Þjóðviljinn - 19.07.1956, Side 3

Þjóðviljinn - 19.07.1956, Side 3
Fimmtudagur 19. júli 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (^| Spora lék bezta leilc sinn og Suðvesturland 2:0 Leikurinn hafði - ekki staðið nerna um 15 sek. þegar mark Slv. var í slíkri hættu að aðeins guð og lukkan gátu bjargað, og það skeði í það sinn. Knöttur- inn gekk milli fimm manna með hraða og allt inn á markteig og munaði minnstu að mark yrði. Allur fyrri hálfleikur var að kalla má ein samfelld sóknar- íota á mark Svl., en skotin voru ekki hin sterka hlið Spora. Oft skall hurð nærri hælum. Þetta félag frá Lúxemborg gat sýnt þessu ljði okkar, sem næstum má kalla landslið, hvernig á að leika knattspyrnu. Þeir höfðu yfirburði á öllum sviðum leiks- ins. Þeir höfðu meiri leikni, meiri skilning á samleik, og sýndu hann svo í framkvæmd að unun var á að horfa. Hefðu skotin verið af sömu gerð hefðu mörkin eins getað orðið mörg. Það var rétt við og við að Svl. liðið gerði áhlaup en flest Voru tilviljanakennd eða þá að það voru framtakssamnir ein- Staklingar sem tóku sig til og ætiuðu að gera einir það sem þurfti. Eina hættulega áhlaupið sem Svl. gerði var þegar Ríkarður var kominn einn innfyrir nokk- uð til hliðar en missti knött- inn of langt frá sér og náði honum ekki fyrr en nærri út við endamörk og skaut þaðan, en markið var lítið og markmað'ur- inn varði. Á 40. mín fékk Svl. aukaspyrnu við vítateig; Ríkarð- ur spyrnti til Donna, sem vand- aði sig ekki og skaut lint fram- hjá. Á öðrum stundarfjórðungi leiksins héldu Sporamenn uppi látlausri sókn og sætti mikilli furðu að ekki skyldi koma mark en knötturinn fór aldrei í netið. Það er ekki fyrr en á 44. mín. leiksins sem þeim tekst að skora. Vinstri útherji tók horn sem miðherjinn skallaði í mark mjög fallega, enda óáreittur af varn- armönnum. Síðari hálfleikur var miklu Námskeið í frjálsíþróttum Frjálsíþróttadeild KR geng'st nú fyrir námskeiði í frjálsum í- þróttum fyrir unglinga og stend- ur það til 4. ágúst. Námskeiðið er bæði fyrr stúlkur og pilta; fyrir stúlkur frá 12 ára aldri, en pilta frá 14 ára aldri, og allt til tvítugsaldurs. Kennari er Bene- dikt Jakobsson, þjálfari frjáls- íþróttamanna KR um árabil, en undir hans handleiðslu hafa í- þróttamenn eins og Svavar Markússon, Kristleifur Guð- björnsson, Friðrik Guðmundsson, Þórður Sigurðsson, Pétur Rögn- valdsson, Jón Pétursson, Guðjón Guðmundsson og Guðmundur Hermannsson náð árangri sín- um, en þessir menn eru allir í íslenzka landsliðinu. Kennsla fer fram á íþróttavellinum á mánu- dögum, miðvikudögum og föstu- dögum kl. 6 fyrir stúlkur og á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 6 fyrir pilta og auk þess á laugardögum kl. 2 fyrir pilta á íþróttasvæði KR við Kaplaskjóls- veg. jafnari en sá fyrri, en samt áttu Sporamenn betri leik. Á 10. mín. fá Sponamenn innvarp á móts við rnark og fær vinstri innherjinn skallað í þverslá. Hann fékk knöttinn fyrir fætur sínar aftur og skaut í netið. Svl. átti tíðari áhlaup í þess- um hálfleik án þess þó að skapa opin tækifæri. Rikarður var eitt sinn kominn í sæmilegt færi en hitti illa. Donni átti líka eitt gott skot sem fór „hárnákvæmt“ fyrir ofan. Lið Svl. olli vonbrigðum í leik þessum. Þeir réðu ekki við leik- tækni móthérjanna og gátu tap- að með mun meiri markafjölda. Þegar þess er gætt að hér er um að ræða félag frá ekki stærra eða fjölmennara landi en Lúx- emborg er og hinsvegar næstum landslið' okkar hlýtur öllum að vera ljóst að þetta er ekki allt í lagi. Það er einhversstaðar blá- þráður í vefnum. Þetta er því alvarlegra sem við erum komnir með í alþjóð- legar keppnir og höfum ákveðið að keppa við sumar beztu knatt- Framhald á 6. síðu A ÍÞRÓTTSR HtTSTJÖRI: FRlMANN HELCASOI* Sporamenn sigruðu Akureyr- inga 4:2 í skemmtilegum leik É*Mii Rússinn Igor Kasjkaroff setti nýlega nýtt sovézkt met í hástökki, stökk 2,06 metra. Myndin var tekin, þegar Kasj- karoff setti metið á móti í borginni Naltjik í Kákasus. Akureyri 16. júlí. Vt.Iur var mjög hagstætt er leikur Spora og Akureyringa hófst s.l. laugardag. Það virtist koma nokkuð flatt upp á Spora- menn, er Akureyringar skoruðu þegar tæpar 2 mín. voru liðnar frá leiksbyrjun. Var það eftir góða og skemmtilega uppbygg- ingu Akureyringa. Á 15. mínútu jöfnuðu Sporamenn. Sóknar- lotur skiptust á allan hálfleik- inn og fengu bæði liðin góð tækifæri sem nýttust ekki. í byrjun síðari hálfleiks virt- ust Sporamenn hafa fullan hug i á að ná leiknum á sitt vald, en allt kom fyrir ekki. Akureyring- ar gáfu sig hvergi, og urðu fyrri til að skora. Stóðu nú leikar 2 mörk gegn 1. En stuttu síðar skoruðu Sporamenn — mjög lag- lega. Fór nú að færast fjör í leikinn og brá fyrir hörku, en ekki þó veruiegri. Þriðja mark Spora var gert úr vítaspyrnu, algerlega óverjandi. Er hér var komið færðist ! meiri harka í leikinn og einum Sporamanna var vísað af vellin- um — réttilega, þar sem fram- | j koma hans var vítaverð. Mark- maður Spora varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla, einnig einn liðsmaður Akureyringa. Fjórða markið má teljast sjálfs- rnark, þar sem einn leikmanna Ak. skallaði knöttinn, sem breytti um stefnu og' fór óverj- andi í horn. Um yfirburðasigur Spora er vart hægt að tala, og eftir tæki- færum hefði jafntefli verið sann- gjarnast. Þó hin verulega opnu tækfæri væru fleiri hjá Spora- mönnum, áttu Akureyringar einnig góða möguleika sem komú eftir fallega og góða uppbygg- ingu — sérstaklega í fyrri hálf- leik. Eitt var sérstaklega slænit hjá Akureyringum, en það var að þeir létu Sporamenn fá o£ mikinn umhugsunarfrest, er þeír komu að vitateig — aðallega i síðari hálfleik. Á miðjunni var leikurinn mjög jafn og skemmti- legur af beggja hálfu — stuttar og nákvæmar sendingar. Sumir Sporamanna virtust vera nokkuð örir á skapsmunum. Mörk Akureyringa skoruðu Tryggvi Georgsson og Jakob Jakobsson. Dómari var Rafn Hjaltalín og kom hann frá þessum leik sem einn af betri dómurum okkar. —• Hafi þeir menn svo þakkir fyr- ir sem komu því til leiðar að Sporamenn komu til Akureyrar, Áhorfendur voru margir. — O — Væri ekki ráð að láta hið fyr- irhugaða landslið leika tvo leiki á Akureyri um helgi, — annam við pressulið og hinn við Aki.r- eyringa? Ef einhver þróttur er í liðum þá væri þetta góð æfing — og það á grasvelli. Ættu ekki f orráðamenn knattspymum ála að taka þetta til athugunar? Örfuss. ★ f dag er fimmtudagurinn 19. júlí. Justina. — 182. dagur ársins. Hefst 14. vika sumars. Árdegishá- llæði kl. 3.57. Síðdegisháílæöi kl. 16.24. Fimmtudagur 19. júlí y Flastir liðir eins og venjulega. Kl. 19.30 Tónleikar: — Danslög. pl. 20.30 Lögin okkar. — Högni Torfason stjórnar þættin- um. 21.30 Útvarpssagan: Gullbik- arinn eftir John Steinbeck: VIII. Hannes Sigfússon). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. Kvæði kvöldsins. 22.10 Heimilisfang: Allstaðar og hvergl, saga eftlr Simenon; XII. (Jón Sigurbjörnsson). 22.30 Sin- fóniskir tónleikar pl : Sinfónía nr. 3 í E-dúr op. 23 ©ftir Hugo Alfvén (Hljómsveit tónlistarfé- lagsins í Stokkhólmi leikur: höf- undurinn stjórnar). 23 00 Dag- skrárlok. GENGISSKRANING : 1 Sterlingspund 45.70 1 Bandarikjadollar . 16.32 1 Kanadadollar 16.70 100 danskar krónui '36.30 100 norslcar króniu 228:50 100 sænskar krónir . . 215.50 100 finnsk mörk 7 09 1.000 franskir frankai (6.63 100 belgiskir íránkar ... 32.90 100 svissneskir 'tanka' .. 376 00 100 gyllini . '1 10 100 tékkneska krómi" -. - 26.67 100 vestur þýzk örk .. 9130 .000 lírur '6 02 100 gullkrónur 738.95 ■ . kr Gullverð isl kt Danslagakeppni Stjórn SKT hefur beðið Þjóð- viljann að minna á, að nótna- liandrit í dægurlagasamkeppn- ina verða að hafa borizt fyrir 1. ágúst n.k. Vegna breytinga á fyrirkomulagi pósthólfanna í Reykjavík er númer pósthólfs keppninnar nú 88 í stað 501 áð- ur. Utanáskriftin verður því framvegis: — Danslagakeppni SKT 1956, pósthólf 88, Reykja' vík. .4 fJTBRF.JÐlÐ rjf 4 * <* ÞJÓDVILJANN r>' * Félaffslseiraili *FR Félagsheimili Æ.F.R í Tjarn- argötu 20 er opið á hverju kvöldi frá kl. 8-11 30 nema laugardaga og sunnudaga, þá er það opið frá kl 2-11.30 Næturvarzla er í Lyfjabúðinnj 7911. Iðunni, simi S k i p a f á : i r Eimsklpafélag islands h f. Brúarfoss fór frá Rotterdam 17. þm tii Hull og Rvíkur. Dettifoss var væntanlegur tii Hafnarfjarð- ar í gærkvöld frá Siglufirði. Fjall- foss fór frá Vestmannaeyjum 17. þm til Aberdeen, Hull, Rotter- dam og Hamborgar. Goðafoss fór frá Rvik í gærkvöld ti’ Rostock, Bremen og Hamborgar. Gullfoss fór frá Leith 16. þm. væntanleg- ur til Rvíkur sl. nótt, skipið kem- ur að bryggju um kl. 8.30. Lag- arfoss kom til Rvíkur 15. þm frá Gautaborg. Reykjafoss kom til Rvikur 12. þm frá Hull. Trölla- foss fór frá Rvík 13. þm til N.Y. Tungufoss fór frá Flekkefjord -17. þm til Raufarhafnar. Sldpadeild SÍS Hvassafell fór frá Rostock 17. þm áleiðis til íslands. Arnarfell er í Genoa. Jökulfell er í Ham- borg. Dísarfeil er í Rostock. Litla- fell er í olíuflutningum í Faxa- flóa. Helgafell er í Vasa. Skipaiitgerð rikisins Hekla er í K-höfn á leið til Gautaborgar. Esja er á Austfj- á suðurleið. Herðubreið fer frá R- vík kl. 21 í kvöld austur um land í hringferð. Skjaldbreið fer frá Rvík á morgun til Breiða- fjarðar og Vestfjarða. Þyrill er á leið til Rotterdam. Skaftfellingur fór frá Rvik í gærkvöld til Vest- mannaeyja. Millilandaflug Edda er væntan- leg klukkan 19 frá Hamborg, Kaup- mannahöfn og Bergen; fer héðan kl. 20.30 til N. Y. — Saga er væntanleg kl. 9 frá N.Y.; fer kl. 10.30 til Oslóar og' Lúxemborgar. — Sólfaxi er vænt- anlegur til Rvikur kl. 17.45 í dag frá Hamborg og Kaupmannahöfn. Flugvélin fer til Glasgow og Lon- don kl. 8 í fyrramálið. — Gullfaxi fer til Oslóar og Kaupmannahc fn< ar kl. 11 í fyrramálið. Innanlandsflug 1 dag er ráðgert að fljúga til Ak-» ureyrar 3 ferðir, Egilsstaða, l.:a- fjarðax, Kópaskers, Patreksfjarð- ar, Sauðárkróks og Vestmanne- eyja 2 ferðir. — Á morgun er ráð- gert að fljúga til Akureyrar 3 ferðir, Egilsstaða, Fagurhólsmýr-* ar, Flateyrar, Hólmavíkur, Ho: :a- fjarðar, Isafjarðar, Kirkjubæjar-t klausturs, Vestmannaeyja 2 fe ðiu og Þingeyrar. Júní-hefti Sann vinnunnar hef- ur borizt. A£ efni má -nefna:! Samvinnuf é- lögin og jafnvægið í byggi' ura iandsins, Ferðafélög Islendinga, erlendis, eftir Ásbjörn Magnússor* forstjóra, Glóðafeykir, Félagstíð- indi kaupfélaganna í Skagafirðid Heimsókn í vefstofu Karó ;n« Guðmundsdóttur, Vertu sælþ herra gentlemaður, smásaga eftir Stefán M. Gunnarsson, Kaupftlag; Súgfirðinga, Upphaf Skálholtsstóla eftir Sigurbj. Eina.rsson, Geð-t vonzkuhjal um málspjöll og nú- tíma skáldskap eftir Sigurð Jtns- son frá Brún, framhaldssaga’j tízkufréttir o. m. fl. — Þá ht iui? Tímarit Xðnaðarinanna, 2. hefti 29- árg., einnig horizt. Þar ritar H ilH björn Halldórsson greinina Prcat-* listin er göfug mennt. Einnig erul birtar fréttir af iðnaðarfélöguíd úti á landi a fl.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.