins og Þjóðvarnar-
flokksins æ greinilegri; það
sést varla hnjóðsyrði um í-
haldið í Frjálsri þjóð, og
Morgunblaðið talar um af-
stöðu Þjóðvarnar af stakri
vinsemd. Og báðir aðilar þykj-
ast nú innilega sammála. um
það hversu fráleitt það sé að
sósíalistar og Alþýðuflokks-
menn vinni saman, þar sem
áður hafi oft skörizt í odda.
að væri auðvelt verk fyrir
þessi vinablöð að halda
slíkum tilvitnunum áfram,
bæði gagnrýni úr Þjóðviljan-
um um Hannibal Valdimarsson
og gagnrýni Hannibals um
Þjóðviljann og sósíalista. En
með þvi undirstrika þau aðeins
þá staðreynd að í Alþýðu-
bandalaginu hafa verkalýðs-
sinnar tekið höndum saman í
einJægu samstarfi þótt þá
greini á um ýmislegt. Stuðn-
ingsmenn bandalagsins hafa á-
kveðið að þoka ágreiningsefn-
unum til hliðar en leggja á-
herzlu á hitt sem sameinar,
en það er langtum stórfelldara
og mikilvægara. Slík vinnu-
brögð hefur alþýða Islands
ævinlega kappkostað í verk-
föllum, og það er ekki síður
brýnt að taka u"p sömu
starfshætti i stjórnmálabar-
áttunni.
að er ánægjuefni að blöð
afturhalds og sundrungar
skuli leggja sig í líma til að
vekja athygli á því að Alþýðu-
bandalagið er samtök vinstri
manna á mjög breiðum grund-
velli; slík samtök hefur al-
þýða manna þráð allt frá því
að íhaldið mataði krókinn í
síðustu alþingiskosningum
vegna sundurlyndis vinstri
manna, og atburðir þeir sem
síðar hafa orðið hafa gert þau
langtum brýnni. Þess vegna
munu einnig óbreyttir kjós-
endur, sem oft hafa deilt
innbvrðis, skipa sér hlið við
hlið í kosningunum í sumar.
Þegar deilur vinstri manna
eru í fyrirrúmi fagnar aftur-
haldið og aðstoðarmenn þess,
en samheldnin vekur ótta.
®
m tn m b ■ ■ ■ i ® ■ SKÁKIX
Ritstjóri: J'
•■■w GUÐMUNDVR ARNLAUGSSON
J, «
Frá norskum skákmönnum
Nú er víða hafinn undirbún-
ingur undir alþjóðaskákmótið
í Moskvu næsta haust, þau
skákmót sem fara fram um
þetta leyti verða mælikvarði
á það, hverjir verða fyrir val-
inu til Rússlandsferðarinnar.
Sumstaðar eru þetta skákþing
ríkja, svo sem í Danmörku, en
þar er skákþingið ávallt haldið
um páska og þar vann Bent
Larsen yfirburðasigur nú. Hér
heima fer skákþing íslands í
hönd, það á að hefjast 22.
apríl, heldur síðar en lög gera
ráð fyrir, en sú seinkun var
ákveðin með tilliti til þess að
Friðrik Ólafsson og þeir félag-
ar, sem nú tefla fyrir hönd ís-
lenzkra stúdenta í Uppsölum,
geti tekið þátt í því.
í bréfi sem ungur íslenzkur
stúdent í Osló ritar mér, seg-
ir hann þær fréttir að þar sé
nýlokið 9 manna skákmóti, er
á að skera úr um fjögur efstu
sætin i sveit Norðmanna. Um
þau tvö sem eftir eru á að
berjast síðar. Svo á að sjá um
að hópurinn sem fyrir valinu
verður fái næga æfingu í sum-
ar.
Á þessu móti urðu þeir Vestöl
og Lindblom efstir með 5 vinn-
inga, en svo komu í hnapp Yng-
var Barda, Olaf Barda, Svein
Johannessen og Tor Störe, all-
ir með 4J4 vinning.
Fréttamaður minn segist hafa
orðið hrifnastur af þeim Sveini
og Yngvari —1 „Sveinn er Frið-
rik þeirra Norðmanna, ákaflega
geðslegur og skemmtilegur
strákur. Yngvar er sonur Olafs,
sem margir heima kannast við,
hann teflir að mér finnst traust
og öruggt og ekki ólikt Guð-
mundi Pálmasyni . . . Af skák-
lífi hér er annars heldur fátt
að segja. Norðmenn eru niðri
í öldudal og vita það sjálfir,
en setja allt sitt traust á hina
yngri menn. Almennur styrk-
leiki er heldur lágur, en hins-
vegar er félagslifið með mikl-
um blóma, og býst ég varla við
að ísland komi þar til greina
með neinn samanburð“. Til á-
réttingar þessum síðustu orð-
um bréfritarans má geta þess,
að íslendingar og Norðmenn
hafa átt við sömu örðugleika að
etja í félagslífi sínu: fámennið
andspænis hinum miklu fjar-
lægðum. Þó hefur skáklíf Norð-
manna aldrei verið jafn ríg-
skorðað við Osló og íslenzkt
skáklíf hefur verið við Reykja-
vík siðari ár. Og í báðum lönd-
unum koma nú fram nýliðar
sem miklar vonir eru bundnar
við. Svein Johannessen mun
vera yngstur þeirra Norðmanna
sem nefndir vofu. Hann kom
í fyrsta sinn fram utan Nor-
egs á heimsmeistaramóti ung-
linga í Belgíu í fyrra, og þótt1
hann velti ekki stórbjörgum
tókst honum að tefla fallegustu
skák mótsins, en sú skák var ■
birt hér í þættinum í fyrra.
Hér kemur svo ein skák frá
þessu norska móti með skýring-
um eftir Olaf Barda, en hann
hefur daglegan skákþátt í Dag-
bladet.
Svein Joluuinessen
Yngvar Barda
1. Rgl—f3 d7—<15
2. g2—&3 Rg8—f6
3. Bfl—g2 Bc8—f5
4. 0—0 e7—e6
5. d2—d3 Bf8—e7
6. Rbl—d2 0—0
7. Ddl—cl s 1 I-
8. e2—e4 d5xe4
9. d3xe4 Bf5—h7
10. Del—e2 c7—c6
11. b2—b3 Rb8—c6
12. Bcl—b2 Dd8—c7
13. Hal—cl Hf8—(18
14. li2—h3 Dc7—a5
15. a2—a4 Ha8—c8
16. Rd2—c4 Da5—c7
17. Rf3—d2 a7—a6
18. Ilfl—dl Hd8—d7
19. Kgl—h2 Hc8—d8
20. a4—a5! Hd8—e8
ekki Rxa5 vegna 21. Be5'
21. Bb2—c3 e6—e5
22. Hdl—el Rc6—d4
23. De2—fl Be7—f8
24. Rc4—b6 Hd7—d8
25. Rd2—c4 Dc7—c6
26. f2—f3 Kg8—h8
Framhald á 10. síðu.