Þjóðviljinn - 19.07.1956, Page 1

Þjóðviljinn - 19.07.1956, Page 1
Finimtudagur 19. júlí 1956 — 21. árgangur — 161 tölublað Alfur flotinn meðfulffermi í gærdag — löndunarstöðvun á Raufarhöfn Jafnmikil sild hefur ekkisézt siðan sumariS 1944 Raufai'höfn kl. 11 í gærkvöld. Frá fréttaritara Þjóðviljans Mikil síldveiði hefur verið í dag á öllu Langanes- grunninu og Langanesdjúpinu eða frá Hraunnestanga suður á Vopnafjörð. Á þesgu svæði hefur síldin vaðið í nærri tvo sólarhringa. Stillilogn er á og miðnætursól. Allur flotinn er á þessu svæöi og hefur fyllt sig, utan eitt og eitt skip sem oröið hefur fyrir óhöppum. Skipin veiða svo mikið að þau lenda í vandræðum með aflann sem er umfram það sem þau taka og veröa að henda honum. Reyndir sjómenn fullyröa aö svona mikil síld hafi ekki sézt síðan síldaráriö mikla sumarið 1944. Fyrstu skipin byrjuðu að streyma hingað inn kl. 6 í morgun oíí liefur verið stöðug löndun í dag' hjá verksmiðj- unnL Er nú koinið löndunar- Meirí sðdarsöltun á Húsavík en nokkru sinni áðui Húsavík í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Hér var búið að salta síld í 15704 tunnur í gærkvöldi. Er það meiri söltun en nokkru sinni áður. stopp, því að allar þrær eru fullar. Slíkt hefur ekki komið fyrir að neinu ráði síðan 1944. Þrærnar taka 32 þúsund mál, en afköst verksmiðjunnar eru 6 þúsund inál á sólarliring'. Verk- smiðjurnar hafa nú tekið við 60250 málum í bræðslu miðað við löndunarstöðvuirina. Loftskeytastöðin hér á staðn- um hefur þegar tilkynnt flotan- um löndunarstoppið og taka skipin nú stefnu á Siglufjörð. Skipin eru þó það mikið fermd, að þau koma hér við til að létta á sér eftir því sem verksmiðjan og söltunarstöðvarnar geta tekið við. 45 þús. tunnur saltaðar. Söltun sl. sólarhring nam 2 þús. tunnum og er þá heildar- Sovézkur ballettflokkur kemur líkleg a hingað í haust Ennfremur væntanleg sovézk æskulýðs- sendinefnd og hverafræðingar Gera má ráð fyrir að hingaö komi í haust leikdans- flokkur frá Sovétríkjunum. Þjóðleikhúsið hefur boðið hingað til lands sovézkum ballettflokki og mun nú óhætt að gera ráð fyrir að flokkur þessi komi í septembermánuði þessa árs. í flokknum munu verða 12 manns og mun hann hafa nokkrar sýningar í Þjóð- leikhúsinu. Mun mörgum þykja mikill fengur í að sjá á ís- lenzku sviði hinn fræga rúss- neska leikdans, sem er einn hinn frægasti í heimi. Mun þetta vera í fyrsta sinn að svo stór rússneskur leikdansflokk- ur kemur hingað til lands, en áður liafa Islendingar átt kost á að sjá hér á sviði einstaka dansara, auk kvikmyndarinnar af ballettinum Rómeó og Júlía, sem sýnd var hér fyrir skömmu. Þess má geta í þessu sam- bandi að í Sovétríkjunum hef- ur íslenzk leikmennt unnið sér góðan orðstír. Silfurtúnglið eft- ir Halldór Kiljan Laxness hef- ur í allan vetur verið á svið- inu í Moskvu og verið sýnt við góðar undirtektir. Hafa sýning- ar verið hálfsmánaðarlega í úti búi Malí-leikhússins, sem er eitt frægasta leikhús Sovét- ríkjanna. Æskulýðssendineínd, heim- sókn vísindamanna I ágúst eða september munu væntanlegir hingað sovézkir sérfræðingar sem munu kynna sér nýtingu hveravatns á ís- landi. Mun vera ætlun þeirra að færa sér í nyt reynslu Is- lendinga í þessu efni, en hverir fyrirfinnast víða í Sovétríkjun- um, t.d. í Kákasus og á Kamt- sjatka. Munu Islendingar vafa- laust hafa margt fram að færa nýstárlegt varðandi nýt- ingu hveravatns. Mun þetta vera eitt fyrsta skrefið sem stigið er til þess að auka sam- starf íslenzkra vísindamanna og sovézkra. Þá mun og vera væntanleg í haust sendinefnd skipuð full- trúum æskulýðssamtaka í Sov- vétríkjunum. Nefndin kemur hingað í boði alþjóðasamvinnu- nefndar íslenzkrar æsku. söltunin hér á Raufarhöfn orðin samtals 45123 tunnur (miðað við kl. 10 í kvöld). Skiptist þannig á milli söltunarstöðva: Hafsilfur 12.146 tunnur Óskar Halldórsson 9.132 SKOR 7.646 Óðinn 7.438 Norðursild, Valtýr Þorsteins- son 4.129 Gunnar Halldórsson 3.030 Hólmsteinn Helgason 1.602 Samtals 45.123 tunnur. Saltendur tunnulausir. Tveir saltendur, Óðinn og Gunnar Halldórsson, eru orðnir tunnulausir og' gengur óðum á birgðirnar hjá öðrum söltunar- stöðvum. Tungufoss kemur morgun með 20 þús. tunnur, og samkvæmt viðtali við Sigurð Helgason, fui .rúa Síldarútvegs- nefndar hér, kemur þetta ekki mjög að sök. Liðu út af við síldarkassana. Það eru óliemju vökur og e.fiði sem fólk hér leggur á sig. Voru síldarstúlkur farnar að líða út af meðvitundar- lausar við síldarkassana sil. nótt á einu planinu. Stöðugur skortur er á fólki. Við síðasta manntal voru skrá- settir hér í þorpinu 402 menn og' síðasta talan yfir aðkomu- fólk var 1124 samkvæmt viðtali tali við oddvitann hér, Leif Ei- ríksson. Af aðkomufólkinu eru 75% konur. Þessi skip voru m.a. með full- fermi hér í dag: Gissur hvíti, Sæljónið, Arnfirðingur, Fróði GK (1600 mál), Stefnir GK, Ól- afur Magnússon AK, Bjarni Jó- hannesson AK. Lentu þessi skip ekki í löndunarstoppinu. í Neskaupstað. Fréttaritarinn á Norðfirði sím- aði eftirfarandi í gær: Þessi slcip komu með síld í dag: Björg NK 300 tunnur, Goðaborg 300 og Hrafnkell 600 tunnur. Gull- faxi var væntanlegur síðdegis með fullfermi. % Á Siglufirði og Eskifirð. Frá því í fyrrakvöld til jafn- lengdar í gær var saltað í um 10 þús. tunnur á Siglufirði og nemur heildarsöltun þar þá rúmlega 80 þús. tunnum. Síld- arverksmiðjur ríkisins á Siglu- firði hafa tekið við nokkur þús. málum til bræðslu og Rauðka hefur einnig fengið nokkuð magn. I gær barst fyrsta síldin á sumrinu til Eskifjarðar; Helgi frá Hornafirði kom þangað með 600 tunnur, sem voru saltaðar. Duiles slmr ur i Dulles, utanrikisráðlierra Bandaríkjanna, sagði frétta- mönnum í gær að margt hefði breytzt og mikið skeð síðan Bandaríkjastjórn: bauðst til að greiða nokkuð af kostnaði við Nílarvirkj- unina miklu við Aswan í Egyptalandi. I fyrradag sagði sendi- herra Egypta í Washington að stjórn sín hefði ákveðíð að þiggja féð sem Banda- ríkjastjórn bauð. Stálverb áhyggjnefiíi} Eisenhower Bandaríkjafop* seti ræddi í gær við ýmsa embættismenn um afleiðiag- ar verkfalls stáliðnaðar- manna, sem búið er að standa í hálfan mánuð. Hafa 750.000 manns misst at- vinnuna vegna verkfallsins. I gær ákváðu deiluaðilar að gera nýja samningatilraun. Islendingar hafa geflð öðrum fagurf fordæmi segii Thorez á þingi Kommúnistaflokks Frakklands íslendingar hafa gefið öðrum þjóðum fagurt fordæmí með því aö vísa bandarísku herliði á brott úr landi sínu, sagði Maurice Thorez á þingi Kommúnistaflokks Frakk- lands í gær. i Þingið hófst í gær í borginni Le Havre og Thorez flutti að- alræðuna. Hann vék að for- dæmi íslendinga þegar hann ræddi um, hverja nauðsyn bæri til að Frakkar losuðu sig við bandariska hersetu. Frið í Alsír Thorez sagði, að öllum mætti nú vera ljóst að stefna ríkis- stjórnarinnar í Alsír hefði bor- ið þann árangur einan að blóðs- úthellingar færu vaxandi. Kommúnistaflokkurinn krefst þess að komið sé á vopnahléi í Alsír, samningar teknir upp við sjálfstæðishreyfingu Sei'kja og sérstaða og séreðli Alsír viður- kennd, sagði Thorez. VlÖræðufundlr I gær í fyrradag voru engir viðræðufundir milli Alþýðubandalagsins og Framsóknarflokksins, hins vegar munu fulltrúar Framsóknar hafa rætt mjög við Alþýðuflokkinn. í gærmorg- un var svo fundur fulltrúa Alþýðubandalags og Framsóknar. Þingflokkur Alþýðuflokksins hefur kosið nefnd til þess að taka þátt í viðræðunum um stjómarmyndun, og eiga sæti í henni Gylfi Þ. Gíslason, Emil Jónsson, Guðmundur í. Guð- mundsson og Aki Jakobsson* Thorez sagði að kommúnist- ar væru enn sem fyrr fúsir tU, að taka upp samstarf við sósí- MoiMT.ce Thorez aldemókrata. Slíkt samstarf væri eina leiðin til að tryggja Framhald á 6. síðu. KR vann Spora Lúxemborgarmeistararnir úr C. A. Spora háðu síðasta leik sinn hér á íþróttavellinum £ gærkvöld, kepptu þá við Is- landsmeistara KR. KR-ingar sigruðu með tveim mörkum gegn engu eftir lélegan leik af beggja hálfu. Voru gestirnir sýnilega orðnir þreyttir enda hafa þeir þreytt sex kappleiki á fáeinum dögum. Einum Lúx- emborgarmanna var vísað út af leikvelli.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.