Þjóðviljinn - 24.06.1956, Side 10

Þjóðviljinn - 24.06.1956, Side 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Ruimudagixr 24. júná 1956 ISLAND FYRIRISLENDINGA! m starfrækir leik- skóla í sih fvrir 3-6 ára böra Rúmlega 50 drengir eru nú í vinnuskóla bæjasins í Krýsuvík Hafnarfjarðarbær starfrækir í sumar leikskóla fyrir börn á aldrinum 3—6 ára. Starfar hann með svipuðu sniði og sl. sumar og verður til húsa á sama stað, í barna- skólanum. Fjölda leiktækja hefur verið komið fyrir á afgirtu svæði ieik- vallarins við skólann. Þar munu börnin hafast við á daginn þeg- ar veður er gott, en dvelja á neðstu hæð skólans þegar eitt- hvað er að veðri. Leikskólinn starfar frá kl. 1—6 daglega. Foreldrar geta komið börn- um sínum þarna fyrir til mán- aðardvaiar eða styttri tíma, eft- ir því, sem hverri fjölskyldu bezt hentar. Mánaðargjald er kr. 150 kr. Ennfremur er hægt að koma barni fyrir í gæzlu dag og dag gegn 10 kr. gjaldi, ef húsmæður þurfa að skreppa að heiman eða vinna aðkaliandi og tímafrek störf. Þykir hús- mæðrum þetta mikill kostur og hafa óspart 'notað sér þessi hlunnindi. —• Þrjár konur ann- Rangæingar! Kjósið Alþýðubandalagið! X G-listinn Kosningaskrifstofa Aiþýðu- bandalagsins í Hafnarfirði er í Góðtemplarahúsinu. Símar 9521 og 9273 Þar eru gefnar allar upplýsingar varðandi kosning- arnar. Héraðsnefndin beinir þeim tilmælum til stuðn- ingsmanna Alþýðubandalagsins að fara snemma á kjör- stað. Stuðningsmenn! Veitið allar upplýsingar sem að gagni mega koma og aðstoðið við kosningastarfið. X Geir Gunnarsson Vinnum að sigri Alþýðubandalagsins! Héraðsnefndin Kosningaskrifsfofur AlþýSuhandalagsins i Gull- hringu- og Kjósarsýslu Kosningaskrifstofur Alþýðubandalagsins og stuðnings- manna Finnboga R. Valdimarssonar í Gullbringu- og Kjósarsýslu verða í dag á eftirtöldum stöðum: í KÓPAVOGSKAUPSTAÐ að Marbakka og Snælandi. Símar skrifstofunnar að Mar- bakka eru 4904 og 81693, en að Snælandi 80468. í SELTJARÍÍARNESHREPPI að Þórsmörk, sími 5475. í KEFLAVÍK á Garðavegi 8, sími 523. I YTRI-NJARÐVÍK á Þórustíg 7, sími 368 X FXNNB0GZ R. VALDIMARSS0N ast börnin á leikskólanum, Hjör- dís Jónsdóttir, Hera Guðjóns- dóttir og Ásthildur Jóhannes- dóttir, en barnaverndarfulltrúi, Vilbergur Júlíusson, hefur eftir- lit með og sér um daglegan rekstur leikskólans. Um 50 böm dvelja að stað- aldri í leikskólanum. Enn er þó hægt að bæta við nokkrum börnum (sími 9597). Dagheimilið að Hörðuvöllum Verkakvennafélagið Framtíðin hefur um mörg undanfarin ár rekið dagheimili fyrir börn að Hörðuvöllum. Þar dvelja nú um 50 börn, og er dagheimilið yfir- fullt. I undirbúningi er stækk- un dagheimilisins og stórbatna þá öll skilyrði þar, og verður þá að sjálfsögðu hægt að taka á móti fleiri börnum. Forstöðu- kona er Rannveig Þóroddsdóttir. Vinnuskólinn í Krýsuvík Eins og undamfarin sumur rekur Hafnarfjarðarbær vinnu- skóla suður í Krýsuvík fyrir unglinga á aldrinum 10—13 ára. Þar dvelja nú 52 drengir við ýmiskonar létt og fjölbreytileg störf. Drengirnir halda til suð- ur frá að öllu leyti en koma heim til sín um aðra hverja helgi. Þessi starfsemi nýtur mik- illa vinsælda meðal almennings í Hafnarfirði, enda bætir hún úr brýnni þörf, en því rniður komast þarna færri drengir að en vilja. Þó verður reynt að verða við öllum beiðnum áður en sumarið er úti. Þrír kennar- ar hafa umsjón með vinnuskól- anum og sjá um daglega stjórn hans, Snori-i Jónsson, Eyjólf- ur Guðmundsson og Birgir Em- ilsson. Ráðskona er Guðrún Ágústsdóttir, en hún hefur sér til aðstoðar tvær stúlkur í eld- húsi, Guðrúnu Gísladóttur og Arndísi Pálmadóttur. Drengirnir i vinnuskólanum dvelja í íbúðarhúsum Krýsu- víkurbúsins. Hibýli drengjanna hafa verið máluð og endurbætt nú í vor. Þau eru rúmgóð og hin snyrtilegustu, enda una drengirnir sér hið bezta í Krísu- vík. Berlingske Tidende Framhald af 3. síðu. lausra árása á íslendinga. Afstaða Berlingske Tidende nú er sú sama og forðiun; það berst gegn sjálfstæðis kröfum Islendinga. Fyrst ekld var hægt að halda Islending- uni undir Dönum skal reynt að halda þeim undir Könum! íslendingar hafa áður svar- að Berlingske Tidende og öðr- um Stórdönum. Þeir munu gera það enn. Hvað borgar sig? Framhald af 7. síðu verulegt atriði að fara eftir, glæpahneigðin sýnir ómótmæl- anlega samband milli stríðs, styrjaldarundirbúnings og af- brota. Það eru niörg atriði í upp- vexti barna okkar sem valda okkur áhyggjum og nokkur þeirra eru hinn samfelldi skammtur af glæpum og of- beldi sem börnum okkar er gefinn inn í sjónvarpi, kvik- myndum, hatursáróðri, og sú staðreynd að atómvopn séu tii þess gerð að drepa þúsundir gerir glæpi í smærri stíl sjálf- sagða, svo og morð. Svo segir negrakonan frá Bandaríkjunum. Við íslendingar sem ala eig- um börn okkar upp í skugga þeii-rar glæpaaldar sem ríkir í Bandaríkjunum hljótum að gera samanburð á því þjóðfé- lagi sem forfeður okkar voru aldir upp í. Það var svo að segja glæpalaust þjóðfélag, þótt skemmtanir væru af skornum skammti, húsakynni óupphitaðir torfbæir með mold- argöngum, peningar engir. Sú írxenning sem þar lifði um aldir hlýtur að geta lifað áfram við betri skilyrði, við góð húsa- kynni, í þjóðfélagi sem er vak- andi um menningarhag sinn, en Stadhæfingar og staðreyndir Ein helztu rök Þjóð\arn- armanna fyrir stofnun flokks síns voru að Sósíal- j istaflokkurinn væri staðnað- ( ur og næði ekki lengra og að Þjóðvarnarflokkimnn niyndi 1 \inna fylgi í stóruni stíl af afturhaldsflokkunum. Hverjar eru svo stað- reyndirnar. Sósíalistaflokkurimi fékk W,5% atkvæða í kosningun- uin 1949, í Alþingiskosning- ununi 1953 fékk Sósíalista- flokkurinn 16,1% og Þjóð- varnarflokkurinn 6%, eða báðir ti! samans 22,1%. Þjóðvarnarflokkurinn liafði þannig unnið 2,6% af aftur- haldinu, en 3.4% af Sósíal- istaflokknuin. Það furðar því engan, að ihaldið líti ineð velþóknun til Þjóðvarnarfiokksins. Honuin hefur tekizt aðeins tvennt með brölti sínu: Að sundra andstæðiugum hernánisins í tvær fylkingar og veikja að- stöðu alþýðunnar í kjara- baráttunní. því aðeins verður það gert að þróunin verði í beinu fram- haldi af því gamla sem við erfðum og að við getum losað okkur við hin illu áhrif eriends hervalds. Sjálfstæðisfrömuðir íslands hafa sannarlega starfað á ís- lenzkum iriennxngargrundvelli en ekki á þeim að við ættum að vera þrælar erlends valds. Þá væri starf Jóns Sigurðssonar unnið fyrir gýg, öll okkar ijóða- gerð og saga fyrir róða, allt vmrt strit til einskis, því þá fórnum við atvinnuvegum okk- ar, siðum og tungu á altari erlendrar þjóðar. Eg óska okk- ur allt annars hlutskiptis. Eg lýk máli mínu á orðum Step- hans G. Stephanssonar: Ið greiðasta skeið til að skríl- menna þjóð er skemmdir á tungunni að vinna. Drífa Viðar. Hverfaskrif- ! ■ tf stofurnar ji Alþýðubandalagið hefur opnar kosn- S ingaskrifstofur í þrem bæjarhlutum, á Melun- || um, í Sogamýri og Vogum. s Melar Skrifstofa fyrir Meiana er í « Kamp Knox G-9, opin kl. 8-9 S á hverju kvöidi „ li Vogar n Vogahverfisskrifstofan er á Ij Langhoitsvegi 160 (kjallara), s opin kl. 8—10 hvert kvöld. — ! S Simi skrifstofunnar er 80087. S Sogamýri — Blesugrói Fyrir íbúa í Sogamýri og Blesu- gróf er skrifstofa Alþýðubanda- lagsius að Sogavegi 116, 2. liæð. Skrifstofan er opin á hverju kvöldi kl. 8—10. — Sím- inn er 82796. Síuðningsmenn Alþýðubanda- lagsins í framangreindum bæj- arhverfum eru beðnir að gefa sig frani við skrifstofurnar og veita þeim þann stuðning sem þeir mega. Laugaveg 36 — Sími 82209 Fjölbreytt úrval af steinhnngum. — Póstsendum. Tryggjum einingu alþýðunnar, © gengi og gæiu íslenzku þjóðarinnar tt

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.