Þjóðviljinn - 24.07.1956, Síða 4
ti
rfy — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 24. júli 1956
ÞlÓÐVlLIINN
Útgefandi:
Mameiningarflokkur alpýðu — Sósíalistaflokkurinn
Stjórn yinstri flokkanna
' ‘llinstri flokkarnir hafa bor-
ið gæfu til þess að taka
höndura saman um myndun
ríkisstjórnar. Þeir framkvæma
})ar með vilja alþýðustétt-
anna um allt land, sem með
sívaxandi krafti og skilningi
liafa krafizt einingar vinn-
andi stéttanna og stjórnmála-
eamtaka þeirra. Það er eng-
«m efa bundið að alþýðan um
allt land fagnar því að þessi
Stjórnarmyndun hefur tekizt
f ftg óskar hinni nýju ríkis-
etjórn góðs gengis og heilla-
ríkra starfa í þágu lands og
! lýðs.
I V
T^essi stjórnarmyndun er til-
*■ raun vinstri flokkanna,
sem nýkomnir eru út úr
harðri og heitri kosningabar-
áttu, til þess að stjóma landi
voru saman með heill hins
vinnandi manns og frelsi og
framfarir þjóðarinnar fyrir
augum. Og sú tilraun má
ekki mistakast. Alþýða lands-
ins og samtök hennar, fag-
1 Jeg og pólitísk, þurfa að
standa vörð um þessa stjórn
og stefnu hennar, tryggja
fulla framkvæmd á þeim góðu
málefnum, sem hún ætlar sér
að framkvæma, verja 'hana
og varðveita fyrir þeim árás-
um hinna auðugu og voldugu,
sem hún kann að eiga í vænd-
1 um, og leiðbeina henni, ef
þess gerist þörf, svo aldrei
megi slitna þau tengsl, er
1 tengja hana við fólkið. En
frá vinnandi stéttunum hefur
' hún allt sitt vald og á gagn-
Ikvæmu trausti, stjómarinnar
og fólksins, byggjast allir
möguleikar hennar til þess að
vinna þau verk, sem alþýð-
unni og íslandi er svo brýn
þörf á.
Qtefnuyfirlýsing stjórnarinn-
^ ar verður birt á morgun
í blaðinu og þá rædd. En hitt
er vert að muna, að vinstri
stjórn er aðeins byrjunin á
því verki, sem vinna. skal.
: Vinstri pólitík verður aðeins
'framkvæmd með þrotlausu og
1 heilu starfi stjórnar og al-
! þýðu í sameiningu.
í Cjtjórnarmyndun þessi mark-
| ar straumhvörf í sögu ís-
! lenzkra stjórnmála. Sú sundr-
| ung, sem amerískt auðvald
! með afskiptum sínum af ís-
' lenzkri pólitík síðasta áratug
! hefur reynt að skapa, hefur
' beðið hnekki. Þeir flokkar,
! sem byggja fylgi sitt á vinn-
andi stéttum landsins, hafa
tekið höndum saman um rík-
isstjóm, þrátt fyrir allt, sem
! gert hefur verið til að gera
sem mest úr þeim mun.
■fTin djarfa einingarstefna,
sem Alþýðusamband Is-
lands hóf að beita sér fyrir
á stjórnmálasviðinu, hefur
leitt til þéss áfanga, sem
vinstri öflin á Islandi óskuðu
eftir: myndunar vinstri
stjórnar, er styðst við samtök
fólksins og vill móta stefnu
eina og framkvæma hana í
Bem nánastri samvinnu við
þau. Stofnun Alþýðubanda-
lagsins að fmmkvæði Alþýðu-
sambandsins, — hin trausta
eining, sem skapaðist milli
Sósíalistaflokksins og vinstri
Alþýðuflokksmanna, — og
sigur Alþýðubandalagsins í
þingkosningunum, sem gerði
Alþýðubandalagið að næst-
stærsta flokki landsins, —
hafa nú sýnt sig að vera hin-
ar giftusamlegustu ráðstafan-
ir, er íslenzk alþýða hefur
gert til þess að skapa sér
einingu og áhrif á ríkisvald-
ið.
Ojálfstæðisflokkurinn er nú
^ í fyrsta sinn um langan
tíma utan ríkisstjórnar. Veld-
ur þvi hin skefjalausa frekja
er voldugustu foringjar hans
hafa sýnt í því að sölsa undir
sig auð og völd og nota rík-
isvaldið í þágu einokunar-
klíku sinnar, og svo sá sí-
aukni fjandskapur í garð ís-
lenzkrar verkalýðshreyfingar,
er einkennt hefur valdamestu
forastumenn flokksins og
málgögn hans í svo ríkum
mæli að nálgazt hefur á ný
nazistaáróður fyrri ára. Mun
slík heiftarstefna óhjákvæmi-
lega einangra hvem þann, er
henni fylgir hjá þjóð eins og
vér Islendingar eram.
17n vinstri flokkamir munu
^ ekki beita fylgjendur Sjálf-
stæðisflokksins þeim aðferð-
um, sem ofstæðismenn Ihalds-
ins hafa reynt að gera að
siðareglu á Islandi á undan-
fömum áram.
Það er vilji íslenzkrar al-
þýðu að hafa sem bezt sam-
starf við þá íslenzka atvinnu
rekendur, sem vilja vinna að
eflingu íslenzks atvinnulífs.
Það er vitanlegt að nú stend-
ur fyrir dyram að gera mikið
átak til stóraukningar at
vinjjuvegunum og þar þurfa
allar íslenzkar hendur og
hugur þjóðhollra manna að
leggjast á eitt, hvar sem
menn hafa skipað sér í flokka.
Tslenzk alþýða býður vinstri
stjórnina velkomna til
valda og starfa. Hún væntir
mikils af henni, en veit að það
eru ýmsir örðugleikar á vegi,
sem því aðeinsverður unninn
bugur á, að eining alþýðunnar
vaxi, gagnkvæmt traust
'þeirra, er nú taka höndum
saman, eflist og vinnandi
stéttimar, vakandi og virkar,
aðstoði við að koma stjómar-
stefnunni í framkvæmd.
Alveg sérstaklega býður al-
þýða íslands, — allir þeir
sem fylktu sér um Alþýðu-
bandalagið í síðustu kosning-
um, og þúsundir annarra Is-
lendinga, þá Hannibal Valdi-
marsson og Lúðvík Jósepsson
velkomna til þeirra starfa,
sem íslenzk aiþýða nú hefur
fengið þeim og óskar þessum
ágætu baráttumönnum sínum
alls hins bezta í því vanda-
sama verki, sem þeim nú hef-
ur verið falið að vinna.
Bonnstjórnin óttast tiHögur I
um fækkun í hernámsliðum
oegisr munu oeira nenunai
ráðinu gegn slikri fcekkun
Fréttir um að Bretland og' Bandaríkin hafi ákveðið
að draga úr vigbunaði sínum og fækka í hemámsliðum
sínum í Vestur-Þýzkalandi hafa vakiö ugg stjórnarinnar
í Bonn og hefur hún í hótunum um að koma í veg fyrir
slíkt.
I>að var tiikynnt í Bonn á
föstudag, að vesturþýzka
stjórnin hefði kallað heim
sendiherra sína í London og
Washington og væri ætlun
hennar að ræða við þá um
fréttir sem borizt hafa til
Þýzkalands um að Bretland og
Bandaríkin hafi í hyggju að
fækka í herjum sínum og
flytja burt einhvem hluta her-
námsliða sinna í V-Þýzkaiandi.
Óttast að dregið verði
úr hemámi
Talsmaður Bonnstjómarinn-
ar sagði á föstudag, að Aden-
auer forsætisráðherra sé mjög
uggandi vegna þessara frétta.
Talsmaðurinn benti á, að ekki
sé hægt að fækka í hernáms-
liðum vesturveldanna í Vestur-
Þýzkalandi án samþykkis At-
lanzráðsins og hann bætti því
við, að vesturþýzka stjórnin
myndi beita sér gegn öllum
slíkum fyrirætlunum, en full-
trúar í ráðinu hafa allir neit-
unarvald.
Talsmaðurinn sagði ennfrem-
ur, að veSturþýzka stjórnin
myndi ekki taka í mál, að
breytt verði teknum ákvörðun-
um um að koma upp 500.000
manna vesturþýzkum her.
Aðskilnaður
kynþáttanna
Atlanzráðið kemur saman &
fund í París í dag og er
búizt við að fulltrúi Vestur-
Þýzkalands muni þar krefjast
þess að ekkert verði hróflað
við hernámsliðunum í Vestur-
Þýzkalandi.
Tékknesk sendinefná
Framhald af 8. síðu.
efla þau viðskiptasambönd. fs-
lenzkur fiskur nýtur mikilla
vinsælda í Tékkóslóvakíu, en
til þess að auka markað fyrir
hann þar er mjög nauðsyniegt
að kynna hann betur fyrir
tékkneskum neytendum, enn.-
fremur matbúning hans og
fleira þessháttar. Með þetta
fyrir augum er einn af með-
limum sendinefndarinnar deild-
arstjóri í tékkneska matvæla-
ráðuneytinu.
Kona handtekin
fyrir milljónarán
Lögreglan í London hefur
handtekið konu, sem granuð er
um að hafa átt þátt í mesta
ráni sem framið hefur verið
þar í borg um árabil.
1 síðustu viku var tösku
með gimsteinum, sem metnir
era á um átta milljónir króna,
stolið úr bíl á götu í borginni.
Ræninginn, sem var karlmaður,
opnaði hurð á bíl sem stöðvast
hafði við mmferðaljós og hrifs-
aði töskuna af fulltrúa gim-
steinasala sem í bílnum var.
Ránið var framið þegar um-
ferðin er mest og ræningjan-
um tókst að hverfa í mann-
þröngina á götunni.
Lögreglan segir, að ránið
beri með sér, að það hafi verið
mjög vandlega undirbúið.
Sinatra syngur á
flokksþingi
Dægurlagasöngvarinn Frank
Sinatra á að syngja þjóðsöng
Bandaríkjanna við setningar-
athöfn flokksþings demókrata í
Chicago 13. ágúst. Skipulags-
nefnd flokksins hefur átt í
löngum samningum við söngv-
arann, sem um þessar mundir
er að leika í kvikmynd á Spáni.
Lömunarveikl
í Oiicago
Lömunarveikifaraldur geng-
ur nú í Chicago. Hafa 194
sjúklingar lamazt, þar af 65
af hundraði börn innan fimm
ára aldurs. Bólusetningu við
lömunarveiki verður hraðað
sem hægt er sökum faraldurs-
ins.
Earl Long, fylkisstjóri Lous-
iana í Bandaríkjunum, hefur
undirritað og þar með gert að
lögum framvarp sem leggur
algert bann við að hvítir menn
og svartir taki þátt í íþrótta-
keppnum og skemmtunum
saman.
Bannað er að efna til sam-
kvæma, dansleikja, skemmtana
eða kappleikja, „þar sem með-
al þátttakenda era bæði menn
af hvítum og svörtum kyn-
stofni," segir í lögunum. Á
leikvöngum og þar sem
skemmtanir fara fram skulu
kynþættirnir sitja hver útaf
fyrir sig og séð skal fyrir „að-
skildum snyrtiklefum, drykkj-
arbrannum og öðrum þægind-
um fyrir kynþættina hvorn um
sig.“
Dvöl nefndarinnar hér á landi.
Auk þess sem tékkneska
sendinefndin mun eiga viðræð-
ur við fulltrúa ríkisstjórnar-
innar, SlS og Sölusambands-
ins mun hún ferðast nokkuð
um landið og kynna sér stað-
háttu og atvinnulíf hér á landi.
Nefndannenn munu einn dag
fara til sjós á bát frá Akra-
nesi, þeir munu fljúga til Siglu-
fjarðar og kynna sér þar verk-
un síldar. Auk þess munu þeir
ferðast til Gullfoss og Geysis.
Nokkra eftir að dvöl sendi-
nefndarinnar lýkur hér á landi
munu hefjast í Reykjavík
samningaviðræður um viðskiptl
milli Tékkóslóvakíu og Íslands.
Formaður samninganefndarinn-
ar verður Frantisek Schlégl,
sem er einn af meðlimum hinn-
ar stjórnskipuðu nefndar.
Dönsk þingmannanefnd var á ferð í Sovétríkjunum í
sumar í boði Æðsta ráðsins. Hér heilsast þeir Gustav Peder-
sen, forseti danska þingsins (til hœgri) og M. P. Tarasoff,
forseti neðri deildar Æðsta ráðsins.